Morgunblaðið - 25.02.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.02.1979, Blaðsíða 1
47. tbl. 66. árg. SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Grænland: Olíu leitað við austurströndina Olíuvinnslan hefst í Iran innan 15 daga Teheran 24. febr. AP. HAMIR Entezam, aðstoðarforsætisráðherra írans, sagði á iaugardag að olíuútflutningur frá íran hæfist innan fimmtán daga en hvorki treysti hann sér til að nefna ákveðinn dag né að segja til um, hversu magnið yrði mikið. Entezam sagði á blaðamannafundi, að í undirbúningi væri ítarieg skýrsla um olíumálið og ástandið að því leyti í íran. Framleiðslan er nú 700 þús. olíuföt á dag sem nægir til innanlandsþarfa. Aður var framleiðslan 6 millj. olíu- föt á dag og fóru um 5.4 millj. til útflutnings. Nú er ekki búizt við að meira en 2.4 millj. olíuföt verði seld til útflutnings, að minnsta kosti ekki til að byrja með. Flestir verkamanna í olíuiðnaðinum hafa að hvatningu Khomeinis snúið aftur til starfa eftir verkföll og skærur þar um langa hríð. Entezam viðurkenndi, að ókyrrð hefði verið í Kurdestan síðustu daga en 2 millj. Kúrda búa í Vestur-íran eða í landamærahéruðunum við írak og þar hefur verið grunnt á því góða árum saman. Entezam sagði, að annars staðar í landinu væri ástand- ið að mestu eðlilegt. Skæruliðasveitir Khomeinis réð- ust í morgun, laugardag, inn í IBM-bygginguna í Teheran, sem er í miðborginni. Kváðust þeir gera það til að ganga úr skugga um að IBM væri ekki í tengslum við CIA eða Savak ellegar að vinna í þágu Isra- ela. Þeir bandarísku starfsmenn IBM, sem þar voru, eru allir farnir en á fjórða hundrað íranskra starfs- manna vinnur þar. Bazargan forsætisráðherra bætti fimm nýjum ráðherrum við stjórn sína í morgun og fréttaskýrendum ber saman um, að ríkisstjórnin sé smátt og smátt að ná undirtökunum og tryggja sig í sessi. Olíuleit hefst á landgrunninu undan austurströnd Grænlands á vori komanda. Annars vegar verður leitað á svæði sem nær frá Germaníu-landi í norðri til Scoresbysunds, og hins vegar á svæði suður af landi Kristjáns konungs níunda. Á þessu svæði er að finna setlög frá Júra-tímabili jarðsögunnar og binda jarð- fræðingar miklar vonir við að olíu sé að finna á þessum svæðum. Stelagamyndunin undan austur- strönd Grænlands svipar til setlanganna í Norðursjó, að því er fram kemur í Berlingske Tidende. Setlögin eru um 100 milljón ára gömul og er talið að olíu sé að finna í ákveðnum setlaga„dældum“. Eng- inn árangur verð að olíuleit við Mikið mannfall í bardögum innan landamaera Víetnams Kínverjar segjast ekki hafa lokid „refsiherferð” sinni Reiknað er með að olíuleitin við austurströnd Grænlands hefjist í fyrstu viku maí-mánaðar. Leitin verður fjármögnuð af danska ríkinu, og ef til villl einnig af Efnahagsbandalagi Evrópu. Stjórn leitarinnar verður i höndum Græn- landsmálaráðuneytisins danska. Það er stundum vissara að taka forskot á sæluna og það gerir þessi ungi borgari með þeim tilþrifum scm vera ber gagnvart jafn girnilegri bollu, en bolludagurinn er einmitt á morgun og því ástæða til að minna menn á flenginguna í fyrramálið. Ljósmynd Mbl. Kristján vesturströnd Grænlands, en jarð- fræðingar telja meiri líkur á að olía finnist við austurströndina. Jarðfræðingar telja einnig að olía kunni að leynast í jarðskorp- unni á Norður-Grænlandi. Berg- lagamyndun þar er náskyld og ef til vill gamall hluti af berglaga- myndunum eyja norðan við Kanada, en þar hefur víða fundist olía. Bangkok, New York, Washington, 24. febrúar. AP. Reuter. TIL MIKILLA bardaga kom milli hersveita Kínverja og Víetnama á þremur stöðum innan iandamæra Víetnam að því er segir í frétt Hanoi-útvarpsins í morgun. Sagt er að nokkurt mannfall hafi orðið í liði beggja að því er fréttir frá Bangkok herma í morgun. í frétt útvarpsins segir, að mestu bardagarnir hafi verið í Cao Bang-héraði norður af Hanoi, sérstaklega við mikilvæga aðflutningsleið Víetnama, svo- kallaða leið 4, en Kínverjar hafi verið hraktir á flótta og mikið af skriðdrekum og öðrum vopnum verið eyðilagt. Þá segir útvarpið að hundruðir Kínverja hafi verið felldir. I miklum bardögum sem voru í Hoang Lien-héraði segjast Víetnamar hafa fellt yfir fimm hundruð Kínverja og eyðilagt 73 skriðdreka. Þá var einnig sagt frá átökum í Lang Son-héraði þar sem Víetnamar segjast hafa þurrkað út heilt herfylki Kínverja. Ekki hafa borist neinar fréttir um þessa bardaga frá Kína, en haft var eftir talsmanni stjórnar- innar í Peking í dag að „refsiferð" þeirra gegn Víetnömum væri enn ekki lokið. Yrði sjálfsagt ekki lokið fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku því þeir ættu enn eftir að „tukta" Víetnam nokkuð til. Þá var haft eftir ónafngreindum embættis- manni í Peking í dag, að Kínverjar yrðu ekki jafn eftirgefanlegir í deilum sínum við Víetnama eins og þeir voru í landamæradeilum sínum við Indverja 1962. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna koma. saman í gærkvöldi að kröfu Bandaríkjamanna með stuðningi nokkurra annarra vestrænna ríkja. Frummælandi á fundi ráðs- ins var Andrew Young sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum og vöktu ummæli hans nokkra athygli, þar sem hann gerði kröfu um að bardögum yrði hætt nú þegar, og að Kínverjar hefðu engu meiri rétt.til að ráðast inn í Víetnam heldur en Víetnam- »r að ráðast inn í Kambódíu á sínum tíma. Fundi ráðsins var síðan frestað þar til í kvöld, þegar taka átti upp þráðinn að nýju. Bírœfnir þjófar Montreal, 24. febrúar. Reuter. FURÐU lostnar húsmædur héldu að þær væru að fylgjast með kvikmyndatöku þegar mað- ur og kona komu svífandi í þyrlu yfir iðandi mannkösinni í stærsta verzlunarhverfi Montreal í morgun vopnuð byss- um og rændu 12 þúsund dollur- um í banka einum. að því er segir í fréttum þaðan í morgun. En þetta var allt saman fúlasta alvara, hjúin flúðu aftur með þyrlunni undan skothríð öryggis- varða. Þyrluflugmaðurinn var jafn undrandi á ósköpunum og fólkið á jörðu niðri en otað var að honum byssu og honum sagt að lenda á bílastæði ekki allfjarri. Þaðan flúðu hjúin til nærliggj- andi járnbrautarstöðvar og hurfu sjónum lögreglu. Eru umtalsverðar breytingar á veðurfari á nœstu grösum? Genf. 23. febrúar, Reuter. VEL MERKJANLEGAR breytingar á veðurfari heimsins gætu orðið á næstu tíu árum eí haldið verður áfram á núverandi braut tillitsleysis við umhverfið er niðurstaða ráðstefnu þrjú hundruð sérfræðinga um veðurfar sem lauk í Genf í gær, segir í fréttum þaðan. Ekki segjast sérfræðingarnir geta gefið ná- kvæma lýsingu á væntanlegum breytingum, en ef haldið verður áfram eldsneytisbrennslu í sama mæli og hingað til, muni vaxandi magn koldíoxíðs, co2, í andrúmsloftinu gera það að verkum að hitastig á jörðinni muni aukast nokkuð á. næstu Einnig gæti orðið marktæk breyting á úrkomu innan tíu ára segja sérfræðingarnir. I lokaorðum yfirlýsingar sérfræðinganna segir, að nauðsynlegt sé að efla mjög samvinnu um rannsóknir á umhverfi manna til að ekki hljótist óbætanlegt tjón af. Dr. Robert White forseti ráðstefnunnar sem haldin er á vegum Alþjóða veðurfræðistofn- unarinnar, WMO, sagði á fundi með fréttamönnum í gær að mannfólkið gæti einnig haft veruleg áhrif á veðurfarið með aukinni leysni fluorocarbons, sem gæti rýrt ózonhjúp jarðarinnar á næstu árum, en ózonlagið er helzta vörn jarðarbúa gegn hættuleg- um sólargeislum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.