Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1981 47 • Hinn kunni körfuknattleiksmaður Jón Sigurðsson, KR, er fyrirliði landsliðsins. Jón hefur leikið i flestum landsleikjum fyrir Islands hönd, alls 82. „Þeim síðasta mætti ég klukkan hálffjögur“ — Agabrotin eru innan- hússmál HSÍ, segir for- maðurinn í viðtali í nýútkomnu íþróttablaði er viðtal við formann HSÍ, Júlíus Hafstein. bar er fjallað um og reynt að grafast fyrir um ófarir landsliðsins í handknattleik í Frakklandi. Ýmislegt athyglisvert kemur fram í viðtalinu. Hér á eftir fara glefsur úr viðtalinu. — Hvers vegnar var hugarfar- ið annað en þegar leikið var við heimsmeistarana og Olympíu meistarana? Erum við svona óstöðugir? — Já, við erum óstöðugir og margar ástæður hægt að nefna til þess. Það er t.d. rétt að það þarf miklu meiri undirbúning fyrir svona keppni en raun varð á hjá okkur. Vandamál komu upp, það er annað mál, þau þarf að fyrir- byggja, en ég álít þau innan- hússmál HSI, þau eru ekki alvar- legri en það. - Þú heldur því fram, að frá þvi að þið hélduð utan 19. febrú- ar og þar til þið lékuð siðasta leikinn 28. febrúar, hafi ekki verið um vinneyslu að ræða hjá leikmönnum? — Okkur sem stóðum að ferð- inni er ekki kunnugt um það, og ekkert bendir til að svo hafi verið. Ég hafna svona sögusögnum al- farið. — Tölum ekki bara um vin- neyslu leikmanna, en þeir fóru 1 bjórinn? — Ekki er mér kunnugt um það. — Það var sem sagt engum leikmanni refsað eða hann settur út úr liðinu vegna neyslu áfengra drykkja, víns eða bjórs? — Nei. — Fullyrðir þú fyrir hönd HSÍ, að um slikt hafi ekki verið að ræða? — Að sjálfsögðu fullyrði ég það, meðan ég veit ekki annað. — Ég veit, að það kom fyrir oftar cn einu sinni, að leikmenn laumuðust út og laumuðust heim undir morgun. — Það er ekki rétt að það hafi komið fyrir oftar en einu sinni og að þeir hafi komið heim undir morgun er heldur ekki rétt. Þetta vandamál sem ég var að tala um var á þá leið að nokkrir leikmenn fóru i gönguferð seint um kvöld og komu flestir fljótlega heim, en þeim siðasta mætti ég sjáifur klukkan hálffjögur. — Kallar þú ekki hálffjögur um nótt, rétt fyrir leik, að koma heim undir morgun? — Jú vissulega, enda voru þeir er síðast komu heim ekki með í leiknum um kvöldið. — Sást þú vín á þessum manni? - Nei. — Hversu stór hópur átti þátt í þessu agabroti, sem þú kallar svo? — Það voru sex menn. — Þriðjungur landsliðsins? - Já. — Áttu þessi agabrot þátt i útreiðinni sem við fengum? — Nei, mér er alveg sama hversu hátt menn hrópa um það, ég vísa því algerlega á bug. — Áður en þú heldur áfram vil ég fá að koma inn á þjálfara- málin. Eftir keppnina i Dan- mörku var mörkuð sú stefna að ráða einn þjálfara til að sjá um liðið næstu fjögur ár og var Jóhann Ingi Gunnarsson ráðinn. Siðan gerist það i sumar vegna ágreinings um laun. sem sumir vilja halda fram að hafi verið tittlingaskitur, að hann hættir og Hilmar tekur við? — Það væri gleðiiegt að þeir sem nota orðið tittlingaskítur í þessu sambandi tækju sig saman um að greiða mismuninn á því sem við treystum okkur til að greiða og þeim kröfum sem Jó- hann Ingi gerði. Sjálfsagt eru þeir menn til þess. Það voru á milli „litlar" 7 milljónir gkr. íslenska landsliðið í körffu valið: Þrír landsleikir gegn Finnum í næstu viku EINS OG ÁÐUR hefur komið fram tekur islenska landsliðið í körfuknattleik þátt i C-riðli Evrópukeppninnar í körfuknattleik sem fram fer í Sion í Sviss 12.—16. apríl nk. í riðli með íslenska landsliðinu eru Portúgal, Sviss. Luxemborg, Skotland og Alsir. Fyrsti leikur islenska liðsins er gegn Portúgal 12. apríl. B-riðill keppninnar fer fram i Jersey Englandi og i þeim riðli eru eftirtaiin lið. England. Austurriki, írland, Noregur. Danmörk og Lýbía. Fer efsta liðið í hvorum riðli upp í B-riðil. Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir til að leika með landsliði íslands í Evrópukeppni i Sviss 12.—16. apríl nk. Nafn: Félag: Aldur: Ilæð: Landsl.: Ágúst Lindal KR 23 180 3 Gisii Gisiason ÍS 25 182 2 Gunnar borvarðarson UMFN 30 190 58 Jón Sigurðsson, fyrirl. KR ^ 30 185 82 Jónas Jóhannesson UMFN 25 202 31 Kristinn Jörundsson ÍR 30 183 54 Kristján Ágústsson Valur 26 192 24 Pétur Guðmundsson Valur 22 218 22 Ríkharður Ilrafnkelsson Valur 23 185 34 Simon óiafsson Fram 24 200 39 Torfi Magnússon Valur 194 49 Valur Ingimundarson UMFN 18 193 1 Þeir borvaldur Geirsson og Jón Jörundsson hafa verið valdir tii vara ef einhverjir þeirra 12 sem eru í hópnum meiðast. Islenska landsliðið í körfu- knattleik hefur æft mjög vel að undanförnu og undirbúið sig eins vel fyrir C-keppnina eins og nokk- ur kostur er. Um þessa helgi dvelur liðið í æfingabúðum, og mun æfa af kappi í Borgarnesi. I næstu viku sækja Norðurlanda- meistarar Finna í körfuknattleik okkur heim og leika hér þrjá leiki. Landsliðið fær því verðugt verk- efni áður en það heldur utan. En landsliðshópurinn fer ekki beint í C-keppnina. Fyrst verður haldið til Skotlands og þar verða leiknir þrír landsleikir, gegn Englandi, Wales og Noregi. Þaðan verður haldið til Belgíu og leikinn lands- leikur gegn Belgum. Jafnframt verður æft þar í nokkra daga. Síðan verður haldið til Sviss í sjálfa lokakeppnina. Það er því alveg ljóst að landsliðshópurinn fer vel undir lokakeppnina búinn. Einar Bollason landsliðsþjálf- ari, sagði á blaðamannafundi í fyrrakvöld að það væri alveg raunhæft að gera sér vonir um sigur gegn Portúgal, Luxemborg og Alsír. Róðurinn yrði hinsvegar erfiður gegn Skotlandi og Sviss- lendingar væru mjög sterkir og sigruðu sennilega í riðlinum. ís- lenska landsliðið í körfuknattleik hefur náð ágætum árangri í síð- ustu leikjum sínum og greinilega verið í framför. Vonandi verður áframhald á því. - ÞR. Vorlaukamir, fyrstu vorboðarnir, eru komnir. Eigum nú mjög gott úrval allskonartegunda; Dahlíur, Begoníur, Gladiolur, Amaryllis, Liljur o. m. fl. Hafberg Þórisson, garðyrkjufræðingur, veitir viðskiptavinum þessa helgi faglega ráðgjöf um vorlauka og meðferð þeirra. Komið við í Blómaval um helgina. Opið frá kl. 9-21 ____ v *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.