Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ1984 Aðalfundur Vinnuveitendasambands íslands 1984 verður haldinn í dag, þriðjudaginn 15. maí, í Kristalssal Hótels Loftleiða Páll Sigurjónsson Jón Sigurösson Brynjólfur Bjarnason 1 Gunnar J. Friöriksson Víglundur Þorsteinsson Ragnhildur Siguröur R. Helgadóttir Helgason Dagskrá: Kl. 09.30 Fundarsetning. Ræða: Páll Sigurjónsson formaöur VSÍ Ræöa: „Hugleiöing um brýn verkefni í atvinnu- rekstrinum". Jón Sigurðsson framkv. stj. ísl. járnblendi- félagsins. PallborösumraBöur: Framtíö atvinnurekstrar á islandi. Þátttakendur: Brynjólfur Bjarnason framkvæmdastjóri. Jón Sigurösson framkvæmdastjóri. Siguröur R. Helga- son framkvæmdastjórl. Víglundur Þorsteinsson formaö- ur FÍI. Umræöustjóri: Gunnar J. Friöriksson forstjóri. Kl. 12.15 Hádegisveröur aöalfundarfulltrúa og gesta. Kl. 13.30 Ræöa: „Atvinnulíf og menntamál". Ragnhildur Helga- dóttir menntamálaráðherra. Kl. 14.15 Aöalfundarstörf skv. ákvæöum 30. gr. laga VSl. Kl. 17.00 Fundarslit. HELLA KR. 11.515> VIFTA 100 sm br KR. 5.323,- BLÁSTURSOFN KR. 20.958,- OFN KR. 16.623.- Víj verös greiðist við móttöku. Afgangur greiðist á 6-8 mánuðum. ^ SAMBANDSINS ÁRMÚLA 3 SÍMAR 38 900 - 38 903 Norrænn seiður Myndlist Bragi Ásgeirsson Það er ekki langt síðan að at- hygli manna beindist að mál- verkum Jóhönnu Kristínar Yngva- dóttur er þessa dagana sýnir 25 myndir í Listmunahúsinu. Fyrst vöktu verk hennar mikla athygli á sýningunum „Ungir myndlist- armenn“ á Kjarvalsstöðum og „Gullströndin andar" við Sels- vör, og svo undirstrikaði hún hæfileika sína með svipmikilli einkasýningu í Nýlistasafninu, — allt þetta á sama árinu. Einn- ig hélt hún sýningu í Landspítal- anum en af henni hafði ég engar spurnir. Jóhanna hafði stundað list- nám hér heima og í Hollandi í nær áratug og málað sjálfstætt ( nokkur ár áður en hún kom fyrst fram opinberlega. Hér var þann- ig enginn asi á ferð og fyrir vikið birtist hún sem óvenju þroskað- ur og fágaður listamaður. Þetta er eitthvað annað en með létt- vægar sýningar ungs fólks, sem helst telur sér til tekna, að það hafi ekkert lært — jafnvel hefur það takmarkaðan áhuga á myndlist almennt. Aðalatriðið er þá sjálfið og að troða upp með sýningu. Sem betur fer fer þeim myndlistarmönnum fjölgandi sem gera miklar kröfur og eru auk þess farnir að vakna til vit- undar um norrænan uppruna sinn. Jóhanna Kristín er mjög gott dæmi um listamann sem meðvitað eða ómeðvitað málar samkvæmt norrænu upplagi. Myndir hennar eru margar dökkar og tormeltar þeim er leita að björtum litum og glað- legu myndefni, — en um leið eru þær gæddar miklu innra lífi og sálrænum víddum. Það sem helst hrífur er hve hin mynd- ræna taug virðist samgróin eðli listakonunnar. Sjálf segist hún alltaf vera að mála sjálfa sig og sínar tilfinningar og það er ber- sýnilega alveg rétt. Svo er og með alla sanna málara, að þeir eru sífellt að mála sitt eigið sjálf. Hinir eru miklu fleiri, sem eru að mála samkvæmt gefinni línu og þar með út frá annarra tilfinningum. Sennilega er Jó- hanna skýrasta dæmið um manneskju er málar eftir eigin höfði er hér hefur komið fram í mörg ár. Það er einkum í hinum dökku og seiðmögnuðu myndum er hæfileikar Jóhönnu koma greini- legast fram en hún getur þó einnig náð mjög sannfærandi árangri í ljósum myndum er hafa yfir sér létt og leikandi svipmót. Dökku myndirnar virka miklu frekar á mig sem sterk og hrifmikii lifstjáning heldur en að þær veki upp þungar hugsanir og það sem meginmáli skiptir: þær vinna stöðugt á við nánari kynni. Eitt er mjög sláandi við myndgerð Jóhönnu og það er hve hún hgusar mikið í heildaráhrif- unum — smáatriði lætur hún lönd og leið, — hér er það allt samanlagt myndverkið sem gild- ir. — Hér er á ferð listakona er vafalaust á eftir að taka út mik- inn þroska, móta og fága stíl sinn og kanna nýjar leiðir á þeg- ar skýrt mörkuðu sviði. Það verður vissulega spennandi að fylgjast með framvindunni og Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur fylgja allar góðar áokir. Verk eftir Jóhönnu K. Yngvadóttur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.