Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ1984 Í4 Garður: Tónlistarskólanum B.B. BYGGINGAVÖRUR HE SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. slitið í fimmta sinn Garti, 13. maí. TÓNLISTARSKÓLANUM var slitið ( dag að loknum tónleikum nem- enda. Kom þar fram fjöldi nema sem spiluðu á píanó, blokkflautur, fiðlu og klarinett. Þá lék bjöllukór- inn sem hefir aldrei verið betri en nú og vakti mikla athygli viðstaddra. Kiwanisklúbburinn Hof verð- launaði þann nemanda sem sýndi hvað mestar framfarir í vetur og hlaut þau Svanhildur Eiríksdóttir. Þá verðlaunaði Kvenfélagið Gefn Herborgu Hjálmarsdóttur fyrir bestan árangur í undirbúnings- deild. Tónlistarskólinn er útibú frá skólanum í Keflavík. Skólastjóri er Herbert H. Ágústsson og „úti- bússtjóri" er Jónína Guðmunds- dóttir. Arnór þríþætt: í fyrsta lagi að vatn kemst að steypunni, í öðru lagi að sement- ið er alkalívirkt og í þriðja lagi að sandurinn er virkur. Þessir þrír þættir snúa að ólíkum aðilum. Sá fyrsti að verktökum og hönnuðum, annar að sementsverksmiðjunni og sá þriðji að steypustöðvunum. Birgir ísleifur sagði að allt tal um ábyrgð aftur í tímann væri nú aðeins „akademísk" spurning, þar sem Hæstiréttur hefði þegar tekið af skarið. Það sem bæri að gera, væri að breyta þessum lögum þannig að framleiðendur væru ábyrgir í raun fyrir vöru sinni. Voru flestir sammála þessu og tal- aði Pétur Blöndal um 15 ára firr- ingarfrest sem æskilegan. Pólitísk lausn Skoðanir voru mjög skiptar um það hvort eða hvernig ætti að leysa vanda þeirra, sem ættu við alkalí- skemmdir að glíma. Sagði Pétur ótækt annað en að stjórnmálamenn legðu höfuðið í bleyti og finndu við- eigandi lausn. Stakk hann upp á viðlagatryggingu, þar sem tjónið hefði verið jafn ófyrirsjáanlegt og það tjón, sem hlaust af eldgosinu í Vestmannaeyjum á sínum tíma, og væri óréttlátt að þeir óheppnu bæru einir skaðann. Birgir ísleifur Gunnarsson var á sama máli og taldi eðlilegt að viðiagatrygging yrði notuð í þessu tilfelli. Hvað er til varnar? Það hefur komið í ljós, að hægt er að varna alkalískemmdum með því að nota óvirkan sand, þrátt fyrir að sement með alkalívirkni sé haft í steypunni. Og það er sú leið sem menn hafa farið undanfarið til að losna við bölið. Hins vegar leysir þetta ekki vanda þeirra fjölmörgu húseigenda, sem steyptu hús sín með „gamla laginu“ og geta því átt von á því hvenær sem er að alkalí- skemmda fari að gæta, en alkalí- skemmdir hafa aðeins fundist í ‘A þeirra húsa sem steypt voru á þennan hátt. Hákon Ólafsson sagði, að markmið þessara íbúðareigenda ætti fyrst og fremst að vera að varna því að vatn kæmist inn í steypuna. Það mætti gera á tvenn- an hátt, með notkun sílíkon eða sílonefna, sem eru vatnsfráhrind- andi efni, sem borin eru utan á steinsteypta veggi. Þessi efni eru þeim eiginleika búin að hrinda frá sér öllu vatni, en hleypa þó út þeim raka sem fyrir er í steypunni. Hitt ráðið væri einfaldlega að klæða steypuna. Það kom einnig fram á fundin- um, að mikill skortur væri á menntuðu fólki til viðgerða á þessu sviði og töldu menn nauðsyh á að bæta úr því og eins að efla ráðgjaf- arþjónustu, sem gæti veitt upplýs- ingar um besta viðhaldið í hverju tilfelli. „Það verður að finna pólitíska lausn á vanda þeirra fjölmörgu íbúð- areigenda á höfuðborgarsvæðinu, sem hafa orðið fyrir tjóni af völdum alkalískemmda. Hér er um að ræða tjón upp á tvo til þrjá milljarða króna og nú þegar Ijóst er, að Hæstiréttur hefur firrt framleiðendur ábyrgð, verður hið opinbera að ganga fram fyrir skjöldu og hjálpa þessum óheppnu íbúðareigendum. Væri æski- legt að vandi þessa fólks yrði leystur á þann hátt að hið opinbera veitti til þess lán eða viðlagatrygging tæki að sér að bæta tjónið," sagði dr. Pétur Blöndal, formaður Húseigendafélags Reykjavíkur, á borgarafundi, sem fé- lagið efndi til á laugardaginn á Hótel Borg, þar sem fjallað var vítt og breitt um alkalí og steypuskemmdir f steinhúsum. Eftir ávarpsorð Péturs voru fiutt þrjú framsöguerindi, af þeim Hákoni Olafssyni, yfirverkfræð- ingi Rannsóknarstofnunar byggingar- iðnaðarins, Hrafni Bragasyni, borg- ardómara, og Birgi fsleifi Gunnars- syni, alþingismanni. Fundinum lauk síðan með pallborðsumræðum, þar sem framsögumenn og fleiri svöruðu fyrirspurnum úr sal. Var fundurinn vel sóttur. Umræðan snerist fyrst og fremst um þrjú atriði: hver bæri ábyrgð- ina á alkalískemmdum í steinhús- um, hvernig væri hægt að aðstoða það fólk sem orðið hefði fyrir tjóni Frá pallborðsumræðunum á fundinum á Hótel Borg. Frá vinstri: Jóhann Einvarðsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, en hann tók þátt i umræðunum í fjarveru Alexanders Stefánssonar félagsmálaráðherra, Guðmundur Guðmundsson, tæknilegur framkvæmdastjóri Sementsverksmiðju ríkisins, Ögmundur Jónasson, stjórnandi umræðnanna, Pétur Blöndal, formaður Húseigendafélags Reykjavíkur, Hákon Ólafsson, yfirverkfræðingur, Hrafn Bragason, borgardómari, og Birgir ísleifur Gunnarsson, alþingismaður. MorgunbiaaM/jíifiu. af þess völdum og hvað bæri að gera í framtíðinni til að koma í veg fyrir frekari skemmdir af þessu tagi. Ábyrgðin Hrafn Bragason sagði að dómur Hæstaréttar í fyrra í máli Jóns Sigvaldasonar, sem Jón höfðaði gegn framleiðanda vegna ótíma- bærra skemmda í steypu i húsi sínu, hefði í raun firrt framleiðend- ur ábyrgð. Úrskurður Hæstaréttar byggðist meðal annars á 54. grein kaupalaga, þar sem kveðið er á um að ábyrgð seljenda sé aðeins til eins árs þegar um lausafé er að ræða. Sagði Hrafn að eftir þennan fólk hefði sett verðið mjög fyrir sig og þvf hefði Steypustöðin orðið undir í samkeppninni ef hún hefði ekki haft ódýrari vöru á boðstólum einnig. Sveinn spurði síðan hvort hið opinbera væri ekki ábyrgt í til- felli eins og þessu, að setja ekki löggjöf, sem skyldaði notkun efnis sem ekki væri alkalívirkt. Hákon Ólafsson svaraði því til, að á þessum tíma hefðu menn hreinlega ekki trúað því að notkun alkalívirks sands í íbúðarhúsnæði gæti haft svo alvarlegar afleið- ingar í för með sér, sem raun ber vitni. Fyrsta alvarlega dæmið um slíkar skemmdir var árið 1975 og síðan hefði það tekið menn nokkur ár að átta sig á umfangi vandans. Birgir Isleifur Gunnarsson benti jafnframt á að eftirlitsskylda rikis og sveitarfélaga firrti ekki fram- leiðendur vörunnar ábyrgð. Ennfremur töldu menn að verk- takar og hönnuðir ættu einnig sinn þátt f alkalískemmdum, því oft væri orsök skemmdanna slæleg vinnubrögð við sjálfa steypuvinn- una og eins hirtu arkitektar ekki nóg um að hanna hús út frá end- ingarsjónarmiði. Pétur Biöndal tók þetta vandamál saman á eftirfar- andi hát.t: Orsök alkalískemmda er Fundur um alkalískemmdir: Á að bæta tjón með viðlagatryggingu? dóm væri það borin von fyrir þá sem orðið hefðu fyrir barðinu á alkaliskemmdum að krefja steypu- stöðvar eða Sementsverksmiðju ríkisins skaðabóta. Margir fundarmanna vöktu at- hygli á því, að spurningin um ábyrgð væri flóknari en virtist við fyrstu sýn. Sveinn Valfells, fram- kvæmdastjóri Steypustöðvarinnar hf., las upp úr auglýsingu frá Steypustöðinni árið 1967, þar sem varað var við notkun virks sands og mælt með notkun óvirks sands, sem er ívið dýrari. Sagði Sveinn að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.