Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 15. MAÍ 1984 5 MEST SELDIBÍLL Á ÍSLANDI Frá því FIAT UNO vai kynntui á miöju s.l. áii hefur hann selst meira en nokkui annœ einstakur bíll hér á landi. BILL FAGURKERANS ÍTÖLSK HÖNNUN, KLASSÍSK FEGURÐ BíU arsins 1984 Unol EGILL vilhjAlmsson hf. Smidjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202. viku, á þriöjudögum og lostudögum. Á myndinni eru: Sigurlín Margrét Sigurðar- dóttir, kennari, Jóna Þóröardóttir, Haraldur Erlendsson, Jón Sætran, Steinunn Sigurþórsdóttir, Bryndís Ploder, Sigrún Hjartardóttir, Súsanna Gunnarsdóttir, Guórún Árnadóttir, Rannveig Gísladóttir, Bryndís Hannesdóttir og Lilja Viðars- dóttir. Ljósm. Mbl. KEE. Námskeið í táknmáli heyrnarlausra: Læra stafróflð og dagleg tákn NÁMSKEIÐ í táknmáli heyrnar- lausra stendur nú yfir í húsakynnum félags heyrnarlausra aó Klapparstíg 28 í Reykjavík. Kennari á námskeið- inu er heyrnarlaus stúlka, Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, og kennir hún 10 manna hópi tvisvar f viku næsta mánuðinn, en námskeiðið hófst 8. maí slíðastliðinn. Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri elliheimilisins Grundar, veitti kirkju heyrnarlausra styrk að upp- hæð 25.000 krónur til að fjármagna námskeið í táknmáli heyrnarlausra fyrir almenning. Miyako Þórðarson, prestur hjá kirkju heyrnarlausra, hafði samband við vinnuveitendur þar sem bæði heyrandi og heyrnar- lausir vinna, og bauð hinum heyr- andi að taka þátt í námskeiðinu til að efla mætti samskipti og koma á tengslum milli hinna heyrandi og heyrnarlausu. Fjöldi þátttakanda er takmark- aður við tíu manns á hverju nám- skeiði, en ef vel gengur sagði Sigur- lín Margrét að svo kynni að fara að fleiri námskeið af þessu tagi yrðu haldin. Styrkur Gísla Sigurbjörns- sonar nægir fyrir kennaralaunum og kennslugögnum, svo námskeiðið er þátttakendum að kostnaðar- lausu. Sigurlín Margrét segist fyrst og fremst kenna stafrófið og dagleg tákn, en ennfremur væri áhersla lögð á látbragð, því það væri stór hluti tjáningarforms heyrnar- lausra. Sigurlín sagðist lítil sem engin kennslugögn hafa í höndun- um og því þyrfti hún ásamt sr. Mivni fvrir hveria kennslustund. 40 ára söngafmæli Hauks Morthens: 20 manna Big Band, kórar. dansflokkur og lúðrasveit IIIJÓMLEIKAR í tilefni 40 ára arness undir stjórn Stefáns - HUÓMLEIKAR í tilefni 40 ára söngæfmælis Hauks Morthens verða haldnir í Háskólabíói nk. fímmtudagskvöld og hefjast kl. 23. Þarna koma m.a. fram Big Band undir stjórn danska píanó- leikarans Poul Godske, sem hef- ur leikið undir með Hauki í ca. 150 lögum, sem hafa verið gefin út á hljómplötum. Godske var fyrir nokkrum árum kjörinn jazz-píanisti ársins í Danmörku og stjórnar hann nú hljómsveit i hinum þekkta skemmtistað Lorry. Þá mun Sigríður Ella Magn- úsdóttir, óperusöngkona, koma fram og Bubbi Morthens mun koma með gítarinn og taka lag- ið. Lúðrasveit Barnaskóla Laug- arness undir stjórn Stefáns Stephensens mun leika nokkur lög og Barnakór Fellaskóla syngur. Hrönn Geirlaugsdóttir mun spila nokkur ragtime-lög á fiðlu. Lögreglukórinn undir stjórn Guðna Guðmundssonar, organ- ista, mun syngja og dansflokk- urinn Mistakes sýnir nýja dansa. Þeir hljómlistarmenn, sem leika undir söng Hauks Morth- ens sjálfs, eru allir þekktir úr ýmsum hljómsveitum í Reykja- vík, sumir um áratuga skeið, alls um 20 manns. Gítarleikarinn Eyþór Þor- láksson mun leika nokkur klass- ísk gítarlög. Kynnir kvöldsins verður útvarpsmaðurinn Jónas Jónasson. Haukur Morthens Þar sem GÆÐI OG GLÆSILEIKl eru metin aö # MmmjSSTi veröleikum er C/«l(l« í fararbroddi Eldhús frá Alþingi í dag: Þinglausnir nk. mánudag? Útvarpað verður árlegum eldhús- dag.sumra'öum frá Alþingi í kvöld. Ekki verða fundir í þingdeildum í dag en nefndir munu starfa af krafti og línur lagðar um þingstörf næstu daga. Bjart-sýnismenn treysta enn á þing- lausnir nk. laugardag en það verður æ líklegra að þingstörf teygist fram yfir næstu helgi. Ræðumenn Sjálfstæðisflokks verða Þorsteinn Pálsson, formaður flokksins, Albert Guðmundsson fjár- málaráðherra, og Sverrir Her- mannsson, iðnaðarráðherra. Ræöu- menn hins stjórnarflokksins, Fram- sóknarflokks, verða Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, Jón Helgason, landbúnaðarráðherra, og/eða Atexander Stefánsson, fé- lagsmálaráðherra. Ræðumenn fjögurra stjórarand- stöðuflokka verða: frá Alþýðuflokki Kjartan Jóhansson, formaður flokksins, Jóhanna Sigurðardóttir og Karvel Pálmason; frá Alþýðubanda- lagi Svavar Gestsson, formaður flokksins, Guðrún Helgadóttir og Steingrímur J. Sigfússon; frá Banda- lagi jafnaðarmanna Stefán Bene- diktsson, Kolbrún Jónsdóttir og Guðmundur Einarsson og frá Sam- tökum um kvennalista Guðrún Agn- arsdóttir, Kristín Halldórsdóttir og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.