Morgunblaðið - 19.06.1985, Blaðsíða 1
72 SIÐUR MEÐ 12 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
135. tbl. 72. árg.___________________________________MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1985_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Flugránið í Beirút:
Mikil óvissa um
örlög gíslanna
Bandarískt herskip með víkingasveit
um borð fyrir utan strönd Líbanons
Beirát, 18. jóní. AP.
GRÍSKI söngvarinn Demis Roussos og tveir bandarískir gíslar fengu í
dag að fara úr TWA-farþegaþotunni, sem flugræningjar hafa enn á valdi
sínu á flugvellinum í Beirút. Nabih Berri, leiðtogi amal-shita í Líbanon
og dómsmálaráðherra landsins, sagði í dag, að þeir 40 gíslar, sem eftir
væru, hefðu verið fluttir burt frá flugvélinni í dag. Væru þeir geymdir á
ýmsum vandlega leyndum stöðum í Beirút og væri þriggja manna áhöfn
vélarinnar á meðal þeirra.
Flugvallarstarfsmaður fullyrti
hins vegar, að flugstjórinn, John
L. Testrake frá Bandaríkjunum,
væri þó enn um borð í vélinni.
„Menn í flugturninum töluðu við
hann í kvöld og var samtalið tekið
upp á band,“ sagði maðurinn. Aft-
ur á móti væru allir hinir gíslarn-
ir „örugglega" farnir frá borði.
Nabih Berri kvaðst sjálfur taka
allar ákvarðanir varðandi gíslana.
„Ég ábyrgist ekki bara líf þeirra.
Þeir fá gott að borða og það fer vel
um þá,“ sagði Berri. Þá ræddi
hann um fangelsið Atlit í Norður-
ísrael, þar sem 700 Líbanir eru í
haldi. Þessir fangar væru jafn
saklausir og gíslarnir í TWA-
þotunni. Kvaðst Berri vera undr-
andi yfir því, að Bandaríkjastjórn
hefði ekki þegar beitt Israelsmenn
þrýstingi til þess að láta Líbanina
lausa og sagði, að flugvélarmálinu
yrði örugglega lokið, áður en sól-
arhringur væri liðinn.
Söngvarinn Roussos bar flug-
ræningjunum vel söguna, benti á
hermenn amal-shita og sagði:
„Þessir menn, þessir vinsamlegu
menn, gáfu mér afmælisköku.“
Söngvarinn varð 39 ára gamall á
föstudag, eftir að ræningjamir
höfðu náð véliniii a sitt vald.
Stórt herskip sást í dag fyrir
utan strönd Líbanons. Sást til
skipsins, eftir að bandaríska varn-
armálaráðuneytið hafði tilkynnt
aö það myndi senda herskip á
vettvang, þar á meðal flugmóð-
urskip og víkingasveit til austur-
hluta Miðjarðarhafs. Gert var ráð
fyrir, að Robert C. McFarlane,
fulltrúi Reagans Bandaríkjafor-
seta, færi mjög bráðlega til Beir-
út.
Talsmaður ísraelska varnar-
málaráðuneytisins sagði í kvöld, að
afstaða þess væri óbreytt og að
þeir 700 líbönsku shitar, sem nú
eru í fangelsum í Israel, yrðu ekki
leystir úr haldi, nema því aöeins
að formleg beiðni um það kæmi
frá Bandaríkjastjórn.
Fyrirhugað var, að Reagan for-
seti héldi fund með fréttamönnum
kl. 8 í kvöld (á miðnætti að ísl.
tíma), þar sem hann gerði grein
fyrir gíslamálinu og svaraði
spurningum fréttamanna.
Sjá: FlugrániA í Beirút, bls. 32.
AP/Sfmamynd
Gríski þjódlagasöngvarinn Demis Roussos og bandarísk vinkona hans, Pamela Smith, voni í gærmorgun látin laus úr
bandarísku farþegaþotunni á Beirút-flugvelli, sem herskáir shitar hafa á valdi sínu. Leiðtogi shita í Líbanon, Nabih
Berri, sem er til vinstri á myndinni, hafði milligöngu um lausn þeirra. Ofar sést er bandarísku farþegaþotunni var
ekið framhjá jórdönsku þotunni, sem flugræningjar úr flokki shita sprengdu í loft upp á Beirút-flugvelli á miðvikudag
í fyrri viku.
Hörð átök í Afganistan:
Tuttugu flugvélar Kabúl-
stjórnarinnar eyðilagðar
18. júni. AP.
FRELSISSV EITIR Afgana eyði-
lögðu 20 flugvélar fyrir afganska
stjórnarhernum í síðustu viku.
Gerðist þetta í mikilli árás frels-
Lssveitanna á flugvöllinn í Shind-
Vaxtalækkun í
Bandankjunum
N«w Vork, 18. jónf, AP. **
ÞRÍR stærstu bankar Bandaríkjanna lækkaðu í dag forvexti um 0,5% niður
í 9,5%. Bankar þessir voru Morgan Guaranty Trust, Citibank og Bankers
Trust. Er þetta í fyrsta sinn, sem slíkir vextir hafa verið lægri en 10% hjá
nokkrum af stærri bönkum Bandaríkjanna allt frá því haustið 1978.
and í vesturhluta landsins. Er þetta
talið mikið áfall fyrir stjórnarher-
inn, þar sem þetta var nær fjórð-
ungur alls flugflota hans.
Þá hafa einnig borizt fréttir af
miklu mannfalli Sovétmanna í
hinum hörðu bardögum undan-
farnar vikur í Kunardal. Voru
særðir hermenn fluttir hundruð-
um saman flugleiðis til Kabúl,
höfuðborgar landsins, en flogið
með þá, sem verst voru farnir, til
Sovétríkjanna.
í fallbyssuskothrið frelsisveit-
anna fyrr i þessum mánuði á
búðir yfirmanna stjórnarhersins
í borginni Mazar-I-Sharif í norð-
urhluta landsins biðu um 60
manns bana.
í dag komu fulltrúar Kabúl-
stjórnarinnar og fulltrúar
stjórnarinnar í Pakistan á ny
saman til funda i Genf til
óbeinna, leynilegra: viðræðna um
hugsanlega laim á innanlands-
ófriðinum í Afu iiibé iii. Formað-
ur sendinefndarinnar frá Kabúl
er Shah Mohammed Dost utan-
ríkisráðherra, en formaður pak-
istönsku sendinefndarinnar er
Sahabzada Yaqub, utanríkis-
ráðherra Pakistans. Viðræður
fara fram á þann veg, að Diego
Cordovez, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna
stjórnar þeim og verður hann að
flytja allt munnlega á milli
sendinefndanna, þar sem þær
hafa neitað að ræða hvor við
aðra augliti til auglitis.
Því hafði verið spáð, að forvext-
ir ættu enn eftir að lækka, er
nokkrir bandariskir stórbankar
lækkuðu þá niður í 10% úr 10,5%
hinn 15. maí sl. Vaxtalækkunin nú
er talin eiga eftir að hafa marg-
vísleg áhrif, ekki sízt á hag
margra þróunarríkja, sem eru
skuldum vafin, en vaxtagreiðslur
af erlendum skuldum þeirra ættu
að verða léttbærari en áður.
Bandarísk stjórnvöld skýrðu frá
því í dag, að viðskiptajöfnuður
landsins hefði verið óhagstæður
um 30 milljarða dollara fyrstu
þrjá mánuði þessa árs. Á síðasta
ári varð viðskiptajöfnuðurinn
óhagstæður um 101 milljarð doll-
ara og haft er eftir Malcolm
Baldridge, viðskiptaráðherra
landsins, að viðskiptajöfnuðurinn
kunni að verða enn óhagstæðari á
þessu ári.
Sjá: Dollarinn lækkar á bls. 33.
Noregur:
Kýlapest í laxaseiðum
OrIó. 18, jáaí. Frá fréturiurt MorpinblaAains, J.E. Lonrc.
GRIPIÐ hefur verið til mikilla varúðarráðstafana í Noregi, eftir að
farmur af laxaseióum, sem fara átti til Þrændalaga í lok maí, reyndist
vera smitaður af kýlapest (furunkolose). Hefur sýkingar orðið vart i 11
fiskeldisstöðvum frá þessum seiðum, sem flutt voru inn frá Skotlandi.
1 Noregi hefur ekki orðið vart unum, þar sem sjúkdómurinn
við sýkilinn, sem veldur þessum kom upp. Allar þær eldisstöðvar,
sjúkdómi, síðan 1969, en þá varð sem nú kunna að hafa tekið við
að eyða ölium fiski í eldisstöðv- sýktum fiski frá Skotlandi, verða
að sæta ströngum varúðarregl-
um og þær fá ekki að afhenda
lifandi fisk.
Helztu einkenni sjúkdómsins
eru kýli, sem koma á fiskinn, og
er dánartalan seiðanna, sem
drepast af völdum sjúkdómsins,
mjög há.