Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986 AP/Símamynd Fyrirhugað er, að geimferjunni Kólombíu verði lent í dag, laugar- dag, en í gær varð að fresta lendingu vegna slæms veðurs. Horowitz til Sovét- ríkjanna eftir 61 ár New York, 17. janúar. AP. HINN viðfrægi sovéski píanó- leikari, Vladimir Horowitz, sem yfirgaf Sovétríkin fyrir 61 ári og sór að snúa þangað aldrei aftur, hefur bókað tvenna tón- leika þar í vor. „Áður en ég dey vil ég sjá landið þar sem ég fæddist," sagði Horowitz, er þetta var tilkynnt. Hann sagði að hann hefði ekki viljað sjá Sovétríkin sem ferðamað- ur og þess vegna hefði hann ákveðið tónleikana. Fyrri tónleikamir verða í Bolshoi-leikhúsinu í Moskvu 20. apríl og þeir síðari í Shostakovich- höllinni í Leningrad. Horowitz yfírgaf Sovétríkin árið 1925, þegar neyð og harðrétti ríkti þar eftir byltinguna og fékk vega- bréfsáritun til Þýskalands á þeirri forsendu að hann ætlaði að gerast nemandis Artur Schnabel. Hann hefur sagt frá því hvemig hann komst yfír landamærin meðal ann- ars með peninga falda í skóm sínum og að landamæravörður sagði við hann: „Gleymdu ekki föðurlandi , ERLENT, í viðtali árið 1980 sagði hann: „Ég hef enga löngun til að snúa til baka. Ég kann ekki við afstöðu Rússa til tónlistar, til listarínnar, til hvers sem er. Fjölskylda mín öll dó þar. Mig mun aldrei langa til að snúa til baka og ég mun aldrei gera það.“ Er hann var spurður að því, hvort hann liti fremur á sig sem sendi- herra bandarískrar menningar í ferðinni nú eða Rússa á heimleið, sagði hann: „Ég er Bandaríkjamað- ur. Hér hef ég búið í 40 ár — lengur en í Rússlandi. Þetta er heimili mitt.“ Bandaríkin: Fólk hefur trú á fjölmiðlunum Washington, 16. janúar. AP. FÓLK í Bandaríkjunum hefur trú á fréttaflutningi fjölmiðla þar i landi og eftirlitshlutverki þeirra, en er að sama skapi ekki jafn trúað á sanngimi fjölmiðl- anna eða hlutleysi. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem birt var í Bandaríkjunum í gær. við þessa einstaklinga á tímabilinu frá 22. júní til 13. júlí á síðasta ári og fjórum mánuðum síðar var rætt við helming úrtaksins á nýjan leik í gegnum síma. Skekkjumörk könn- unarinnar eru talin vera 3% til eða frá. Frekari frestun á lendingn Kólumbíu Canaveraihöfða, Flórida, 17. janúar. AP. ÞUNGBÚIÐ regnþykkni í Flórida kom í veg fyrir lendingu geimferjunnar Kólumbíu annan daginn i röð og var geimf örunum sagt að vera á braut um jörðu næstu 24 tímana. Aftur verður lending reynd á morgun, laugar- dag, jafnvel þótt veðurútlit verði Veður víða um heim Leagst Haeftt Akureyri 4 skýjað Amsterdam +2 5 skýjað Aþena 9 12 skýjað Berlfn +2 0 skýjað Brussel +0 8 heiðskírt Chicago +8 10 skýjað Dublfn 4 8 skýjað Feneyjar 8 léttskýjað Frankfurt +1 4 skýjað Genf 0 4 skýjað Helsinki +18 +16 heiðskirt Hong Kong 16 20 heiðskirt Jerúsalem 4 13 heiðskfrt Kaupmannah. +7 0 skýjað Lissabon 10 15 heiðskfrt London 2 5 skýjað Los Angeles 12 21 skýjað Luxemborg +1 þokum. Mfami 17 23 skýjað Montreal +19 +8 skýjað Moskva +8 0 skýjað NewYork +4 3 skýjað Osió +14 +8 heiðskirt Parfa 1 5 skýjað Pekfng +8 8 heiðskirt Reykjavik 1 léttskýjað RiódeJaneiro 21 36 heiðskírt Rómaborg 1 12 heiðskirt Stokkhóimur +15 +10 skýjað Sydney 16 18 rigning Tókýó 2 12 heiðskírt Vinarborg 2 7 skýjað Þórshöfn 5 súld verra. Ef ekki verður hægt að lenda á morgun í Flórida og ákveðið verður að geimfeijan lendi í Kalfomíueyði- mörkinni, eins og oftast hefur verið, er hugsanlegt að þurfí að fresta geimskoti sem fyrirhugað er 6. mars næstkomandi. Sex dagar mundu tapast vegna flutnings geimfeijunnar, auk þess sem flutn- ingurinn myndi kosta 1,5—2 millj- ónir dala. Það gæti þýtt það, að ekki yrði af þeim 15 geimskotum, sem áætlanir höfðu verið gerðar um á þessu ári. Samkvæmt könnuninni virðist svo sem ijölmiðlar séu vinsælli en aðrar stofiianir í bandarísku þjóðlífí, auk þess sem fólk upp til hópa telur fréttaflutning þeirra trúverðugan. Þannig eru ijölmiðlamir vinsælli en herinn, forsetinn og þingið svo eitt- hvað sé nefnt. Aftur á móti virtist fólk í alvarlegum vafa er það var spurt um sanngimi fjölmiðlanna og aðferðir þeirra við öflun frétta og flutning. Þá kom fram að fólk metur það eftirlit sem Qölmiðlar hafa með hinu opinbera kerfí mikils og vegur það upp á móti efasemdunum sem það hefur um starfsaðferðir þeirra. Skoðanakönnunin náði til 2.104 fullorðinna Bandaríkjamanna. Tek- in vom klukkustundarlöng viðtöl Hryðjuverkin: Sannanir fyrir aðild Líbýumanna Róm, 17. janúar. AP. JOHN C. Whitehead, aðstoð- arutanríkisráðherra Banda- rikjanna, sagði í dag, föstu- dag, að hann hefði afhent ítölsku ríkisstjórninni„ óvefengjanlegar “ sannanir fyrir aðild Libýumanna að hryðjuverkunum í Róm og Vín. Whitehead, sem nú er á ferð um Evrópuríki til að afla stuðn- ings við refsiaðgerðir gegn Líbýustjóm, sagði einnig að Ital- ir hygðust grípa til frekari að- grða en þeir hefðu þegar gert. ilir hafa bannað vopnasölu til Iibýu en bandalagsríki Banda- ríkjanna hefur viljað fallast á efnahagslegar refsiaðgerðir. Whitehead kvaðst ekki geta skýrt frá þeim sönnunum, sem væra fyrir aðild Líbýumanna að hryðjuverkunum í Róm og Vín, en sagði, að þær væra„ óvefengj anlegar". GJALDMIÐLA GENGI Bandaríkjadollar hækkaði aðeins gagnvart helztu gjald- miðlum Vestur-Evrópu í dag. Verð á gulli lækkaði, en það hafði hækkað mjög undanfama daga. Síðdegis í dag kostaði sterlings- pundið 1,4385 dollara (1,4400) í London, en annars var gengi dollar- ans þannig, að fyrir hann fengust 2,4630 vestur-þýzk mörk (2,4610), 2,0905 svissneskir frankar (2,0807), 7,5587 franskir frankar (7,5525), 2,7745 hollenzk gyllini (2,7730), 1.679,00 ítalskar lírar (1.674,50), 1,4030 kanadískir doll- arar (1,4026) og 202,30 jen (202,39). Hvað vilja verkamennimir? Starfsmenn Westland-þyrlufyrirtækisins efndu i gær til mótmæla fyrir utan Royal Albert Hall í Lundúnum en innan dyra stóð yfir fundur hluthafa i fyrirtækinu. Atti þar að fást úr þvi skorið hvort tekið yrði kauptílboði bandaríska fyrirtækisins Sikorsky og Fiat eða samsteypu evrópskra fyrirtælga. Á einu spjaldanna stendur, að starfsmennimir vi(ji, að tilboði Sikorsky verði tekið, en á öðru, að 742 verkamönnum, sem sagt hafi verið upp, sé alveg sama hverjir reki fyrirtækið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.