Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986 BORGARSTJÓRN: Deiliskipulag flugvall- arsvæðisins samþykkt Yfirlitsteikning af deiliskipulagi fyrir Reykjavíkurflugvöll. a. ný flugstöð, b. fyrirhugað flug- minjasafn, c. aðalskrifstofur Flugleiða. Sjá má ennfremur á teikningunni fyrirhugaða leng- ingu flugbrautar í vestur að Sketjafirði. DEILISKIPULAG flugvallarsvæðisins í Reylqavík var samþykkt á borgarstj órnarfundi í fyrrakvöld með at- kvæðum meirihlutans og fulltrúa Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. Fulltrúar Alþýðubandalags og Kvennaframbos greiddu atkvæði gegn tillögunni. í máli Alfheiðar Ingadóttur, trúa Framsóknarflokksins að gerð- borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins, kom fram að mótrökin fyrir stað- setningu flugvallar í Vatnsmýrinni væru næg. Augljós slysahætta og hávaðamengun og miklar skorður við nýtingu lands í nágrenni flug- vallarins ásamt fleiri atriðum komi þar til. Ljóst væri að hagsmunir flugmálayfírvalda hefðu verið tekn- ir fram yfír hagsmuni borgarbúa. Þessar dýru framkvæmdir gerðu það að verkum, að ómögulegt yrði að færa flugvöllinn í næstu framtíð. Skoða þurfí einnig ýmsar hliðar þessa máls betur ofan í kjölinn. Magdalena Schram (Kf.) taldi líkt og Álfheiður að hagsmunir flug- rekstrarins væru hafðir í fyrirrúmi. Vitnaði hún í skýrslu Þróunarstofn- unar og borgarinnar og sagði, að þar kæmi fram, að flugvöllurinn stæði í vegi fyrir eðlilegri þróun í nágrenninu og ef einungis væri tekið tillit til fjárhagslegu hiiðarinn- ar, sé hagkvæmt að flytja flugvöll- inn. Kvennaframboðið lagði fram tillögu, þar sem m.a. var mælt með að fengið yrði álit „óvilhallra" aðila á þeirri hættu sem rekstur flugvall- ar í Vatnsmýrinni hefur fyrir borg- arbúa. Ákvörðun um deiliskipulagið yrði frestað, þar til þetta álit lægi fyrir. Hlaut tillagan einungis stuðn- ing Alþýðubandalags og Kvenna- framboðs. Sigurður E. Guðmundsson (A) sagðist vera fylgjandi tillögunni og taldi að unnið hafí verið vel f þessum málum. Þó benti hann á, að huga þyrfti betur að aðstöðu fyrir innlent og erlent einkaflug. Koma þyrfti upp aðlaðandi aðstöðu fyrir erlenda ferjuflugmenn. Þannig væri hægt að efla vissa atvinnugrein í sam- bandi við þjónustu við þessa hópa. Sigurður sagði ennfremur í ræðu sinni, að staðsetning Olíufélagsins Skeljungs í Skeijafírði væri óhent- ug vegna slysahættu. Kristján Benediktsson (F) sagðist í meginatriðum vera sam- mála fyrirliggjandi deiliskipulagi. Ennfremur kom fram í bókun fuil- ar hafí verið athuganir á því að færa flugvöllinn, t.d. á Álftanes, í Gálgahraun eða suður í Kapellu- hraun, en þeim hafí öllum lyktað með niðurstöðu til stuðnings núver- andi flugvallarsvæði. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson (S) formaður skipulagsnefndar sagði í ræðu sinni, að athyglisvert væri, að Alþýðubandalagið hefði verið í forystu í skipulagsnefnd í tíð vinstri meirihlutans (1978—1982). Ekkert hefði þó verið gert í þessum málum. Þann 9. október 1978 hefði skipu- lagsnefnd þó samþykkt tillögu borgarverkfræðings um að tiliaga að aðalskipulagi Reykjavíkurflug- vallar yrði send skipulagsstjóra rík- isins. Þau drög, sem þá lágu frammi, hafí í meginatriðum verið þau sömu og nú væri fjallað um. Benti Vilhjálmur ennfremur á að erlendir skipulagsfræðingar, sem nýlega komu til landsins, hafí óskað Reykvíkingum til hamingju með að hafa flugvöli í nágrenni byggðar. Að þessu sé stefnt erlendis vegna aukinnar tækni m.a. hvað aukið öryggi og minni hljóðmengun varð- ar. Vegna gagmýninnar á að flug- málayfírvöld eða flugrekstur ráði ferðinni benti Vilhjálmur á, að í tíð vinstri meirihlutans hafi skipulags- vinna verið í höndum flugmála- stjóra, en nú sé þetta undir stjóm borgarskipulags. Páll Gislason (S) vakti máls á því, að það væri einkennileg þver- stæða í málflutningi Alþýðubanda- lags og Kvennaframboðs, þegar fulltrúar flokkanna teldu of mikia áhættu tekna í atvinnumálum með stofnun Granda hf. en vildu svo, að Reykjavíkurflugvöllur hyrfi úr höfuðborginni. Nokkur hundruð manna störfuðu á flugvellinum. Albert Guðmundsson (S) lagði fram tillögu á fundinum þar sem algjört bann er lagt við allri umferð þotuflugvéla um svæðið, nema f neyðartilfellum. Var samþykkt að vísa tiilögunni til borgarráðs. Fyrirhugaðar framkvæmd- ir á Reykjavíkurflugvelli í SAMÞYKKTU deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar kemur m.a. fram að helstu mannvirki sem gert er ráð fyrir að rísi séu flugstöð, flugmipjasafn og hús fyrir Flugbjörgunarsveitina. í flugstöðinni sjálfri eru stórt flugskýli og þjónustu- og verk- stæðisbyggingar á milli austur- enda og vesturenda brautarinnar og Nauthólsvikur. Flugminjasaf- nið verður norðaustan við skrif- stofubyggingu Flugleiða. Hús ifyrir Flugbjörgunarsveitina verður norðvestan við núverandi „Löngu tímabært að byggja flugstöð“ Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson í ræðu á borgarstjórnarfundi „ÞAÐ er kominn timi til að taka með festu á þessum málum. Það er löngu tímabært að byggja flugstöð á Reykjavíkurflugvelli og það gerist ekki nema deili- skipulagið verði staðfest," sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjáimsson (S), formaður skipulagsnefndar, i ræðu á borgarstjómarfundi í fyrrakvöld. Vilhjálmur sagði ennfremur. „Það er augljóst, að skortur á samþykktu skipulagi fyrir flug- vallarsvæðið, ekki síst deiiiskipu- lagi, hefur skapað mikið óvissu- ástand um margs konar starf- rækslu á flugvallarsvæðinu og um einstakar byggingaframkvæmdir á þeim árum, sem liðið hafa síðan flugvöliurinn var gerður. Skortur á staðfestu aðalskipuiagi og deili- skipulagi og óviss lóðarmörk flug- vallarins hafa valdið því, að ýmsar verkstæðis- og þjónustubygging- Grunnmynd 1. hæðar af fyrirhugaðri flugstöðvarbyggingu. ar hafa verið byggðar án þess að heildarskipulag lægi fyrir. Margs konar flugstarfsemi hefur tekið sér bólfestu í skúrum og bröggum á svæðinu." í lok ræðu sinnar sagði Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson m.a.: „LJóst er, að það eru verulegir hagsmunir fyrir Reykjavík að flugvöllur fyrir innanlandsflug verði áfram innan borgarlandsins. Á annað þúsund manns vinna við rekstur flugvallarins, flugrekstur og flugþjónustu í Reykjavík. Það myndi vafalaust hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir atvinnulífíð í Reykjavík, ef flugvöllurinn yrði ekki áfram í borginni. Því má heldur ekki gleyma, að Reykjavík gegnir því hlutverki að vera mið- stöð samgangna landsins og aðal- vettvangur stjómsýslu og margs konar þjónustu. Staðsetning flug- vallar, sem þjónar innanlands- flugi, hefur f þessu sambandi verulega þýðingu fyrir höfuð- borgina." flugstöð. Kostnaðaráætlun vegna flug- stöðvarinnar nemur rúmum 235 milljónum króna. Þar af er reiknað með, að flugstöðvarbyggingin kosti rúmar 118 milljónir og aðkomu- brautir og vegir rúmar 96 milljónir. Með hliðsjón af talningu og umferðarspá var ákveðið að miða stærð flugstöðvarinnar við, að 500.000 farþegar fæm um hana árlega og að 500 manns væm samtímis í afgreiðslu og biðsölum. LJóst er, að nokkur aukning verður á starfsfólki vegna stækkunarinnar. Núverandi flugbrautir era þijár. Það er norður-suðurbraut, austur- vesturbraut og norð-austur- suðvesturbraut. í tillögunum kemur fram, að æskilegt sé að lengja austur-vesturbrautina. Vemlega umferð á norður-suðurbraut væri þá hægt að flytja á lengdu brautina og þar með fækka flugtökum til norðurs yfír miðborgina. Er unnt að lengja austur-vesturbrautina um 300 metra út í Skeijafjörð, þ.e. f vestur. Um hávaðamengun við flug- völlinn segir í greinargerð með til- lögunum að áður fyrr hafí vemlega Iverið kvartað undan hávaða frá flugvellinum. Var það fyrst og fremst á meðan utanlandsflugið var þar frá vellinum og hann var opinn allan sólarhringinn. Síðan hafí orðið breytingar. Allt utanlandsflug er flutt burt, fyrir utan Grænlandsflug og Færeyjaflug og flugvöUurinn er lokaður milli kl. 23.00—7.00. Einu kvartanimar sem nú berist séu vegna F-27 véla Flugleiða svo og vegna einkaflugs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.