Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986 Stormur í vatnsg'lasi Hugleiðing um stjórnarsamstarfið við upphaf árs umboði fyrir löngu og á að gera það“. Frá mínum bæjardyrum er útilokað að núverandi ríkisstjóm leiti sem slík eftir nýju umboði af þeim ástæðum, sem ég hef hér rakið. Á bak við tjöldin virðist fram- sóknarkórinn vera byijaður að æfa gamla flokkssönginn: „Allt er betra en íhaldið." eftir Friðrik Sophusson Þriðjudaginn 14. janúar sl. var í Staksteinum Morgunblaðsins fjall- að um „ótímabæran kosninga- skjálfta". Þar segir að ekki hafi komið fram í áramótagreinum stjómmálaforingjanna, að nú væri tímabært að ijúfa þing og efna til kosninga. „Einu kosningamar, sem stjómmálaflokkamir ættu að hafa hugann við um þessar mundir, em sveitarstjómarkosningar", segir höfyndur Staksteina. í þessum sömu Staksteinum em síðan riQuð upp viðtöl úr DV við Þorstein Pálsson formann Sjálf- stæðisflokksins, Vilhjálm_ Egilsson formann SUS, Sigurð Óskarsson formann Verkalýðsráðs Sjálfstæð- isflokksins, Þóranni Gestsdóttur formann Landssambands sjálfstæð- iskvenna, Pál Pétursson formann þingflokks framsóknarmanna, Unni Stefánsdóttur formann Landssam- bands framsóknarkvenna og Finn Ingólfsson formann Sambands ungra framsóknarmanna. Af tilvitnunum í viðtöl við þetta fólk dregur höfundur Staksteina þá ályktun, að það sé „ekki neinn kosningaskjálfti í forsvarsmönnum stjómarflokkanna", þótt Vilhjálmur Egilsson sé „orðinn óþreyjufullur". Svona til að undirstrika þetta álit sitt gefur höfundur Staksteina Al- freð Þorsteinssyni, formanni Fram- sóknarfélags Reykjavíkur, orðið í lokin með tilvitnun í viðtal við hann í DV, þar sem hann segir orðrétt: „Mér finnst þessi taugatitringur, sem kominn er í stjómarsamstarfíð, minna á storm í vatnsglasi. Ég held að þetta tal sé mnnið undan rifjum varaformanns Sjálfstæðis- flokksins, Friðriks Sophussonar, sem gjaman vill ráðherrastól eins ogformaðurinn." Þar sem bæði DV og Morgun- blaðið hafa birt þetta viðtal við formann Framsóknarfélags Reykja- víkur og hvomgt blaðið hefur séð ástæðu til að kanna viðhorf mitt til málsins tel ég rétt að segja frá því með hvaða hætti ég hef rætt um stjómarsamstarfíð á fundum á Ólafsfírði sunnudaginn 12. janúar og hjá Heimdalli í Reykjavík 13. janúar eða næstu tvo daga áður en Staksteinar vitna í viðtal við for- mann Framsóknarfélags Reykja- víkur. Leiðaraskrif Tímans Gamall draugur í íslenzkum blaðaheimi, dagblaðið Tíminn, var vakinn upp um áramótin, þegar NT lagði niður laupana og var rennt ofan í gröfína skuldum vafíð. Rétt fyrir jólaleyfí tryggðu þingmenn vinstri flokkanna blöðum sínum vemlega tjármuni úr ríkissjóði. Málgögn þeirra geta því áfram komið út, þótt almenningur í landinu vilji ekki kaupa þau inni- haldsins vegna. Fyrsti flutnings- maður tillögunnar um aukinn ríkis- styrk til blaðanna var Páll Péturs- son, þingflokksformaður Fram- sóknarflokksins. Og strax eftir ára- Friðrik Sophusson „ Að minni hyggju er því fátt, sem bendir til þess að kosningar til Alþingis verði á þessu ári. Sjálfsagt eru árásir Tímans á Sjálfstæðis- flokkinn og einstaka forystumenn hans að- eins stormur í vatns- glasi. En um leið er framsókn að gefa til kynna að hún sé tilbúin til að skipta um dans- herra í næstu syrpu.“ mótin kom út 1. tbl. Tímans, sem Framsóknarflokkurinn og fram- sóknarfélögin í Reykjavík gefa út. í fímm af sex fyrstu leiðurum Tím- ans er fjallað um stjómmál. Það er athyglisvert að kynna sér efnis- innihald leiðara blaðsins, sem Framsóknarflokkurinn gefur út. Hinn 4. janúar ber leiðari Tímans heitið „Hækkun ferðamanna- skatts". Þar segir orðrétt: „Hækkun ferðamannaskattsins er skammsýn ráðstöfun. Það þarf ekki mikla spekinga til þess að sjá, að nær hefði verið að lækka skattinn eða afnema með öllu. Raunar hefði maður haldið, að það væri í anda stjómmálaviðhorfa fjármálaráð- herrans og formanns Sjálfstæðis- flokksins, en hann virðist nú vera að tapa áttum í pólitíkinni.“ Og síð- ar segir: „í stað þess að hækka flugvallarskatt, hefði fjármálaráð- herra átt að lækka hann eða jafnvel útvega meira fé til öflugrar kynn- ingar á landi og þjóð sem áfanga- stað fyrir ferðamenn. í stað þess að hækka skattinn hefði íjármála- ráðherra átt að skila Ferðamálaráði þeim þijátíu milljónum, sem gert er ráð fyrir að hafa af því í láns- ijárlögum." Svona skrifar Tíminn í leiðara um aðgerðir, sem ríkisstjóm og stjómarflokkar bera sameigin- lega ábyrgð á. Allir þingmenn Framsóknarflokksins greiddu at- kvæði með hækkuninni. í næsta leiðara Tímans (7. jan.), sem nefnist „Misbeiting valds" segir orðétt: „Ekki hefur það farið dult, að ýmis öfl í Sjálfstæðisflokknum hafa alla tíð síðan núverandi ríkis- stjóm var mynduð skipulagt sér- staka aðför að Lánasjóði ísl. náms- manna. Framsóknarmenn hafa þama verið til vamar og stundum átt í vök að veijast, en þó tekist að koma í veg fyrir að íhaldinu heppnaðist að koma fram áformum sínum um allsheijar árás á sjóðinn í því skyni að veikja hann og gera hann ófæran um að sinna því mikil- væga hlutverki sem slíkur sjóður hefur að gegna í nútíma þjóðfélagi .. . Hér er um pólitíska ofsókn að ræða, nánast pólitíska hreinsun eins og gerist í einræðisríkjum ... Því verður vart trúað en að þingmenn annarra flokka sameinist um að fordæma þannig hugsunarhátt". Hér er verið að eggja þingmenn Framsóknarflokksins lögeggjan gegn menntamálaráðherra. Fram- sóknarmenn meðal umbótasinnaðra stúdenta hafa þegar hlýtt kallinu og stofnað til samstarfs við vinstri menn. Ekkert er minnst á það að þingmenn Framsóknarflokksins stóðu að skerðingu framlaga til Lánasjóðsins. Daginn eftir, hinn 8. janúar, heggur leiðarahöfundur Tímans enn í sama knérann, brigzlar mennta- málaráðherra um að bjóða mútur og segir: „í þessu máli er nauðsyn- legt að félagshyggjumenn séu vel á verði, ekki sízt framsóknarmenn, sem svo oft og lengi hafa haft forgöngu fyrir eflingu sjóðsins." Næsta dag, hinn 9. janúar, er til tilbreytingar ráðizt á Davíð Odds- son borgarstjóra fyrir þá einræðis- legu ákvörðun meirihlutans að hafa strætisvagna í Reykjavík gula, „án þess að spyija kóng eða prest". Ekki er þess getið hvomm hópnum Kristján Benediktsson tilheyrir. Þar næsta dag, hinn 10. janúar, er í leiðara Tímans vitnað til ára- mótagreinar Ingvars Gíslasonar fyrrverandi ráðherra Framsóknar- flokksins undir nafninu „Félags- hyggjumenn standi saman". Leið- arahöfundurinn segir m.a.: „Ingvar leggur áherslu á að efling félags- hyggju sé alger þjóðamauðsyn og viðnám gegn markaðshyggjunni, sem ranglega er nefnd ftjálshyggju- stefna, sé í rauninni brýnast allra praktískra viðfangsefna í íslenskri pólitík ... Tíminn tekur undir þessi orð Ingvars Gíslasonar, alþingis- manns og fyrrverandi menntamála- ráðherra. Full þörf er á því að þeir aðilar sem ekki trúa blint á mark- aðshyggju hægri aflanna standi saman í baráttu fyrir því þjóðfélagi sem þeir vilja skapa." Á sama tíma og Framsóknarflokkurinn er í samstarfí við Sjálfstæðisflokkinn er það „alger þjóðamauðsyn" og „brýnast allra praktískra viðfangs- efna“ að vinna gegn frjálshyggj- unni. Þessi dæmi úr leiðaraskrifum Tímans, sem Framsóknarfélag Al- freðs Þorsteinssonar gefur út, em ekki valin af handahófí heldur em þau tekin úr 5 af 6 fyrstu leiðuram blaðsins eftir að það var vakið upp í byijun árs. Framsóknarflokkurinn í stjórnarsamstarfi í 15 ár hefur Framsóknarflokk- urinn valið sér það hlutverk í ís- lenzkum stjómmálum að sitja í rík- isstjóm, hvað sem tautar og raular. Nokkuð hefur borið á þreytu innan flokksins með þessa afstöðu og sumir ungir framsóknarmenn telja, að kominn sé tími til að þjóðin hvíli Framsóknarflokkinn um stund, hlífí honum við stjómarsetu og sendi hann í endurhæfingu a.m.k. eitt kjörtímabil. Aðferðin, sem fram- sóknarmenn nota til þrásetu í ríkis- stjómum, er einföld. Þegar líða tekur á kjörtímabiþ breyta þeir málflutningi sínum. í stjómarsam- starfí við vinstri flokka verða þeir í orði kveðnu fijálslyndir, en í samstarfí við Sjálfstæðisflokkinn tekur félagshyggjan völdin, þegar líður frá stjómarmyndun. Nú er einmitt sá tími kominn. Efling fé- lagshyggju gegn Fijálshyggju er brýnasta hagsmunamálið sam- kvæmt dagskipun Tímans. Það er einmitt þetta hverflyndi, sem gerir það að verkum, að sjaldnast hvarfl- ar að öðmm flokkum að endumýja stjómarsamstarf við Framsóknar- flokkinn. Vilhjálmur Egilsson formaður SUS segir í viðtali við DV, að „ríkis- stjómin hefði átt að leita eftir nýju Hvenær verða Alþingis- kosningar? Það er deginum ljósara, að ríkis- stjómin þarf að ná betri tökum á eftiahagsstjóminni. Erlendar skuld- ir hafa aukizt, ríkissjóður er rekinn með halla og verðbólgan vex. Til að hægt sé að takast á við þessi vandamál og styrkja stöðu atvinnu- veganna þarf tvennt að gerast í senn. Annars vegar verðum við að gera kerfísbreytingar á opinberam rekstri og draga þannig úr ríkisút- gjöldum. Niðurskurður fjárfesting- ar og „flatur spamaður" duga ekki lengur sem aðgerðir í þeim efnum. Hins vegar verður að samræma leikreglur á lánamarkaðinum, þannig að bankar og verðbréfa- markaður keppi í eðlilegri sam- keppni. Meira frelsi í vaxtamálum eflir spamað, lækkar hæstu vexti, útiýmir okri, stuðlar að arðsemi í fjárfestingum og bætir þannig lífs- kjörin. Á næstu mánuðum kemur í ljós, hvort Framsóknarflokkurinn er til- búinn til að skapa skilyrði fyrir jaftivægi í efnahagsmálum á gmnd- velli þessara leiða. Engin ástæða er til þess á þessu stigi að efast um vilja framsóknarmanna, þrátt fyrir leiðaraskrif Tímans. Af minni hyggju er því fátt, sem bendir til þess að kosningar til Alþingis verði á þessu ári. Sjálfsagt em árásir Tímans á Sjálfstæðisflokkinn og einstaka forystumenn hans aðeins stormur í vatnsglasi. En um leið er framsókn að gefa til kynna að hún sé tilbúin til að skipta um dansherra í næstu syrpu. Hafí Framsóknarflokkurinn hins vegar ekki áhuga á því að ná ár- angri í efnahagsmálum, hlýtur Sjálfstæðisflokkurinn að endur- skoða afstöðu sína til stjómarsam- starfsins. Slíkar vangaveltur em ekki tímabærar nú fremur en veður- fregnir af stormi í vatnsglasi. S veitarstj órnar- kosningar „Einu kosningamar, sem stjóm- málaflokkamir ættu að hafa hug- ann við um þessar mundir, em sveitarstjómarkosningar." Undir þessi orð Staksteinahöfundar get ég tekið. Staða Sjálfstæðisflokksins er sterk í sveitarstjómarmálum. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur ávallt lagt áherzlu á sem mest sjálfsforræði sveitarfélaga. Ríkisstjómin náði í upphafí verðbólgunni verulega nið- ur og tryggði þannig verðgildi tekjustofna sveitíirfélaga. í fram- haldi af því hætti ríkisstjómin af- skiptum af gjaldskrám þjónustufyr- irtækja sveitarfélaga. Sveitar- stjómimar hafa nú einar ákvörðun- arréttinn. Undir stjóm Davíðs Oddssonar borgarstjóra og meirihluta sjálf- stæðismanna í Reykjavík er hægt að vera bjartsýnn. Sigurvissa er þó varhugaverð og getur leitt til kæm- leysis. Langt út fyrir flokksraðir sjálfstæðismanna heyrist enn, að slysið frá árinu 1978 megi ekki endurtaka sig. Misheppnuð sam- stjóm vinstri flokkanna á sl. kjör- tímabili er víti til vamaðar. Það er von mín og vissa, að í kosningum í vor vinni Sjálfstæðis- flokkurinn sigur gmndvallaðan á góðu starfí þeirra ijölmörgu sjálf- stæðismanna, sem sitja í sveitar- stjómum fyrir flokkinn um allt land og hafa lagt sig fram við að styrkja og bæta hag byggðanna hver á sín- um stað. Góður sigur Sjálfstæðis- flokksins í sveitarstjómarkosning- unum er ekki einungis æskilegur út frá hagsmunum byggðarlaganna heldur einnig hvatning til okkar, sem störfum fyrir flokkinn að lands- málunum, að standa okkur betur. Höfundur er varaformaður Sjálf- stœðisflokksins. FLISAR LEIR — MARMARI — GRANÍT Á GÓLF - VEGGI - ÚTI - INNI___________ OVæntanlegt mikið úrval af marmara. Pantið tímanlega. Sérpantanir mögulegar. Komið og skoðið úrvalið. OVeitum ráðleggingar og útvegum fagmenn og allt sem þarftil flísalagna. VIKURBRAUT SF. KÁRSNESBRAUT 124, KÓP. S: 46044 Af hverju ekki? Höfum endurbætta og glæsilega veislusali fyrir öll samkvæmi, 50—70,100—200 manna. Veislumatur í hæsta gæðaflokki. Ath. okkarverð. Upplýsingar í síma 666195. Útvegum einnig hljómsveit ef óskað er. Hlégarður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.