Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1986 37 Signrjóna Sverrisdóttir leikkona. Meiri- háttar flóa- markaður verður haldinn í Skeljanesi 6, laugardaginn 18. janúarfrá kl. 14.00. Búsáhöld og heimilistæki (rafknúin). Forkunnarfögurhúsgögn. Fallegir telpnakjólar. Mikið úrval af barnaúlpum og regn- fatnaði. Leðurfatnaðurog samkvæmisdress. Mokkajakkar, pelsar og kápur. Skórog töskur. Viðlegubúnaðuraðógleymduöllu hinu . . . Félag einstæðra foreldra Þetta er erfítt hlutverk, en mjög spennandi að fá að takast á við það,“ sagði Siguijóna Sverrisdóttir leik- kona, sem fer með eitt aðal- hlutverkið í leikriti Alþýðuleik- hússins „Tom og Viv“ sem frumsýnt verður á Kjarvals- stöðum 30. janúar. í hlutverki Viv, konu T.S. Eliot. Viv var með hormónatruflanir sem var á þeim tíma skilgreint sem siðræn vitfirring. „Leikritið fjallar um breska skáldið T.S. Elliot og fyrri eiginkonu hans Vivian. Þau voru afar ólíkar persónur og ýmislegt sem kom uppá í þeirra hjónabandi. Þau áttu þó sínar góðu stundir saman og á tímabili er leikritið mjög fyndið...“ Er þetta ekki stærsta hlutverkið þitt hingað til? „Jú, reyndar og leikhópur- inn hefur allur staðið með mér og hvatt í hvívetna. Þetta hlutverk krefst gífurlega mik- ils, maður þarf að rifja upp sína eigin geðveiki og satt að segja held ég að það væri ekki skemmtilegt að búa með mér þessa dagana, geðsveiflumar eru það miklar. Það er líka erfítt fyrir mig 26 ára gamla að leika konu frá mínum aldri og fram til fímmtugs. Kona sem komin er á þann aldur hefur yfír miklu meiri þroska að ráða en ég, svo það tekur virkilega á mann að setja sig í þau spor. Hvað útlitsbreytingu á mér snertir, eftir því sem Viv eldist, gefst ekki mikill tími til förð- unar svo nú er búið að lita á mér hárið og ég var lengi að sætta mig við það. Mér fannst að Vivian væri farin að færa sig of mikið upp á skaptið og vera farin að yfírtaka mitt eigið persónulega líf. En ég er farin að líta öðruvísi á þetta núna. Svo reyni ég að tileinka mér öðruvísi framgöngu og hreyfíngar eftir aldri, því mið- aldra kona ber sig auðvitað á annan hátt en ung stúlka." — Ertu kvíðin fyrir frum- sýningunni? „Nei, ég get ekki beint sagt það, því meðleikarar mínir hafa stutt mig svo mikið. Ég er frekar spennt. Æfíngaað- staðan hefíir oft á tíðum verið slæm þessa þijá undanfama mánuði, við verið að æfa á mismunandi stöðum og hús- næðisleysi háð okkur. En núna þegar við erum búin að fá inni á Kjarvalsstöðum þá fer spenningurinn að gera vart við sig.“ — Þess má geta svona í lokin að auk Siguijónu í sýn- ingunni eru Viðar Eggertsson sem leikur T.S. Eliot, María Sigurðardóttir, Amór Benó- nýsson, Sverrir Hólmarsson og Margrét Ákadóttir. Leikstjóri er Inga Bjamason. Gerla sér um búninga og leiktjöld. COSPER Sjónvarpið óskar eftir ferskum og spennandi hugmyndum varðandi barnaefhi. Lúrir þú á efni, sem gæti glatt börn eða frætt þau, þá sendu okkur línu eða hafðu samband við umsjónar- mannbarnaefhis, Sigríði Rögnu Sigurð- ardóttur, seem veitir allar upplýsingar í síma 38800. #Mfl# RÍKISÚTVARPIÐ LAUGAVEG/176. 105 REYKJAVÍK — Ég tók skotið úr byssunni, ég vil að ljónin fái að lifa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.