Morgunblaðið - 08.03.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.03.1987, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B Shultz til Moskvu: Leiðtoga- fundur til umræðu Washington, Reuter, AP. RONALD Reagan Bandaríkja- forseti kvaðst í gær binda vonir við að för Georges Shultz ut- anríkisráðherra til Sovétríkj- anna í aprílmánuði gæti orðið til þess að leiðtogar stórveldanna hittust að nýju. George Shultz sagði að hann og sovéski utanríkisráðherrann myndu ræða útiýmingu meðaldrægra kjarnorkuflauga í Evrópu og hvern- ig unnt yrði að tryggja að báðir aðilar virtu ákvæði slíks samkomu- lags. Frank Carlucci, öryggisráðgjafi forsetans sagði að Shultz og Edu- ard Shevardnadze, utanríkisráð- herra Sovétríkjanna, myndu vafalaust ræða um hugsanlegan fund þeirra Reagans og Mikhails Gorbachev Sovétleiðtoga. Carlucci kvaðst telja líklegt að boðað yrði til leiðtogafundar ef fyrir lægi sam- komulag um útrýmingu meðal- drægra kjarnorkuflauga í Evrópu og önnur skyld mál. Reagan sagði að með fundi utanríkisráðherranna myndi gefast tækifæri til að endur- skoða samband Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, sem hefur verið með stirðara móti frá leiðtogafundinum í Reykjavík í október. ErMount Everest ekkihæst fjalla? New York. Reuter. VAFI getur nú leikið á, að Mount Everest sé hæsta fjall í heimi, að því er haft var eftir bandarískum vísinda- mönnum í gær. New York Times vitnaði þá í skýrslu vísindamanna frá Wash- ington-háskóla í Seattle um þetta efni og sagði, að niðurstöð- ur, sem fengist hefðu með nýrri mælingatækni í tengslum við gervihnetti, bentu til, að annar tindur í Himalajafjöllum, K-2, kynni að vera hærri. En vísindamennirnir vildu ekki slá því föstu, að K-2 væri hæstur tinda, fyrr en þeim hefði gefist tækifæri til að mæla Everest með sams konar tækni. Everest hefur almennt verið talið 8.847 metra hátt og K-2 8.610 metrar. í leiðangri, sem Washington- háskóli stóð fyrir í fyrra, mældist K-2 8.858 metrar. Það gæti leitt til þeirrar niðurstöðu að tindurinn reyndist allt að 8.908 metra hár. Þó sagði einn vísindamann- anna í viðtali við New York Times, að hæðartölur Everest gætu einnig verið rangar. Morgunblaðið/Ami Sæberg VIÐ STOKKSNES I fegnrð hafsins speglast einnig máttur þess. Börnin leika sér í fjöruborðinu án þess að gera sér grein fyrir þeim ógnarkrafti sem brimið býr yfir og smám saman brýtur niður skrokk Sæbjargarinnar í fjörunni við Stokksnes. Taiið að 190 manns hafi drukknað í ferjuslysinu við Zeebrugge: Stefnið opnaðist og sj órinn f ossaði inn Tími gafst ekki til að senda út neyðarkall áður en ferjan lagðist á hliðina Zeebrugge, Reuter. AP. FERJUSLYSIÐ í höfninni í Zeebrugge í Belgíu gerðist svo skyndi- lega að áhöfnin hafði enga möguleika á að senda út neyðarkall. Um hádegisbilið í gær var talið útilokað að fleiri fyndust á lífi í feijunni en þá var enn saknað 158 manna. Höfðu þá fundizt 32 lík og því talið að 190 manns hefðu farizt með skipinu. Með feijunni voru 463 farþegar og 80 manna áhöfn og tókst að bjarga um 350 þeirra. Farþegarn- ir, nær allir brezkir, höfðu flestir keypt sérstakan dagsmiða, sem lesendum blaðsins The Sun stóð til boða. Kostaði fargjald þeirra báðar leiðir aðeins eitt sterlings- pund, eða 59 ísl. kr. Jacques Thas, lögreglustjóri í Zeebrugge, stjómar björgunarað- gerðum. í gær sagði hann að fundist hefðu 32 lík en 350 manns hefði verið bjargað. Fjörutíu kaf- arar hefðu leitað í öllu skipinu, að vélarrúminu og brúnni undan- skilinni, og væri talið útilokað að þar væri lengur að finna fólk á lífi. Slysið varð klukkan 18:50 að ísl. tíma á föstudagskvöld. Opnuð- ust stafndyr skipsins þá skyndi- lega með þeim afleiðingum að sjór fossaði inn á bíladekkið og lagðist feijan á hliðina á innan við mínútu. Var skipið statt um kíló- metra fyrir utan hafnarmynnið í Zeebrugge þegar ósköpin dundu yfir. Gífurlegt öngþveiti skapaðist neðan þilja og tróðust margir und- ir þegar farþegar reyndu að komast upp úr feijunni, sem heit- ir „Herald of Free Enterprise" og er 7.951 tonn. Af þeim sem bjarg- Brezka feijan á slysstað. Eins og sjá má hefur stefnið rifnað af. Talið er að 190 manns hafi farizt með ferjunni en um 350 bjargast. að var voru um eitthundrað lagðir inn á sjúkrahús vegna meiðsla. Tíu þeirra voru taldir í lífshættu í gær. Skipstjóri feijunnar, Bret- inn Dave Lewry, var í hópi hinna slösuðu, en meiðsli hans voru ekki talin alvarleg. Björgunarmenn voru óvenju fljótir á vettvang og þykja björg- unaraðgerðir hafa tekizt mjög vel þar sem ekki tókst að koma út björgunarbátum og sjávarhitinn var aðeins þijár gráður á celcíus. Er það þakkað því að hersveitir frá ríkjum NATO voru við æfing- ar í flotastöð skammt frá slys- staðnum. Fjörutíu brezkir, franskir og hollenzkir kafarar tóku þátt í aðgerðunum og tókst þeim m.a. að bjarga tugum manna með því að bijóta glugga á skips- hliðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.