Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990 Eldislax í laxveiðiám: ________________ \ I versta falli gætu nátt- úrulegir stoftiar hrunið - segir Sigurður Guðjónsson hjá Veiðimálastofiiun SIGURÐUR Guðjónsson deildarsljóri hjá Veiðimálastofnun segir að menn séu mjög hræddir við afleiðingar þess að eldislax blandist náttúrulegum laxastofnum. Hver stofii er erfðafræðilega aðlagaður sinni á og ólikur öðrum stofnum. Ef eldislax blandast náttúrulegum stofiium hverfúr þessi munur. Fiskurinn á þá erfiðara með að lifa af í ánni og afleiðingarnar verða minni framleiðsla, laxagengd og veiði. I verstu tilfellum getur náttúrulegi stofninn hrunið algerlega. „Sem betur fer hefur þetta ekki gerst hér, en dæmi um þetta eru til hjá Kyrrahafslaxi þar sem stofn- ar hafa þurrkast út og ekkert kom- ið í staðinn," sagði Sigurður í sam- tali við Morgunblaðið. „Þótt ekki hafi verið sýnt fram á að þetta hafi gerst hjá Atlantshafslaxinum eru menn mjög hræddir við afleið- ingarnar." Hann sagði að ýmislegt hafi ver- ið gert til að draga úr þessari hættu. Fyrir tveimur árum kom út reglugerð sem takmarkar flutninga á laxi og staðsetningu á eldiskvíum. Sú reglugerð var hins vegar ekki afturvirk þannig að sú starfsemi sem þegar var komin heldur áfram. Nálægð eldiskvía við árnar virð- ist hafa mikið að segja. Sem dæmi má nefna að mikið hefur verið um kvíaeldi í Hvalfirði á undanförnum árum, þótt nú hafi dregið úr því. Sigurður sagði að það gæti verið ein af ástæðum þess að í Botnsá er 47,5% laxa eldisfiskur, eins og kom fram í frétt Morgunblaðsins á sunnudaginn. Auk þess er náttúru- legi stofninn í ánni lítill. „í Botnsá eru til nokkrir árgang- ar af seiðum af hreinum stofni sem eru smám saman að fara út í sjó. Þótt blöndun eigi sér stað nær ómengaði stofninn aftur yfirhend- inni. En ef svona mikil blöndun ætti sér stað í meira en eitt kyn- slóðatímabil færi að gæta áhrifa. Nú hefur verið þróuð aðferð til að gelda eldisfisk og ef til vill eru ekki nema örfá ár í að hægt verði að nota slíkan fisk í kvíaeldi. Þá verður þessi hætta á erfðablöndun úr sögunni. Hér vinnur hópur sem styrktur er af Rannsóknarráði ríkis- ins við að rannsaka þessi mál.“ Sigurður sagði að Veiðimála- stofnun hygðist áfram fylgjast með hlutfalli eldisfisks í laxveiðiám. Hann sagði að fyrirhugað væri að endurskoða reglugerð um varnir gegn erfðablöndun og fisksjúk- dómum fyrir sumarið og gæti verið að þar yrðu sett strangari ákvæði. VEÐUR Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurspá kl. 16.16 i gær) VEÐURHORFUR í DAG, 10. JANÚAR. YFIRLIT í GÆR: Skammt norður af landinu er 955 mb víðáttumikil en heldur minnkandi lægð sem þokast austnorðaustur. Veður fer hægt kólnandi. SPÁ: Suðvestangola eða kaldi suðvestanlands, en norðvestangola eða kaldi í öðrum landshlutum. Él á víð og dreif um mest allt land. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Breytileg átt og vægt frost um land allt. Él á víð óg dreif í öllum landshlutum. HORFUR Á FÖSTUDAG: Vestan- og norðvestanátt og áfram vægt írost. Léttskýjað á Suðausturlandi, en víða él í öðrum landshlutum. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl vedur Akureyrl 3 skýjað Reykjavík 1 slydduél Bergen 8 hálfskýjað Helsinkl +1 skýjað Kaupmannah. 4 þokumóða Narssarssuaq -í-14 skýjað Nuuk 4-8 skýjað Osló 5 léttskýjað Stokkhólmur 3 skýjað Þórshöfn 3 haglél Algarve 14 léttskýjað Amsterdam 8 þokumóða Barcelona 10 þokumóða Berlín 3 þokumóða Chlcago 4 alskýjað Feneyjar 4 þokumóða Frankfurt 3 þokumóða Glasgow 8 skýjað Hamborg 6 þokumóða Las Palmas 19 skýjað London 10 skýjað Los Angeles 10 þokumóða Lúxemborg 3 þoka Madrfd 8 léttskýjað Malaga 16 léttskýjað Mallorca 14 hálfskýjað Montreal +7 léttskýjað New York 2 heiðskírt Orlando 12 þokumóða París 8 léttskýjað Róm 15 þokumóða Vín +6 þokumóða Washington 0 þoka Winnipeg +13 alskýjað Morgunblaðið/Emilía verslunarhúsin Vatnslitamyndin frá Vopnafirði, sem Þjóðminjasafii Gömul mynd af Voþna- fírði keypt frá Hamborg ÞJÓÐMINJASAFN íslands hefur eignast gamla vatnslitamynd af Vopnafjarðarkaupstað, sem var máluð um 1800. Myndin, sem sýnir verslunarhúsin á Vopnafirði á þessum tíma, kom hingað frá V- Þýskalandi. Hún kostaði átta þúsund vestur-þýsk mörk, eða 288 þús. ísl. kr. Myndin er frá þeim tíma sem Daninn Poul Löwenöm, sjólisfor- ingi og strandmælingamaður, var hér á landi við sjó- og strandmæl- ingar. „Löwenöm stóð fyrir útgáfu á bók um mælingar sínar við ís- land og í bókinni má finna margar skemmtilegar teikningar frá sjáv- arþorpum á þessum tíma. Eins og til dæmis frá Flatey á Breiðafirði, ísafirði, Vopnafirði, Djúpavogi og Keflavík," sagði Halldór Jþnsson, safnvörður í Þjóðminjasani Islands. „Það er ekki ósennilegt að þessi vatnslitamynd sé frummynd teikn- ingarinnar frá Vopnafirði, sem er í bókinni. Myndin, sem hefur verið mjög vel varðveitt, er mjög vegleg og góður safngripur," sagði Hall- dór. Það var fornsali í Hamborg sem hafði samband við Listasafn ríkis- ins í árslok 1989 og bauð safninu myndina til kaups. Listasafnið lét Þjóðminjasafnið vita og það varð úr að safnið keypti myndina. Ekki er vitað hver málaði myndina. Þess má geta að myndasafn Þjóðminjasafns Islands er orðið stórt. Með mannamyndum eru skráðar um 400.000 myndir í safn- inu. Viðræður iðnaðarráðherra við Alumax: Hafa áhuga á Atlantalhópnum „ÞETTA voru mjög gagnlegir fundir,“ sagði Jón Sigurðsson, iðnaðar- ráðherra í gær að afloknum fundum með forsvarsmönnum bandaríska ' állyrirtækisins, Alumax, þeim Drack, aðalforstjóra, Evans, nánasta samstarfsmanni hans og Frost, aðstoðarforstjóra. Ráðherra sagði að steftit væri að öðrum fúndi með þessum mönnum, trúlega hér á landi, seinni hluta næstu viku, ásamt forsvarsmönnum Hoogovens og Grang- es um hugsanlega samvinnu um byggingu nýs álvers á íslandi. Jón sagði að forsvarsmenn Alum- ax hefðu lýst áhuga sínum á því að halda áfram þessum samtölum, með möguleikann á samstarfi í svonefnd- um Atlantalhóp í huga. Hann kvaðst ekki telja að niðurstaða fengist á næsta fundi aðila, en hann teldi það góðs viti að forsvarsmenn alumax vildu nálgast máiið með jafn ákveðn- um hætti og raun bæri vitni. „Alumax er ákjósanlegur sam- starfsaðili. Fyrirtækið er öflugt og hefur getið sér mjög gott orð fyrir góða stjórnun, bæði í rekstri og tækni,“ sagði iðnaðarráðherra. Hann sagði að Alumax framleiddi nálægt einni milljón tonna af áli á ári, um 750 þúsund tonn þarf af væri frum- vinnsla áls, en 150 til 200 þúsund tonn væri endurvinnsla áls. „Þeir eru mjög framarlega í bygg- ingarvörum úr áli og hafa úrvinnslu- fyrirtæki víða, bæði í bandaríkjunum og Evrópu. Þeir hafa þörf fyrir málm fyrir sín evrópsku fyrirtæki m.a. og þar af leiðir að staðsetning innan evrópska efnahagssvæðisins væri mjög skynsamleg frá þeirra bæjardyrum séð,“ sagði Jón. Sjópróf vegna strands Hofsjökuls: Nokkrir samverkandi þættir ollu strandinu SJÓPRÓFUM vegna strands fiutningaskipsins Hofsjökuls í inn- siglingunni að Tálknafirði er lok- ið í Reykjavík. Þar kom fram, að tvær miklar og dimmar hviður ráku skipið af leið í þrengslunum milli Sveinseyrarodda og Hvamm- eyrar og lenti það því í fjörunni Hvammeyrar megin. Birgir Ómar Haraldsson, útgerð- arstjóri Hofsjökuls, sagði í samtali við Morgunblaðið, að litlu væri við fyrri fréttir af óhappinu að bæta. Við sjóprófin hefði komið fram, að þegár skipstjórinn hefði reynt að sigla út frá höfninni, hefðu lent á skipinu tveir miklir byljir, mjög dimmir og þegar þann síðari hefði birt upp, hefði skipið nánast verið komið upp í fjöru. Vél skipsins væri snarvend, sem þýddi að ekki væri hægt að skipta úr ferð áfram í aftur á bak, nema vélin væri stöðvuð fyrst. Svigrúm til að gera svo til að forða strandi hefði ekkert verið. Þessu hefðu því valdið nokkrir sam- verkandi þættir, eins og reyndar væri í flestum óhöppum. Hofsjökull, sem er frystiskip í eigu Jökla hf, náðist nær óskemmdur á flot, en síðar kom í ljós lítils háttar rifa á stefni skipsins. Áætlun þess raskaðist ekki teljandi af þessum sökum. Maðurinn, sem lést í eldsvoða á heimili Sínu á Öldugötu 54 að morgni síðastliðins föstudags, hét Agnar Markússon. Agnar Markússon var á 68. ald- ursári, fæddur þann 2. ágúst árið 1922. Hann lætur eftir sig upp- komna dóttur-.___— Lést í bruna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.