Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990 Minning": Dagbjört Eiríks- dóttir fóstra Fædd 26. júlí 1918 Dáin 31. desember 1989 Foreldrar Dagbjartar voru Eirík- ur Jóhannesson f. 3.6. 1883 og Þorbjörg Jónsdóttir f. 17.12. 1881. Þau hófu búskap á Hrauni í Reyðar- firði, en fluttu til Eskifjarðar þegar Dagbjört var þriggja ára og bjuggu þar upp frá því. Föðuramma hennar var Gunnhiklur Björnsdóttir, gift Jóhannesi Árnasyni, Sellátrum í Suður-Múlasýslu. Gunnhildur var systir Eiríks Björnssonar í Karls- skála í Reyðarfirði, sem var orð- lagður atorku- og framkvæmda- maður, bæði í búskap og útvegi. Dóttir hans, Guðný, giftist Jóhann- esi Patursson kóngsbónda í Kirkjubæ í Færeyjum — hann var hinn mikli þjóðskörungur Færey- inga á fyrri hluta aldarinnar (d. 1946). Þau hjón áttu tíu börn, sem öll komust til fullorðinsára nema eitt. Yngst þeirra var Elendur Pat- ursson — hagfræðingur að mennt — sem helgaði líf sitt baráttunni fyrir sjálfstæði þjóðar sinnar.- Hann lést árið 1986. — Dagbjört og Er- lendur voru þannig þremenningar að skyldleika og var með þeim góð- ur kunningsskapur. Hermann mað- ur Dagbjartar kynntist honum vel er þeir voru saman við nám í Hafn- arháskóla fyrir stríð. 1 dag, þegar Dagbjört Eiríks- dóttir er kvödd hinstu kveðju, leitar margt á huga minn. Efst í huga eru mér þakkir til hinnar látnu fyr- ir áratugatryggð og vináttu. Kynni okkar Dagbjartar hófust þegar við, haustið 1935, hófum nám í héraðsskólanum að Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu. Þessi skóla- vist var okkkur ótrúlega mikils virði á margan hátt. Þá var dr. Leifur Ásgeirsson skólastjóri. Hann og hans ágæta kona, Hrefna Kolbeins- dóttir, höfðu mikil og mótandi áhrif á ailan bæjarbrag. Leifur var ekki bara skólastjóri, heldur vinur og félagi okkar ailra. Þarna á Laugum voru ekki ein- göngu nemendur úr nágrannasveit- unum, heldur úr flestum byggðum landsins. í þessum hópi var Dag- björt, fædd á Hrauni í Reyðarfirði og uppalin á Eskifirði. í skólanum var margt góðra námsmanna. Þó fór það svo, að þessi litla, granna Austfjarðastúlka tók forystuna hvað öll námsafköst snerti, og reyndist mjög jafnvíg á allar námsgreinar. Þennan vetur var mikið félagslíf í skólanum. Dagbjört var virk í öllu slíku. Hún söng í kór, lék í leikrit- um, sté dans á dansleikjum og var í sýningarflokki fimleikakvenna á staðnum. Sumarið eftir þennan minnis- verða vetur var ég á búi foreldra minna í Húnaþingi. Þá gerðust þau undur, að Dagbjört birtist einn bjartan vordag á hlaðinu heima. Svo merkilega stóð á hjá okkur þá, að búið var að rífa timburhúsið, sem staðið hafði í áratugi, og verið að hefjast handa um byggingu stein- húss, sem ennþá stendur. Fjölskyld- an bjó þá í fjárhúsum og hlöðu. Er nú skemmst frá því að segja, að Dagbjört gekk að þessu dálítið sérstæða heimilislialdi með okkur og eignaðist bæði vináttu og traust ungra jafnt sem aldinna. Arið 1943 giftist Dagbjört eftir- lifandi manni sínum, Hermanni Jónssyni. Var heimili þeirra æ síðan í Reykjavík. Á þessu tímabili var ég ekki heimilisföst í Reykjavík, en þurfti að sjálfsögðu að leggja leið mína til höfuðborgarinnar. Oft var það svo, að dvölin í Reykjavík hófst með gistingu hjá þeim hjónum og gjarna lauk ferðinni á því, að farið væri til þeirra með pjönkur sínar, áður en snúið væri aftur til átthag- anna. Máltækið segir: „Þar sem er hjartarúm, þar er húsrúm" og sann- aðist það á þeim hjónum. Ég var ekki ein um það að knýja dyra á heimili þeirra. Þar var oft mjög gestkvæmt. Á þessum góðu árum sá ég föður Dagbjartar, Eirík Jóhannesson. Hann var þá kominn á efri ár og þreyta og heilsubrestur höfðu sett mark á hann. Honum fylgdi friður, mildi og hlýja og hver stund í ná- vist hans var góð. Ég hitti einnig öll systkini þeirra hjóna á þessum árum. Þótt ekki tækjust með okkur náin kynni, gerði ég mér grein fyrir því, að þetta var mikið atgervisfólk til líkama og sálar. Þarna kynntist ég yenslafólki þeirra frá Húsavík og ísafirði. í þeirra hópi voru ungmenni, sem voru hér við nám, og fullorðið fólk, sem kom til höfuðborgarinnar ýmissa erinda. Minnisstæðar verða mér þó syst- urnar Arnfríður Ingvarsdóttir, móð- ir Hermanns, og Sigríður Ingv- arsdóttir, systir hennar og fóstra Hermanns. Þær voru svo einstakar að reisn og glæsibrag. Dagbjört stundaði nám við Fóstruskóla íslands og lauk þaðan námi vorið 1956 með góðum vitnis- burði. Hún helgaði sig fóstrustörf- um æ síðan, lengst á geðdeild Barnaspítala Hringsins, eða þar til hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. Frá okkar fyrstu kynnum var mér ljóst, hve mikið yndi Dagbjört hafði af börnum og hver ábyrgð er á herðar okkar lögð að hlúa sem bezt að hvetjum einstaklingi. Nú, þegar ég kveð Dagbjörtu hinztu kveðju, leitar svo margt á hugann. Efst í huga er mér þakk- lætið fyrir allt, sem hún var mér, bprnum mínum, fósturdóttur og barnabörnum. Ég trúi því, að minningin um gleðistundirnar, sem við áttum sam- an, eigi oft eftir að ylja mér. Hinu trúi ég einnig, að hennar hollu ráð og lífsviðorf eigi eftir að veita mér styrk þegar á móti blæs. Eiginmanni hennar, fóstursyni, tengdadóttur og barnabörnum sendi ég hlýjar kveðjur. Dagbjörtu kveð ég með virðingu og þökk. Gyða Sigvaldadóttir Á árinu 1970 var hafist handa við að setja á stofn fyrstu barnageð- deild á Islandi. Árið eftir stóð til að koma á laggirnar dagdeild fyrir þau börn, sem ekki þurftu á sólar- hringsvistun að halda þótt erfíðleik- ar þeirra væru slíkir að göngudeild- armeðferð nægði ekki. Deildina skorti forstöðumann og leiddi það til þess að ég kynntist Dagbjörtu Eiríksdóttur. Við höfðum ólíkan bakgrunn. Dagbjört hafði þá þegar mikla reynslu af bágstöddum börn- um og fjölskyldum. Hún hafði veitt upptökuheimili Reykjavíkur á Sil- ungapolli forstöðu um margra ára skeið. Þar var tekið á móti börnum, sem fyrirvaralaust urðu heimilislaus vegna sjúkleika eða annarra erfið- leika á heimilum. Síðan varð hún félagsmálafulltrúi við Félagsmála- stofnun Reykjavíkur þar sem henni var falið að leysa margvíslegan fé- Iagslegan_ vanda reykvískra fjöl- skyldna. Ég hafði hinsvegar mennt- ast erlendis í þeirri ungu sérgrein læknisfræðinnar sem fjallar um geðrænar truflanir barna og ungl- inga. Dagbjört hafði ekki starfað að geðlækningum, en orðspor henn- ar var það að hún kynni engu að síður til verka við að aðstoða fjöl- skyldur og koma börnum til manns þrátt fyrir að þau hefðu fallið út af þeirri braut, sem samfélagið væntir að þau þræði. Ég var engan- veginn viss í minni sök þegar það varð að ráði, að fela Dagbjörtu stjórn dagdeildarinnar, hefði vissu- lega heldur viljað fá forstöðumann með meiri sérhæfðá menntun. En aldrei hvarflaði að mér að ákvörð- unin hefði ekki verið rétt öll þau næstum 15 ár sem við unnum síðan saman. Ég minnist fyrsta fundar okkar. Við áttum að hittast til að spá í það hvort um samstarf yrði að ræða. Hún kom til fundarins og reyndist vera fremur lág, þéttvaxin kona með grásprengt hár. Af henni stafaði rósemi, mýkt og öryggi. Margir höfðu sagt mér að Dagbjört væri mjög sérstök manneskja að mannviti og þroska og eftir fundinn var ég ekki í vafa um að þau um- mæli hefðu við rök að styðjast. Á þessum fundi okkar varð ég í fyrsta sinn aðnjótandi þess fjársjóðs reynslu og skilnings á manneskjum, sem síðan átti eftir að verða mér og öðru samstarfsfólki hennar að viskubrunni um ókomin ár. Ekki voru það fyrst og fremst bóklegar kennisetningar heldur einstakt eðl- islægt innsæi í hug manneskjunnar sem misst hafði tökin á tilverunni. Sérstaklega veittist henni einstak- lega auðvelt með að setja sig í spor barnanna. Hún hafði einnig mjög sérstaka hæfileika til að gefa öðrum hlutdeild í skilningi sínum. Sá hæfi- leiki byggðist ekki síst á einstöku minni, þar sem hún gat ávallt riijað upp góða og markvissa sögu til að útskýra flest það sem hún þurfti að koma til skila. Stundum hafði ég orð á því, að hægt væri að setja saman fullkomna barnasálarfræði úr sögunum hennar Döggu. Flestar ef ekki allar sögurnar fjölluðu um það sem börn höfðu sagt við hana sjálfa þar sem þau voru að takast á við það að átta sig á tilverunni og brjóta heilann um það hversu flókin hún getur stundum orðið. Ég man sjaldan eftir því að Dag- björt hlægi sjálf að sínum skondnu sögum. Allir aðrir gerðu það sem fengu tækifæri til að hlusta. En augun hlógu um leið og hún lét hugann reika til baka og lifði sig inn í marbreytileika barnshugans og tílverunnar yfirleitt. Ég minntist á ró og öryggi í fari Dagbjartar. í því sambandi langar mig að segja frá því hvernig sam- skipti okkar þróuðust. Það var ekki fyrr en eftir alllangan tíma, að ég spurði Döggu þess hvort svars væri að vænta við einhverri erfiðri spurn- ingu sem borin hafði verið upp. Þá hafði hún setið hugsi um stund. Hún svaraði, að ég skyldi bara bíða rólegur. Eftir dálitla stund kom svarið og var þá slíkt, að þessi að- ferð átti eftir að verða snar þáttur í samvinnunni. Og það borgaði sig að bíða. Greind, mannvit og sálar- þroski gerðu það að verkum að samstarfsfólk hennar varð oftast auðugra ef það hafði ró til að bíða eftir svarinu. Á löngum starfsferli voru þeir ófáir, sem auðguðust á samskiptum við Dagbjörtu Eiríksdóttur. Og margpr eru þeir, sem hún náði að hafa gagnger áhrif á. Fjöldinn allur af ungu ómótuðu starfsfólki tók sín fyrstu skref á starfsbrautinni með stuðningi hennar þar sem hún gaf þeim hlutdeild í sinni einstöku virð- ingu fyrir meðbræðrum sínum, smáum og stórum. Ég veit að margt fagfólk býr ævilangt að þessari handleiðslu Dagbjartar, fóstrur, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar, félagsráðgjafar og læknar, svo ein- hveijir séu nefndir. Og ekki skyldu menn gleyma þeim gífurlega fjölda barna, sem nutu hennar á erfiðum stundum í lífinu. Ég veit um fjöl- marga skjólstæðinga hennar, sem minnast alla ævi afskipta hennar af lífi þeirra og fínnst það hafa verið óbilandi skilningur hennar og alúð, sem bjargaði þeim frá því að missa allt traust á heiminum. Það eru fjögur ár frá því að Dagbjört lauk störfum sínum við barna- og unglingadeildina á Dalbraut. En andi hennar svífur þar enn yfir vötnunum, ekki síst á dagdeildinni, sem hún mótaði og vonumst við samstarfsmenn hennar að svo verði enn um langa hríð. Að þessum minningarorðum skrifuðum langar migtil að tjá eftir- lifandi eiginmanni Dagbjartar, Her- manni Jónssyni ásamt syni þeirra, Sigurði Pétri, konii hans og börnum einlæga samúð. Ég vona að minn- ingin um hina mikilhæfu konu eigi eftir að slæva söknuðinn. Ég get fullvissað þau um, að ég tala fyrir hönd margra er ég segi að sam- fylgdin við Dagbjörtu Eiríksdóttur gerði okkur öll ríkari. Páll Ásgeirsson Haustið 1954 hittust 11 ungar konur í gömlu Grænuborg v/Mikla- torg. Þetta var æði sundurleitur hópur, sem átti, að því er virtist, það eitt sameiginlegt að ætla sér að verða fóstrur. Fljótlega hættu tvær námi en hinar níu héldu ótrauðar áfram. Ekki áttum við einu sinni það sameiginlegt að vera á svipuðum aldri, sú elsta var jafngömul móður þeirrar yngstu. Allar höfðum við áhuga á börnum og bárum umhyggju fyrir þeim, engin þó í eins ríkum mæli og sú elsta okkar, hún Dagbjört Eiríks- dóttir, Dagga, sem við köliuðum svo. Hún hafði þurft undanþágu, sök- um aldurs, til þess að komast í skólann. Orðin 36 ára, gift og átti eitt barn. í dag þykir ekki tiltöku- mál þótt að konur setjist á skóla- bekk þó miklu eldri séu. Má því segja að Dagga hafí verið braut- ryðjandi að þessu leyti. Þessi sundurleiti hópur var orð- inn þó nokkuð samhentur vorið 1956 þegar við útskrifuðumst sem fóstrur úr Uppeldisskóla Sumar- gjafar. Á þessu eina og hálfa ári þurrk- aðist út úr vitund okkar ailur ald- ursmunur og hefur upp frá því aldr- ei gert vart við sig í hugum okkar. Alla tíð síðan höfum við haldið hóp- inn og vináttan orðið æ traustari. Dagga hefur verið sístarfandi að málefnum barna. Velferð barna var henni brennandi áhugamál. Við sem höfum unnið hjá henni og með henni vitum að hún gat verið kröfuharður húsbóndi en gerði jafnframt mestu kröfurnar til sjálfrar sín. Henni fannst að einungis með því að leggja sig alla fram og gera allt eins og best væri mögulegt væri hægt að vinna með og fyrir börn. Börn og unglinga skyldi um- gangast með ómældum kærleika og djúpri virðingu. Þannig um- gekkst Dagga börn og ungmenni. I henni áttu þau góðan málsvara og hlýtt skjól var hún öllum þeim mörgu börnum er hún annaðist í lengri eða skemmri tíma. Það kom því ekki á óvart, þegar hún hætti í föstu starfi sökum ald- urs, að hún vann sem stuðnings- fóstra á barnaheimilum. Það var líka í takt við lífsviðhorf hennar að vinna síðustu starfsár sín á barna- geðdeild við að sinna og hlúa að einhverfum börnum. í þeirra þágu rétti hún fram hjálpfúsar hendur sínar nú skömmu fyrir jól. Dagga er sú fyrsta úr þessum fóstruhóp er hverfur sjónum okkar. Við átta sem eftir stöndum vitum að aldrei verðúr hópurinn samur aftur. Söknuðurinn er mikill og sár. Þakklætið er einnig ómælt. Þakkiæti fyrir að hafa fengið að eiga Döggu að samferðarmanni, þakklæti fyrir vináttu hennar. Það er mannbætandi að kynnast og fá að vera með slíkri manneskju í starfi og leik. Við sendum Hermanni, Tuma, Kollu og ömmustelpunum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Við vitum að ykkar ér sárasti söknuður- inn. Erfit.t og sárt er fyrir ungar ömmustelpur að sjá á bak slíkri ömmu en það er líka gott fyrir ykkur að vita og minnast að ekkert veitti henni meiri gleði en að eign- ast hlutdeild í ykkur og ykkar lífi og fá að gefa ykkur ómælda ást og umhyggju. Þá sem að ykkur unnu mest munuð þið síðar sjá samfunda-landi á. (Kr. Jónsson) Skólasystur LAUSBLAÐA- MÖPPUR frá Múlalundi... § . þær duga sem besta bók. Múlalundur _Dale . Carneqie þjálfuri Ræðumennska og mannleg samskipti Kynningarfundur Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 11. janúar kl. 20.30 á Sogavegi 69, gengið inn að norðanverðu. Innritun og upplýsingar í síma: 82411 STJÚRI\IUI\IARSKÓLII\II\I % Konrað Adolphsson Emkaumboð fyrir Dale Carnegie namskeiðm ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.