Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANUAR 1990 17 Mm vægir u unktar varðandi bflastæði í miðborginni: Gífurlegt átak hefur verið gert í bílastæðamálum borgarinnar. í miðborg Reykjavíkur hafa á tiltölu- lega skömmum tíma verið byggð og tekin í notkun svokölluð bflastæðahús og einnig hefur almennum- bflastæðum verið fjölgað verulega. Ökumenn eru hvattir til að kynna sér þessi mál. Á kortinu hér að neðan má sjá greinilega merkta punkta, sem sýna hvar í miðbænum er helst að finna aðgengileg og örugg bflastæði. Starfsfólk í miðborginni er eindregið hvatt til að leggja bflum sínum fjær, þannig að viðskiptavinir komist með hægara móti sem næst þeirri þjónustu sem þeir þurfa að sækja. Sérstaklega er bent á í þessu sambandi gjaldtöku- stæði merkt C og D og stæði merkt E og F, en í þau er engin gjaldtaka. □ Almennir stöðumælar í miðborginni eru 1200 talsins. Nýverið hefur hámarkstími á rúmlega 200 stöðumælum verið lengdur í 2 klukkustundir. Má þar nefna stöðumæla við Túngötu, Kirkjutorg, Kalkofnsveg, Ingólfsstræti norðan Hverfisgötu, Vitastíg, Frakkastíg, Grettisgötu við BSRB og Rauðarárstíg við Hótel Lind. Hér að neðan eru leiðbeiningar um notkun á gjald- tökubúnaði, sem tekinn hefur verið í notkun á Bakkastæði og í bflastæðahúsum. Tekið er við þremur myntstærðum, sem eru 5 krónur, 10 krónur og 50 krónur og einnig er gefið til baka. Mánaðar- kort fyrir alla staðina eru seld í varðskýli Bakkastæðis. Klippið út auglýsinguna og hafið meðferðis í bílnum NOTKUN á GJALDTÖKUBÚNAÐl. 1 Komið að bílastæðahúsi: Ýtið á hnapp við innkeyrsluhliðið, takið við miða og geymið! 2. Bíllinn sóttur: Gengið að miðaaflesara. Setjið miðann í miðaraufina, uppsett gjald greitt, þú færð miðann aftur. Þessi ferill gildir jafnvel á þeim tímum dags og um helgar, þegar ekki er gjaldtaka. 3 Ekið frá bflastæðahúsi: Akið af stæði að útaksturshliði, setjið miðann í miðaraufina, hliðið opnast. A Bflastæðahús - Vesturgata 7 - 109 stæði B Bflastæðahús - Bergstaðir - 153 stæði C Bflastæðahús - Kolaport - 180 stæði D Opin bflastæði - Bakkastæði - 350 stæði E Opin bflastæði - milli Sætúns og Skúlagötu - 150 stæði F Opin bflastæði - milli Vatnsstígs og Frakkastígs - 150 stæði Bflastæðasjóður Reykjavíkur Umferðarnefnd Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.