Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990 7 Baker svartsýiin á að viðræður hefjist Washington. Reuter. JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær við Kjell Magne Bondevik, utanríkisráðherra Noregs, að hann væri að missa trúna á að hægt yrði að koma á samningaviðræðum á milli Israela og Palestínumanna og svo gæti farið að hann drægi friðartil- lögur sínar til baka. Stjómarerindrekar sögðu að Baker virtist afar svartsýnn á að samið yrði um frið í Mið-Austur- iöndum í bráð. „Þetta kom á óvart og var mjög uggvænlegt," sagði heimildarmaður, sem fylgdist með Deila breskra sjúkrabílstjóra: Þokast í sam- komulagsátt St. Andrews, frá Guðmundi H. Frímanns- syni, fréttaritara Morgunblaðsins. ÝMISLEGT bendir til að sam- komulag sé í nánd í kjaradeilu starfsfólks á sjúkrabilum og brezkra heilbrigðisyfirvalda, sem staðið hefúr í fjóra mánuði. viðræðum ráðherranna. „Bondevik hvatti Baker til þess að láta ekki deigan síga og sagði að í tillögum hans fælist eina vonin til þess að komið yrði á friði en Baker sagði að þar sem svo margt væri að ger- ast í heiminum gæti svo farið að hann tæki þá ákvörðun að einbeita sér að svæðum þar sem von er um að einhveiju yrði komið í verk,“ bætti heimildarmaðurinn við. Aðrir stjórnarerindrekar, sem sátu fund ráðherranna, staðfestu frásögn heimildarmannsins. James Baker lagði í október fram tillögur, sem ætlað var að stuðla að beinum viðræðum ísraela og Palestínumanna um kosningar á Vesturbakka Jórdanár og Gaza- svæðunum. Reuter Ungir Palestínumenn setja upp vegatálma í þorpinu Beit Rima á Vesturbakka Jórdanár til að hindra ferðir ísraelskra hermanna til þorpsins eftir að hermenn höfðu skotið tvo unglinga til bana á mánu- dag. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kvaðst í gær vera svartsýnn á að hægt yrði að koma á friðarviðræðum milli Israela og Palestínumanna. Sænska stjórnin stokkuð upp: Deilur ísraela og Palestínumanna: Rekstri kjamorkuveranna verður ekki hætt í bráð Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. Starfsfólk í sjúkrabílum um allt land hefur gripið til ýmissa aðgerða til að þvinga fram kauphækkun. Sjú- krabílstjórar víða um land hafa ekki viljað sinna öðrum útköllum en neyð- arútköllum og sums staðar ekki einu sinni þeim. Heilbrigðisyfirvöld hafa boðið 9% kauphækkun, sem dreifast á yfir 18 mánuði, en samningamenn verka- lýðsfélaganna vilja að hækkunin komi á einu ári og einnig að launa- hækkanir starfsfólks á sjúkrabílum verði tengdar hækkunum slökkviliðs- manna og lögreglumanna. Samn- ingamenn starfsfólks á sjúkrabílum hafa hvatt annað verkafólk til að grípa til samúðarvinnustöðvunar í 15 mínútur 30. þessa mánaðar. INGVAR Carlsson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, gerði í gær all- verulegar breytingar á ríkis- stjórn jafnaðarmanna og vekur það einna mesta athygli, að orku- málin hafa verið tekin af Birgittu Dahl. Við þeim tekur nýr ráð- herra, Rune Molin, varaformaður sænska alþýðusambandsins, og er breytingin talin boða, að kjarnorkuverin verði ekki tekin úr notkun árið 1995 eins og að var stefnt. Rune Molin verður iðnaðar- og orkumálaráðherra en Birgitta Dahl hefur nú aðeins umhverfismálin á sinni könnu. í þjóðaratkvæða- greiðslu árið 1980 var samþykkt að leggja niður kjamorkuverin árið 2010 en ríkisstjórnin og sérstaklega Birgitta Dahl ætluðu að láta verða af því þegar árið 1995. Breytingin, sem tilkynnt var í gær, virðist því eins konar yfirlýsing um, að kjam- orkuverin fái að lifa til 2010 að minnsta kosti enda ber flestum saman um, að frammi fyrir innri markaði Evrópubandalagsins og vaxandi samkeppni hafi Svíar ekki efni á nýjum og dýrari orkugjöfum. Tveir ráðherrar ætla nú að hætta af persónulegum ástæðum, þeir Ivar Nordberg iðnaðarráðherra og Sven Hulterström félagsmálaráð- herra, og nýr atvinnumálaráðherra verður Mona Sahlin, sem er aðeins 32 ára. Tekur hún við af Ingela Thalen, sem verður félagsmálaráð- herra. Ríkisstjómin hefur auk þessa til- kynnt, að um næstu framtíð verði lögð sérstök áhersla á þijá mála- flokka. Er þar um að ræða vamar- og öryggismál, málefni atvinnulífs- ins og velferðarmál. Á Sten Anders- son utanríkisráðherra að bera ábyrgð á mótun varnarmálastefn- unnar og er þar með settur skör- inni hærra en Roine Carlsson varn- armálaráðherra. Suður-Afríka: Mannskæð átök brjót- ast út vegna verkfalls Jóhannesarborg. Reuter. MANNSKÆÐ átök brutust út í gær skammt firá Jóhannesarborg á milli suður-afrískra verkfalls- manna og lestarstarfsmanna, sem neituðu að leggja niður vinnu. Talsmaður stéttarfélags verk- fallsmannanna sagði að samkvæmt óstaðfestum fréttum hefði að minnsta kosti 21 maður beðið bana á lestarstöð í bænum Germiston, skammt austur af Jóhannesarborg. Verkfallsbijótar hefðu ráðist á verk- fallsmenn með steinum, bareflum og rýtingum. Talsmaður lestarfyrir- tækisins sagði að nokkrir hefðu beðið bana í átökunum en kvaðst ekki vita með vissu hversu margir. V-þýskir flokksbræður voru þjálfaðir til skemmdarverka Austur-þýski kommúmstaflokkurmn: NOKKRIR félagar í Þýska kommúnistaflokknum (DKP) sem starf- ræktur er í Vestur-Þýskalandi hafa viðurkennt í samtölum við vikuritið Der Spiegel að þeir hafí hlotið þjálfún í Austur-Þýska- landi til skemmdarverka í heimalandi sínu. Forystumenn kommún- ista bæði í Vestur- og Austur-Þýskalandi hafa visað þessum frétt- um á bug. Saksóknari í Hessen-fylki í Vestur-Þýskalandi íhugar hins vegar rannsókn málsins en svo virðist sem kommúnistaflokk- ur Austur-Þýskalands hafi árum saman starfrækt 300 manna leyniher í Vestur-Þýskalandi. Der Spiegel byggir frásögn sína að miklu leyti á framburði manns sem hafði að eigin sögn dulnefnið Lothar Oertel innan hersveitar- innar leynilegu. Að hans sögn var verkefni sveitarinnar m.a. að fremja hryðjuverk á hættutímum. Liðsmenn komu úr DKP, sem starfræktur hefur verið frá árinu 1968 í Vestur-Þýskalandi, og fengu þeir þjálfun í Austur- Þýskalandi. Félagsmenn í DKP eru 25.000 en flokkurinn er arf- taki KPD sem bannaður var snemma á sjötta áratugnum fyrir starfsemi sem stríddi gegn stjórn- arskránni. Vestur-þýsk yfirvöld hafa hins vegar ekki séð ástæðu til að amast við starfsemi DKP til þessa þrátt fyrir að tengsl hans við kommúnista í Austur-Þýska- landi hafi verið á allra vitorði. „Sýna kapítalistunum í tvo heimana“ Lothar Oertel segir að leyniher- inn hafi verið stofnaður um miðj- an áttunda áratuginn að frum- kvæði SED, kommúnistaflokks Austur-Þýskalands. Til starfa voru valdir félagar í DKP sem þóttu sérstaklega traustsins verð- ir og ekki sakaði ef menn höfðu gegnt herþjónustu í vestur-þýska hernum. Liðsmönnum var sagt að tilgangurinn væri sá að „sýna kapítalistunum í tvo heimana þeg- ar stéttaátök færu úr böndunum". Verkefni þeirra var að taka þátt í fjöldabyltingu, veijast nýnasist- um, frelsa fangelsaða félaga, fremja skemmdarverk á járn- brautum og fjarskiptastöðvum og grípa til hryðjuverka gegn til- teknum mönnum. Árið 1975 þegar Oertel var 24 ára gamall og hafði verið félagi í DKP í fimm ár var honum boð- ið til Austur-Berlínar. Eftir ítar- legar yfirheyrslur var hann látinn skrifa undir yfirlýsingu um holl- ustu við flokkinn og að hann væri reiðubúinn að beijast fyrir hann. Honum var hótað með líf láti „Lothar Oertel“, liðsmaður í sérsveit kommúnista í Vestur- Þýskalandi, féllst á að segja frá þjálfun sinni í Austur-Þýska- landi í vestur-þýska sjónvarp- inu en einungis eftir að hann hafði verið dulbúinn. ef hann ryfi eiðinn. Oertel lýsir æfingabúðum nærri pólsku landamærunum þar sem regluleg þjálfun fór fram. Þar voru kennd skemmdarverk, meðferð skotvopna og sprengiefn- is og veitt leiðsögn í hugmynda- fræði kommúnismans. Einnig var vestur-þýsku kommúnistunum innrætt að í þeirra verkahring væri að verja byggingar DKP í Vestur-Þýskalandi og vemda flokksmenn í mótmælaaðgerðum eins og gegn kjarnorkuendur- vinnslustöðinni í Wackersdorf. Leynigöng milli Austur- og Vestur-Berlínar Oertel segist sjálfur hafa verið yfirmaður í 9 manna deild innan leynihersins. í byijun þessa ára- tugar þegar deilur stóðu sem hæst um uppsetningu meðal- drægra flauga fékk hann fyrir- skipun um að menn hans ættu að vera í viðbragðsstöðu. Síðan var honum falið að hefja stórfelld- an flutning á vopnum frá Austur- Pýskalandi til Vestur-Þýskalands um leynileg göng milli Austur- og Vestur-Berlínar en slík göng hafði hann áður notað til að kom- ast milli borgarhlutanna án þess að vestur-þýskir landamæraverðir yrðu þess varir. En á síðustu stundu var hætt við vopnaflutn- inginn, að sögn austur-þýskra kommúnista vegna „erfiðleika 'a landamærunum". 1 ljósi síðustu atburða í Austur- Þýskalandi hafa nokkrir félagar í leynihernum ákveðið að segja sig úr honum og skorað á félaga sína að gera slíkt hið sama. Oert- el hefur nú gefið sig fram við saksóknara í Frankfurt. Yfir hon- um og félögum hans vofir ákæra fyrir landráð og skipulagningu hryðjuverka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.