Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992
Linares:
Nigel Short hefur
betur gegn Karpov
Linares. Reuter.
BRESKI stórineistarinn Nigel Short þarf að fá einn vinning í tveim-
ur skákum til að sigra Anatolíj Karpov, fyrrum heimsmeistara, í
undanúrslitum keppninnar um réttinn til að skora á Garríj Ka-
sparov, núverandi heimsmeistara. Er staðan sú sama í viðureign
þeirra Jan Timmans frá Hollandi og Artúrs Júsúpovs frá Rúss-
landi og stendur Timman betur.
Keuter
Short átti í litlum erfiðleikum
með andstæðing sinn í áttundu
skákinni á fimmtudag og neyddist
Karpov til að gefa taflið eftir 36
Ieiki. Short hafði hvítt en Karpov,
sem varðist með spánska ieiknum,
lenti í erfiðleikum strax í byrjun
og missti fljótt hrók fyrir biskup.
Gafst hann svo upp þegar mát
blasti við í næsta leik og hafði þá
notað um tvær klukkustundir en
Short eina.
Short og Timman hafa nú 4,5
vinninga gegn 3,5 vinningum
Karpovs og Júsúpovs og verður
Björgunarmenn bera eitt líkanna 230 sem fundist hafa í rústum húsa er hrundu í gassprengingunni
í Guadalajara í Mexíkó.
Gassprengingarnar í Guadalajara í Mexíkó:
Ottast að allt að eittþús-
und manns hafi týnt lífi
Guadalajara. Reuter, Daily Telegraph.
MANNTJÓNIÐ af völdum gas-
sprenginganna í Guadalajara,
næst stærstu borg Mexíkó, á
miðvikudag var af opinberri
hálfu í gær talið vera 230 manns
en íbúar í borgarhlutanum sem
verst varð úti sögðust óttast að
það kynni að vera enn meira
eða allt að 1.000 manns. Fullyrt
er að koma hefði mátt í veg
fyrir sprengingarnar.
Guillermo Cosio Vidaurri, ríkis-
stjóri í Jalisco, en Guadalajara er
höfuðborg þess, sagði að starfs-
menn slökkviliðs og vatnsveitu
borgarinnar hefðu hætt eftirliti
með gasmynduninni í holræsakerfi
borgarinnar upp á sitt eindæmi
sjö stundum fyrir sprenginguna.
Hefðu þeir borið við þreytu og
ekki talið gasmengunina í holræs-
unum réttlæta að íbúar Reforma-
hverfisins yrðu beðnir að yfirgefa
heimili sín, en Cosio sagði að fyrir-
mæli þar að lútandi hefðu getað
komið í veg fyrir manntjón. Um-
mælin vöktu gremju um land allt
og Carlos Salinas forseti fyrirskip-
aði opinbera rannsókn á orsökum
óhappsins. Gaf hann rannsóknar-
mönnum þrjá sólarhringa til að
ljúka verkinu.
Komið hefur í ljós að vitað var
um gasmengunina og höfðu
starfsmenn slökkviliðs og vatns-
veitu borgarinnar fylgst með henni
í um sólarhring er þeir hættu því.
Yfirmenn þessara stofnana liggja
nú undir ámæli og er búist við
hreinsunum í stjórnkerfi borgar-
innar þegar niðurstöður úr rann-
sókninni sem Salinas fyrirskipaði
liggja fyrir.
Fjölmiðlar hafa gagnrýnt yfír-
völd í Guadalajara harðlega vegna
sprengingarinnar en ríkisútvarpið
hefur m.a. skýrt frá að 10 mínút-
um fyrir fyrstu sprenginguna hafi
slökkviliðsstjóri borgarinnar full-
yrt við fréttamann stöðvarinnar
að það væri engin hætta á ferðum
vegna gasmengunarinnar í hol-
ræsakerfi borgarinnar. Talið er að
eldfimar gastegundir hafí myndast
í holræsakerfinu eftir að hexan-
leysiefni hafði verið hellt niður. í
fyrstu var því haldið fram af yfir-
mönnum ríkisolíufélagsins Pemex
að lítið einkafyrirtæki er fram-
leiddi matarolíu hefði hellt leysi-
efninu niður en forráðamenn þess
hafa harðlega mótmælt ásökun-
inni.
GATT-viðræðurnar:
Koma niðurgreiðslurnar í
veg fyrir aukinn hagvöxt?
Washington. Reuter.
TALIÐ er, að á leiðtogafundi
sjö helstu iðnríkja heims í
Miinchen í Þýskalandi í júlí gef-
ist síðasta tækifærið til að ná
samkomulagi í GATT-viðræð-
unum, sem staðið hafa linnulítið
frá 1986. Snýst deilan aðallega
Patten landstjóri
Breta í Hong Kong
London og Hong Kong. Reutcr.
CHRIS Patten, formaður íhaldsflokksins og einn nánasti sam-
starfsmaður Johns Majors forsætisráðherra, var í gær tilnefnd-
ur landsljóri Breta í Hong Kong. Það kemur í hans hlut að sljórna
nýlendunni þangað til Kínveijar taka þar við stjórnartaumunum
1997.
Patten, sem er 48 ára að aldri,
stjórnaði sigursælli kosningabar-
' áttu íhaldsflokksins í þingkosn-
ingunum 9. apríl síðastliðinn, en
féll sjálfur í kjördæmi sínu, Bath.
Hann mun taka við landstjóra-
embættinu af Wilson lávarði af
Tillyorn í júlímánuði næstkom-
andi.
Major sagði í yfírlýsingu að
Patten mundi gegna „mjög mikil-
vægu starfí á örlagaríkum tíma“.
Það væri ómetanlegt að fá jafn-
reyndan stjórnmálamann og
Chris Patten í landstjóraembætt-
ið nú til að tryggja að frelsi, stöð-
ugleiki og hagsæld héldust þrátt
fyrir breytingamar sem stæðu
fyrir dyrum.
Stjómmálamenn og stjómmál-
askýrendur í Hong Kong hafa
tekið tilnefningu Pattens vel.
Sumir þeirra sögðust vonast til
þess að hann yrði harðari í hom
að taka en fyrirrennari hans.
um niðurgreiðslur í landbúnaði
en verði dregið úr þeim eins og
að er stefnt munu heimsvið-
skiptin aukast verulega. Verði
hins vegar ekkert gefið . eftir
óttast margir, að samdráttur-
inn, sem einkennt hefur efna-
hagslífið víðast hvar, muni
breytast í kreppu.
Á fundi George Bush, forseta
Bandaríkjanna, með ýmsum
frammámönnum Evrópubanda-
lagsins í Washington á miðvikudag
gekk hvorki né rak í umræðum
um landbúnaðarstyrkina ef undan
eru skildar nokkrar smávægilegar
•tilslakanir. Sagði William Niskan-
en, forstöðumaður Cato-stofnun-
arinnar í Bandaríkjunum, fundinn'
sýna, að tækist leiðtogum iðnríkj-
anna ekki að ná samkomulagi á
Miinchenarfundinum í júlí yrði
ekkert af nýjum GATT-samning-
um. Kvað hann einu vonina vera
þá, að Þjóðvetjar eða Helmut Kohl
kanslari neyddi Frakka til að fall-
ast á minni niðurgreiðslur í land-
búnaði en í Frakklandi eru bændur
geysiöflugur þrýstihópur.
R.K. Morris, yfirmaður alþjóða-
viðskipta hjá samtökum banda-
rískra framleiðenda, er ekki jafn
svartsýnn og Niskanen. Segir
tekið til við níundu skákina í dag,
laugardag. Sá, sem síðan vinnur
úrslitakeppnina, gengur á hólm
við Garríj Kasparov í Los Angeles
í ágúst á næsta ári. Eru verðlaun-
in að sjálfsögðu heimsmeistaratit-
illinn í skák og nærri 240 milljón-
ir ÍSK. að auki, sem mun þá lík-
lega verða skipt að einhveiju leyti
á milli keppenda.
SÞ vilja ekki
senda friðar-
gæslusveit-
ir til Bosníu
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
BOUTROS Boutros-Ghali,
framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, sagði í gær
að ekki væri ráðlegt að
senda friðargæslusveitir á
vegum samtakanna til Bos-
níu-Herzegovínu. Hann
bætti við að það væri öllum
hinum stríðandi fylkingum
í Bosníu um að kenna hvern-
ig komið er í lýðveldinu.
Boutros-Ghali komst að
þessari niðurstöðu eftir að
hafa fengið skýrslu frá sérleg-
um sendimanni sínum, Cyrus
Vance, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sem
hefur verið að kanna ástandið
í Bosníu. Boutros-Ghali sagði
að ljóst væri af skýrslunni að
ástandið hefði versnað veru-
lega í landinu frá því Vance
kom þangað í síðasta mánuði.
Allt var með kyrrum kjörum
í höfuðborginni, Sarajevo, í
gær og er það í fyrsta sinn í
vikunni sem sól gengur til við-
ar í borginni án bardaga. Hins
vegar blossuðu upp skotbar-
dagar annað veifið í nokkrum
bæjum og þorpum í lýðveldinu
þótt svo eigi að heita að vopna-
hlé sé þar í gildi.
hann, að talsmenn atvinnulífsins
um allan heim leggi hart að ríkis-
stjórnum að ná nýjum GATT-
samningi og hann kveðst ekki trúa
öðru en að leiðtogar þjóðanna átti
sig hvað sé öllum fyrir bestu.
Arthur Dunkel, framkvæmda-
stjóri GATT, sagði í ræðu á
fímmtudag, að Múnchenarfundur-
inn myndi snúast um efnahags-
ástandið í heiminum og um
ástandið í sovétlýðveldunum fyrr-
verandi og Austur-Evrópu. „Hann
mun með öðrum orðum snúast um
viðskipti. Það þarf ekki að taka
það sérstaklega fram,“ sagði Dun-
kel og kvaðst bjartsýnn vegna
þess, að það mætti líkja því við
óðs manns æði að gera sex ára
langar samningaviðræður Úr-
úgvæ-lotunnar svokölluðu að
engu.
Aðildarríki GATT eru 108 og í
viðræðunum hefur verið samið um
aukin og frjálsari viðskipti á ótal
mörgum sviðum öðrum en í land-
búnaði. Af þeim samningum verð-
ur þó ekki nema niðurgreiðsludeil-
an leysist. í yfirlýsingu nýsjá-
lensku stjórnarinnar í gær sagði,
að GATT-samningamir snerust
um framtíðarvelferð þjóðanna og
trúverðugleika leiðtoga ríkustu
þjóðanna.
Færrijap-
anskir bíl-
ar til EB
Brussei. Reuter.
JAPANIR hafa samþykkt að
minnka bílaútflutning til Evr-
ópubandalagslandanna um 6% á
þessu ári. Var þetta haft eftir
embættismanni hjá EB í gær en
hann sagði, að ráðuneyti milli-
ríkjaviðskipta og iðnaðar í Jap-
an hefði fallist á að takmarka
útflutninginn við 1,185 milljónir
bíla í stað 1,260 á síðasta ári.
Búist er við, að bílasala í EB-
ríkjunum minnki aðeins á þessu
ári en hlutur Japana í henni er
áætlaður 11% en var 11,3% í fyrra.
Samkomulagið við Japani tekur
aðeins til bíla, sem framleiddir eru
í Japan, en ekki til framleiðslu
japanskra bíltegunda innan EB.
Hún er áætluð 325.000 bílar á
þessu ári en var 310.000 í fyrra.
Gildir samkomulagið í sjö ár í
meginatriðum en um aldamótin
verða allar takmarkanir á inn-
flutningi felldar niður.