Morgunblaðið - 30.01.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.01.1994, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C 24. tbl. 82. árg. " ....1..... Endurfundir eftir hálfa öld BRETINN William Greenhalgh átti ný- lega innilega endurfundi með konu sinni, Shúru Alexandrobnu, sem hann hafði ekki séð í 50 ár. Kynntust þau þegar hann var á herskipi, sem hafði aðsetur í Arkangelsk við Hvítahafið, og höfðu þekkst í eitt ár þegar þau gengu í hjónaband. Daginn eftir lét skip Green- halghs úr höfn án þess Alexandrobna fengi að fara með. Greenhalgh lifði allt- af í voninni um að hitta konu sína aftur en Alexandrobna fékk skilnað þegar henni var hótað Síberíuvist ella. Giftist hún og átti tvö börn en hjónabandið entist aðeins í tvö ár. Það voru loks starfsmenn sjónvarpsstöðvarinnar Channel 4, sem fundu hana. Buðu þeir henni til London í síðustu viku og þótti það hjartnæm stund þegar gömlu elsk- endurnir hittust aftur eftir hálfa öld. Allt eða ekkert ÞÁ, sem ánetjast spilafíkninni, dreymir alla um stóra vinninginn og þannig var það líka með Bretann Christopher Boyd. Hann sýndi hins vegar meiri staðfestu en títt er um fjárhættuspilara því að hann sparaði hvern eyri í þtjú ár áður en hann brá sér í spilavítið Horseshoe eða Skeifuna í Las Vegas í Bandaríkjun- um og lagði afraksturinn, nærri átta milljónir kr., undir á eina tölu. Líkurnar á, að hann ynni, voru aðeins einn á móti 35 en hann valdi sér töluna 7. Rúllettan fór af stað og það mátti heyra saumnál detta í salnum þótt fjöldi manna fylgdist með. Þegar svo kúlan datt á sjöuna stundi fólkið þungan en Boyd gekk út með nærri 16 milljónir kr. A Utþynntar um- bætur í Japan Tókýó. Reuter. JAPANSKA þingið samþykkti í gær út- þynnt frumvarp Morihiros Hosokawa forsætisráðherra um umbætur á stjórn- mála- og kosningakerfinu í Japan. Upp- haflegt frumvarp hans var fellt í efri deild þingsins og því neyddist hann til að semja við sljórnarandstöðuna, Frjáls- lynda lýðræðisflokkinn, og breyta því verulega. Hosokawa vildi til dæmis banna fjárstuðning stórfyrirtækja við einstaka stjórnmálamenn og flokka en samkvæmt frumvarpinu, sem var sam- þykkt í gær, verður hann heimill. Aðrar breytingar eru helstar, að tekin verða upp einmenningskjördæmi að nokkru leyti í stað hlutfallskosninga en reynsla margra þjóða er, að spilling þrífst betur í skjóli hlutfallskosningakerfis en ein- menningskjördæma. ÞRONG a þingi SUNNUDAGUR 30. JANÚAR1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins . H'J *f GENGIÐ HEIM Á LEIÐ Sæberg Líkur á tvísýnum f orsetakosningum í Finnlandi næsta sunnudag Rehn hefur forystuna en Ahtisaari vinnur á Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. SÍÐARI umferð forsetakosninganna í Finnlandi verður eftir viku og samkvæmt skoðana- könnunum eru líkur á, að mjótt geti orðið á mununum milli þeirra Elisabeth Rehn varnarmálaráðherra og Martti Ahtisaari ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu. Könn- un sem síðdegisblaðið Iltalehti gerði í síðustu viku gaf raunar Rehn fylgi 67% lands- manna en Ahtisaari 32% en samkvæmt könnun, sem dagblaðið Helsingin Sanomat birti í gær, fengi Rehn 53% atkvæða en Ahtisaari 47%. Það hefur því dregið verulega sam- an með þeim. Kosningabarátta þessara tveggja fram- bjóðenda, sem fengu mest fylgi í fyrri umferð- inni, hefur verið óvenju hörð eftir því sem gerist í Finnlandi. Ahtisaari, sem kalla má fulltrúa stjórnarandstöðunnar, hefur hamrað á efnahagskreppunni í landinu og hann hefur sakað Rehn um að bera sina ábyrgð á volæð- inu með því að sitja í núverandi stjórn. Rehn svarar þessum ásökunum fullum hálsi en auk þess hefur hún þurft að eyða efasemdum þorra landsmanna, sem er finnskumælandi, um að óhætt sé að kjósa landinu forseta úr flokki sænskumælandi Finna. í síðustu viku gekk formaður Suomalaisu-, uden liitto, flokks sem berst fyrir finnskum hagsmunum, á fund Ahtisaari og tjáði honum stuðning sinn vegna þess að „ekki eigi að auka áhrif sænska minnihlutans“, en Ahtisa- ari afþakkaði gott boð. Sagði hann að flokkur- inn ætti að vinna að framgangi finnskrar menningar en þess í stað berðust forsprakkar hans aðallega fyrir því að útrýma sænskri tungu og menningu í Finnlandi. I utanríkismálum greinir þau Rehn og Ahtisaari lítt eða ekkert á, styðja bæði aðild Finna að Evrópubandalaginu, en í innan- lands- eða efnahagsmálum eru þau ekki alveg sama sinnis. Ahtisaari vill auka útgjöld hins opinbera í þeirri von að það dragi atvinnulíf- ið upp úr kreppudalnum en Rehn situr í ríkis- stjórn sem hefur beitt aðhaldi og niðurskurði til að koma böndum á gífurlegar skuldir fínnsku þjóðarinnar. ------♦--------- Rússar draga úr álvinnslu Moskvu. Reuter. RÚSSNESK stjórnvöld hafa samþykkt að minnka álframleiðslu sína um 500.000 tonn á næstu sex mánuðum. Kom þetta fram í yfirlýsingu frá Georgíj Gabúníj a aðstoðarutanríkisviðskiptaráðherra. „Við höfum sent Evrópubandalaginu staðfest- ingu þess efnis, að við séum reiðubúnir að minnka framleiðsluna um 300.000 tonn í febr- úar, mars og apríl og um 200.000 tonn í maí, júní og júlí,“ sagði Gabúníja. Búast má við álverðshækkun gangi þetta eftir. KVOTAÞING FÆR DRÆMAR VIÐTÖKUR 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.