Morgunblaðið - 24.04.1994, Blaðsíða 1
/
88 SIÐUR B/C
Nixon for-
seti látinn
New York. Reuter.
BILL Clinton
Bandaríkja-
forseti ákvað í
gær að lýsa
þjóðarsorg
yfir í Banda-
ríkjunum
vegna fráfalls
Richards Nix-
ons fyrrum
forseta sem
lést í fyrrinótt
af völdum
heilablóðfalls
á sjúkrahúsi í Richard Nixon
New York.
Nixon verður borinn til grafar næst-
komandi miðvikudag í grafreit við
bókasafn sem nefnt er eftir honum í
Yorba Linda í Kaliforníu, fæðingarbæ
forsetans. Þar hvílir fyrrum forset-
afrú, Patricia Ryan Nixon, sem lést
úr lungnakrabba í júní í fyrra. Hundr-
uð manna söfnuðust saman við bóka-
safnið og við sjúkrahúsið í New York
til að votta forsetanum fyrrverandi
virðingu sína þegar fregnin um andlát
hans barst,
Sjá einnig bls. 4.
91. tbl. 82. árg.
SUNNUDAGUR 24. APRIL 1994
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
HORNFIRÐINGAR
Morgunblaðið/RAX
Bosníu-Serbar
láta ekkí segjast
Rússar falla frá andstöðu við loftárásir
Sar^jevo. Moskvu. Reuter.
BOSNÍU-Serbar urðu ekki við úrslitakostum Atlantshafsbandalagsins (NATO) á
föstudag um að stöðva árásir á Gorazde því þeir gerðu harða stórskotaliðsárás
á borgina í gær. Sömuleiðis virtu þeir ekki vopnahlé sem pólitískir leiðtogar og
yfirmenn herja þeirra undirrituðu í Belgrad í fyrradag ásamt Yasushi Akashi
fulltrúa Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Bosníu. Á miðnætti rann út frestur sem umsát-
urslið Serba fékk til að flytja stórskotavopn sín 20 kílómetra frá borginni.
Rússar skiptu enn um skoðun í Bosníu-
deilunni og lýstu í gær stuðningi við hótun
NATO um loftárásir á sveitir Bosníu-Serba
sem sitja um Gorazde í austurhluta lands:
ins, að sögn /nter/ax-fréttastofunnar. I
fyrradag lögðust þeir gegn aðgerðum og
hótuðu að kalla friðargæslusveitir sínar
heim frá Bosníu. Andrej Kozyrev utanríkis-
ráðherra gagnrýndi hins vegar í gær yfir-
menn hersveita Bosníu-Serba harðlega og
sagði hótun NATO og hugsanlegar loftárás-
ir einu leiðina til að höggva á hnúta í Bosn-
íudeilunni, að sögn Interfax.
Flugvélar NATO sveimuðu yfir Gorazde
í gærmorgun og fylgdust með árásum stór-
skotasveita Serba og fótgönguliðs sem
stefndi inn til borgarinnar. Borgarstjóri
Gorazde, Ismet Briga, sagði í útvarpsávarpi
sem heyrðist í Bonn í Þýskalandi, að rúm-
lega 300 stórskotasprengjur hefðu fallið á
borgina í gærmorgun. Fulltrúar SÞ í borg-
inni staðfestu að umsátursliðið hefði ekki
staðið við vopnahléð sem átti að skella á
klukkan 10 í gærmorgun. Talið er að um
700 manns, aðallega óbreyttir borgarar,
hafi týnt lífí í árásunum undanfarnar þrjár
vikur.
Ræningiim
löghlýðni
LÖGHLÝÐNIN varð skoska banka-
ræningjanum Derek McFadden að falli
eftir allt. Hann framdi vopnað rán i
smábanka í bænum Giffnock, sem er
skammt frá Glasgow, og komst undan
með 2.475 punda ránsfeng. Eins og
góðum bílstjóra sæmir stansaði hann
á rauðu ljósi er hann hraðaði sér burt.
Lengra komst hann ekki því þar var
hann handtekinn.
Karl prins lýs-
ir eftír hundi
KARL Bretaprins auglýsti í vikunni í
blaðinu Aberdeen Press and Journal
og bað þegna drottningar að hjálpa
sér að hafa uppi á hundi hans Pooh,
sem er af völskuhundakyni. Hann
hvarf er þeir voru á göngu í nágrenni
Balmoral kastalans í Skotlandi um síð-
ustu helgi og leit þjónustuliðs hefur
engan árangur borið. Ottast er að
hundurinn, sem sagður er húsbónda-
hollur og hlýðinn, hafi fest sig ofan í
kanínuholu.
Sólgleraugxi
í sortanum
ÖRYGGI þykir hafa fleygt fram eftir
að 24 lestarstjórar á Piccadilly-línunni
í neðanjarðarlestum Lundúna hófu að
nota sólgleraugu af bestu gerð fyrir
mánuði. Verði öllum lestarstjórum
gert að setja upp sólgleraugu þýðir
það 150.000 punda, jafnvirði 16 millj-
óna króna, útgjöld fyrir lestarfélagið.
Algengt hefur verið að lestarstjórar
hafa lesið brautarljósin rangt er þeir
óku upp úr sortanum út í dagsbirtu
en með sólgleraugu á nefinu sögðust
allir sjá rauða ljósið miklu betur, 80%
sögðu græna (jósið greinilegra og
helmingurinn sagðist sjá gulu ljósin
betur. Gleraugun eru þeirrar gerðar
að þau skerða ekki sjónina í sortanum
neðan jarðar og þurfa lestarstjórarnir
því aðeins að setja þau upp í vaktar-
byijun.
Hættum
viðað
BLOMOG
BANKAKORT
\
20
VIDSKIPTI/ATVINNULÍF
Á SUNNUDEGI
aö koma vor