Morgunblaðið - 31.10.2000, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Aðeins um
hálft starf
að ræða
FLUTNINGUR fjarvinnsluverkefna
út á land var á dagskrá í óundir-
búnum fyrirspumatíma á Alþingi í
gær en Kristján L. Möller, Samfylk-
ingu, innti Sólveigu Pétursdóttur
dómsmálaráðherra þá eftir því hvað
liði úrvinnslu í ráðuneytinu á hug-
myndum um flutning svokallaðrar
Landskrár lausafjármuna til Ólafs-
fjarðar sem Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra kynnti
á borgarafundi þar í mars. Sólveig
upplýsti hins vegar að því miður hefði
komið í ljós að þetta verkefni myndi
aðeins skapa hálfsdagsstarf fyrir einn
mann.
Svar dómsmálaráðherra gaf Krist-
jáni tilefni til að gagnrýna ríkisstjóm-
ina fyrir það hversu lítið hefði í raun
komið út úr loforðum um flutning
fjarvinnsluverkefna á vegum ríkisins
út á land. Hvað þetta tiltekna mál
áhrærði hefði iðnaðarráðherra á sín-
um tíma talað eins og um stórt verk-
efni væri að ræða en þegar til kæmi
væri einungis um hálft starf að ræða.
Sólveig varði hins vegar aðgerðir
ríkisstjómarinnar og iðnaðarráð-
herra, sem fer með byggðamál, en
sagði jafnframt að þessi mál væru síð-
ur en svo auðveld viðfangs.
Einkavætt sjúkrahús ekki fýsi-
legur kostur að mati ráðherra
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra sagði á Alþingi í gær að
það væri ekki stefna ríkisstjómarinn-
ar að einkavæða heilt sjúkrahús enda
ekki hægt að sjá að slíkt væri fysileg-
ur kostur. Áfram yrðu hins vegar
gerðir einstakir samningar við aðila
innan heilbrigðiskerfisins, eins og t.d.
hefði verið gert í öldrunarþjónust-
unni um árabil.
Kom fram í máli ráðherra í gær að
hún gefur lítið fyrir nauðsyn þess að
auka samkeppni í heilbrigðisgeiran-
um. Ráðherrann var að svara óundir-
búinni fyrirspum Bryndísar Hlöð-
versdóttur, þingmanns Samfylking-
ar. Bryndís hafði sagt að sá orðrómur
bærist nú hratt um þjóðfélagið að í
bígerð væri að koma á einkareknu
sjúkrahúsi. Mikill áhugi væri á slíkum
rekstri meðal tiltekinna fagmanna og
þegar hefði verið leitað tíl fjárfesta í
þessu skyni.
Lýsti hún eftir stefnu stjómvalda
gagnvart þessum hugmyndum og
spurði heilbrigðisráðherra hvort tál
greina kæmi af hennar hálfu að veita
slíku sjúkrahúsi starfsleyfi ef eftir því
yrði leitað, en Bryndís spáði því að
það myndi gerast.
ALÞINGI
Ingibjörg tók fram að ekki væri
unnið að því á vettvangi rfidsstjórnar
að einkavæða heilt sjúkrahús. „Það
kann að vera áhugi hjá mörgum aðii-
um í þjóðfélaginu hvað slíkt varðar en
við höfum skoðað einkavæðingu á
stómm sjúkrahúsum erlendis og höf-
um ekki getað séð að þjónustan væri
þar betri. Það kostar heldur alls ekki
minna að reka slíkt sjúkrahús en gert
er hér á landi í dag,“ sagði hún og
bætti því við að auk þess vantaði
mannskap til að starfrækja slíkt
sjúkrahús.
Bryndís vakti athygli á því að hún
væri að spyija um einkarekið sjúkra-
hús sem veita myndi rfldssjúkrahús-
Bryndís Ingibjörg
Hlöðversdóttir Pálmadóttir
inu í Reykjavík samkeppni. Sagðist
hún skilja orð ráðherra þannig að hún
teldi ekki koma til greina að veita
einkareknu sjúkrahúsi starfsleyfi.
Bryndís sagði mikilvægt að þetta
kæmi skýrt fram þar sem menn hefðu
orðið varir við ágreining á milli rflds-
stjómarflokkanna í þessum efnum,
sjálfstæðismenn hefðu viljað einka-
væða frekar í heilbrigðiskerfinu en
framsóknarmenn staðið á bremsunni.
„Ég h't svo á að hæstvirtur ráð-
herra hafi verið að lýsa því yfii- hér að
það væri ólfldegt að hún myndi gefa
út starfsleyfi fyrir einkarekið sjúkra-
hús,“ sagði hún.
I lokaorðum sínum sagði Ingibjörg
Pálmadóttir að hvað varðaði sam-
keppni þá teldi hún það nú ekki það
sem vantaði helst í heilbrigðisþjón-
ustunni. „En við höfum gert samn-
inga og munum áfram gera samninga
við einstaka aðila, eins og við höfum
gert t.d. í öldrunarþjónustunni síðast-
hðin 30-40 ef ekki 80 ár.“
Gengi krónunnar rætt á Alþingi
Ekki tilefni til að-
gerða á þessu stigi
Morgunblaðið/Kristinn
Jón stjórnar Skólahljómsveit Mosfellsbæjar. Hann er nefndur „guðfaðir" hljómsveitarinnar og lánaði pen-
inga fyrir fyrstu hljóðfærakaupum hennar.
Heiðurs-
borgari
í Mos-
fellsbæ
Morgunblaðið/Kristinn
Þröstur Karlsson, forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, afhendir
Jóni skjal til staðfestingar á heiðursborgaranafnbótinni.
JÓN M. Guðmundsson, bóndi á
Reykjum, var útnefndur heiðurs-
borgari Mosfellsbæjar síðastliðinn
sunnudag. Jóni var haldið kaffí-
samsæti í félagsheimilinu Hlégarði
og heiðruðu hann um 150 manns.
Við sama tækifæri sæmdi Ellert B.
Schram, formaður fþrótta- og ól-
ympiusambands Islands, Jón heið-
urskrossi sambandsins.
Ákvörðun um þetta var tekin á
bæjarstjómarfundi 19. september
síðastliðinn þegar Jón varð átt-
ræður. Fyrri heiðursborgari Mos-
fellsbæjar var Ilalldór Laxness rit-
höfundur.
Þröstur Karlsson, forseti bæjar-
stjórnar, segir að Jón hafi verið
sveitarstjómarmaður og oddviti
til fjölda ára. Hann hafí verið í far-
arbroddi í sveitarfélaginu á mikl-
um umbrotatímum þegar Mosfells-
sveit varð að bæ.
„Ég er einn af þessum mönnum
sem hafa aldrei unnið neina hetju-
dáð og aldrei Iagt mig fram um að
verða verðlaunagripur. Ég hef
bara gert skyldu mína. Þess vegna
er ég svona hissa á þessu," sagði
Jón í samtali við Morgunblaðið.
Jón fæddist í Reykjavík 19. sept-
ember 1920 en flutti í Mosfellssveit
fimm ára gamall. Hann er búfræð-
ingur frá Bændaskólanum á
Hvanneyri 1942 og stundaði nám í
búnaðarhagfræði og alifuglarækt
við háskólann í Wisconsin 1947.
Hann fór í framhaldsnám í slátmn,
fóðrun og verkun á fuglakjöti f
Bandarikjunum 1961. Hann tók
dómarapróf í frjálsum íþróttum
1943 og varð alþjóðadómari 1954.
Hann hefur verið bóndi á Reykjum
frá 1947. Hann var oddviti Mos-
fellshrepps frá 1962-1981, hrepp-
sljóri frá 1984-1990 og vann að fé-
lagsstörfum á vegum UMF
Aftureldingar frá 1933-1970 auk
margvíslegra annarra starfa.
Hann hefur cinnig hlotið fjölda
viðurkenninga af ýmsu tagi.
Jón var fréttaritari Morgun-
blaðsins um áratugaskeið. „Fyrsta
stóra fréttin sem ég sendi til Morg-
unblaðsins var þegar Hlégarður
var vígður 1951. Þegar sú breyt-
ing varð á fréttaþjónustunni að við
fréttaritarar áttum að segja hlut-
laust frá öllum fréttum og máttum
ekki mála cigin skoðanir inn í þær
fór að káma gamanið hjá mér. Ég
hafði tilhneigingu til þess að segja
hvernig mér persónulega Iitist á
hin og þessi mál. Mér gekk mjög
illa að venja mig á þetta. Síðan
kom að því að ég hafði ekki eins
gaman af þessu og áður. Þá var ég
gerður að heiðursfélaga í félagi
fréttaritara Morgunblaðsins,"
sagði Jón.
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
telur ekki sérstaka ástæðu til þess
eins og mál standa nú að efna til sér-
stakra aðgerða vegna gengislækk-
unar íslensku krónunnar en þau mál
voru gerð að umtalsefni í óundirbún-
um fyrirspurnatíma á Alþingi í gær.
Benti Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs, þá á að gengi krón-
unnar væri nú 7,6% lægra en það var
um síðustu áramót og 2,7% lægra en
það var þegar fjárlagafrumvarp var
lagt fram nú í haust.
Steingrímur vildi vita hvort rfids-
stjómin hygðist bregðast við þessu
gengisfalli krónunnar og velti hann
t.d. fyrir sér hvort rétt væri að end-
urmeta þjóðhagsforsendur. Sagði
hann þessa þróun alvarlega fyrir
verðbólgustig í landinu og forsendur
kjarasamninga. Geir benti hins veg-
ar á að þjóðhagsforsendur væru
jafnan endurmetnar áður en fjár-
lagafrumvarpið væri afgreitt frá Al-
þingi og um það væri Steingrími vel
kunnugt. Gengisþróun yrði að sjálf-
sögðu tekin með í þeim reikningi
eins og margt annað.
„Þá kemur í ljóst hvort þessi
breyting, sem orðið hefur á gengi
krónunnar, skiptir einhverju veru-
legu máli að þvi er varðar gengis-
forsendurnar. En það er ekkert til-
efni til að rjúka sérstaklega til núna
og gripa til einhverra aðgerða,“
sagði Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra.
Heildstæð stefna
í málefnum barna
RÍKISSTJÓRNINNI verður falið
að undirbúa heildstæða og sam-
ræmda opinbera stefnu í málefnum
barna og unglinga ef þingsályktun-
artillaga sem mælt var fyrir á Al-
þingi í gær verður samþykkt. Jó-
hanna Sigurðardóttir, Samfylkingu,
er fyrsti flutningsmaður tillögunnar
en hún nýtur fulltingis fimm ann-
an-a þingmanna og koma þeir úr
öllum fimm þingflokkunum.
í tillögunni segir að markmið
stefnumótunar verði að tryggja hag
og velferð barna og unglinga á öll-
um sviðum þjóðlífsins og búa þeim
sem best og jöfnust skilyrði til upp-
vaxtar og þroska. í því skyni verði
skipuð nefnd með aðild forsæt-
isráðuneytis, félagsmálaráðuneytis,
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytis, dómsmálaráðuneytis,
menntamálaráðuneytis, umhverfis-
53 Dagskrá
ÞINGFUNDUR hefst á Alþingi í
dag kl. 13.30. Eftirfarandi mál eru
þar á dagskrá:
1. Iðgjaldahækkanir tryggingafé-
laganna, beiðni um skýrslu. Hvort
leyfð skuli.
2. Almannatryggingar. Frh. 1.
umræðu (atkvgr.)
3. Heildarstefnumótun í málefnum
barna og unglinga. Frh. fyrri um-
ræðu (atkvgr.)
4. Könnun á umfangi vændis. Frh.
fyrri umræðu (atkvgr.)
5. Fjáraukalög2000.1. umræða.
6. Ríkisábyrgðir. 1. umræða.
7. Tekjuskattur og eignarskattur.
1. umræða.
8. Virðisaukaskattur. 1. umræða.
ráðuneytis og Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Á grundvelli stefnu-
mótunar þessara aðila verði gerð
fimm ára framkvæmdaáætlun og
hún lögð fyrir Alþingi til staðfest-
ingar eigi síðar en á haustþingi árið
2001.
Fram kemur í greinargerð að til-
lagan var lögð fram á síðasta lög-
gjafarþingi og að hún hafi þá hlotið
einstaklega góðar viðtökur um-
sagnaraðila. Kom einnig fram í
framsöguræðu Jóhönnu í gær að
ríkisstjórnin hefði raunar skuld-
bundið sig í skýrslu, sem flutt var á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna, til
að fá samþykkta tillögu um þetta
efni á fyrri hluta árs 2000.
Kjaradeila
kennara
rædd
á morgun
P’YRIRHIJGAÐRI utandag-
skrárumræðu um kjaradeilu
kennara, sem gert hafði verið
ráð fyrir að færi fram á Alþingi
í dag, hefur verið frestað vegna
fjarveru Björns Bjarnasonar
menntamálaráðherra en hann
er erlendis. Umræðan mun í
staðinn fara fram á morgun,
miðvikudag, og er ráðgert að
hún hefjist kl. 13.30.
Menntamálaráðherra verður
til andsvara en málshefjandi er
Einar Már Sigurðarson, Sam-
fylkingu.