Alþýðublaðið - 02.09.1964, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 02.09.1964, Blaðsíða 1
Hættu að selja brúsamjólk sama dag og hún lækkaði Reykjavík, 1. sept. t>B. í DAG var haldið áfram og lok ið málflutningi fyrir 8jó- og verzl unardómi Reykjavíkur vegna brun ans i togaranum Neptúnusi. Fyrir dómi voru Guðmundur Þorkels- son, skipstjóri bv. Júpíters, Júlíus Sigurð'sson, I. stýrimaður og Óskar Ólafsson II. stýrimaður. Dómendur voru hinir sömu og í gaer. Skipstjóra sagði-st svo frá, að þfegar Júpíter kom á vettvang hafi nokkrir skipverjar af Neptúnusi verið að fara um borð í skip sitt. Hann kvaðst enga taug liafa séð milli varðskipsins Þórs og Nep- túnusar. (Eins og kom fram í frétt hér í blaðinu i gær, voru Þórs- menn búnir að fara um borð í Neptúnus og festa taug milli Þórs og hans). Féll í stiga og beið bana Reykjavík, 1 september - KG I»AÐ slys varð um hádegið í gær að 21 árs stúlka, Elínrós Jóhanns- tlóttir féU niður stiga og bcið bana. Var hún að ganga niður stiga fceima hjá sér að Staðarhóli við Byngjuveg, þegar annar skórinn festist, að því að talið er. Féll Clínrós við það fram yfir sig og skaU niður á höfuðið. Var hún flutt á Slysavarðstofuna Tveir vírar voru festir í Nep- túnus. Aðspurður, kvað Guðmund ur skipstjóri, enga sér,staka hættu hafa verið því samfara að koma vírunum yfir í Neptúnus, utan þá hættu, sem ætíð fylgi því að leggia skipi nálægt öðru skipi- úti á rúmsjó. Þegar taugarnar höfðu verið festar milli Júpíters og Nep túnusar, hafði Guðmundur skip- st.ióri samband við Albert og t.il- kynnfi, að allt hefði gengið vel, Lsgði' þá Albert af stað með sinn htuta af Neptúnusarmönnum til Revkjavíkur, en Þór sigldi á brott. Guðmundur skipstjóri sagði, að- spurður, að það hefði ekki verið að sinni beiðni, sem varðskipin voru á staðnum eftir að Júpíter var kominn á vettvang. Framburður stýrimannanna tveggia var samliljóða framburði skinstiórans. Með þessu þinghaldi lauk sióferðaprófum vegna brun ans um borð í togaranum Neptún usi. F.ins og sjá má af framansögðu, : biörguðu skipsmenn á varðskipinu Þór. NeDtúnusi í fyrstu. Síðan létu þeir hann lausan á .ný og Júpíters menn biörguðu á sama hátt með hiálo skioverja af Neptúnusi. Skvr ingin á því, að þannig skuli farið að. mun vera sú, að mjög miklu skintir fvrlr alla, sem hlut eiga að máli. hverjir teljast hafa bjarg að skipinu. sem, þegar engin taug er í því, mun teljast bjargarlaust (stiórnlaust og vélarvana á opnu hafi). Reykjavík, 1. september - HP í gærkvöldi var lesin í útvarpið tilkynning frá Verðlagsráði land- búnaðarins um að þar sem ríkis- stjórnin hefði ákveðið að hækka niðurgreiðsíu á mjólk, gengi nýtt og lægra mjólkurverð i gildi frá og méð 1. septembcr. Mjólknrvarð ið hefúr sem kunnugt er verið mishátt eftir því, hvort mjólkin hefur verið seld í brúsum, flöskum eða hyrnum og hefnr brúsamjóik- in verið ódýrust. I dág lækkaði mjólkin um kr. 1.30 lítrinn i öll- um verðflokkum, en brúsamjólkin hefði lækkað tiltölulega mest eða úr kr. 6.55 í kr. 4.85 fIftrinn, og nemur lækkun hennar á hvem lítra því kr. 1.70. Mun því mörgum neytandanum hafa þomið það' spánskt fyrir sjónir, að í morgun, — sama daginn og þýja verðið gekk í gildi — var lítilli frétta- klausu laumað inn á 2. síðu Morg- unblaðsins, sem annars getur ekki um lækkunina, þar sem frá því er skýrt, að frá og með deginum í dag hætti Mjólkursamsalan söiu á brúsamjólk í útsölum sínum í Reykjavík. Af þessu má sjá, að lftið þýðir fyrir mjólkurkaupendur i Reykja- vik, þar sem Mjólkursamsalan er eini dreifingaraðilinn,; að labba sig inn i næstu mjólkurbúð og biðja um brúsamjólk á 4.85. Hún er einfaldlega ekki á boðstólum lengur. í fyrrgreindri frétt Morg- unblaðsins er haft eftir Stefáni Björnssyni, forstjóra Mjólkursam- sölunnar, að það hafi eingöngu verið af heilbrigðis- og hreinlaetis- ástæðum, að sölu á brúsamjólk hef ur nú verið hætt í mjólkurbúðum í Reykjavík. Hafi það einkum ver- ið gert fyrir tilmæli heilbrigðis- yfirvalda borgarinnar, enda hafi sala á brúsamjólk verið hverfandi lítil í búðunum, en sjúkrahús og mötuneyti ýmissa fyrirtækja hafi keypt talsvert af henni. Kaan þa# rétt að vera, en Alþýðublaðið get- ur þó upplýst, að neytendvr hai'a Framhald á 5. síðu. síöau á Landakotsspítalann, en þar lézt hún um það bil 4 klukku- stundura síðar. Mikill skyldleiki er, eins og kunn ugt er, milli útgerðarfyrirtækja togaranna Júpiters og Neptúnus- ar. JÖRUNDUR III. KOMINN YFIR 30.000 MÁL 0G TU. Reykjavík 1. sept. GO. BLAÐINU barst í dag síldarskýrsla LÍÚ, en hún kom ekki þriðjudag vegna þess að ekkert hafði veiðzt, vikuna á und 'an. Rúmlega 90 skip eru nú komin yfir 10.000 mál og tunnur, þar af ern 11 með 20.000 og þar yfir. Þau eru: Jörundur III RE 30, 792, Jón Kjartansson SU 28,665, Snæfell EA 27.044, Höfrung ! ur III AK 25,500, Sigurpáll GK 25,159, Sigurður Bjamason EA 24,158, Helga Guömundsdóttir BA 22,964, Helga RE 22,283, Bjarmi II EA 21,879, Reynir VE 20,383 og Hafrún ÍS 20,105. Aflinn er miðaður við miönætti 29. ágúst sl. Skrá. yfir þau skip sem fengið hafa 10,000 mál og tunnur og þar yfir er á 5. síöu. WtMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMWá KRAFIAVERKIÐ" FRUM- SÝNT í SEPTEMBER Reykjavík, 1. sept. - HP í DAG hófust að nýju æfingar í Þjóðleikhúsmu á „Kraftaverkinu” eftir William Gibson, sem Verður fyrsta verkefni leikhússins á því lelkári, sem senn fer í hönd. Leik rit þetta er byggt á ævisögu Helen Keller, og hefur það verið sýnt í flestum stórborgum Evrópu og Améríku undanfarin 2-3 ár. Hér verður það sennllega fmmsýnt 19. eðá 20. þ. m. Hið litla tilrauna- leiksvið Þjóðleikhússins í Lindar- bæ verður að líkindum fullfrágeng ið um næstu mánaðamót, og verð- ur þá fyrsta sýningin þar snemma í október. Fyrsta leikritið, sem þar verður sýnt, er „Kröfuhafar” eftir Agusí Strindberg, sem sýnt var einu sinni í Þjóðleikhúsinu í sambandl við listahátíðina í júni. Verða nú teknar upp sýningar á því að nýju í Llndarbæ. Alþýðublaðlð aflaði séf upplýs- inga um þetta hjá þjóðleikhús stjóra i dag. Sagði hann, að æfiiig ar á „Kraftaverkinu” hefðu verið Frh. á 3. öí!?u. MMMMMMMMWMWWIW /SlíP^Mlíl taDfiöu® 12 SÍÐUR ÞAR eð mistök hafa orðið í» sambandi við pappírssend- ingn tii blaðsins, verður því miður óhjákvæmUegt að hafa Alþýðublaðið aðeins tólf síður nokkra næstu daga. Um helgina er sextán síðna pappír væntanlegur tll landsins. Ætti blaðið þvi að geta orðið sextán síður á nýjan lelk strax eftir helgi. wnwwwwwwwwwwmw Júpítersmenn sáu enga taug WWWMWWWWWW*W*W*WWWWW*WWWMW*MMMMMMWW*WMMMMWWWWWW» ALLT ÚTLIT er fyrir, að í byrjun næsta skólaárs Mennta- skólans í Reykjavík verði unnt að hefja kennslu í þrem til fjórum stofum á efri hæð við- bótarbyggingarinnar i Olíuport inu ofan við gamla skólahúsið. Þar með verður kennt í fjórum húsum, gamla skólanum, rek- torsfjósi, Þrúðvangi og nýja húsinu. Þessi mynd er tek;n á efri hæð nýju byggingariíxnar WI»tM»MMWMMMM*mi>****

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.