Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1988, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1988.
7
Stjómmál
Gagnkvæmar heimsóknir Jóns Baldvins og Steingríms:
Eins og þjóðhöfðingjar
væru að koma í heimsókn
Hápunktur beggja flokksþinganna
um helgina var tvúnælalaust gagn-
kvæm heimsókn flokksformanna.
Þessar heimsóknir eiga engan sinn
líka og fengu misjafnar undirtektir
meðal flokksmanna enda ákvörðun-
in tekin af formönnunum sjálfum.
Heimsóknimarvöktu mismiida at-
hygh og ánægju á þingunum. Á með-
an framsóknarmenn höfðu hina
mestu skemmtun af heimsókn Jóns
Baldvins þá var fremur þungt í Al-
þýðuflokksmönnum fyrir og eftir
heimsókn Steingríms.
Ytri umgjörð heimsóknanna var
að mörgu leyti táknræn fyrir þá
áherslu sem flokksformennimir
lögðu á heimsóknina. Var engu lík-
ara en þjóðhöfðingjar væru að heim-
sækja hvor annan. Þeir fóru til fund-
ar hvor við annan með eiginkonur
sínar með sér og eftir heimsóknimar
vom þeir leystir út með gjöfum. Jón
Baldvin fékk glös með framsóknar-
merkinu en Steingrímur fékk blóm-
vönd og nýútkomna viðtalsbók
Bryndísar Schram.
Jón Baldvin í
framsóknarfjósinu
Formaður Alþýðuflokksins fór
fyrst til framsóknarmanna og var
tekið með töluverðri eftirvæntingu.
Eftir að Unnur Stefánsdóttir fundar-
stjóri hafði boðið Jón Baldvin vel-
kominn í framsóknarfjósið flutti
hann tölu sína. Fyrst sagði hann
nokkra pólitíska brandara en sneri
sér síðan að sögunni: „Þessir flokkar
era samt sem áður tvær greinar á
sama meiði og eiga sér sameiginleg-
an hugmyndasmið, þ.e.a.s. Jónas frá
Hriflu, sem skrifaði eigin hendi
stefnuskrá og lög Alþýðusambands
íslands og þar með slæddist töluvert
af þeim fræðum inn í stefnuskrá Sós-
íalistaflokksins og hvað þá heldur
Framsóknarflokksins. Það segir sína
sögu.“
Síðan sneri Jón Baldvin sér að per-
sónulegum samskiptum í síðustu
stjóm og sagði þetta um samskipti
sín og Steingríms: „Við höfum báðir
breyst. Báðir breyst að fenginni
reynslu. Reynslan af samstarfmu í
seinustu ríkisstjórn kenndi okkur
það að Framsóknarflokkurinn er
agaður flokkur, hann er raunsær
flokkur og er undir sterkri forystu.
Fatlaðir verða að kom-
ast áfram í f lokkunum
- segjr JóhannP.Sveinsson
„Þessi kosning mín sýnir bara að
Framsóknarmenn eru félagshyggju-
menn og vilja gjarna að þeir sem
standa fyrir slíkum málefnum fái
góða kosningu," sagði Jóhann Pétur
Sveinsson, formaður Sjálfsbjargar,
en hann fékk glæsilega kosningu í
miðstjórn Framsóknarflokksins. Það
kom fram hjá ýmsum að þeir töldu
Jóhann jafnvel vera í Sjálfstæðis-
flokknum og undruðust jafnframt
þessa kosningu. Jóhann taldi skýr-
inguna á því einfaldlega vera þá að
hann hefði verið virkur í Vöku, fé-
lagi lýðræðissinnaðra stúdenta í Há-
skólanum. Um hollustu hans við
Framsóknarflokkinn þyrfti ekki að
efast því hann hefði verið félagi í
flokknum í nokkur ár.
„Annars er það nauðsynlegt iyrir
fatlaða í öllum flokkum að koma sér
á framfæri. Okkar barátta er ekki
pólitísk í sjálfu sér, þess vegna þurf-
um við að koma okkar fólki á fram-
færi í öllum flokkum." -SMJ
- en þeir fengu misjafnar undirtektir flokksþingsfulltrúa
Flokksformennirnir skemmtu sér vel meðan á heimsóknunum stóð. Hér er Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, I ræðustóli á þingi
Framsóknarflokksins og hefur fengið formann þess flokks, Steingrím Hermannsson, til að hlæja dátt. DV-mynd BG
Það er hægt að gera samkomulag við
framsóknarmenn, jafnvel í erfiðum
ágreiningsmálum, og hingað til er
reynsla mín sú að þaö stendur. - Og
þetta eru nokkuð stór orð og þau
skipta miklu máli í pólitísku sam-
starfi."
• Að lokum sileri hann sér að hinum
erfiðu ytri skilyrðum: „Það sem sam-
einar okkur sérstaklega núna era
erfiðleikarnir. En það er í mótlætinu
sem reynir á manninn og núna, þeg-
ar það er ljóst, og ég segi það um-
búðalaust, að sá flokkur, sem lengst
af hefur verið stærsti flokkur þjóðar-
innar og tahð sig vera kjölfestu ís-
lenska flokkakerflsins og tahð sig
reynast þjóðinni best þegar mest
reynir á, þegar svo er komið að þessi
flokkur er lagstur við stjóra og
áhöfnin „til kojs“, á sama tíma og
þarf að stýra skipi af kunnáttu og
fagmennsku gegnum brot, þá er það
þjóðarnauðsyn að þau öfl sem era
vinstra megin við miðju, og þar era
uppistöðurnar þessir tveir fíokkar,
Framsóknarflokkur og Alþýðuflokk-
ur, að þau efh með sér samstarf.“
í lok máls síns sagði Jón Baldvin
aö það hefði einmitt verið í heims-
kreppunni miklu sem þessir flokkar
hefðu hvað best unnið saman eða í
„stjóm hinna vinnandi stétta“. Hann
sagði að íslenska þjóðin væri að upp-
lifa tímamót á öhum sviðum og því
mætti ekki láta fornar væringar
ríkja.
Steingrímur fékk rós
Þegar Steingrímur og frú Edda
komu á Hótel ísland var Björgvin
Guðmundsson framkvæmdastjóri að
skamma forystumenn Alþýðuflokks-
ins fyrir að hafa fómað grundvallar-
hugsjónum flokksins í síðustu ríkis-
stjórn.
Steingrímur sté síðan í pontu og
sagði að þessar heimsóknir vektu
álíka athygh og ef þeir Shamir og
Arafat tækjust í hendur: „Ég er ekki
hingað kominn til að bjóða upp á
sameiningu en ég kem hingað til að
leggja ríka áherslu á samstarf þess-
ara tveggja bræðraflokka. Ég er
kominn hingað til að minna á það
að þessir tveir flokkar eiga sér mjög
svipaðan grundvöh. Einhver sá
mesti hugsjónamaður, sem verið hef-
ur í íslenskri póhtík á þessari öld,
Jónas Jónsson, lagði grundvöhinn
að báðum þessum flokkum og ég er
þeirrar skoðunar, sem hann hafði þá,
að þeir hafi báðir mjög miklu hlut-
verki að gegna.“
Steingrímur sagði að þessir flokkar
heföu lagt grandvöhinn að því vel-
ferðarkerfi sem við búum viö í dag.
Hann kom einnig inn á samstarfið í
síöustu ríkisstjórn en það hefði orðið
til þess að framsóknarmenn og al-
þýðuflokksmenn hefðu sest niður til
að leysa sín ágreiningsmál. En síðan
ræddi hann persónuleg samskipti sín
og Jóns Baldvins og sagðist hann
hafa fundið að þar stæði drengskap-
ur að baki. Hann hefði treyst Jóni
Baldvini þrátt fyrir aðvöranarorð
sinna flokksmanna. „Ég treysti Jóni
Baldvini og ég varð ekki fyrir von-
brigðum.“
í lok máls síns ræddi hann hina
erfiðu efnahagsstöðu sem nú væri
framundan en tók fram að hann
væri bjartsýnn um framtíð þessarar
þjóðar þrátt fyrir að erfiðleikar
hrönnuðust nú upp.
-SMJ
Framsóknarflokkurinn vill þriðja stjómsýslustigið:
Tekju- og eignaskattar hækki um sinn
í stjómmálaályktun Framsókn-
arflokksins, sem samþykkt var á
20 flokksþingi hans, kemur fram
sú skoðun að myndun núverandi
ríkisstjórnar hafi verið þjóðar-
nauðsyn. Um ieið segir að myndun
ríkisstjórnar Steingríms Her-
maimssonar sé sögulegur viðburð-
ur. Þetta sé upphafið að víðtæku
samstarfi félagshyggjuflokkanna
um stjórn landsins.
Um atvinnu- og efnahagsmál seg-
ir: „Vegna stjómleysis í efnahags-
málum hefur mistekist að koma í
veg fyrir ofíjárfestingu, eyðslu og
þennslu í góðærinu, með þeim af-
leiðingum að kreppa er yíirvofandi
og verulegur samdráttur í þjóðar-
búskapnum.“ Segir í ályktuninni
að traustur rekstrargrunnur at-
vinnuveganna sé forsenda fyrir
efnahagslegri framtíð landsins.
Segja framsóknarmenn aö það sé
forgangsverkefni að tryggja slíkan
grann. Setja þeir fram fimm höfuð-
markmið til að það takist:
í fyrsta lagi að bæta afkomu at-
vinnuveganna. Þar er meðal ann-
ars kveðið á um að það þurfi að
jafna þær sveiflur sem verði í sjáv-
arútvegi. Til þess á aö efla Verð-
jöfnunarsjóð sjávarútvegsins og
breyta reglum hans í samráöi við
hagsmunaaðila.
Afnema rikisábyrgöir
í öðra lagi á að ná jafnvægi í þjóð-
arbúskapnum. Til þess að það ta-
kist er nauðsynlegt að afnema ahar
ríkisábyrgðir á erlendum lántök-
um banka- og fjárfestingarsjóða.
Þar er þó undanskilin „eðlileg lán
til útflutningsgreina".
Þá segir að nauðsynlegt sé að
skattar hækki um sinn og verði það
í formi tekju- og eignaskatta,
í þriðja lagi verði að halda niðri
verðbólgu og segir í ályktuninni að
raunvextir verði aö lækka veralega
á verðstöðvunartímabilinu.
í fiórða lagi verði að koma á heil-
brigðum peningamarkaði. Leggja
framsóknarmenn áherslu á að lög
komi sem tryggi að þessi markaður
lúti samræmdri sfiórn og reglum.
í fimmta og síðasta lagi leggja
framsóknarmenn áhersluá aðjafn-
finna mátti á milli landsbyggðar-
og höfuðborgarfólks. Er lögö
áhersla á að þjónustustarfsemi
verði flutt, eins og kostur er, út á
land.
Þá telur flokksþingið að rétt sé
að vinna að því að þriðja stjórn-
sýslustiginu verði komið á fót.
Töluverð umræða varð um um-
hverfismál og segir í ályktunimú
að sérstakt ráðuneyti þurfi að fara
með yfirsfióm mnhverfismála.
Kom fram hjá Steingrími Her-
mannssyni að hann vill láta félags-
málaráöuneytið fara með þennan
málaflokk en eins og kunnugt er
þá hefur þessum málaflokki verið
vægi í byggð landsins verði tryggt. ætlað pláss í samgönguráöuneyt-
í þeirri ályktun komu hvað best inu.
fram þau óiíku sjónarmiö sem -SMJ