Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1991, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1991, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1991. 25 e>v Smáauglýsingaz - Sími 27022 Þverholti 11 TELEFAX PAPPÍR Hjá okkur færð þú pappir í allar gerðir faxtækja. Gæðapappír á góðu verði. Póstsendum um land allt. • Telefaxbúðin, Hamraborg 1, sími 91-642485, fax 91-642375. ■ Verslun ÍJTSALA Leðurhornið, Laugavegi 28, s. 25115. Leðurjakkar á dömur og herra. Mokkajakkar, kápur, buxur og pils. Töskur og leðurveski. Visa-Euro raðgreiðslur. Dráttarbeisli, kerrur. Dráttarbeisli með ábyrgð (original), ISO staðall, ásetn- ing á staðnum, ljósatenging á dráttar- beisli og kerrur, allar gerðir af kerrum og vögnum, allir hlutir í kerrur, kerru- hásingar með eða án bremsa. Ára- tugareynsla. Póstsendum. Víkurvagn- ar, Dalbrekku, s. 43911 og 45270. smáskór Barnaskór. Nýja sendingin af sumar- skónum komin, 3 litir, rauðir, grænir og gulir, stærðir 20-27. Verð 1.995. Smáskór, Skólavörðustíg 6-B, sími 91-622812. Eigum fyrirliggjandi baðinnréttingar á mjög hagstæðu verði. Harðviðarval hf., Krókhálsi 4, sími 91-671010. Landsins mesta úrval plastmódela. Settu saman draumabílinn þinn úr plastmódeli frá Tómstundahúsinu. Höfum allt sem til þarf, s.s. lím, lakk, sprautur o.fl. Póstsendum. Tóm- stundahúsið, sími 91-21901. ■ Sumarbústaðir Sturtuhengi- og klefar fyrir sumarbú- staði, verð kr. 8.500 og kr. 49.500. A&B, Skeifunni 11, s. 91-681570. Bflar tfl sölu Erum fluttir i Skeifuna 7, norðurenda, Bílasalan Bíiar s/f, sími 91-673434. • Toyota Carina II ’87, ek. 67 þús. km. Verð kr. 650.000, skipti, skuldabréf. • Nissan Sunny 4x4 ’87, ek. 56 þ. km. Verð kr. 700.000, skipti, skuldabréf. • • Subaru 1800 stw. ’85, ek. 120 þ. km. Verð kr. 600.000, skipti, skuldabréf. Bílasalan er opin alla virka daga kl. 11-19, lau. kl. 11-17. Vantar nýlega bíla á skrá og á staðinn. S. 91-673434. Willys CJ2, árg. ’46, til sölu, glæsilegur jeppi með B20 Volvo vél, Tiger kassa og Willys millikassa og hásingum, ný dekk, 35", og krómfelgur, óryðgaður, vökvastýri. Tækjamiðlun Islands, Bildshöfða 8, símar 91-674727 kl. 9-17 og 91-17678 kl. 17-21. Til 'sölu Ford Slerra 1600 CL, árg. ’88, 5 dyra, ekinn 58.000 km. Verð 800.000. Uppl. í síma 91-687600 milli kl. 13 og 16. Björgvin. Glæsilegur Nissan King Cab SE V6 ’89 til sölu, með mörgum aukahlutum. Til sýnis hjá Bílahúsinu, Sævarhöfða 2, sími 674848. Til sölu Ford Econoline 4x4 ’82, ekinn 90 þús. mílur. Einnig Chevroiet Uni- mog með 5 cyl. Benz dísilvél, 44" mudderum. Ath. skipti eða skulda- bréf. Uppl. í s. 91-671964 og 985-25201. Toyota Hi-Lux XTRA Cab, 2,4 bensin, árg. ’85, með húsi, til sölu, toppbíll að öllu leyti, ath. skipti. Uppl. í símum 92-15131, 92-14888 eða 92-12468. Benz 230 E 1990, keyrður 37 þús. km, sjálfskiptur, ABS, rafmagn í rúðum, topplúga rafdrifin, klæðning velúr. Mjög góður bíll. Uppl. í síma 91- 610430. Til sölu Nissan Patrol Superroof disil, árg. ’89, upphækkaður, 33" dekk, hvít- ur, skráður fyrir 7-8 farþega. Verð 2.4 millj., góð kjör. Uppl. í síma 91-687600 milli kl. 13 og 16. Björgvin. Til sölu MMC Pajero ’87, ekinn aðeins 74.000, 31" dekk, brettakantar. Stórglæsilegur bíll, (sjá mynd). Verð 1.600.000, skipti á ódýrari. Uppl. í síma 91-77081. VW GTi ’86, grænsans, topplúga, sport- innrétting, sportfelgur. Verð 680 þús. Skipti - kjör. Uppl. í síma 91-674727 á daginn. Glæsilegur Chrysler Le Baron, árg. 79, rafinagn í öllu, cruisecontrol T-topp- ur, vél 360 cc, skoðaður ’92. Uppl. í síma 9627448, 96-27688 og 96-27847. Hverer fómarlambið? í blöðum og tímaritum hefur und- anfarið verið mikið íjallað um mál 29 ára gamals manns sem setíð hafði í gæslu í Síðumúlafangelsi, vegna morðs á 25 ára gamalli konu, þangað tíl nýlega hann var fenginn í hendur fjölskyldu sinni. Umíjöllunin einkennist af því að gera þennan mann að fórnarlambi kerfisins en hin myrta hefur verið afskrifuö sem réttlaus, þroskaheft kona. Hvaða sérréttindi? Hafdís Hafsteinsdóttír var ekki vangefin heldur heft í þroska vegna hægfara vöðvarýrnunarsjúkdóms sem jafnframt hafði áhrif á hreyfi- getu hennar. Hún var mjög sjálf- stæð, hafði mikla unun af bók- lestri, var blíð og félagslynd og dreymdi um að fá að gæta barna á dagheimili, en hún hafði yndi af börnum. Hún var mjög tryggur vinur og heimsótti oft einn vin sinn sem hún hafði þekkt í tólf ár. Vin sem hún vorkenndi því að hann var ekki frjáls ferða sinna og gat því ekki verið með félögum sínum. Sá vin- skapur endaði á hinn hrottalegasta hátt þann 14. febrúar er vinurinn gekk á henni berserksgang með hnífi og faldi síðan hina látnu vand- lega undir rúmi hjá sér, þar sem hún fannst síðan einum og hálfum sólarhring seinna. Sá sem er fær um að framkvæma slíkan verknað hlýtur að vera hættulegur umhverfi sínu, jafnvel nánum aðstandendum, og ætti að vera vistaður á bak við lás og slá. Hvers konar stofnun tekur hins vegar að sér að gæta hans er annað mál. En hvaða rétt hefur fjölskylda hans umfram fjölskyldur annarra misindismanna? Og hvar var fjöl- skyldan áður en maðurinn fremur þetta hryllilega morð? Hvaða sér- réttindi hefur þessi maöur fram yfir aðra afbrotamenn sem minna hafa af sér gert en mega samt dúsa í fangelsi og veslast þar upp án þess að ráðherra hlaupi til að sendi þá heim og launi fjölskyldunni fyr- ir? Gerandi og þolandi Mikið hefur verið úr því gert að manninum hafi ekki liðið vel í fangelsinu. Það þarf varla van- KjáUarinn Linda Hafsteinsdóttir kennari þroska til að bera sig illa éftir slík- an verknað sem hann hefur framið. Jafnvel „heilbrigð” manneskja myndi líða sálarkvalir eftir að hafa gert sér grein fyrir að hafa unnið slíkt voðaverk, og þá kannski enn- þá frekar. Að þessi maður hafi aöeins þroska á við barn er fullyrðing sem slegið er upp af blaðamanni til þess eins að vekja samúð fólks. Ennþá hafa sérfræðingar ekki ákvaröað þroska hans, þannig að hann teljist þroskaheftur, en geðveikur, það er allt annað mál. Ef ákvarðanir sem meðhöndlun slíkra manna eiga að vera í höndum leikmanna og álit sérfræðinga gersamlega hundsað væri þá ekki réttast að loka stofn- unum eins og Kleppi og senda alla heim? Ef kind hleypur fyrir bO úti á þjóðvegi þá er ökumaðurinn bóta- skyldur, en verði maður valdur að dauða annarrar manneskju vegna vanrækslu þeirra er eiga að sjá um gæslu hans þá er hann bara sendur heim. Hver er eiginlega fórnar- lambið í þessu máli? Og hver er réttur fórnarlambsins og ættingja þess? Er réttur gerandans allur en þolandans enginn? Við ættíngjar hinnar myrtu telj- um okkur eiga rétt á opinberri rannsókn á því hvernig þessi hörmulegi atburður gat átt sér stað og mótmælum jafnframt harðlega ábyrgðarlausri meðferð ráðherra í þessu máli. Linda Hafsteinsdóttir „Viö ættingjar hinnar myrtu teljum okkur eiga rétt á opinberri rannsókn á því hvernig þessi hörmulegi atburður gat átt sér stað og mótmælum jafnframt harðlega ábyrgðarlausri meðferð ráð- herra í þessu máli.“ Smáauglýsingar - Sími 27022 Til sölu Toyota Celica Supra 2,8i, árg. ’83, ekinn 82 þús. km, rafmagn í rúð- um, skoðaður ’92, bíll í toppstandi, skipti á ódýrari. Upplýsinar í síma 91-656292. Mazda E-2000 pallbíll ’88 til sölu, gott útlit. Verð 580.000 + vsk. Uppl. í sím- um 92-14815 eða 92-11603. Þjónusta Vinnulyfta til leigu, 2-3-S-6-8 m löng. Uppl. í símum 985-25390 og 98-34636. Höfum til leigu 14 manna Benz hvert á land sem er. G.T. hópferðabílar, sími 985-28238 og hs. 91-13995.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.