Þjóðviljinn - 06.08.1964, Blaðsíða 6
6
SÍÐA
ÞIÓÐVIUINN
Fimxntudagur 6. ágúst 1964
m iN ★
OfiSI BSiALISMI NN
ÚTG.: ÆSKULYÐSFYLKINGIN — RITSTJORAR: HRAFN MAGNOSSON,
RÖGNVALDUR HANNESSON OG SVAVAR GESTSSON.
Sýndarmennska og aðstoð-
in við hin vanþróuðu lönd
■ Sl. föstudag birtist í
æskulýðssíðu Morgunblaðs-
ins fagurmála hugvekja um
baráttuna gegn hungri í
heiminum og Bandaríkin
þar óspart lofuð.
■ Víða um heim er hafin
barátta til stuðnings þróun-
arlöndunum. Rétt er þó að
virða betur fyrir sér á-
standið í heiminum, áður
en íslenzk æska tekur upp
baráttuna, undir kjörorðinu
„herferð gegn hungri“.
9710 hluti mannkyns býr við
lífskjör, sem eru tíundi hluti
þess, sem h'till forréttindahóp-
ur nýtur. Samkvæmt skýrslum
Sameinuðu þjóðanna fær helm-
ingur mannkyns ekki nægan
mat, til að lifa við normal
heilsu. Og helmingur þessa
hluta býr við sultarkjör.
. Bilið milli hinna ríku og fá-
tæku þjóða verður æ stærra.
Ríku þjóðimar verða ríkari og
hinar fátæku fátækari. Fram-
hald á þessari þróun getur síð-
ar meir haft afdrifaríkar af-
leiðingar.
Hvað getum við á vestur-
löndum gert til að hjálpa þró-
unarlöndunum? Það er orðið
vinsælt slagorð að tala um að-
stoð við þróunarlöndin. Þar
ganga fremstir í flokki hinir
seku og áh'ta sig vera að afla
sér syndakvittana. Reynslan
hefur sýnt að aðstoðin er í
fyrsta lagi of lítil og í öðru
lagi er hún röng, nýrra að-
ferða þarf við.
Sérfræðingar SÞ hafa reikn-
að út, að erlent fjármagn, sem
þróunarlöndin þarfnast — auk
eigin tekna'— til að þróa iðn-
að og landbúnað heima fyrir,
séu nálægt 10 miljarðar doll-
ara á ári hverju. Þetta er mik-
il upphæð. En þessi upphæð er
aðeins 15% af því, sem vestur-
veldin nota til hervæðingar á
ári hverju. Og þessi upphæð
er aðeins 2% af tekjum iðnað-
arríkjanna.
Rétt er að hugleiða hvort
ekki mætti draga úr fjárút-
látum til hemaðar, i þeim til-
gangi að veita meiri aðstoð til
þróunarlandanna og minnka
þannig bilið milli hinna ríku
og fátæku þjóða. Væri ekki
slíkt einnig spor í áttina til
varðveizlu friðarins í heimin-
um.
Bandaríkin veittu fyrir fjór-
um árum 3—4 miljörðum doll-
ara í aðstoð við önnur ríki.
4/5 hluti þess var hemaðarað-
stoð. Upphseðin sem Banda-
ríkin greiða til efnahagsaðstoð-
ar handa meir en eins miljarðs
manna, er ekki meir en það
sem Bandaríkjastjóm greiðir
árlega fyrir geymslu á offram-
leiðslu landbúnaðarafurða.
Það er ekki nóg að ausa
peningum í sum þróunarlönd-
in, þegar ríkisstjómir þeirra
(og þær eru ástmegir stjómar-
innar í Washington) hugsa
ekkert um hag fólksins. T.d.
hefur Saudi-Arabía notið mik-
illar aðstoðar frá Bandaríkjun-
um. Tekjur landsins hafa 1000
faldazt á síðustu tuttugu árum,
en ekki bera lífskjör saudi-ar-
abans þess merki.
Ef aðstoð við vanþróuðu rík-
in á að bera einhvem árangur.
verður fyrst að umbreyta
verzlunarpólitík vesturveld-
anna. Þrjú eftirfarandi ein-
kenni verður að taka tillit til.
1) Vöruskiptaverzlun á hrá-
efni og iðnaðarvörum eru allt-
af óhagstæð fyrir hráefnis-
framleiðandann, en iðnaðar-
vöruseljandinn stórgræðir.
2) Verðsveiflur á hráefna-
markaðinum eru svo gifurleg-
ar, að heildaráætlun á þjóðar-
búskap er erfitt að gera og
veldur það þróunarlöndunum
erfiðleikum.
3) Verzlunarpólitík vestur-
veldanna gerir þróunarlöndun-
um erfitt um vik að flytja út
eins mikið og þau óska. þvi
vesturveldin þvinga þau til að
flytja inn vörur sem þeir ekki
óska eftir.
Meðan þessi stefna er við
lýði, og ríki Asfu, Afríku og
Suður-Ameríku eru arðrænd,
er allt tal um efnahagsaðstoð
helber sýndarmennska.
T.d. ollu efnahagsvandræðin
í Bandaríkjunum árið 1057, að
tekjur þróunarlandanna af út-
flutningsvörum þeirra minnk-
uðu um fjóra miljarða doUara
miðað við árin 1956—7. Þetta
þýddi að gjaldeyrisrýmun
sömu landa á þessu eina ári,
varð meiri en samanlögð að-
stoð Vesturveldanna til þróun-
arlandanna 10 ár á undan.
Þetta sýnir ljóslega hvaða
afleiðingar vörusveiflur auð-
valdsþjóðfélagsins hafa "á efna-
hagslíf þróunarlandanna. Hve
litla verðsveiflu þarf til að
drekkja væntanlegri aðstoð
frá íslen-'kri æ*ku til þróun-
arlandanna?
Heimdallur og Hungrið
Æskulýðssíða Morgunblaðs-
ins spyr: „Hver vHl ekki leggja
hönd á plóginn til hjálpar
Brezka Kenýa — Frelsisbarátta þjóðanna verður ekki barin niður með vopnum nýlendukúgarans.
Þratt fyrir það að kapítalísku nýlendnveidin beri ábyrgð á hörmungunum í þróunarlöndunum hafa
sósíalisku ríkin hlaupið undir bagga og veítt þeim margvíslega aðstoð. Á þessari mynd sjást
tékkneskar dráttarvélar af gerðinni Zetor halda innreið sína í Rangoon höfuðborg Burma.
Suður-Víetnam — Horft á heiminn í gegnum gaddavír.
hinum hungruðu bömum?“
Að sjálfsögðu berumviðsömu
tilfinningar í brjósti. er við
sjáum myndir af hinum hungr-
uðu. En okkur getur greint á
um leiðir. Aðstoð sú sem stofn-
anir Sameinuðu þjóðanna hafa
veitt eru eflaust bezta leiðin
innan rikjandi skipulags-
ramma.
En arðrán auðvaldsþjóða
Vesturveldanna á hinum svelt-
andi bömum og alþýðu þróun-
arlandanna, gerir velviljuga
aðstoð tilfinningaríks almenn-
ings að dropa í hafi.
Æskulýðsfylkingin mun
styðja framkomna hugmynd að
Æskulýðssamband íslands beiti
sér fyrir „herferð gegn hungri“
En þess æskir Æskulýðsfylk-
ingin, að hugur fylgi þar
betur máli en hefur sýnt sig
í „baráttu ÆSl“ til stuðnings
blökkumönnum í Suður-Afr-
íku.
Þessi verðugu verkefni, sem
æskulýðssambönd borgara-
flokkanna á Islandi styðja í
orði í málgögnum sínum, hafa
of oft reynzt sýndarmennskan
ein á borði. Öre.
Fylkingarfréttir
★ Félagsheimili ÆFR, Tjam-
argötu 20 uppi, er opið
mánudaga, þriðjud. fimmtu-
daga og föstudaga frá kl.
20.30—23.30. Þar er hægt að
fá keyptar veitingar á vægu
verði. Félagsheimilið er að
sjálfsögðu opið öHu ungu
fólki.
★ Eins og áður hefur verið
sagt frá hér á síðunni verð-
ur þing Sambands ungra
sósíalista haldið í haust.
Æskulýðsfylkingardeildir
um land allt beina þeirra
áskorun til félaga sinna að
greiða félagsgjöld fyrir ár-
ið 1963 eigi síðar en 1. sept.
Því fleiri fullgildir félagar
— þeim mun fleiri fulltrú-
ar á þingið.
★ Skrifstofa Æskulýðsfylk-
ingarinnar, Tjamargötu 20,
er opin árdegis frá kl. 10.00
til 12,30, — ennfremur mið-
vikudaga og föstudaga frá
klukkan 17.00—19.00.
★ ÆFR og ÆFH efna til
Þórsmerkurferðar helgina
15.—16.. ágúst. Lagt verður
af stað, stundvíslega, kl. 2
frá Tjamargötu 20 og ekið
sem leið liggur í Þórsmörk
með viökomu á Hvolsvelli.
Á heimleiðinni komið í
Stakkhpltsgjá, að Jökullón-
inu og í Merkurkerið.
Helgarferðir Æskulýðsfylk-
ingarinnar hafa ávallt notið
mikilla vinsælda, enda er
dvöl í góðum félagsskap og
í fögru umhverfi skemmti-
leg tilbreyting frá starfi og
hversdagsleik borgarinnar.
Tilkjmnið þátttöku í síma
ÆFR 17513 og hjá Ferða-
skrifstofunni Landsýn sími
22890.
★ Síðasta kvöldferð ÆFR
verður næstkomandi mið-
vikudagskvöld, 12. ágúst.
Lagt verður-af stað stund-
víslega frá Tjamargötu 20
kl. 20.00. Þessi smellna hug-
mynd ÆFR, „kvöldferðir út
í bláinn" hefur ávallt notið
mikilla vinsælda meðal
æskufólks. Hér er því um
að ræða kærkomið tækifæri
fyrir alla þá sem vilja
njóta náttúrunnar á fögrum
stað í nágrenni Reykjavík-
ur. Tilkynnið þátttöku strax
í dag. Þvf fyrr. því betra.
FÉLAGSfíJNDUR
ÆFR heldur félagsfund sunnudaginn 9. ágúst í Tjarnargötu
20 og hefst hann kl. 20.3C. Fundurinn verður með hringborðs-
sniði. Bagskrárliðir fundarins verða í megindráttum sem hér
segir.
1. Inntaka nýrra félaga,
2. Galdwater, kynþáttamálin og afstaða Islands.
3. Félagsmál og ÆF-þingið í haust.
4. Veítingar frarereiddar.
5. Umræður um Goldwater og félagsmálin.
ÆFR fcvetur féiaga til að koma stundvíslega og taka þáfct i
nmræðum um þeíta mikilsverða umræðuefni, — Nánar aug-
lýsl ’síðar.