Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2002, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2002, Blaðsíða 15
15 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 PV__________________________________________________________________________________________________Menning Mildin heiöa DV-MYND E.ÓL. Gullvægt augnablik á æfingu Jólaóratóríunnar í Hallgrímskirkju Höröur Áskelsson segir Mörtu Guðrúnu Halldórsdóttur til af sannri tjáningargleöi. Hún á ekkert skylt við mildi árásarhrinan á buddur landsmanna sem nú stendur yfir. Þegar haugar af auglýsingabæklingum eru settir beint í endurvinnslubunkann á hverjum degi er ekki lítið dýrmætt fyrir hvem mann aö vera minntur á jólin og tilefni þeirra með öðrum hætti. Það er hefð fyrir því að bjóða upp á sérstakar tónlistarveislur á þessum tíma og margir hafa skapað sér þá hefð að sækja til dæmis alltaf tón- leika hjá sömu aðilum á þessum tíma árs. Tónleik- amir eru gjaman haldnir í kirkjum og styrkir það boðskapinn, sem alltaf má þó finna í tónlistinni einni saman, um sókn í raunveruleg lífsgæði. í mörgum stærri heimsborgum má ganga að því vísu um hver jól að geta sótt tónleika þar sem eitt af stórvirkjum menningarsögunnar á sviði tónlist- ar er flutt - Jólaóratórían eftir Johann Sebastian Bach. Þó svo að fhitningur á þessu verki sé ekki á dagskrá hér í höfuðborginni á hverjum jólum þá hafa þeir sem era á miðjum aldri fengið ótrúlega mörg tækifæri tO að hlýða á verkið hér heima. Þannig birtist hátt menntunar- og menningarstig. Frábærlega hæfir flytjendur og þyrstir hlustendur. Tónlist Og eins og með öll góð verk þá er fyrsta hlustun aðeins byrjunin og endurtekin heimsókn í hljóm- leikasalinn gerir ekkert nema auka á ánægjuna. Þegar maður er svo farinn að bfða spenntur í sæt- inu eftir völdum augnablikum síðan síðast á sama tíma og maður uppgötvar önnur sem beðið verður eftir næst - þá er víst að fjarlægðin frá sorpubunk- anum er orðin þægilega mikil og sáiin er að fá raunverulega næringu. Mótettukór Hallgrímskirkju flutti ásamt ein- söngvurum og Sinfóníuhljómsveit Islands þrjá fyrstu hluta Jólaóratóríunnar í Hallgrímskirkju í gærkveldi. Þau Marta Guðrún Halldórsdóttir sópr- an, Monica Groop alt, Gunnar Guðbjömsson tenór og Andreas Schmidt sem bassi sungu einsöngshlut- verkin en þau eru misstór. Flutningurinn hófst undir stjórn Harðar Áskelssonar með fullmiklum trumbuslætti, þar eð hvelfíngin yfir flyfjendum við altarið leikur sér með villtum hætti með hljóðið. Svo náðist að setja mikið efni fram í góðu jafnvægi og kom þá hvelflngarleikurinn minna að sök. Og þau voru ófá augnablikin sem reyndust gulli slegin í gær. Fyrsti hlutinn var þó ekki eins geislandi og það sem á eftir fylgdi. Hjarðljóðið þekkta í byrjun annars þáttar alltaf töfrandi og altarían Sofðu nú bam mitt sérlega vel flutt. En það var í þriðja hluta sem hver stórupplifunin rak aðra. Bassasönglesið Hann hefur lýð sinn leyst var snilldarlega túlkað, sópran- og bassa-dúett mjög fal- lega unninn, tenórinn sagði sérstaklega grípandi frá fundi hirðanna og barnsins í jötunni og síðast en ekki síst þá söng kórinn eins og hann væri af öðmm heimi í sálminum undurfagra Eg sem hef þig augum séðan. Það var því með nokkurri tregðu að farið var heim, en tilhlökkun litar daginn því sömu listamenn flytja seinni og ekki síðri hluta þessa mikla verks í kvöld, fóstudagskvöld. Þangað til má hlýja sér við textann í fyrmefndum dúett: „Miskunn þín og mildin heiða, mun oss reisa’ og leysa’ um síð“. Okkur veitir ekki af. Sigfríður Bjömsdóttir Sinfóníuhljómsvelt íslands, Mótettukórinn og eln- söngvararnir Marta Guörún Halldórsdóttir, Monica Groop, Gunnar Guðbjörnsson og Andreas Schmidt fluttu Jólaóratóríuna l-lll eftir J.S. Bach í Hallgrímskirkju. Hljómsveitarstjóri: Höröur Áskelsson. Seinni hlutinn veröur fluttur í kvöld á sama stað kl. 19.30. Fyrri hlutinn veröur fluttur aftur á morgun kl. 17. Snuðra og Tuðra Á þessari að- ventu er bæði hægt að horfa á Snuðru og Tuðru í Möguleikhúsinu þar sem þær ærsl- ast af hjartans lyst og líka lesa nýjustu bók Ið- unnar Steinsdótt- ur um þær, Snuðru og Tuðru í jólabakstri. Mamma þarf að bregða sér frá í miðj- um jólabakstri og skilur stelpumar eft- ir hjá pabba. Því miður var hún ekki búin að baka úr piparkökudeiginu og þegar systurnar komast að því að pabba frnnst piparkökudeig miklu betra en piparkökur verða þær að smakka líka ... Hvað tekur pabbi til bragðs þegar mamma reiðist og skellir hurðum? Anna Cynthia Leplar teiknar stórar og lifandi litmyndir af litlu fjölskyld- unni en Salka gefur út. Gullkorn barna Halldór Þor- steinsson hefur i tekiö saman bók- I. ina Gullkorn úr i hugarheimi ís- I lenskra barna fyr- i ir Bókaútgáfuna i Hóla. Hann byrjar ■ á stökum setning- I um sem fóstrur hafa safnað á leikskólum um allt land og er þar margt vísdómsorðið. „Það eru þjófar inni í hjartanu á mér,“ segir bam í Garðabæ og bætir við: „Það eru líka tröll þar.“ í seinni hluta bókarinn- ar eru svo stuttar sögur og skrítlur af bömum. Til dæmis segir einn afi frá þvi þegar hann sýndi sonardóttur sinni styttuna af Leifl heppna og sagði henni að Leifur hefði fundið Ameríku. Þá spurði sú stutta hissa: „Vissi hann ekki hvar Ameríka er?“ BORGARLEIKHUSIÐ Leikfélag Reyiqavíkur STÓRA SVIÐ SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller f kvöld kl. 20 Lau. 28/12 kl. 20 HONKl UÓTI ANDARUNGINN c. George Stiles ogAnthony Drewe Gamansöngleikurfyrir allaJjölskylduna. Lau. 7/12 kl. 20 ATH. Kvöldsýning Su. 8/12 kl. 14 Su. 29/12 kl. 14 MEÐ VÍFIÐ í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fi. 12. des. kl. 20 - AUKASÝNING ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR__________ NÝJA SVIÐ JÓN OG HÓLMFRÍÐUR Frekar erótískt leiktrit íprem páttum e. GaborRassov Lau. 7/12 kl. 20 Su. 29/12 kl. 20 JÓLAGAMAN Jólasveinakvæöi Jóhannesar út Kötlum í lcikbúrtingi o.fl. Lau. 7/12 kl. 15 - Aðeins kr. 500 Lau. 14/12 kl. 15 Su. 15/12 kl. 15 ÞRIÐJA HÆÐIN HERPINGUR eftirAuðiHaralds HINN FULLKOMNI MAÐUR eftir Mikael Torfason \ SAMSTARFI VlÐ DRAUMASMIÐJUNA Lau. 28/12 kl. 20, Fö. 10/1 kl. 20 LITLA SVIÐ RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare I SAMSTARFI VID VESTURPORT Su. 8/12 kl. 20 Lau. 14/12 kl. 20 Má. 30/12 kl. 20 FORSALUR BROT AF ÞVÍ BESTA - UPPLESTUR OG TÓNLIST Jól í Kringlusafni og Borgarleikhúsi: Rithöfundar lesa - léttur jazz Fi. 12/12 kl. 20 Arnaldur Indriðason, Einar Már Guðmundsson, Einar Kárason, Guðrún Eva Mínervudóttir, Stefán Máni og Þórarinn Eldjárn. GJAFAKORT I LEIKHUSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF Sól & Máni - Nýr íslenskur söngleikur eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR. TILBOÐSVERÐ, KR. 2.800, GILDIR TIL JÓLA. Frumsýning n. janúar SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Eínstök stund í íslensku tónlistarlífl Aðventutónleikar í Hallgrímskirkju Johann Sebastian Bach: Jólaóratóría í kvöld kl.19.30 og 7. des. kl.17.00 Tveir af okkar fremstu söngvurum, Gunnar Guðbjömsson og Marta Guðrún Halldórsdóttir, taka höndum saman með heimsþekktum kollegum sínum, Andreas Schmidt og Monica Groop. Sinfóníuhijómsveit íslands og Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar, flytja þessa mögnuðu jólagleðitónlist. Jólagaman Jólasveinamir og foreldrar þeirra, hin illræmdu Grýia og Leppalúði, bregða á leik í stuttri sýningu fýrir yngstu áhorfendurna á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu kl. 15 á morgun, 7. des., og 14. og 15. desember líka. Fjöldi úrvalsleikara tekur þá á sig gen/i þessara þjóðsagnapersóna, eins og Jóhannes úr Kötlum lýsti þeim í þekktum kvæðum, undir stjórn Guðjóns Pedersens. S a I u r i n n ■H 8 JHHHMl Hll ' Laugardagur 7. desember kt. 16 Tónar Evrópu - Söngtónleikar Edda Hrund Harðardóttir, sópran, og Richard Simm, píanó, flytja verk eftir Hándel, Mahler, Jón Asgeirsson, Ravel, Puccini, Poulenc, Bellini og Tchaikovsky. Verð kr. 1.500 Sunnudagur 8. desember kl. 16 TÍBRÁ: Jólatónleikar KaSA Kammerhópur Salarins býður stór^ölskyldunni til klassískrar jólaveislu. Á efnisskránni eru vinsæl kammerverk og jólalög í flutningi KaSa. Aðgangur er ókeypis fyrir yngri en 20 ára og eldri en 60 ára. Jólasveinninn mætir á staðinn. Fyrir tónleikana frá kl. 15.30 er boðið uppá jólakonfekt frá Nóa&Síríusi og jólasmákökur frá Kökuhominu í Kópavogi. Styrktar- og samstarfsaðiliar Omega Farma, strik.is, 12Tónar, Stafræna hljóðupptökufélagið, Kökuhomið, Nói&Sirius. Verð kr. 1.500/1.200 K i I! nMH Hin smyrjondi Jómfrú Nærandi leiksýning fyrir líkama og sól. Sýnt íIðnó: Lau. 7. des. kl. 20. Laus sæti. Sun. 8. des. kl. 15. Laus sæti. Sun. 8. des. kl. 20. Uppselt. Lau. 14. des. kl. 20. Sun. 15. des. kl. 15 og 20. (Síðustu sýningar fyrir jól.) Smurbrauðsmáltíð innifalin í miðaverði. Miðasala í Iðnó, 8. 5629700 Forsala aðgöngumiða erhafin Tilboðsverð kr. 2.S00 (fullt verð 3.100) Gildir til Jóla Gjafakort á Sól og Mána - tilvalin jólagjöf Tilboðsverð gildir til Jóla Sýningar hefjast Tl. janúar Tryggið vkkur piiða Eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson Leikstjóri: Hilmarjónsson Sálin hans Jóns míns Leikfélag Reykjavíkur (slenski dansflokkurinn Miðasala 568 8000 Miðasala 5 700 400 I BORGARLEIKHÚSIÐ Leikfélas Reykjavfkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.