Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 44
DAGBÓK
44 MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Polar
Star, Selfoss og Detti-
foss koma og fara í dag.
Polar Star fer í dag.
Porter, Kristrún, Þern-
ey, Heimatland og Bro
Atland koma í dag
Hafnarfjarðarhöfn: L.
Novospassky kemur og
fer í dag, Selfoss fer frá
Straumsvík í dag, Taur-
us fer í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa,
s. 551 4349, opin mið-
vikud. kl. 14–17. Flóa-
markaður, fataútlutun
og fatamóttaka, s.
552 5277, opin annan og
fjórða hvern miðvikud.
kl. 14–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vetr-
arstarfið er að hefjast
skráning stendur yfir í
eftirtalin námskeið: leik-
fimi, postulínsmálning,
myndmennt, enska, og
jóga ef næg þátttaka
fæst. Skráning og upp-
lýsingar í afgreiðslu, s.
562 2571. Verslunarferð í
dag. Farið frá Afla-
granda kl. 10.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta kl. 13 spilað,
kl. 13.30 keila og frjáls
spilamennska. Púttvöll-
urinn er opinn kl. 10–16
alla daga. Allar upplýs-
ingar í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–12
glerlist, kl. 9–16 almenn
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–10.30
Búnaðarbankinn, kl. 13–
16.30 spiladagur bridge/
vist, kl. 13–16 glerlist.
Þriðjudaginn 17. sept-
ember kl. 12.30. Haust-
litaferð í Skorradalinn.
Ullarselið á Hvanneyri
heimsótt. Kaffiveitingar
á Hvanneyri. Skráning í
síðasta lagi miðvikudag-
inn 11. sept. Allir vel-
komnir. Uppl. í s.
568 5052.
Félag eldri borgara,
Suðurnesjum. Selið,
Vallarbraut 4, Njarðvík.
Kl. 14 félagsvist alla mið-
vikudaga.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–14 aðstoð
við böðun, kl. 10–10.45
leikfimi kl.14.30–15
bankaþjónusta, kl. 14.40
ferð í Bónus, hár-
greiðslustofan opin kl. 9–
16.45 alla daga nema
mánudaga.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–16.
Skrifstofan í Gullsmára 9
opin í dag kl. 16.30–18.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Mánudagar:
kl. 9.30 stólaleikfimi, kl.
10. 15 leikfimi. Haustferð
Kvenfélags Garðabæjar í
Heiðmörk verður 4. sept.
kl. 13.30. Skráning í s.
564 2115, 896 0908, og
896 2150. Fótaaðgerð-
arstofan, s. 899 4223.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Kl. 8 böðun, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 hársnyrt-
ing, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna, kl 13.30
enska, byrjendur.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Línudans
kl. 11, pílukast kl. 13.30.
Á morgun boccia kl. 13.
Orlofsferð að Höfða-
brekku 10.–13. sept.,
nokkur herbergi laus.
Uppl. í Hraunseli. Gler-
skurður, skráning hafin.
Biljardstofan opin virka
daga frá kl. 13.30–16,
skráning hafin, s.
555 0142
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Miðvikud:
Göngu-hrólfar ganga frá
frá Hlemmi kl. 9.45.
Söngfélag FEB kóræf-
ing kl. 17. Línudans-
kennsla kl. 19.15.
Fimmtud: Brids kl. 13.
Opið hús hjá Félagi eldri
borgara laugard. 7. sept.
kl. 14–16 í Ásgarði.
Kynning á starfi og
markmiði félagsins. Fé-
lagar eru hvattir til að
mæta og takið nýja fé-
laga með.
Félagsstarfið Furugerði
1. Föstudaginn 6. sept.
verður eftirmiðdags-
skemmtun kl. 14. Ólafur
B. Ólafsson harmonikku-
leikari með meiru sér um
hljóðfæraleik og Ingi-
björg Aldís Ólafsdóttir
sópransöngkona syngur
einsöng. Söngur, grín og
gaman. Kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa unnið
með mósaik, gifs og ísl.
steina, námskeið í postu-
línsmálun, hárgreiðslu-
og fótaaðgerðarstofan
opnar.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnaðar, m.a. almenn
handavinna, frá hádegi
spilsalur opinn, kl. 13.30
kóræfing hjá Gerðuberg-
skórnum, nýir félagar
velkomnir. Föstudaginn
6. sept. dansleikur. Allir
velkomnir. Allar upplýs-
ingar á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 13 fé-
lagsvist FEBK, kl. 15–16
viðtalstími FEBK, kl. 17
bobb. Kynning á starf-
semi í félagsheimilinu
Gjábakka sept. til des.
verður fimmtudaginn 5.
sept. kl. 14. Þar mun
FEBK, Hana-nú og ýms-
ir áhugamannahópar
kynna sína starfsemi,
auk þess sem skráning
og kynning á fyrirhug-
uðum námskeiðum fer
þar fram. Allir velkomn-
ir. Kaffi og heimabakað
meðlæti á boðstólum.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Opið alla virka daga kl.
9–17 hádegismatur, kaffi
og heimabakað meðlæti.
Miðvikudaginn 4. sept.
kl. 14–17 verður kynning
á væntanlegri starfsemi í
Gullsmára, í vetur, einn-
ig er skráning á þau
námskeið sem fyr-
irhuguð eru. Félag eldri
borgara í Kópavogi
kynnir fyrirhugaða starf-
semi sína. Frístundahóp-
urinn Hana-nú kynnir
sína starfsemi t.d. brids-
hópinn, veflistarhópinn,
jóga, leirlistarhópinn,
sönghópinn Gleðigjaf-
ana, pútthópinn, glerlist-
arhópinn, einnig verður
kynning og sýning á
hlutum og munum sem
unnið er með á hinum
ýmsu námskeiðum. Allir
Kópavogsbúar eru hvatt-
ir til að mæta og kynna
sér vetrarstarfsemina.
Hraunbær 105. Kl. 9 al-
menn handavinna, út-
skurður, hárgreiðsla og
fótaaðgerð, kl. 13:
Bridge og bútasaumur -
harðangur og klaust-
ursaumur.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
og kl. 10 jóga. Kl. 9 böð-
un, kl. 15 teikning og
málun. Fótaaðgerð, hár-
snyrting. Allir velkomn-
ir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa, kl.
9–12 tréskurður, kl. 10–
11 samverustund með
Júlíönu, kl. 9–16 fótaað-
gerðir, kl. 13–13.30
banki, kl. 14 félagsvist,
kaffi verðlaun. Leir-
námskeið hefst 5. sept-
ember, skráning hjá
Birnu í s. 568 6960.
Vesturgata 7. Kl. 8.25
sund, kl. 9–16 fótaaðgerð
og hárgreiðsla, kl. 13–14
spurt og spjallað. Versl-
unarferð í Bónus kl.
12.15. Myndmennt byrj-
ar í dag, 4. sept. Mósaik
byrjar fimmtud. 5. sept.
kl. 13. Handverkssýning
og skoðunarferð um
Grafarvog. Mánud. 9.
sept. kl. 13 verður farið á
handverkssýningu í fé-
lags- og þjónustu-
miðstöðina í Hvassaleiti.
Kaffiveitingar að lokinni
sýningu. Síðan farið í
skoðunarferð um Graf-
arvog undir leiðsögn
Önnu Lísu Guðmunds-
dóttur frá Árbæjarsafni.
M.a. farið í Grafarvogs-
kirkju, Bryggjuhverfi og
fleira. Skráning í s.
562 7077, allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10
fótaaðgerðir, morg-
unstund, bókband, búta-
saumur, kl. 13 hand-
mennt – almennt, kl.
13.30 bókband, kl. 13
kóræfing Vitatorgs, kl.
14.10 verslunarferð.
Vinahjálp, brids spilað á
Hótel Sögu í dag kl.
13.30.
Gigtarfélagið. Hóp-
þjálfun Gigtarfélagsins
fer af stað aftur eftir
sumarfrí mánud. 9. sept.
Ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Skráning á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Minningarkort
Hrafnkelssjóður (stofn-
að 1931) minningarkort
afgreidd í s. 863-6611 og
565-6611.
Í dag er miðvikudagur 4. sept-
ember, 247. dagur ársins 2002. Orð
dagsins: Ég mun leita að hinu týnda
og sækja hið hrakta, binda um hið
limlesta og koma þrótti í hið veika, en
varðveita hið feita og sterka. Ég mun
halda þeim til haga, eins og vera ber.
(Esk. 34, 16.)
Víkverji skrifar...
SPARNAÐUR er göfug iðja og áVíkverji þá við það þegar menn
eru að leggja fjármuni til hliðar í sér-
stökum tilgangi.
Margar leiðir eru okkur færar í
sparnaði, þ.e. hjá mörgum bönkum,
sparisjóðum og fjármálafyrirtækj-
um, auk þess sem við getum safnað
okkur réttindum og fjármunum í líf-
eyrissjóðunum og fengið aukið mót-
framlag. Ekki er það ætlunin hér að
sökkva sér ofan í greiningu á sparn-
aðarleiðunum, það er áreiðanlega
ekki minni frumskógur en fargjalda-
frumskógurinn. Hins vegar fjalla að-
eins um þessa iðju, að spara.
Það er ágæt leið að safna fjármun-
um þegar ætlunin er að kaupa eitt-
hvað svo dýrt að menn ráða ekki við
það á einu bretti. Hins vegar nenn-
um við sjaldnast að bíða eftir að
þessi upphæð verði nógu myndarleg
til að kaupin geti farið fram. Bráð-
lætið rekur okkur til að fjárfesta,
borga slatta inn á og skella síðan
drjúgum eftirstöðvum á bein-
greiðslur, yfirdráttarlán, rað-
greiðslur hjá kortafyrirtækjunum og
hver veit hvað, leiðirnar eru nógu
margar. En þessi leið er talsvert
dýrari en að safna fyrst og kaupa
svo. Það hlýtur líka að fylgja því
miklu meiri vellíðan að reiða fram
kaupverðið í einu lagi (og fá jafnvel
staðgreiðsluafslátt). En við hugsum
bara ekki þannig. Við kaupum ennþá
út á lán þrátt fyrir að okkur sé sýnt
fram á það við kaupin hversu mikið
lánið kostar. Vextir, verðbætur, lán-
tökugjald, innheimtukostnaður og
þar fram eftir götunum. Við lítum
varla á slíkan hrollvekjandi lista því
þar sjáum við svart á hvítu hvað hlut-
irnir kosta í raun.
En þessi leið, að safna fyrst og
kaupa svo, er orðin mun vænlegri.
Áður fyrr, þegar verðbólga var mikil
og peningar í sparnaði rýrnuðu bæði
fyrir hádegi og eftir hádegi, var
brýnt að koma þeim í lóg sem fyrst.
Það er löngu liðin tíð. Nú getum við
safnað í rólegheitum án þess að verð-
mætin rýrni og ákveðið síðan hvar
best er að höndla.
Og svona í lokin leyfir Víkverji sér
að minna á heilræði sem hann heyrði
af og þykir gott (en hefur reyndar
aldrei náð að iðka sjálfur). Það er góð
regla að eiga sem svarar þriggja
mánaða launum á reikningi til að
grípa til ef eitthvað óvænt kemur
upp á.
x x x
VIÐMÓT á vinnustað verður aðvera þægilegt segir í auglýs-
ingu sem nú sést við og við í sjón-
varpi. Víkverji bjóst við að þar yrði
fjallað um að gott viðmót samstarfs-
manna væri meðal lykilatriða í vellíð-
an okkar á vinnustað. Sem það vissu-
lega er. Ekki var því að heilsa heldur
var átt við húsgögn. Viðmót hús-
gagnanna átti sem sagt að vera okk-
ur notalegt.
Máltilfinning Víkverja segir hon-
um að þetta samhengi passi ekki
beint. Í orðabók Menningarsjóðs
segir að viðmót þýði fas, framganga,
framkoma. Húsgögnin frá umræddu
fyrirtæki hafa þá líklega þetta fas,
framgöngu eða þessa framkomu.
Víst er það rétt að húsgögn fara mis-
jafnlega vel í Víkverja. Sum eru
þægileg, falleg, frumleg, vel gerð,
gömul eða ný og þar fram eftir göt-
unum. En framkoma þeirra er yfir-
leitt frekar hlutlaus og fasið líka.
Þarna hefðu auglýsingasmiðir átt að
íhuga orðalag sitt betur.
Dýrahald
Krúsí er týnd
KRÚSÍ týndist frá Braut-
arási 12 aðfaranótt 1. sept-
ember. Hún er þriggja mán-
aða, svart- og grábröndótt
og frekar smávaxin. Hún
var aðeins búin að vera hjá
okkur í 3 daga og ratar því
ekki heim. Ef einhver hefur
orðið var við hana vinsam-
lega hafið samband við
Birgittu í síma 659 0606.
Ung læða týndist
UNG læða, níu mánaða,
hvarf frá heimili sínu Laug-
arásvegi 9 í
Reykjavík
laugardag-
inn 24.
ágúst sl.
Finnandi
eða þeir
sem geta
gefið upp-
lýsingar
um hana
eru vinsamlegast beðnir um
að hafa samband við Mar-
gréti í síma 553 6793 eða
898 6793.
Kisi í óskilum
SVARTUR og hvítur kisi,
fremur lítill, ólarlaus og
bleikur og svartur undir fót-
unum er í óskilum. Ef ein-
hver kannast við hann hafið
samband í síma 587 5208
eða 865 2470 og í netfangið:
hodditor@visir.is
Lilli er týndur
HANN Lilli er týndur og
hans er mjög sárt saknað.
Hann
hvarf frá
heimili
sínu á
Garðavegi
11 í Hafn-
arfirði 29.
ágúst síð-
astliðinn.
Hann er
ekki vanur því að vera mikið
úti og alls ekki lengi. Hann
er hreinræktaður síams-
köttur en er albínói og al-
gjörlega hvítur og með mjög
fallega blá augu. Hann er
mjög mannelskur og talar
mikið (mjálmar/vælir).
Hann er 1 1/2 árs gamall og
eru heimilismenn miður sín
yfir missinum. Ef þú hefur
einhverjar upplýsingar um
köttinn okkar hann Lilla þá
eru allar vísbendingar vel
þegnar í síma 659 6644,
Ragnhildur.
Gabríel er týndur
GABRÍEL týndist fyrir
næstum því 4 vikum úr
Hrauntungunni í Kópavogi.
Hann er u.þ.b. 2–3 ára
persablandaður fressköttur,
grá/brúnbröndóttur með
hvítar loppur og hvíta
bringu og maga, loðna rófu
og loðnar kinnar. Hann var
með rauða ól um hálsinn og
merkispjald, en hann gæti
að sjálfsögðu hafa týnt því.
Við fengum hringingu frá
manni sem hélt hann hefði
séð hann í Kópavogsdalnum
við skólagarðana á Dalvegi.
Þeir sem hafa séð hann eða
vita hvar hann er vinsam-
lega láti vita í síma 691 1014
eða 554 6014.
Kisustrák vantar
heimili
ÞENNAN litla kisustrák
vantar gott heimili. Hann er
11 vikna, hress, hraustur og
kassavanur. Hann er vanur
hundum og smábörnum.
Upplýsingar gefur Ragn-
hildur í síma 659 6644.
Brandalín vantar
heimili
BRANDALÍN er 18 mán-
aða gömul, falleg læða sem
vantar nýtt heimili af sér-
stökum
ástæðum.
Hún er
sjálfstæð
en gæf og
gengur vel
um. Kassa-
vön, bólu-
sett og mun
ekki eign-
ast kett-
linga. Upp-
lýsingar gefur Adda í síma
693-5205 eða addasteina-
@simnet.is
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 skýra rangt, 8 fárviðri,
9 skrá, 10 illgjörn, 11
glænapast, 13 dagsláttu,
15 óþokka, 18 kom við, 21
snák, 22 fús, 23 þora, 24
athugar.
LÓÐRÉTT:
2 ílát, 3 raggeit, 4 kostn-
aður, 5 hendi, 6 þyrnir, 7
gufu, 12 skaut, 14 hress,
15 fokka, 16 skattur, 17
kvenmaðurinn, 18 jurtar,
19 sníkjudýr, 20 spilið.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 glæta, 4 hælum, 7 öndin, 8 angan, 9 afl, 11
garm, 13 urgi, 14 úlfur, 15 flár, 17 tjón, 20 enn, 22 lætur,
23 espar, 24 kenna, 25 annar.
Lóðrétt: 1 glögg, 2 æddir, 3 asna, 4 hjal, 5 lægir, 6
munni, 10 fífan, 12 múr, 13 urt, 15 fölsk, 16 áttan, 18
Japan, 19 nárar, 20 erta, 21 nema.
K r o s s g á t a
MÁLEFNI Alzheim-
ersjúklinga hafa verið í
umræðunni sl. daga og það
ekki af góðu. Það hefði
mátt beina kastljósinu
miklu fyrr að þessum sjúk-
dómi og þá ekki síst að
áhrifum hans á bæði sjúk-
lingana og fjölskyldur
þeirra. Reyndar rakst ég á
mjög gott viðtal við eig-
inkonu Alzheimersjúklings
í Nýju lífi í sumar og þessi
sama kona, Friðbjörg Ósk-
arsdóttir, kom svo fram í
sjónvarpinu núna í vikunni.
Mig langar til að þakka
Friðbjörgu fyrir fræðandi
viðtal um þá erfiðleika sem
fjölskyldur heilabilaðra
þurfa að glíma við. Það
þyrftu allir að lesa þessa
grein og kannski ekki síst
yfirmenn í heilbrigðiskerf-
inu.
Með þakklæti fyrir birt-
inguna.
G.J.
Þakka fræðandi viðtal