Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 3.55, 5, 7 og 9. Íslenskt tal. Vit 429 Líf þitt mun aldrei verða eins! Mel Gibson og Joaquin Phoenix í magnaðri spennumynd eftir M. Night Shyamalan, höfund og leikstjóra Sixth Sense. Það er einn í hverri fjölskyldu!  Kvikmyndir.is Roger Ebert Sýnd kl. 5.45, 8, 9.15 og 10.20. B.i. 12. Vit 427 EIGHT LEGGED FREAKS  Kvikmyndir.com  DV 1/2 SK.RadioX SCOOBY- DOO Sýnd kl. 4 og 6 Vit 398 Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða.  Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 10. B. i. 16.  DV  HL. MBL  Kvikmyndir.is DV Sýnd. kl. 6. Með ísl. tali. 1/2 SV Mbl 1/2 Kvikmyndir.is 27 þúsund áhorfendur Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 8. Líf þitt mun aldrei verða eins! Sjáið myndina í frábæru nýju hljóðkerfi Háskólabíós  ÓHT Rás2 Ben affleck Morgan Freeman  SK Radíó X Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12.  Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com Roger Ebert  SG. DV ÓHT Rás 2  Kvikmyndir.com  Kvikmyndir.is  SV Mbl Rómantísk gamanmynd úr raunveruleikanum sem fjallar um íslenskan mann, Jón Gnarr, sem verður ástfangin af Kínverskri stúlku. Frá sömu aðilum og gerðu Íslenska drauminn. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 6. Íslenskt tal. Sýnd kl. 8 og 10. Enskt tal. 1/2 Kvikmyndir.is 1/2 SK.RadioX  DV 1001 nótt kynnir í samstarfi við Pepsi, Tal og Námsmannalínuna: ótt i í sam a fi við Pepsi, Tal og Náms an ínun SIGNS heldur sem fastast í topp- sæti listans yfir vinsælustu mynd- irnar í Bandaríkjunum, heilum mán- uði eftir að hún var frumsýnd. Þessi yfirnáttúrlegi spennutryllir með Mel Gibson í aðalhlutverki er á góðri leið með að sigrast á hinu illyfirstíg- anlega 200 milljóna dala marki og er hún komin í hóp allra vinsælustu mynda ársins, það sem af er. En stóru tíðindin þessa þriggja daga helgi sem kennd er við dag verkalýðsins vestra eru ótrúleg þrautseigja lítillar rómantískrar gamanmyndar sem orðin er að óvæntasta smelli sumarsins. My Big Fat Greek Wedding, sem fjallar um gríska stelpu sem reynir að fá sam- þykki foreldra sinna fyrir því að hún giftist bandarískum manni, var frumsýnd vestanhafs í apríl og hefur síðan þá verið að mjaka sér mak- indalega upp listann. Um helgina sóttu myndina fleiri áhorfendur en nokkra aðra helgi síðan sýningar á henni hófust, enda hefur hún aldrei náð svo hátt á listanum. Fram- leiðslukostnaður myndarinnar var sáralítill, 5 milljónir dala eða 450 milljónir króna, sem þykir ekki neitt í henni Hollywood. Tekjurnar eru hins vegar á góðri leið með að skríða yfir 100 milljóna dala markið og það bara í N-Ameríku þannig að nú þeg- ar er um að ræða eina allra tekju- hæstu mynd ársins og það á vafalítið eftir að ræða lengi vel þessa dæma- lausu hægsígandi sigurgöngu. Þess má geta að myndin verður tekin á ný til sýningar í Smárabíói um helgina og verður spennandi að sjá hvort þessar óvæntu vinsældir vestra ýti við landanum. Eina nýja myndin sem náði að skipa sér meðal 10 tekjuhæstu mynda helgarinnar var feardotcom en fáar myndir hafa reyndar fengið eins slæma útreið gagnrýnenda og hún á árinu. The Good Girl með Jennifer Aniston og One Hour Photo með Robin Williams í hlutverki geð- sjúks morðingja hófu göngu sína nokkru fyrir síðustu helgi í fáum bíóum en vegna góðra dóma var sýn- ingarsölum fjölgað til muna og ná þær að skipa sér meðal 10 efstu. Signs enn vinsælust vestra en stafar ógn af gömlum kunningja Brúðkaupið endalausa                          !                          " " " " " " " " " "              ! """   "# $  %&    ' $ ( $ )       * +$ %            ,-./ ,0.- ,1., 2.1 2., 2.3 /.0 0. 1.- 1.1 ,4/.3 5.1 ,1.4 -4.3 2., 31./ 10./ ,,.2 2.1 1.5 My Big Fat Greek Wedding er ævintýri sumarsins og sýnir seigla henn- ar hversu mikill skortur hefur verið á rómantískum myndum í sumar. skarpi@mbl.is RAFPOPPKVARTETTINN múm er búinn að flækjast um heiminn und- anfarið til kynningar á plötu sinni, Loksins erum við engin. Skemmst er frá því að segja að platan sú tekur þeirri fyrri, Yesterday Was Dramatic – Today Is OK, fram að gæðum og er hún þó langt í frá eitthvert slor. Á plötunni nýju er sveitin með afar traust tök á þeim einstaka stíl sem hún hefur skapað sér, þar sem til- raunatónum er blandað hárnákvæm- lega saman við melódíska hljóma. Engu er þar ofgert og má með sanni segja að nýja platan sé fumlaust furðuverk sem vermt getur eyru eins árs barna jafnt sem öldunga – með af- brigðum hlustunarvænt snilldarverk og þó kirfilega bundið við jaðarinn. Ekki lítið afrek það. Heimamenn voru því auðskiljanlega spenntir að sjá „krakkana“ á heimavelli og var sjálf- ur forsetinn meira að segja mættur! Tónleikarnir hófust á því að verkið Áróra og Úrverk var flutt af sam- nefndum sveitum/hópum. Strengir, tréspil og bjöllur léku lykilhlutverk í þessu jaðarbundna verki, sem tók skjálfandi dýfur upp og niður tónstig- ann, fór á feiknaflug á milli þess sem hægt var á ferðinni. Datt dálítið niður um miðbikið en úr því var leyst undir lokin með fínum spretti. Múm hóf svo leik sinn með titillagi plötunnar nýju; naumhyggjulegt verk og seiðandi sem rann yfir í lokalag plötunnar, „Sveitin milli sólkerfa“. Á sviði mátti sjá hin ýmsu hljóðfæri; gítar, bassa, drag- og tréspil en einnig ýmis hljóm- borð og tölvur. Eitt af mörgu sem hrífur við múm er hvernig hljóðfærin ganga á milli meðlima, og það er eins og það skipti engu hver spilar á hvað. Þessu fylgir einhvers konar þægileg hreinleikatilfinning – líkt og tónlistin renni óheft út úr þessu fólki og þau bara geti ekkert að því gert. Þá er sveitin hiklaust ein sú myndrænasta sem undirritaður hefur séð – og eiga hinar barnslegu tvíburasystur ekki síst þátt í því. „Sætasta hljómsveit í heimi“ eins og einhver tónlistargest- urinn orðaði það. Næstu tvö lög eða svo voru hrjáð af hljómtruflunum en úr rættist þó fljót- lega. Við u.þ.b. sjöunda lag var rennslið orðið gott og sveitin afskap- lega þétt. Tónleikar múm í gegnum tíðina hafa stundum liðið fyrir fát og ruglandahátt á sviði en allt slíkt er nú á bak og burt. Er hér var komið sögu var framvindan reyndar svo gallalaus að lagatitlar og slíkt tóku að gufa upp: „Var þetta af fyrstu plötunni? Eða nýju?“ Fyrirbærið múm virðist þann- ig frekar snúast um einhvers konar ástand eða stemningu en: „fyrst kom þetta lag, svo þetta, og svo þetta“. Þegar vel gengur rennur þetta allt í eina, yndislega samfellu, eins og raunin varð þetta kvöld. Vert er að geta þáttar fimmta múmliðans, Finnans Samuli Kasm- inen. Hann sá um trommuslátt og gerði það með glans, hefur næmt eyra fyrir því hvenær hans innslags er þörf og hvenær ekki. Einnig lék Banda- ríkjamaðurinn Adam Pierce með í nokkrum lögum. Öryggið sem stafaði af sveitinni skóp eftirminnilega kvöldstund, þar sem hlýða mátti á sveit með fullkomið vald á list sinni – og vel það. Tónleik- arnir náðu því að endurspegla vel það sem múm leggur upp með á plötum sínum; skringilegheit, borin fram af natni og nákvæmni. Hlutir sem eiga sjaldan samleið og árangur þessarar kvöldstundar því þeim mun meiri. Tónlist Fumlaust furðuverk MÚM Tónleikar ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Heimkomutónleikar múm, laugardaginn 31. ágúst. Á undan lék strengjasveitin Áróra ásamt Úrverki – stjórnandi var Daníel Bjarnason. Arnar Eggert Thoroddsen Gyða Valtýsdóttir á sviði Þjóð- leikhússins. Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.