Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 37
HESTAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 37 1. flokkur/tölt 1. Sigurður Sigurðarsson, Herði, á Hyllingu frá Kimbastöðum, 7,13/7,56 2. Birna Káradóttir, Smára, á Kviku frá Egilsstaðakoti, 7,10/7,37 3. Sigurður Sæmundsson, Geysi, á Esjari frá Holtsmúla, 6,80/6,85 4. Hallgrímur Birkisson, Geysi, á Birki frá Sléttabóli, 6,37/6,58 5. Elín Ó. Þórisdóttir, Smára, á Þór frá Sperðli, 6,17/6,38 Fjórgangur 1. Birna Káradóttir, Smára, á Kviku frá Egilsstaðakoti, 6,93/7,12 2. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Hyllingu frá Kimbastöðum, 6,90/7,02 3. Sigurður Ó Kristinsson, Sleipni, á Straumi frá Kirkjubæ, 6,07/6,77 4. Hallgrímur Birkisson, Geysi, á Birki frá Sléttabóli, 6,17/6,59 5. Ólafur Þórisson, Geysi, á Sölva frá Hólavatni, 5,80/6,28 Fimmgangur 1. Sigurður Sæmundsson, Geysi, á Esjari frá Holtsmúla, 6,70/6,83 2. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Gylli frá Keflavík, 6,23/6,52 3. Sigurður Ó. Kristinsson, Sleipni, á Hamri frá Háholti, 6,37/6,32 4. Ragnheiður Þorvaldsdóttir, Herði, á Sörla frá Dalbæ, 5. Hallgrímur Birkisson, Geysi, á Gormi frá Grímsstöðum, 5,90/6,07 Gæðingaskeið 1. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Fölva frá Hafsteinsstöðum, 8,97 2. Sigurður Sæmundsson, Geysi, á Esjari frá Holtsmúla, 7,93 3. Guðmundur Guðmundsson, Geysi, á Heru frá Halldórsstöðum, 6,67 4. Friðþjófur Ö. Vignisson, Geysi, á Glym frá Kirkjubæ, 6,59 5. Hallgrímur Birkisson, Geysi, á Gormi frá Grímsstöðum, 4,62 2. flokkur/tölt 1. Róbert G. Einarsson, Geysi, á Guðna frá Heiðarbrún, 6,40/6,62 2. Elva B. Margeirsdóttir, Mána, á Amal frá Húsavík, 6,00/6,58 3. Hannes Sigurjónsson, Fáki, á Gildra frá Reykjavík, 6,13/6,33 4. Hulda G. Geirsdóttir, Gusti, á Mjölni frá Hofi í Öræfum, 5,93/6,24 5. Rakel Róbertsdóttir, Geysi, á Svarta Pétri frá Hreiðri, 5,83/6,12 Fjórgangur 1. Elva B. Margeirsdóttir, Mána, á Stiku frá Kirkjubæ, 6,30/6,44 2. Róbert G. Einarsson, Geysi, á Guðna frá Heiðarbrún, 5,97/6,20 3. Hannes Sigurjónsson, Fáki, á Tangó frá Hvestu, 6,07/6,07 4. Hulda G. Geirsdóttir, Gusti, á Mjölni frá Hofi í Öræfum, 5,90/6,07 5. Rakel Róbertsdóttir, Geysi, á Svarta Pétri frá Hreiðri, 5,90/5,99 Fimmgangur 1. Sóley Margeirsdóttir, Mána, á Prúð frá Kotströnd, 5,60/5,92 2. Rakel Róbertsdóttir, Geysi, á Magna frá Búlandi, 5,57/5,69 3. Jóhannes Kjartansson, Sleipni, á Hugin frá Herríðarhóli, 5,33/5,55 4. Elva B. Margeirsdóttir, Mána, á Erpi frá Prestbakka, 5,27/5,23 Gæðingaskeið 1. Sóley Margeirsdóttir, Mána, á Prúð frá Kotströnd, 5,88 2. Elva B. Margeirsdóttir, Mána, á Erpi frá Prestbakka, 3,58 3. Jóhannes Kjartansson, Sleipni, á Hugin frá Herríðarhóli, 3,58 4. Rakel Róbertsdóttir, Geysi, á Magna frá Búlandi, 3,25 Unglingar/tölt 1. Helga B. Helgadóttir, Geysi, á Kliðju frá Litlu-Tungu, 6,57/6,68 2. Rósa Eiríksdóttir, Geysi, á Snæ frá Suðurhlíð, 6,10/6,63 3. Elín H. Sigurðardóttir, Geysi, á Alþýðu frá Varmalæk, 6,43/6,49 4. Katla Gísladóttir, Geysi, á Úlfi frá Hjaltastöðum, 6,13/6,43 5. Camilla P. Sigurðardóttir, Mána, á Oliver frá Austurkoti, 6,90/0,00 Fjórgangur 1. Camilla P. Sigurðardóttir, Mána, á Oliver frá Austurkoti, 6,90/6,81 2. Elín H. Sigurðardóttir, Geysi, á Sæli f. Holtsmúla, 6,47/6,70 3. Helga B. Helgadóttir, Geysi, á Kliðju frá Litlu-Tungu, 6,33/6,66 4. Jóhanna Þ. Magnúsdóttir, Geysi, á Nös frá Hrólfsstaðahelli, 6,03/6,42 5. Rósa Eiríksdóttir, Geysi, á Snæ frá Suðurhlíð, 5,80/6,35 6. Hekla Hermundsdóttir, Geysi, á Gyrði frá Svínhaga, 5,80/6,17 Fimmgangur 1. Camilla P. Sigurðardóttir, Mána, á Njálu frá Arnarhóli, 5,73 2. Elín H. Sigurðardóttir, Geysi, á Alþýðu frá Varmalæk, 5,20 3. Katla Gísladóttir, Geysi, á Pjakk frá Varmalæk, 4,23 Börn/tölt 1. Rakel N. Kristinsdóttir, Geysi, á Vígari frá Skarði, 6,43/6,65 2. Hekla K. Kristinsdóttir, Geysi, á Þráni frá Sigtúni, 6,33/6,59 3. Viktoría Sigurðardóttir, Mána, á Skafli frá Norðurhvammi, 6,20/6,35 4. Lóa D. Smáradóttir, Geysi, á Gyllingu frá Kirkjubæ, 5,83/6,09 5. Margrét L. Margeirsdóttir, Mána, á Hyl frá Sandgerði, 5,63/5,96 Fjórgangur 1. Hekla K. Kristinsdóttir, Geysi, á Þráni frá Sigtúni, 6,27/6,43 2. Viktoría Sigurðardóttir, Mána, á Svarti frá Síðu, 6,37/6,38 3. Rakel N. Kristinsdóttir, Geysi, á Vígari frá Skarði, 6,10/6,23 4. Margrét L. Margeirsdóttir, Mána, á Hyl frá Sandgerði, 6,10/5,98 5. Lóa D. Smáradóttir, Geysi, á Gyllingu frá Kirkjubæ, 5,87/5,97 Úrslit í Opnu íþróttamóti Geysis á Gaddstaðaflötum 31. ágúst 2002 MÖRGUM hefur þótt ársþingin snú- ast meira og minna um þvarg um keppnisreglur fram og til baka og undra sig yfir því að þessi vitleysa skuli aldrei enda taka. Og víst er um það að þróun keppninnar er eins og sagan endalausa enda þurfa reglurn- ar ávallt að taka mið af getu knapa og hæfileikum hesta. Hestamenn eru lík- legast og loksins að vakna upp við þann vonda draum að óstöðvandi full- komnunarárátta þeirra hefur gengið mjög á þolinmæði áhorfenda. Virðast þeir nú loksins hafa uppgötvað og við- urkennt að hestakeppni á Íslandi er ekki áhorfendavæn og fráleitt sniðin að sjónvarpi. Fyrirkomulag gæðinga- keppninnar er til dæmis afar þung- lamalegt á margan hátt og hún óað- gengileg fyrir þá sem ekki þekkja reglurnar til hlítar. Tekið á einkunnaflóðinu Eftir landsmótið var skipuð fimm manna nefnd á vegum Landssam- bands hestamannafélaga sem á að skila tillögum til úrbóta á þeim van- köntum sem fram kom á gæðinga- keppni mótsins. Þar er helst að nefna þá miklu einkunnaupptalningu sem drap alla stemningu í dróma talna- flóðs. Í því sambandi er rétt að nefna nokkra einkunnaliði gæðingakeppn- innar. Í keppni A- og B-flokksgæð- inga og ungmenna eru gefnar sér- stakar einkunnir fyrir vilja annars vegar og hins vegar fyrir fegurð í reið. Báðir þessir þættir hafa þótt ákaflega mikilvægir í upplagi hesta eigi þeir að standa undir því nafni að kallast gæð- ingar. Oft hafa komið fram hugmynd- ir um að fella beri þessa liði inn í ein- kunnir gangtegundanna og sama gildir um ásetu og stjórnun sem gefið er sérstaklega fyrir í bæði barna- og unglingaflokki. Þykir mörgum orðið tímabært að fella þessi atriði inn í gangtegundaeinkunnir. Og talandi um keppni barna þá hafa lengi verið háværar raddir þess efnis að fyrir löngu sé orðið tímabært að breyta keppni í barnaflokki þar sem börnin geta valið að ríða annaðhvort tölt eða brokk og síðan hleypt á fulla ferð á stökki auk þess sem fet er sýnt. Sá mikli fjöldi barna, sem leggja stund á keppni í dag, ræður vel við að sýna bæði tölt og brokk og eins og þau reyndar gera í fjórgangi sem flokkast undir hinar svokölluðu hestaíþróttir. Síðan kastar tólfunum þegar komið er í úrslit, þá stilla krakkarnir sér upp á einum stað á vellinum og hleypa eitt af öðru á annarri langhliðinni á fullri ferð á stökki. Þetta atriði úrslita hjá börnunum þykir mörgum afar hvim- leitt atriði fyrir utan hvað það getur tafið dagskrá móta. Ætla mætti að þau börn sem leggja stund á keppni ráði vel við svipað verkefni og ung- lingarnir glíma við og því um hreina tímaskekkju að ræða. Þessi atriði sem hér eru nefnd hafa oftsinnis komið upp í umræðunni og sum hver verið tekin fyrir á fundum og ársþingum. Hestamenn sem þekktir eru að fullkomnunaráráttu og íhaldssemi hafa ávallt hafnað að breyta í þessa veru og eins og komið er á daginn hafa áhorfendur aldrei átt sér neina málsvara að því er virðist við mótun og þróun keppnisgreina hesta- mennskunnar. Þar hefur leiðarljósið ávallt verið að huga að hasgmunum knapanna og hestsins þannig að mat- ið verði helst fullkomið. Að þessu þró- unarstarfi hafa dómarar einnig komið en áhorfendurnir eða mótsgestirnir sem hvorki dæma né taka þátt í keppninni setið hjá, hvorki verið spurðir né látið í sér heyra að eigin frumkvæði að því er virðist. Nú um stundir er sjónvarpið einnig mikið í umræðunni og virðist sem hestamenn hafi alltaf haldið og kannski talið sjálfsagt að sjónvarpið myndi laga sig að langlokum hesta- mótanna, íslenski hesturinn og hans mikli glæsileiki sjái um að halda fólki við skjáinn meðan þulin eru upp hundruð einkunna og beðið og beðið eftir að eitthvað gerist. En nú virðist sem hestamenn, í það minnsta sumir hverjir, hafi uppgötvað sjónvarpið á nýj- an hátt og farið að skilja eðli þess og eiginleika og hvaða lögmálum það lýtur. Það er skemmst frá því að segja að þegar þetta er skrif- að hefur þessi nefnd ekki verið kölluð saman af for- manni hennar en hins vegar hafa þrír nefndarmanna hist óformlega og rætt þessi mál. Enn er því tími til stefnu fyr- ir nefndina að skila innihalds- góðum tillögum sem færa hestamenn í enn betri takt við nútímann en þeir hafa verið í. Er tími FIPO á næsta leiti? En svo vikið sé að íþróttakeppninni þá virðist sú umræða að taka upp hér á landi hinar alþjóðlegu FIPO-reglur sem keppt er eftir á heimsmeistara- mótum og fleiri mótum ekki dauð þótt tillaga um slíkt hafi verið felld fyrir tveimur árum. Raunar eru þeir býsna margir sem eru sannfærðir um að FIPO-reglur verði teknar upp hér á landi, þetta sé aðeins tímaspursmál. Reyndar segir svo reglum ÍSÍ að keppt skuli eftir alþjóðlegum reglum í keppni á vegum sérsambanda innan vébanda þess. Almennt virðast menn nokkuð sáttir við þessar alþjóðlegu reglur þótt vissulega séu þar nokkur atriði sem erfitt gæti reynst að inn- leiða hér á landi og má nefna að leyfð hámarksþyngd hófhlífa er þar 300 grömm í stað 250 gramma í íslensku reglunum. Þá þykir nokkuð víst að einfalt vægi á hægu tölti í töltkeppni í FIPO muni ganga illa í Íslendinga sem flestir hverjir vilji hafa tvöfalt vægi. Að sögn sérfræðinga er vanda- laust að samþykkja þessar reglur með þeim fyrirvara að hámarksþyngd hófhlífa verði einungis 250 grömm hérlendis og vægi hæga töltsins verði áfram tvöfalt. Þá hefur einnig verið nefnt að með því að taka upp FIPO- reglurnar ráða Íslendingar ekki leng- ur einir ferðinni um allar breytingar á keppnisreglum heldur þarf slíkt að fara í gegnum alþjóðlega umræðu og afgreiðslu. Sjálfsagt þykir ýmsum stór kostur að losna við allt reglu- gerðaþvargið af þingunum hér á landi eða það myndi stórminnka. Einar Ragnarsson, dómari og stjórnarmað- ur í LH, hefur þrisvar talað fyrir upp- töku FIPO hér á landi og segir að ef reynt verði eina ferðina enn verði lagt til að einungis verði keppt samkvæmt reglunum í 1. og meistaraflokki. Lífseigir gamlir draugar Annað sem lýtur að íþróttakeppn- inni og má nefna hér er að illa gengur að losna við gamla drauga og er þá átt við að í niðurstöðum móta er verið að dragnast með gamla stigakerfið. Fyr- ir allnokkrum árum var tekinn upp nýr dómskali frá 0 til 10 í stað 0 til 15 þar sem allt var umreiknað í hin svo- kölluðu stig. Enn í dag er víða verið að gefa upp einkunnir í gæðingaskeiði samkvæmt gamla skalanum og sömu- leiðis þegar getið er um samanlagðan sigurvegara móta. Svo mætti spyrja hvort Íslensk tvíkeppni og skeiðtví- keppni hefði ekki gengið sér til húðar og tímabært að fara að dæmi vina okkar erlendis og hætta með þessa titla sem lítið er spáð í. Annað sem vert er að leiða hugann að þegar styttist í ársþing LH er að nú verða þingin framvegis haldin ann- að hvert ár og er þá eðli málsins sam- kvæmt sjálfhætt að tala um ársþing en þess í stað kallað landsþing. Brekkudómar- ar fullsaddir á einkunnaflóði Senn líður að lokum keppnistímabils hesta- manna og við taka þing og fundahöld þar sem keppnisreglur verða til umfjöllunar ásamt ýmsu öðru. Valdimar Kristinsson fer hér yfir það sem líklegt þykir að verði tekið fyrir á ársþingi LH í október. Morgunblaðið/Vakri Breytingar á gæðingakeppninni liggja í loftinu eftir að landsmótsgestir fengu sig fullsadda á yfirdrifinni einkunna- súpu samkvæmt reglum um gæðingakeppnina. Morgunblaðið/Vakri Fegurð og fimi íslenska hestsins nýtur sín í gæðingakeppninni en það er margt í formi keppninnar sem gerir hana óaðgengilega fyrir áhorfendur og sjónvarp. Hér tekur Atli Guðmundsson gæðingshryssuna Gígju frá Auðsholtshjáleigu til kostanna. Styttist í ársþing Landssam- bands hestamanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.