Morgunblaðið - 06.09.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.09.2002, Blaðsíða 1
HAMID Karzai, forseti Afganist- ans, slapp naumlega á lífi þegar gerð var tilraun til að ráða hann af dögum í borginni Kandahar í Suð- ur-Afganistan í gær. Fyrr um dag- inn hafði bílsprengja sprungið í höf- uðborginni Kabúl með þeim afleiðingum að allt að þrjátíu manns biðu bana. Ekki er vitað hvort tilræðin tengjast en Abdullah Abdullah, utanríkisráðherra Afgan- istans, taldi sennilegt að liðsmenn al-Qaeda-hryðjuverkasamtakanna, sem enn leika lausum hala, hafi ver- ið hér að verki. Veikja tilræðin í gær verulega vonir um að ástand öryggismála fari batnandi í Afgan- istan. Sprengjutilræðið í Kabúl er það mannskæðasta í Afganistan frá því að talibanastjórnin í landinu var hrakin frá völdum. Í frétt BBC sagði að maður, sem klæddur var einkennisbúningi, hefði skotið fjór- um sinnum inn um opinn glugga í bíl, sem Karzai ferðaðist með, og særðist Gul Agha Sherzai, héraðs- stjóri í Kandahar, í árásinni, sem og einn af bandarískum lífvörðum Karzais. Réð árásarmaðurinn, sem hét Abdul Rahman, sig til starfa sem öryggisvörður Sherzais fyrir aðeins 17 dögum. Rahman kom frá Helman-héraði sem á sínum tíma var eitt af helstu vígjum talibana. Bandarískir sérsveitarmenn, sem bera ábyrgð á öryggi forsetans, brugðust skjótt við og létu kúlum rigna yfir byssumanninn með þeim afleiðingum að hann lést. Tveir menn til viðbótar létust í skotbar- daganum. Karzai hefur haft banda- ríska sérsveitarmenn sér til öryggis allt síðan að einn af varaforsetum Afganistans, Haji Abdul Qadir, var skotinn til bana í Kabúl í júlí. Karzai var kominn til Kandahar til að sækja brúðkaup bróður síns. Var honum tekið fagnandi af mikl- um fjölda fólks en mikill öryggis- viðbúnaður var vegna komu hans þangað. Hafði forsetinn nýverið stigið inn í bíl sinn, þegar árásin átti sér stað, eftir að hafa dvalist á heimili Sherzais. „Ég hef það ágætt. Ég er ávallt viðbúinn því, að svona árásir geti átt sér stað,“ sagði Karzai við fréttamann BBC eftir tilræðið. Atburðirnir í Kandahar áttu sér stað einungis örfáum klukkustund- um eftir að sprengja hafði sprungið í bíl nærri byggingu í miðborg Kab- úl sem hýsir ráðuneyti upplýsinga- og menntamála. Kom fram í máli Omars Samads, talsmanns afg- anskra stjórnvalda, að allt að 30 hefðu dáið og 50 til viðbótar særst alvarlega. Margir voru á ferli á þessu svæði þegar sprengjutilræðið átti sér stað og alger ringulreið ríkti á vettvangi ódæðisins eftir að sprengjan sprakk. Tilræðin skipulögð af al-Qaeda eða Hekmatyar? Grunur leikur á að talibanar eða liðsmenn al-Qaeda hafi staðið fyrir tilræðunum í gær og þá var nafn Gulbuddins Hekmatyars, fyrrver- andi forsætisráðherra Afganistans, einnig nefnt en Hekmatyar er sagð- ur eiga í samstarfi við al-Qaeda um þessar mundir. Útsendarar banda- rísku leyniþjónustunnar, CIA, reyndu að ráða Hekmatyar af dög- um fyrr á þessu ári en mistókst ætlunarverk sitt. Forseta Afganistans sýnt banatilræði í Kandahar AP Hamid Karzai veifar til íbúa Kandahar-borgar í gær, skömmu áður en honum var sýnt banatilræði. Allt að þrjátíu manns fórust þegar bílsprengja sprakk í Kabúl Kabúl, Washington. AFP, AP. Reuters Ítalskur friðargæsluliði rannsakar flak bílsins sem hafði að geyma sprengjuna sem sprakk í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í gær. 208. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 6. SEPTEMBER 2002 SAPARMURAT Niyazov, forseti Túrkmenistans, hefur veitt yf- irmanni einnar af ríkissjónvarps- stöðvunum hressilega ofanígjöf vegna þess hversu dagskrá stöðv- arinnar er leiðinleg. Hefur Niy- azov ákveðið að Annaberdy Sil- abov, yfirmaður Miras-sjónvarps- stöðvarinnar, fái ekki greidd nein laun um næstu mánaðamót vegna mislukkaðrar dagskrárstefnu sinnar. Þessi viðbrögð Niyazovs hafa vakið athygli, ekki síst sökum þess að dagskrá Miras, rétt eins og hinna sjónvarpsstöðvanna tveggja í Túrkmenistan, sem einnig eru ríkisreknar, saman- stendur að mestu af efni, sem tengist forsetanum, lífi hans og persónu. Er það til þess fallið að ýta undir þá persónudýrkun sem einkennir þjóðlífið í Túrkmen- istan. Hvarvetna er að finna myndir og styttur af forsetanum og bók, sem hann hefur ritað, er helsta lesefni barna í öllum skól- um landsins. Birta allar stöðvarnar í sjón- varpsútsendingum sínum litla andlitsmynd af Niyazov í horni sjónvarpsskjásins og dagskrár- efnið er oftar en ekki tileinkað forsetanum. Öllum ræðum hans er t.a.m. sjónvarpað og börn og fullorðnir eru gjarnan sýnd bros- andi út að eyrum, syngjandi dýrðarsöngva um Niyazov, sem tekið hefur sér viðurnefnið „Turkmenbashi“ (faðir allra Túrkmena) og látið útnefna sig forseta fyrir lífstíð. Ólaunuð leiðindi Ashkhabad. AFP. FORSETI Arababandalagsins, Amr Mussa, sagði í Kaíró í gær að araba- ríki væru fylgjandi því að vopnaeft- irlitsmenn Sameinuðu þjóðanna (SÞ) fengju að fara aftur til Íraks, og yrði það liður í samkomulagi Íraka við SÞ. Eru arabaríkin með þessu að reyna að koma í veg fyrir að Bandaríkja- menn geri árás á Írak til þess að koma Saddam Hússein frá völdum. Tveggja daga fundi utanríkisráð- herra aðildarríkja Arababandalags- ins lauk í gær, og á fréttamannafundi sagði Mussa að hann vænti þess að utanríkisráðherra Íraks, Naji Sabri, og framkvæmdastjóri SÞ, Kofi Ann- an, myndu eiga fund á næstunni og ræða hvort vopnaeftirlitsmennirnir fengju að koma þangað aftur. Tækist ekki samkomulag og réðust Banda- ríkjamenn gegn Írökum myndu „hlið vítis opnast“ í Mið-Austurlöndum. Mussa sagði að yrði eftirlitsmönn- unum heimilað að koma til Íraks á ný gæti umheimurinn gengið úr skugga um hvort Írakar byggju yfir eða væru að koma sér upp gereyðingarvopnum og brjóta þannig gegn ályktunum ör- yggisráðs SÞ. Sagði Mussa að öll að- ildarríki SÞ ættu að framfylgja álykt- unum öryggisráðsins, og skírskotaði þar til 35 ára hernáms Ísraela á pal- estínskum landsvæðum. „Hvers vegna ættum við aðeins að krefjast þess að Írakar framfylgi álykt- unum öryggisráðsins?“ spurði Mussa. „Hvað með Ísrael? Af hverju þessi tvö- feldni að Ísraelar séu á einhvern hátt undanþegnir því að framfylgja álykt- unum og kröfum um að framfylgja ályktunum öryggisráðsins?“ George W. Bush Bandaríkjaforseti ítrekaði í gær að Saddam Hússein Íraksforseti væri ógn við heims- byggðina og nauðsynlegt væri að við þeirri ógn yrði brugðist. Ásakaði Bush Íraka um að vera að koma sér upp gereyðingarvopnum og kvaðst myndu í næstu viku gera SÞ grein fyrir málstað sínum gegn Írökum. Arabar vilja vopnaeftir- lit í Írak Kaíró. AFP. GRÍSK yfirvöld hrósuðu í gær miklum sigri yfir hryðjuverkasamtökun- um 17. nóvember en þá gaf sig fram við lögregl- una einn helsti foringi þeirra. Hafði hann farið huldu höfði í tvo mánuði. Dimitris Koufodinas, tæplega hálffimmtugur, fyrrverandi býflugna- bóndi, er talinn hafa tekið þátt í öllum mestu hryðjuverkum samtak- anna frá 1975 til 2000 en þau kostuðu 23 menn lífið. Fréttastofan ANA sagði, að mikl- ar samningaviðræður hefðu farið fram milli lögreglunnar og Koufod- inas síðustu daga og þær leitt til þess, að hann hefði gefist upp. Í 27 ár varð grísku lögreglunni ekkert ágengt í baráttunni við 17. nóvember en seint í júní slasaðist einn liðs- maður samtakanna al- varlega er sprengja, sem hann ætlaði að koma fyrir, sprakk í höndum hans. Það varð til þess, að upp um hryðjuverka- hópinn komst. Nýr sigur gegn 17. nóvember Koufodinas Aþenu. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.