Fréttablaðið - 30.11.2003, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 30.11.2003, Blaðsíða 29
28 30. nóvember 2003 SUNNUDAG Líklega eru þeir ekki margirsem vita það, en um það bil helmingur af öllu vatni sem notað er til húshitunar á svæði Orku- veitu Reykjavíkur á höfuðborgar- svæðinu kemur frá Mosfellsbæ, nánar tiltekið úr Reykjaveitu. Í dag eru liðin 60 ár frá því að þessi merkilega uppspretta hita og yls tók til starfa. Upphafið má rekja til þess að hinn 30. nóvember árið 1943 var heitu vatni hleypt á hitakerfi húss- ins Hnitbjarga, sem er listasafn Einars Jónssonar á Skólavörðu- holti. Vatnið kom úr Reykjaveitu. „Sá dagur var áfangi á langri og erfiðri leið, því stríðsástand hafði sett mikið strik í reikninginn,“ seg- ir Alfreð Þorsteinsson, stjórnarfor- maður Orkuveitu Reykjavíkur. „Efni til veitunnar tapaðist í striðsátökum á hafinu eða vegna hráefnisskorts og bæjarbúar í Reykjavík máttu sætta sig við upp- grafnar götur og skurði mánuðum saman. En dagurinn var líka áfangi á leið Hitaveitu Reykjavíkur, sem án efa er eitt mesta þjóðþrifafyrir- tæki borgarbúa og raunar lands- manna allra, því sá þjóðhagslegi sparnaður og stórbættu lífsgæði sem hitaveitunni fylgdu, og fylgja í dag, verða seint mæld til fulls.“ Sex þúsund tonn af vatni Því hefur stundum verið haldið fram að ef Orkuveitan þyrfti að nota olíu til orkuvinnslu þyrfti til þess um 360 þúsund tonn af olíu á ári, með tilheyrandi umhverfis- mengun. Slíkt magn kostar um níu milljarða. Ef Orkuveitan notaði kol til orkuöflunar þyrfti til þess um 560 þúsund tonn árlega. Það er haugur sem er á stærð við Öskju- hlíðina. „Framsýni þeirra sem stóðu að Reykjaveitunni er því eins og nærri má geta ómetanleg fyrir þær kynslóðir sem komu í kjölfarið,“ segir Alfreð. Á seinni hluta 19. aldar tók fólk í Reykjahverfi að nýta sér ylvolga moldina til matjurtaræktar. Snemma á 20. öld ræktaði Óskar Halldórsson tómata á svæðinu, fyrstur Íslendinga, og árið 1923 var fyrsta gróðurhús landsins reist í Reykjahverfi. Haustið 1933 tóku menn svo til óspilltra mál- anna og boruðu eftir heitu vatni í landi Reykja og Reykjahvols. Vatnið sem upp kom var 82-87 gráða heitt og ljóst að það væri svo mikið að hægt yrði að leiða það til höfuðborgarinnar. Steinsteyptur stokkur var lagð- ur frá Dælustöðinni, gegnum endilanga Mosfellssveit og í hita- veitutankana í Öskjuhlíð. Stokk- urinn var mikið mannvirki, rúm- lega 15 km langur, og þurfti með- al annars að leggja hann yfir fimm vatnsföll. Tvær 14 tommu stálpípur lágu í stokknum fluttu 250 sekúndulítra af he vatni. Heildarmagn úr þeim 34 b holum sem nú eru á Reykjasvæ inu og Reykjahlíðarsvæðinu um sex þúsund tonn á kluk stund. Á köldum vetrardegi dælt um tólf þúsund tonnum heitu vatni til borgarbúa á hve klukkustund, frá Reykjum Reykjahlíð, Nesjavöllum og l hitasvæðunum innan borg markanna. ■ Hann hefur sterka viðveru oger glæsilegur á velli. Hann er vel gefinn en umdeildur. Hann hefur lag á því, með fari sínu, að þröngva mönnum til að taka af- stöðu til sín og þá mjög afgerandi afstöðu,“ segir Birgir Guðmunds- son, blaðamaður og kennari við Háskólann á Akureyri, um þann mann sem um er spurt að þessu sinni. Birgir bætir því við að framganga hans geti virkað sjálf- birgingsleg en fyrir innan brynj- una sé hann síður en svo þessi hrokagikkur sem margir virðist telja hann vera. Guðrún Gunnarsdóttir söng- kona þekkir þann sem um er spurt mætavel og hún notar þessi orð til að lýsa manninum: „Vinur vina sinna. Ráðagóður, ákveðinn, skemmtilegur sögumaður og of- boðslega góður kokkur. Mörgum konum finnst hann kynþokkafull- ur og það hefur ekkert breyst þó að gráu hárunum hafi fjölgað í seinni tíð. Hávaxinn og gustar af honum. Það fer ekki framhjá nein- um þegar hann mætir í salinn.“ „Hann kemur mér fyrir sjónir sem óvenjulega heiðarlegur mað- ur og hreinskiptinn. Fólk veit hvar það hefur hann. Ég held hann sé ekki góður í baktjaldamakki. Og svo er hann óumdeilanlegt glæsimenni,“ segir Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur. H segir hann eiga við nýja tegu vanda að stríða, sem sé ímynd vandamál. En munur er á p sónulegri viðkynningu og svo f miðlaímynd. Og nú er einfaldlega spu Hver er maðurinn? Svar á s 30. ■ ÁKVEÐINN Það gustar af honum hvar sem hann og menn nánast neyðast til að taka til afstöðu, segja samferðarmennirnir Hver er maðurinn? Vel gefið glæsimenni STOKKURINN ÚR REYKJAVEITU Steinsteyptur stokkur var lagður frá Dælustöðinni, gegnum endilanga Mosfellssveit og í hitaveitutankana í Öskjuhlíð. Stokkurinn var m mannvirki, rúmlega 15 kílómetra langur og þurfti að leggja hann yfir fimm vatnsföll. ALLS KYNS SÖGUR SPUNNUST Mikið nýjabrum fylgdi heita vatninu og spunnust um það alls kyns sögur. Ein var á þá leið að þegar opnað var fyrir leiðsluna í Reykjavík hafi Færeyingur skolast út með vatninu. Flugufóturinn fyrir þessari sögu mun vera sá að þegar opnað var fyrir leiðsluna hafi verka- mannabuxur eða önnur flík komið í ljós. VERKAMENN AÐ STÖRFUM Fjöldi manns vann við lagningu hitaveitustokksins og var vinnan kærkomin eftir sulta tímabil kreppuáranna. Ekki voru allir hrifnir af vinnubrögðunum og Björn Bjarnarson (1856-1951) bóndi í Grafarholti lét í sér heyra á prenti árið 1943: „Hinn skammi vinn tími elur slæpingshátt hjá fjöldanum af verkamönnum. Þeir eyða kaupi sínu í skemta og útslátt, til að létta af sér leiðindum og drepa tímann.“ Helmingur heita vatns- ins kemur úr Mosfellsbæ Í dag eru 60 ár liðin frá því að fyrsta húsið í Reykjavík var hitað með heitu vatni frá Reykjaveitu í Mosfells- bæ. Það var listasafn Einars Jónssonar. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til Reykjavíkur:

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.