Fréttablaðið - 22.07.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
22. júlí 2008 — 198. tölublað — 8. árgangur
THEÓDÓRA KOLBRÚN JÓNSDÓTTIR
Hjólar, syndir, borðar
hollt og sefur vel
• heilsa • sumar
Í MIÐJU BLAÐSINS
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA SUMAR VINNUVÉLAR O.FL.
Hreyfing nærin
Theódóra Kolbrún, eða Kolla eins og hún er kölluð af fjölskyldu og vinum, festi kaup á þessu forláta hjóli í Danmörku þegar hún
var þar við vinnu síðastliðið sumar. Hefur það komið að mjög góðum notum hér á landi.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
EKKERT STRESSAlls konar geisladiskar eru til með slökunartónlist og slökunarhugleiðslu fyrir þá sem eiga erfitt með að festa svefn eða slaka á í amstri dagsins.
HEILSA 2
LEIKIÐ Í FRÍINUGott er að eiga bæði útileikföng og innileikföng eða spil í sumarbústaðnum svo börnin hafi eitthvað við að vera í fríinu.
SUMAR 3
LH HESTAR
Landsmót hestamanna
fjölmennast til þessa
Sérblað frá Landssambandi hestamannafélaga
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
ÍÞRÓTT • MENNING • LÍFSSTÍLL
lh hestar
ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 2008
Stóðhesturinn Aris frá Akureyri varð efstur í A-flokki gæðinga á Landsmóti hestamanna á Gaddstaðaflötum. Knapi var Árni Björn Pálsson. Bættust þeir félagar þar með í hóp fárra útvaldra sem unnið hafa þennan titil, sem þykir einn sá eftirsóknarverðasti í hesta-mennskunni.
Úrslitin í A-flokki voru dramat-ísk. Fyrirfram spáðu flestir hinum reynda knapa Sigurbirni Bárð-arsyni fyrsta sætinu. Er það eini stóri titillinn sem hann hefur ekki unnið á löngum og litríkum ferli og því mikið í húfi. Hann hafði úr að spila tveimur úrvals gæðing-um, þeim Stakki frá Halldórsstöð-um, sem er í eigu Kára Stefánsson-ar, og Kolskeggi frá Oddhóli, sem er stóðhestur úr hans eigin rækt-un. Kolskeggur var efstur bæði í forkeppni og milliriðli og þar með efstur inn í úrslit. Stakkur þurfti að keppa í B-úrslitum, vann þau og þar með réttinn til að keppa í A-úr-slitum.
ÆÐRI MÁTTARVÖLD GRÍPA Í TAUMANAÞað ríkti mikil eftirvænting um það hvorn hestinn Sigurbjörn myndi velja. Stakkur er óhemju sterkur í úrslitum. Það fór klið-ur um brekkuna þegar hann reið Kolskeggi inn á völlinn. Það voru
að sama skapi mikil vonbrigði þegar ljóst varð að Stakkur var ekki með í úrslitunum. Þótti mörg-um það óvirðing við hestinn og mótsgesti. Kolskeggur byrjaði vel, var efstur þegar keppnin var hálfnuð. Hann varð hins vegar fyrir því óhappi að missa undan sér skeifu á brokkinu og átti enga möguleika eftir það. Þóttust
margir skynja að þar hefðu æðri máttarvöld gripið í taumana. Sig-urbirni hefði verið refsað fyrir að velja ekki Stakk. Árni Björn hélt hins vegar sínu striki á Aris. En það var mjótt á munum og úrslit-in ekki ljós fyrr en síðustu tölur höfðu verið lesnar upp. Sjá viðtal við Árna Björn á síðu 10.
Dramatísk úrslit í A-flokki á Landsmóti
Árni Björn Pálsson fagnar sigri í A-flokki gæðinga á Aris frá Akureyri. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhenti verðlaunin. MYND/JENS EINARSSON
Íslandsmótið í h
Átjánda Landsmót hestamanna var haldið á Gaddstaðaflötum við Hellu fyrstu viku júlímánaðar. Mótið er það fjölmennasta til þessa. Talið er að um fjórtán þús-und manns hafi verið á svæðinu þegar flest var. Sunnlenskir vind-ar gerðu hressilega vart við sig á Rangárvöllum fyrstu daga móts-ins. Í tvígang gerði storm sem stóð yfir í nokkrar klukkustundir í hvort skipti. Ætlaði þá allt um koll að keyra. Flugbjörgunarsveit-in á Hellu kom fólki til aðstoðar sem þurfti að taka niður tjöld sín. Nokkrir fengu gistingu í íþrótta-húsinu á Hellu. Sem betur fer varð þó ekkert úr slagviðri sem spáð var. Veðurguðirnir gengu síðan til liðs við hestamenn og þrjá síð-ustu daga mótsins naut fólk hverr-ar stundar í sól og blíðu.
Síðan skein sól
Sólin skín á efsta stóðhest í fimm vetra flokki, Óm frá Kvistum. MYND/JENS EINARSSON
„Ég tel nauðsynlegt að vekja upp meiri félagsvitund á meðal hesta-manna. Það eru hestamannafélög-in í landinu sem standa að Lands-mótinu. Þau ættu að vera sýnilegri á þeim vettvangi,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður LH.„Við þurfum að taka þessa um-ræðu. Vera vakandi yfir því hvert við stefnum. Það er alveg ljóst að ímynd hestamannafélaganna sjálfra hefur farið halloka í móts-haldinu. Þetta er ólíkt því sem ger-ist í flestum öðrum íþróttagrein-um. Þar er meiri áhersla lögð á gildi þess að vera í íþróttafélagi; að menn séu að keppa fyrir sitt félag, í félagsbúningi. Við getum litið til heimsmeistaramótanna. Þar á hvert land sitt svæði í áhorf-endastúkunni. Það er keppni milli þjóða og mikil stemning. Allt í mesta bróðerni, en þetta þjappar fólki saman og gerir alla að virk-ari þátttakendum,“ segir Harald-ur.
Vill auka
félagsvitund
Á heimsmeistaramótum styður hver þjóð sína menn.
MYND/JENS EINARSSON
Fyrir skömmu fór fjöldi hrossa í WorldFeng, upprunaættbók ís-lenska hestsins, yfir 300.000 hrossa múrinn. Alls eru 300.200 hross skráð í upprunaættbókinni hinn 17. júní síðastliðinn. Um 74 prósent hrossanna voru fædd á Ís-landi, eða 222.459, og næstflest ís-lensk hross eru skráð fædd í Dan-mörku um 9 prósent, eða 26.762 hross. Þegar Fengur, forveri WorldFengs, var opnaður árið 1991 fyrir 17 árum, þá voru um 9 000hross í gag
Upprunabók
stækkar
Söngkonan Elísabet Allasló í gegn á Landsmóti hestamannaBLS. 14
FJÖLMIÐLAR Tilkynnt verður um
aðkomu nýrra fjárfesta að
Ny hedsavisen í dag, samkvæmt
heimildum Markaðarins. Morten
Lund, aðaleigandi blaðsins, hefur
undanfarið leitað leiða til að fá
nýtt fjármagn inn í reksturinn.
Meðal þeirra fjárfesta sem
nefndir hafa verið eru Lars Seier
Christiansen, einn af stjórnend-
um Saxo Bank og fjárfestingar-
sjóðirnir 3i og General Atlantic.
Mikið var fjallað um Nyheds-
avisen í dönskum fjölmiðlum í
gær og staða blaðsins máluð
svörtum litum. Nú virðist lausn
hins vegar í sjónmáli. Lars
Lindstrøm, fjármálastjóri
Ny hedsavisen, sagði í dönskum
fjölmiðlum í gær að samkomulag
hefði náðst milli eigenda blaðs-
ins og því muni útgáfa þess halda
áfram eftir sumarfrí.
Í samtali við Markaðinn vildi
Morten Lund ekki tjá sig um
málið en sagði þó að yfirlýsing
frá honum væri væntanleg. Þór-
dís Sigurðardóttir, stjórnarfor-
maður Stoða Invest, hafði heldur
ekkert um málið að segja þegar
haft var samband við hana.
Danskar eftirlitsstofnanir
höfðu hótað að leysa útgáfuna
upp ef Nyhedsavisen skilaði ekki
ársreikningi fyrir miðnætti í
gær. Að því er fram kemur í Bør-
sen ætla fjórir stjórnarmenn að
segja af sér ef ársreikningi verði
ekki skilað á tilsettum tíma.
- ghh
NYHEDSAVISEN Fjárfesting Stoða Invest í
Nyhedsavisen nemur um 450 milljónum
danskra króna. FRÉTTBLAÐIÐ/NORDIC PHOTOS
Búist er við tilkynningu frá Morten Lund, aðaleiganda Nyhedsavisen í dag:
Nýir fjárfestar að Nyhedsavisen
2,25%með ánægju
Vodafonehöllinni 24. júlí
Miðasala á midi.is
Iceland Express kynnir
Buena Vista
Social Club
BRAGI VALDIMAR SKÚLASON
Vesturheimsk drauma-
ferð Baggalúts
Heimsækja Íslendingabyggðir í Gimli
FÓLK 30
Þróun tónlistar
Anna Hildur Hildi-
brandsdóttir skipu-
leggur ráðstefnu
þar sem þróun
tónlistarheimsins
verður rædd.
FÓLK 24
Stolt móðir
Dragkóngurinn og
Idolsöngkonan Ylfa
Lind Gylfadótt-
ir eignaðist
son á dögunum.
FÓLK 30
STYTTIR UPP Í dag verða vest-
lægar áttir, 5-10 m/s. Léttskýjað
suðaustan og austan til eftir hádegi
annars skúrir en styttir víðast upp
eftir hádegi. Hiti 10-22 stig, hlýjast á
austanverðu landinu.
VEÐUR 4
22
19
10 16
12
STÓRIÐJA „Það er meiri háttar óskammfeilni
af hálfu Landsvirkjunar að ætla að nota
þetta álit iðnaðarráðuneytisins um umhverf-
is mat á Gjástykki sem skálkaskjól til að
afsaka eigin seinagang til þess að afla orku
fyrir stóriðju á Bakka,“ segir Össur Skarp-
héðinsson iðnaðarráðherra.
Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjun-
ar, sagði í Fréttablaðinu á laugardag að
seinagangur hins opinbera við að afgreiða
erindi fyrirtækisins þess efnis hvort borun á
rannsóknarholum í Gjástykki yrði að fara í
umhverfismat hefði aukið á áhættu verkefn-
isins. Erindið var sent í apríl en iðnaðarráðu-
neytið veitti Skipulagsstofnun umsögn sína
8. þessa mánaðar og í síðustu viku upplýsti
stofnunin að borunin væri umhverfismats-
skyld.
„Landsvirkjun hefur sjálf sagt að aðeins
30 megavött af þeim 400 sem þarf til
álversins á Bakka eigi að koma frá Gjá-
stykki. Og sveitarfélögin sem málið varðar
hafa þá skýru stefnu að Gjástykki eigi að
vera aftast í röðinni og að það eigi ekki að
virkja þar ef næg orka fæst annars staðar.
Svo að spurningin um það hvort borað verði í
Gjástykki á þessu ári eða því næsta skiptir
ekki nokkru máli þegar á heildina er litið.
Staðreyndin er hins vegar sú að það er
Landsvirkjun til vansa að hún hefur látið
Húsvíkinga sitja á hakanum meðan hún
hefur verið upptekin af því að afla orku til
miklu umdeildari stóriðju sunnanlands. Og
það er mín skoðun að þar hafi minni hags-
munir þéttbýlisins verið teknir fram fyrir
meiri hagsmuni Húsvíkinga. Fyrir hönd
Húsvíkinga þá hefði ég áhyggjur af því
hvernig þeir ætla að finna nægilega orku
fyrir álverið á Bakka meðan áherslurnar eru
svona.“
Friðrik Sophusson segir það af og frá að
Landsvirkjun sinni verkefnunum sunnan-
lands frekar en þeim fyrir norðan. „Það sést
best á því að við höfum eytt tæpum fjórum
milljörðum til undirbúnings jarðhitavirkjana
á Norðurlandi en rúmlega tveimur milljörð-
um vegna undirbúnings nýrra virkjana í
Þjórsá.“
Össur játar að vissulega hafi afgreiðsla
erindis Landsvirkjunar tekið langan tíma.
„En málið var flókið og upplýsingar sem ég
og ráðuneytið þurftum til að komast að
málefnalegri niðurstöðu var ekki að finna í
tilkynningu Landsvirkjunar.“ - jse
Segir Suðurland ganga fyrir
Iðnaðarráðherra segir Landsvirkjun nota vinnubrögð ráðuneytisins sem skálkaskjól til að afsaka eigin
seinagang. Hann segir enn fremur ástæðu fyrir Húsvíkinga að óttast þar sem Landsvirkjun láti meiri hags-
muni þeirra víkja fyrir minni hagsmunum þéttbýlisins. Forstjóri Landsvirkjunar segir það af og frá.
MINJAGRIPIR UM MIKIÐ AFREK Starfsfólk á Ylströndinni færir Benedikt Hjartarsyni sundkappa ljósmyndir sem teknar voru í vetur
þegar hann æfði sjósund á köldum degi. Hitastig sjávar mældist -1,9 stig daginn þann. Afhending myndanna fór fram síðdegis í
gær þegar blásið var til veislu í tilefni af því að Benedikt synti nýverið fyrstur Íslendinga yfir Ermarsund. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FÓLK Benedikt Hjartarson sund-
garpur var heiðraður í Nauthólsvík
síðdegis í gær að viðstöddu
fjölmenni. Starfsfólk Íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur á
Ylströndinni í Nauthólsvík og
Siglingaklúbburinn Siglunes stóð
fyrir hátíðarhöldunum. Boðið var
upp á kaffi og með því.
Benedikt vann það einstæða
afrek að synda fyrstur Íslendinga
yfir Ermarsund í síðustu viku.
Vegalengdin sem Benedikt synti
var 61 kílómetri og tók sundið alls
sextán klukkustundir. Sundið tók
mjög á enda straumar svo miklir
að Benedikt bar af leið á tímabili.
Ástæðan var sú að Benedikt missti
af höfðanum þar sem sundfólk
kemur yfirleitt í land. Þurfti hann
því að synda tveggja kílómetra
leið áður en hann náði landi í lítilli
vík skammt frá.
Starfsfólkið í Nauthólsvík hefur
fylgst með stífum æfingum
Benedikts en hann æfði síðusta
árið allt að sex daga í viku og
stundum þrisvar sinnum á dag.
- hþj
Móttaka í Nauthólsvík:
Benedikt sund-
hetju fagnaðTvíburarnir taka við ÍA
Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir stýra
liði ÍA út tímabilið
eftir að Guðjón
Þórðarson var
rekinn í gær.
ÍÞRÓTTIR 26
VEÐRIÐ Í DAG
Hafskip var ævintýri
Höfundar Hafskipsævintýrsins
koma sárir frá því en uppréttir
og með fullri reisn,“ segir Jónína
Michaelsdóttir.
UMRÆÐAN 16