Tíminn - 15.04.1982, Blaðsíða 10
Fimmtudagur ÍS. april 1982
10
heimilistíminn
- JEBs umsjón: B.St. og K.L.
i'l M. r T|T| inch 1 TFj 1 K
Þad er
vanda-
verk að
velja
réttan
brjósta-
haldara
■ Flestar fullorðnar konur hér á landi nota
brjóstahaldara dags daglega. En þó að við þykj-
umst vita nokkurn veginn hvaða stærð og númer á
skálum hentar okkur, lendum við oft i megnustu
vandræðum, þvi að i ljós kemur, að ekki passa allir
brjóstahaldarar okkur jafn vel, þrátt fyrir að stærð-
in og skálarnar eigi að heita það sama. Þar sem oft
er óhægt um vik að máta brjóstahaldara i verslun-
um svo að vel sé, gefum við hér nokkrar leiðbein-
ingar, sem vonandi gera innkaupin auðveldari.
■ Hvernig gott er a& gera sér
grein fyrir þvi, hvort brjóstahald-
arinn passar
Þegar þiö eruð komnar i
brjóstahaldarann, skuluö þið
grandskoða ykkur i speglinum.
x Brjóstahaldarinn á að falla
þétt að likamanum og skálarnar
eiga að passa brjóstunum
nákvæmlega. Stykkið milli skál-
anna á aðfalla á milli brjóstanna.
x Ef brjóstahaldarinn er of
þröngur, þurfið þiö sennilega
stærra númer en þið höföuð hald-
ið. Ef hann er of viður, sérstak-
lega ef hann hefur tilhneigingu til
aö renna upp eftir hryggnum, er
hann of stór.
x Ef skálarnar eru allar i
hrukkum, eru þær of stórar, velj-
iö brjóstahaldara með minni
skálum.
x Ef skálarnar hrukkast i miöj-
unni eða flá til hliðanna, eða ef
brjóstin vella út úr skálunum, eru
skálarnar of litlar. Veljið stærri
skálar.
x Ef „yfirmaginn” bungar út
undan bandinu undir skálunum,
ættuö þið aö athuga, hvort ekki
væri betra að velja siðan brjósta-
haldara.
x Ef i brjóstahaldaranum eru
virar umhverfis skálarnar, gætiö
þá vel aö þvi, að þeir stingist ekki
inn i brjóstin, heldur liggi þétt aö
likamanum. Ef virarnir stingast
inn ibrjóstin, særa þeir þau. En ef
brjóstahaldari af þessari gerö
passar eins og hann á að gera,
veitir hann mjög góðan stuðning
og er þægilegur.
x Ef brjóstin stækka að mun viö
tiðir, ættuð þið að athuga, hvort
ekki væri skynsamlegt að eiga
brjóstahaldara með tveim skála-
stæiðum.
x Þegar þessari grandskoöun er
lokið.ættuð þiðaðsetjast niður og
ganga úr skugga um, aö brjósta-
haldarinn passi enn jafnvel.
Gerið þessar athuganir heima á
nýlegum brjóstahaldara áður en
þið farið i innkaupaleiðangur til
að kaupa nýjan. Það ætti aö gefa
ykkur svolitla viðmiðun hvað
varðar stærð og skálar. Ef þiö
komist að þeirri niöurstöðu að sá
brjóstahaldari sé of stór, skuluð
þið hafa i huga, að hugsanlegt er,
að ykkur passi brjóstahaldari i
minna númeri en meö stærri
skálum.
Hvaða gerð af brjóstahaldara?
Mikilvægast er að brjóstahald-
arinn sé af réttri stærð (sjá leið-
beiningar um mælingar). Þeim
konum, sem hafa miðlungs
brjóstastærð, brjóstin hvorki of
stór né of litil, henta flestar geröir
jafn vel.
En séu brjóstin stór, þarf að at-
huga vel sinn gang. Flestar geröir
veita of litinn stuðning, jafnvel þó
aðskálastærðin sé C. Athugið vel,
hversu margir saumar eruáskál-
unum. Saumlausar skálar veita
minnstan stuðning, gerðir með,
einn saum þvert yfir veita meiri
stuöning, en bestar eru skálar
meö lóöréttum saumum sem
saumaöir eru i geira frá þver-
saumnum niður að bandinu undir
skálunum.
Það er rétt að; benda á, að þeg-
ar þið hafið fundið sniö, sem ykk-
ur likar, er ekki vitlaust að kaupa
nokkur stykki eins, þvi aö það er
ekki einfalt mál að finna alveg
rétta sniðið.
Mjög litii brjóst: Þaö hefur
Hvernig á að mæla up?
fyrir brjóstahaldara-
stærðinni?
Stærðirnar ákvarðast af
máli, sem tekið er rétt undir
brjóstunum. Það þykir ekki
ráðlegt að mæla beint yfir
brjóstin sjálf, þar sem stærðin
breytist oft um tiðaleytið og
brjóstvefirnir eru svo lausir i
sér, að ekki er mögulegt að
taka nákvæmt mál þar.
Málið rétt
undir brjóstunum
68 til 72
Brjóstahaldarastærð
i sentimetrum
70
Brjóstahaldarastærð
i þumlungum
32
73 til 77 75 34
78 til 82 80 36
83 til CO 85 —58"
88 til 92 90 40
93 til 97 95 42
98 til 102 100 44
Takið málið óklæddar
heima áður en þið farið i inn-
kaupaferðina.
Skálarnar
Það eru margar aðferðir
viðhafðar til að mæla brjóstin
varðandi skálastærðina og
hafa það allar sameiginlegt að
vera algerlega óáreiðanlegar!
Besta aðferðin er að skoð£
Upplyftingarprófunin
Farið i brjóstahaldara,
krækið saman en hafið hlýr-
ana lausa. Gangið úr skugga
um að bandið undir brjóstun-
um sé i sömu hæð að aftan og
framan. Hallið ykkur áfram
og haldið höndunum utan um
brjóstin eins og myndin sýnir.
Réttið ykkur upp og hafið
hendurnar kyrrar. Stillið nú
hlýrana þannig að brjóstin
verði i sömu hæð og hendurnar
héldu þeim. Þetta er auðveld-,
ara ef einhver nærstaddur.
getur aðstoðað ykkur ef þið
þurfið að gera þetta einar^
brjóstin i spegli og taka
ákvörðunum, hvort þau teljist
litil, miðlungs eða stór. Mátið
brjóstahaldarana sem þið
þegar eigið og hafið hugfastar
þær ábendingar, sem hér eru
gefnar á siðunni til hliðsjórtar.
Það gerir ykkur auðveldara
að ákveða hvort skálarnar eru
af réttri stærð eða hverju sé
ábótavant.
121
151
161
181
191
201
211
221
231
241
251
261
271
281
291
301
reynst mjög erfitt að finna hent-
ugt snið fyrir þær konur, sem
hafa þennan vöxt, þar sem
brjóstahöldurunum hættir við að
skreppa upp. Bestu gerðirnar
eru meö breiöu bandi undir skál-
unum og oft hjálpar aö stoppa
skálarnar upp.
Mjög stór brjóst: I þeim tilfell-
um er best að dreifa þunganum,
svo hann lendi ekki allur á herð-
unum. Þá er best að velja siða
brjóstahaldara, jafnvel með vira
undir eöa til hliðar á skálunum.
Breiöir hlýrar eru ákjósanlegir.
Allir þessir brjóstahaldarar eru seldir sem nr. 36B.
Sama stúlkan sýnir þá alla
■ Skálarnar flá að ofan og sniöifi
passar ekki.
I Þessar skálar eru of stórar og
sni&iö alrangt.
■ Hér eru skálarnar saumlausar,
en snifiið er ekki gott og skálarnar
of stórar.
■ Saumlausar skálar, en snifiiö
gott og passar vel.