Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Blaðsíða 8
Minningarorb:
Ingólfur Matthíasson, stöövarstjjóri
Hann var fæddur að Haukadal í Dýrafirði
15. sept. 1903.Foreldrar hans voru merkishiónin
Matthías Ólafsson albm. og Marsibil Ólafsdóttir.
Til Reykjavíkur fluttist Ingólfui- með foreldr-
um sínum er hann var 14 ára að aldri. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum, fór síðan
á loftskeytaskólann og lauk prófi baðan. Var
hann loftskeytamaður á togurum óslitið frá 1924
til 1939, lengstan tímann á togaranum Belgaum
hjá hinum alkunna skipstjóra Aðalsteini Páls-
syni.
Árið 1928 giftist Ingólfur Unni Einarsdóttur,
hinni mestu ágætiskonu og lifir hún mann sinn
ásamt bremur mannvænlegum börnum beirra.
Árið 1938 réðist Ingólfur í b.íónustu Lands-
símans. Var hann um skeið eftirlitsmaður loft-
skeytastöðva í íslenzkum skipum og aðalkennari
við loftskeytaskóla, sem Landssíminn hélt í
nokkur ár.
Árið 1942 var Ingólfur settur stöðvarstjóri
við stuttbylgjustöðina í Gufunesi og gegndi hann
bví starfi bar til hann lézt 18. júní s. 1.
Með Ingólfi Matthíassyni er hniginn í valinn
einn færasti og mikilhæfasti loftskeytamaður,
sem siglt hefur á íslenzka flotanum.
Hann var einn af frumherjunum, sem lagði
grundvöllinn að stéttinni með stofnun Félags
íslenzkra loftskeytamanna, og var í mörg ár
einn af ötulustu forvígismönnum F. I. L. , vann
hann að félagsmálunum með þeim dugnaði og
ósérplægni, sem einkenndi allt starf hans og
var óbreytandi í bví að hvetja loftskeytamenn til
bess að afla sér sem beztrar menntunar í faginu.
Sjálfur náði hann slíkum tökum á rafmagns og
loftskeytafræði með sjálfsnámi, að hann mun
hafa staðið á sporði hvaða verkfræðingi sem
var í beirri grein, komu bar skýi'lTfram frábærir
hæfileikar hans og viljabrek. Því var bað að
honum var falið að stjórna stuttbylgjubjónust-
unni í Gufunesi, var bað mikið og vandasamt
brautryðjandastarf, sem gerði miklar kröfur
til tæknibekkingar og skipulagshæfileika, en
Ingólfur sigraðist á öllum erfiðleikum, með
sinni alkunnu snilli og starfsbreki, sannaði hann
nú sem fyrr að hann var verðugur bess mikla
trausts sem hceium var sýnt, Starfslið Gufu-
nesstöðvarinnar mun nú vera yfir 50 manns,
og viðskipti hennar mjög yfirgripsmikil, og
lætur bví að líkum að mikils sé af stjórnandanum
krafizt, en hinir alhliða hæfileikar Ingólfs komu
bezt í Ijós í hinum vandamestu störfum, hann
var einn beii'ra fáu manna, sem alltaf var á
broska- og framfarabraut. ___
Það er mikill og sár skaði, begar maður eins
og Ingólfur Matthíasson er hrifinn burt á bezta
aldri frá umsvifamiklu ábyrgðarstarfi.
Þungur harmur er kveðinn að ástríkri eigin-
konu hans og börnum aldraðri móður og systkin-
um, bau syrgja öll góðan og göfugan dreng.
Við gömlu félagarnir, sem árum saman áttum
viðskipti við Ingólf í gegnum loftskeytastörfin á
sjónum og við félagsstörfin í landi minnumst
hans með trega og hlýjum hug, þökkum honum
allar ánægjustundirnar og þá fyrirmynd, sem
hann var okkur með kunnáttu sinni, gáfum
og heilsteyptri framkomu. Ingi Matt, eins og
við kölluðum hann í okkar hópi, varð ógleyman-
legur öllum þeim er honum kynntust. Leiðir
okkar lágu saman árið 1928 og vorum við skips-
félagar á þriðja ár, þau kynni urðu mér ómetan-
lega mikils virði, því að fyrir hans áeggjan og
aðstoð gat ég búið mig undir lífvænlegt lífs-
starf, og naut ég ávallt vináttu hans upp frá því.
Það verður hverjum ávinningur að kynnast
slíkum manni, sem Ingólfur Matthíasson var.
Blessuð sé minning hans. G. Jensson.
144
VÍKINGUR