Afturelding - 01.04.1979, Blaðsíða 6

Afturelding - 01.04.1979, Blaðsíða 6
Ágrip af sögu Hvítasunnumanna á íslandi eftir Einar J. Gíslason Við söguritun um íslenska Hvítasunnuhreyfingu, verður naumast komist hjá Páli Jónssyni, sem mun hafa hvrjað Hvítasunnusamkomur árið 1918 hér í Reykjavík. Gekk starf hans svo langt að hann gaf út blað ,,Ljós og sannleikur". sem mun vera í mjög fárra höndum. Einnig gaf hann út söngva Hvítasunnukirkjunnar og jafnhliða í sömu bók. reglur í lífi Hvítasunnumanna. Páll gcrðist prestur l.útherskra i Kanada og er látinn fyrir nokkrum árum síðan. Minningargrein um hann birtist í Morgun- blaðinu, eftir séra Jakob Jónsson. Páll var talinn mikill ræðumaður og áhrifaríkur. Ýmsar aðstæður urðu þess valdandi að hann ílendist ekki hérlendis, heldur valdi sér starfsvettvang vestra. Erik Asbö var norskfæddur en dvaldist um tíma í Bandaríkjunum. Hann eignaðist afturhvarf og skírðist með Heilögum Anda og eldi, eins og Ritningin orðar það. Hann gerðist síðar meir leiðtogi Hvítasunnusafnaða í Skandinavíu. Ilann giftist Signe Asbö konu sænskrar ættar. Árið 1920 er Asbö forstöðumaður Elim safnaðar í Örebro Svíþjóð. Hann var mikill bænamaður, eins og Nýja testamentið segir frá. um Kornelíus Hundraðs- höfðingja. ..Jafnan á bæn til Guðs“. Eitt sinn þegar hann var i bæn, þá birtist honum opinberun. Hann sér sýn, kletta eða há fjöll, tengd saman á eiði, í baksýn er annað fjall og fyrir neðan það er byggð, þétt þyrping húsa. Um leið skynjar hann i Anda sínum að þetta er ísland. Hann öðlast sannfæringu fyrir þvi, að fara til íslands, segja störfum sínum lausum og hefja starf Hvítasunnumanna á íslandi. Hann tekur sér far með NOVA, skipi frá Berg- enska Gufuskipafélaginu. Fyrsti viðkomustaður þeirra verður Fáskrúðsfjörður. Skipið á áætlun norður með Austfjörðum, vestur með Norðurlandi og suður til Reykjavíkur. Asbö skimar og skimar, en hvergi sér hann staðinn á þessari löngu leið. Fullviss um að Guð hefði kallað sig í sýninni, til ls* lands, þá hóf hann starf í Reykjavík. Til móts við hann hafði komið Sveinbjörg Jóhannsdóttir, alsystir Ólafiu Jóhannsdóttir, sú er kunnug varð fyrir líknar- og tru- boðsstörf í Noregi. Sveinbjörg kunni það fyrir sér i Norðurlandamálunum, að hún gat verið túlkur Asbös. Veturinn 1920—1921 varð til mikilla vonbrigða fyrir Asbö. Árangur nánast enginn og fáir komu. Mætti hann fásinni og hreinni andstöðu frá vantrú og andatrú. Þegar kom fram á sumarið 1921, þá fer hann ásamt konu sinni og Sveinbjörgu áleiðis til Vestmannaeyja. Skipið leið vel áfram í sumarblíðunni, hvergi gára á sjó og stillilogn- Snemma morguns vaknar Asbö, horfir út um kýraugað a klefa sínum. Hann horfir og þekkir landslagið. Skipið er statt vestanvert við Eiðið á Heimaey. Hann sér Dalfjall og Klif í einni keðju, Eiðið á milli og Heimaklett, Miðklett og Ystaklett til vinstri. Hann sér Helgafell í baksýn, hann sér bæi og byggð í norðurhlíðum þess. Hann sér nú aftur það sem hann sá í sýninni forðum í Svíþjóð. Án þess að þekkja nokkurn, þá fer Asbö í land í Eyjum. Það var 6

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.