Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 38
F.v.: Ólöf, Sindri og Sara 9 mánaða ásamt Svavari, stóra bróður.
ÞRJÚ BÖRN
í EINU
144
Fyrir hálfu öðru ári biðu Inga
Ingólfsdóttir, hjúkrunarfræðingur, og
Stefán S. Svavarsson, sjúkraliði,
hamingjusöm fæðingar annars barns
síns. Áður en langt um leið máttu þau
hins vegar margfalda barnið sem von var
á með þremur. Á árinu, sem í hönd fór,
tók líf þeirra meiri stakkaskiptum en þau
hafði nokkru sinni dreymt um.
Fyrir sjö árum íluttu Inga og Stefán
frá Reykjavík til Akureyrar ásamt syni
sínum Svavari sem þá var á fyrsta ári.
Stefán fékk vinnu á Kristsnesspítala í
Eyjafirði en Inga, sem var læknaritari
fyrir, dreif sig í hjúkrunarnám við
Háskólann á Akureyri.
Að námi Ingu loknu, vorið 1993, lá
leiðin til Siglufjarðar þar sem bæði Ingu
og Stefáni bauðst vinna. Brátt varð Inga
barnshafandi og öll fjölskyldan beið
spennt eftir fjölguninni. Við ómskoðun
eftir 8 vikna meðgöngu sást eitt barn. Þá
mældist einnig hækkað sökk hjá henni
en það var talið stafa af sýkingu. Við
aðra ómskoðun, eftir 16 vikur, sáust hins
vegar tvö börn. Inga og Stefán fóru með
þá vitneskju í frí til Kanaríeyja. Þar gafst
þeim tími til að velta framtíðinni með
tvíburum fyrir sér í rólegheitum. Þegar
heim var komið beið þriðja ómskoðunin,
eftir 19 vikna meðgöngu, sem leiddi í
ljós að börnin voru ekki tvö heldur þrjú.
Þegar ljóst var að Inga gekk með
þríbura ákvað fjölskyldan að llytja til
Reykjavfkur til hægðarauka. Þar bjuggu
þeirra nánustu, Inga þurfti oft að mæta í
skoðun og hætta var á að börnin fæddust
fyrir tímann eins og gjarnt er um þríbura.
Þegar á meðgönguna leið þurfti Inga að
dvelja síðustu 5 vikurnar á meðgöngu-
deild og þá kom sér vel að þau voiu flutt
suður.
Þrfburarnir, drengur og tvær
stúlkur, litu síðan dagsins ljós 22.
nóvember 1994. Þau voru tekin með
keisaraskurði eftir 35 vikna meðgöngu.
Telpurnar Sara og Ólöf, sem eru
eineggja, vógu 8 og 10 merkur og
drengurinn Sindri, sem fæddist síðastur,
10 merkur. Inga segist hafa verið fljót að
ná sér eftir fæðinguna, sængurlegan hafi
staðið í 2 vikur.
Þó að fyrstu vikurnar heima væru
erfiðar komst fljótt upp í vana að hugsa
um börnin. Svavar, sem er orðinn sjö ára,
er mjög duglegur að hjálpa til við að
annast þau. Hann gefur þeim pela og
skiptir á bleium af mikilli list.
Hann er yfír sig hrifinn af
systkinunum og segir hverjum sem heyra
vill hvað hann eigi stóra fjölskyldu.
Inga segir að fjölskyldur hennar og
Stefáns hjálpi þeim eftir bestu getu.
Einnig hafi aðrir þríburaforeldrar veitt
þeim mikinn stuðning. Fjárhagslega er
það töluverð röskun að eignast þríbura.
Það þarf stærra húsnæði, þrjú rúm og bíl
með plássi fyrir þrjá bamastóla. Það þarf
að kaupa þrennt af öllu og þurrmjólk og
bleiur em dýrar. I Félagi þríburaforeldra
eru nú 18 foreldrar sem gefa ráð og láta
föt og ýmsa hluti ganga á milli. Félagið
hefur einnig samið við ýmis fyrirtæki um
aðstoð. Inga og Stefán hafa fengið gjafir
með barnamat, bleium og fleira frá
þessum fyrirtækjum. Þau segja að það
komi sér sannarlega vel en hverfi þó
fljótt í hítina. Styrkur, sem þau fengu frá
Sjúkraliðafélagi íslands, var því mikils
virði.
í bæklingi frá Félagi þríbura-
foreldra em nokkur áhersluatriði sem
Inga ásaml
þríburunum, fv. Sóruu,
Ólöfu og Sindra.
félagið berst fyrir. Efst á blaði er þrefalt
fæðingarorlof, það að fá að vera heima
hjá bömunum í eitt og hálft ár.
Þríburaforeldrar fá nú 8 mánaða
barnseignarfrí eða sex mánaða leyfið
sem allir fá og síðan einn mánuð fyrir
hvert barn umfram eitt. Sjálf stefnir Inga
á að vera heima í eitt ár. Raunar er
álitamál hvort það borgar sig að fara út
að vinna. Bamagæsla er dýr og afsláttur
fyrir þrfbura lítill, það þarf að greiða fullt
gjald fyrir tvö börn og hálft fyrir það
þriðja.
Annað baráttumál þríburafélagsins
er að niðurgreiðsla á heimilishjálp sé
metin eftir þörfum en ekki tekjum. Inga
segir að allir þríburaforeldrar þurfi
heimilishjálp og finnst að greiðslurnar
eigi að miða við þörf en ekki tekjur því
að tekjur séu svo afstætt hugtak. Helst
finnst Ingu að heimilishjálp ætti að vera
ókeypis í eitt ár, fjórar klukkustundir á
dag. Hún segir að það veiti ekki af þegar
annað foreldranna sé að vinna og geti því
ekki veitt aðstoð. Inga hefur fengið
niðurgreidda heimilishjálp hálfan daginn
fimm daga vikunnar. Hún þarf að sækja
TÍMARIT HJÚKIíUNARFRÆÐINGA 4. tbl. 71. árg. 1995