Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Blaðsíða 32

Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Blaðsíða 32
BERLINARFERÐ SAFNAMANNA u MARTIN-GROPIUS-BAU: OIE WIKINGER íferð safnamanna til Berlínar í septem- ber stóð heimsóknin til Martin-Gropius- Bau upp úr. Byggingin hýsir sýningar sem eru unnar í samstarfi við söfn á alþjóðavísu ogþar starfar metnaðarfullt starfsfólk undir stjórn safnstjóra sem tók höfðinglega á móti hópi safnamanna. Þann 10. september opnaði sýningin Die Wikinger sem var samstarfmilli þriggja safna; Nationálmuseet i Danmark, British Museum og Museumfur Vor- und Frúhgeschichte. Danska langskipið Roskilde 6 var aðalgripurinn í metnað- arfullri sýningu þar sem notaðar voru nýstárlegar aðferðir við að sýna skipið ífullri stærð. Stál var notað í stað viðar sem horfinn er. Það truflaði mig að munatextar voru einungis á þýsku enfyrir safnalúða með takmarkaða þýskukunnáttu varþað frékar óhentugt. Umræður spruttu upp á meðal safnamanna eftir heimsóknina og einhver sagði að þetta væri lenskan í Evrópu. Ekki eru allar hefðir afþví góða og þetta er ein afþeim sem mætti gjarnan breyta, sérstaklega hjá safni sem státar sig af alþjóðlegu sýningarhaldi. í enda sýningarinnar var vel staðsett safnbúð með söluvænum, víkingalegum varningi sem margur gesturinn hefur án efa gripið með sér heim. Heimsóknin var í heildina litið vel heppnuð og óhætt að mæla með þessari frábæru sýningu. Alma Sigrún Sigurgeirsdóttir, Borgarsögusafni )) öðrum heilan sendibíl! Slcólinn er öllum tælcjum búinn og þar á sér stað sérlega metnaðarfull starfsemi. Ég verð nú að viðurkenna að mitt litla forvörsluhjarta tók noklcur auka slög við það að sjá allar þessar flottu græjur, skólinn átti m.a. sitt eigið röntgentælci! Umhverfi skólans er heillandi, en hann er staðsettur í gömlu uppgerðu iðnaðarhverfi þar sem áður voru framleiddir rafmagn- slcaplar. Eftir þriggja tíma fróðlega og skemmtilega heimsókn var svo hvaða hópum safnið tekur á móti. Það tekur m.a. á móti öllum þeim innflytjendum sem sækjast eftir þýskum rílcisborgararétti, en þeir eru skiklcaðir í heimsólcn á safnið sem hluti af umsólcnarferlinu. Sýningin, sem er frá árinu 2006, segir sögu landsins frá um 500 til 1994. Stiklað er á stóru eins og gefur að skilja og einblínt á hersöguna og fannst mér vanta alla tilfinningu eða tengingu inn í sýninguna, textarnir voru þurrir og þarlægir. Sýningin sjálf var falleg og hefðbundin en einnig mjög karllæg, lítið minnst á konur eða þeirra hlut í sögunni. Notalegt andrúmsloft rílcti á sýningunni og á henni voru fáir gestir, svo auðvelt var að njóta sín og detta inn í sýninguna. Og enn hélt dagskráin áfram því frá kl. 18.00 var oklcur boðið að slcoða forvörsludeild Listiðnaðarskól- ans (Hochschule fur Technilc und Wirtschaft). Höfðinglega var tekið á móti oklcur og okkur sýndar hinar ýmsu vinnustofur sem voru mjög forvitnilegar. Á einum staðnum var verið að forverja súlckulaði og 32

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.