Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Blaðsíða 17

Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Blaðsíða 17
VIÐTAL VIÐ BIRTU GUÐJÓNSDÓTTUR, DEILDARSTJÓRA SÝNINGADEILDAR LISTASAFNS ÍSLANDS Eftir hrun finnst mér hafa auldst áhugi á íslandi, hef- ur það slcilað sér til ykkar myndlistarmanna? Ef maður hugsar ekki um kaup og sölu, heldur almennan áhuga, já að sumu leyti. Pað var mikill áhugi á íslenskri myndlist fyrir hrun, bæði hjá söfnurum og svo var mikið fjall- að um íslenska myndlist í alþjóðlegri myndlistarpressu. Petta helst gjarn- an í hendur við efnahagsástandið. Maður finnur til dæmis núna að það er mikill áhugi á list frá latneslcu Ameríku, eklci bara af því að þar sé svo áhugaverð list þótt hún sé það, æðisleg, en líka af því að þar er víða efnahagslegur uppgangur. Áhrifin eru svo margþætt. Svo fær- ist þunginn yfir á annan stað, og svona gengur þetta. Listheimurinn er með þróaðra skammtíma- en langtímaminni. Mér finnst margir íslenslcir listamenn hafa notað tælci- færin sín vel á þessum tíma fyrir hrun. Pað eru þessi tengsl sem eftir standa, sem fólk deilir með hvert öðru. Petta er „do it yourself“-fag hér, eins og tónlistin. Fólk er örlátt á sín tengslanet, hlutir eru gerðir í vinalegum félagsanda. En núna finnur maður það, bæði þelcki ég það sjálf og frá samstarfsmönnum, að listamönnum standa til boða tæki- færi sem þeir geta ekki nýtt sér af því það kemur enginn stuðningur héðan. Öll þessi alþjóðlegu verlcefni byggja á því að það komi fjármagn úr öllum áttum, m.a. frá heimalönd- um listamanna, og íslenskir lista- menn hafa stundum verið heppnir að geta flotið áfram á því að vera frá svo litlu landi að það sé lítill peningur til, en það er mjög leiðin- legt í svona samstarfi að gera það til lengri tíma. En á endanum þá hugsa margir sýningastjórar, „á ég að bjóða þessum íslenska listamanni, það lcemur ekkert fjármagn með honum“ og það er það sem listamenn eru að finna fyrir núna. Petta er líka áhugavert fyrir þig af því að þú hefiir verið báðum megin við borðið, sjálfstæður lista- maður og núna komin á stofnun og berst hinum megin frá Eiginlega við borðið frá þremur hliðum því ég hef í millitíðinni líka unnið sem sjálfstætt starfandi sýningastjóri. Ég hef til dæmis verið að byggja upp ákveðið samtal milli landa, milli stofnana, milli einstaklinga og í kjölfarið hef ég sóst eftir og/eða mér verið boðið af stofn- unum, söfnum og galleríum að gera sýningar með íslenskum listamönn- um eða íslenskum og japönskum eða norrænum eða eitthvað slíkt. Og þá hefur það oft stoppað á því að héðan fást svo aumir styrkir og auðvitað er gert ráð fyrir því að það hljóti að koma eitthvað fjármagn frá Norður- löndunum, velferðarríkjunum, til að kosta verkefni listamanna þaðan. 17

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.