Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Blaðsíða 34

Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Blaðsíða 34
SAFNARYNI / Harpa Björnsdóttir, myndlistar- og leiðsögumaður Gaman er að koma í Keflavík... /K\ KASSIIÍWL tums 'a *rlun.1 I fyrsta t»W*,a k, ■•f hmni frAhawi. M,, I 4 Cir-Htrs Gypsy Q. Queen "‘S'SSSu®" Það er mjög viðeigandi að Rokksafn íslands sé til húsa í Stapa, þeim fræga ballstað. Það heitir reyndar Hljóma- höllin í dag og þar er allt í senn, tón- leikahús, rokksafn og Tónlistarskóli Reykjanesbæjar. Tvíræðni nafnsins á Hljómahöllinni er virlcilega skemmti- legt, enda slcipar hljómsveitin Hljóm- ar sérstakan sess í hugum Suðurnesja- manna og landsmanna allra. Þó sveitaböllin í stóru félagsheim- ilunum séu nú horfin, þá lifa þau í minningu þeirra sem upplifðu þau. Um hverja helgi fylltu ungmenni Reykjavíkur rútur við BSÍ og svo var ekið í Aratungu, Festi, Minni-Borg, Árnes, Flúðir og fleiri staði. Auglýsing í útvarpinu gat hljómað svona á föstu- degi: „Logar í Aratungu á morgun, sætaferðir frá BSÍ.“ Þá voru ballskórn- ir dregnir fram og allt gert klárt fyrir skemmtilegt sveitaball á laugar- dagskvöldi. í Festi í Grindavík komu til dæmis Stuðmenn fyrst fram. En alltaf var mesta fúttið í Stapa og þar lifði sveitaballamenningin hvað lengst, þar spiluðu meðal annarra undir aldamótin síðustu Greifarnir, Sálin hans Jóns míns og Grafík með Helga Björns. í dag á ungt fólk á aldr- inum 16-20 ára fáa slíka möguleika til góðrar tónlistarskemmtunar um helgar, nema ef vera skyldi að sæl- gætisbarinn í Hagkaupum hafi tekið við af svona útstáelsi. Ég keyrði til Keflavíkur í blámóðu brennisteinsvetnis sem litaði Reykjanesið fallegum blátónum, og var álíka hollt lungunum og tóbaks- reykurinn sem fylgdi sveitaböllunum forðum. Á leiðinni raulaði ég lag Póniks og Einars, „Ég bauð þér á ball í Stapa, á því var engu að tapa. Ég held 34

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.