Tíminn - 27.02.1945, Blaðsíða 1

Tíminn - 27.02.1945, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARIN SSON. ÚTGEFFANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Símar 2353 Og 4373. PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. RITST JÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A. Símar 2353 Og 4373. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSLNGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A. Sími 2323. 29. árg. Reykjavík, þriðjudaglun 27. febr. 1945 16. blatt Dettifiossi sökkt á heimleið Berta Zoéga Guðrún Jónsdóttir Vilborg Stefánsdóttir CSSTi-T::'. Tólf skípverja og þríggja farþega er saknað Síðastl. föstudag voru oplnberlega tilkyimt þau miklu harmatíðindi, að e.s. Dettifoss hafi farizt í liafi, en haim var á leið til tslands.1 Jafnframt var tilkyimt, að 15 manns væri saknað, þriggja farþega og tólf skipverja, en alls var á skipinu 45 manns, 14 farþegar og 31 skipverji. Þeir, sem björguðust, voru þá komnir til skozkrar hafnar og leið sæmilega. IVánar hefir það enn ekki verið tilkynnt hvernig eða livenær þetta sorglega slys har að höndum, en telja má líklegt, að hér hafi þýzkir kafbátar verið cnn einu sinni að Davíð Júlíus Gíslason Jón Bogason Hlöðver Ásbjörnsson Gísli Andrésson Stefán Hinriksson Guðm. Eyjólfsson Jón Guðmundsson Helgi Laxdal Jóhannes Sigurðsson Ragnar Jakobsson Ragnar G. Ágústsson Jón Bjarnason Slyssins minnzt á Alþingi verki. Með þessu hörmulega slysi hefir enn verið aukinn liópur þeirra vösku inaniia, sem íslcndingar liafa misst af völdum styrjaldar- iniiar, og þungur harmur verið húiim mörg- um þeim, er eftir lifa. ÖIl þjóðin harmar þaim mikla missi, er hér hefir að höndum borið, og vOttar aðstandendum þeirra, er ■ látizt hafa, fyllstu samúð og hluttekningu. Hér koma á eftir nöfn þeirra, sem saknað | er, og svo þeirra, er af koniust: Dettifoss var yngsta skip Eimskipajélagsins, 2000 smál. að stœrð, smíð- aður í Danmörku 1930. Hann liafði farþegarúm fyrir 18 manns á fyrsta farrými og 12 manns á öðru farrými. Frystivélar voru settar í hann 1937. Einar Stefánsson var lengst af skipstjóri á Dettifossi, en síðustu árin hefir Pétur Björnsson verið skipstjóri á skipinu. Hann- var í leyfi í landi að þessu sinni. Afstaða Framsóknarílokks- ins til launalagafrumvarpsíns Flokkurinn getur ekki fylgt frumv., því að stjórnarliðið hefir fellt allar umhótatillögur hans Þriðja umræða um launalagafrv. lauk síðastl. föstudag og lágu þá fyrir ekki færri en 32 þingskjöl með fjölda breytingatil- lagna. Má bezt á því sjá, hve skiptar eru skoðanir um einstök á- kvæði frv., enda má óhætt segja, að næsta margt sé ákveðið þar af handahófi. Atkvæðagreiðsla hefir enn ekki farið fram um frv., en verður sennilega fyrir hádegi í dag. Við þessa umræðu skýrði fulltrúi Framsóknarflokksins í fjár- hagsnefnd deildarinnar, Skúli Guðmundsson, frá því, að vegna þeirrar meðferðar, er málið hefði hlotið í þinginu, gæti flokkur- inn ekki fylgt því og myndi því greiða atkvæði gegn því við þessa umræðu. Sameinað Alþingi minntist þessa sorglega atburðar síðastl. laugardag. Varaforseti þingsins, Bjarni Ásgeirsson, stjórnaði fundi og flutti ræðu þá, sem hér fer á eftir: „íslenzku þjóðinni hefir nú borizt ein harmafregnin enn. Eitt bezta skip hins litla ís- lenzka siglingaflota, gufuskipið Dettifoss, hefir nú farizt af hernaðarvöldum, er það var á heimleið frá erlendum höfnum með farm og farþega. Þrír far- þegar — íslenzkar konur — og tólf vaskir fardrengir hafa týnzt þar, — til viðbótar öllum þeim, er áður voru frá okkur horfnir af sömu sökum. Það er ekki lengra en röskir þrír mánuðir síðan við íslend- ingar urðum að sjá af öðru skipi flotans, Goðafossi, er fórst með sama hætti, ásamt mörgum fs- lenzkum mönnum, bæði far- mönnum og farþegum, — og er því nú skammt látið stórra höggva á milli í garð okkar fá- mennu þjóðar og stórt skarð höggvið í okkar litla skipastól. Má nú fullyrða, að manntjón ís- lenzku þjóðarinnar á styrjaldar- árunum, sé sambærilegt orðið við manntjón margra þeirra (Framhald á 8. síðu) Þau, sem saknað er: Farþegar: Vilborg Stefánsdóttir, hjúkr.k., Hringbrg,ut 68, f. 29. júní ’95. Berta Steinunn Zoéga, húsfrú, Bárugötu 9, f. 8. júlí ’ll, 1 barn 10 ára. Guðrún Jónsdóttir, skrifst.st., Blómvallag. 13, f. 17. apríl ’ll, hjá foreldrum. Skipsmenn: Davíð Gíslason, 1. stýrimaður, 'Njarðargötu 35, f. 28. júlí ’91, kvæntur, 5 börn: 12, 10, 8, 6 og 3ja ára. Jón S. K. K. Bogason, bryti, Há- vallagötu 51, f. 30. maí ’92, kv. 1 barn 10 ára. Jón Guðmundsson, bátsmaður, Kaplaskjólsveg 11, f. 28. ág. ’06, kv., 1 barn á öðru ári. Guðmundur Eyjólfsson, háseti, Þórsgötu 7 A, f. 23. júlí 1915, kv., 1 barn á öðru ári. Hlöðver Oliver Ásbjörnss., hás., Brekkustíg 6 A, f. 21. maí ’18, ókvæntur. Ragnar Georg Ágústsson, hás., Sólvallag. 52, f. 16. júní 1923, ókvæntur, hjá foreldrum. Jón Bjarnason, háseti, Berg- staðastr. 51, f. 23. nóv. 1909, kvæntur, barnlaus. Gísli Andrésson, háseti, Sjafn- argötu 6, f. 22. sept. ’20, ókv. Jóhannes Sigurðsson, búrmaður, Njálsgötu 74, f. 23. okt. ’06, ókv. Stefán Hinriksson, kýhdari, Hringbraut 30, f. 25. júní ’98, ókv. Helgi Laxdal, kyndari, Tungu, Svalbarðsströnd, f. 2. marz ’19. Ragnar Jakobsson, kyndari, Rauðarárstig 34, f. 27. okt. ’25, ókv. hjá móður sinni. Þau, sem komust af: Farþegar: Ólafur Björn Ólafsson (Björns- sonar, Akranesi). Páll Bjarnason Melsted, stór- kaupmaður. Skúli Petersen, Laufásveg 66. Bjarni Árnason. Sigrún Magnúsdóttir, hjúkrun- arkona. Eugenie Hallgrímsson Bergin, frú, Miðtúni 7. Davíð Sigmundur Jónsson. Lárus Bjarnason, Bárugötu 16. Erla Kristjánsson, Hólavallag. 5. Ragnar Guðmundsson. Theódór Helgi Rósantsson, Laufásvegi 41. Skipsmeim: Jónas Böðvarsson, skipstjóri. Ólafur Tómasson, 2. stýrimaður. Eiríkur Ólafsson, 3. stýrimaður. Hallgrímur Jónsson, 1. vélstjóri. Hafliði Hafliðason, 2. vélstjóri. Ásgeir Magnússon, 3. vélstjóri. Geir J. Geirsson, 4. vélstjóri. Valdemar Einarsson, loftskeyta- maður. Bogi Þorsteinsson, lofskeyta- maður. Kristján Símonarson, háseti. Erlendur Jónsson, háseti. Sigurjón Sigurjónsson, yfir- kyndari. Kolbeinn Skúlason, kyndari. Sigurgeir Svanbergsson, kyndari. Gísli Guðmundsson, 1. matsv. Anton Líndal, matsveinn. Tryggvi Steingrímsson, þjónn. NÍkolína Kristjánsdóttir, þerna. Baldvin Ásgeirsson, þjónn yfir- manna. ísland og I. L. O. ísland er í þann veginn að ganga í ILO — alþjóða verka- málaskrifstofuna. — Forstjóri einnar deildar félagsskaparins, David Vaage, hefir dvalið hér á landi nokkra daga og undirbúið þátttöku íslands. Meðlimir ILO eru nú um 50 að tölu en stjórnina skipa 32 menn, eru 16 þeirra fulltrúar ríkisstjórna, átta frá atvinnu- rekendum og átta frá verkalýðs- samtökum. Kostnaðurinn. við þátttöku ís- lands mun verða um 5—6 þús. dollarar á ári, uuk kostnaðar við þátttökp í alþjóðafundum, en þangað sendir hver þjóð fjóra fulltrúa. * \ I DAG birtist á 3. síðu síðari grein Jens Hólmgeirssonar um úrlausnir í lóðamálunum. Á 4. síðu eru greinar Karls í Koti og á 6. síðu grein um verðlag á smjöri eftir Gunnar Þórðarson, bónda í Gráenumýrar- tungu. --------------------------j Greinargerð Skúla fyrir þess- ari afstöðu flokksins var í að- alatriðum á þessa leið: — Framsóknarflokkurinn telur, að þörf sé nýrrar löggjafar um starfsmenn ríkisins og laun þeirra, og þess vegna gerðist einn af þingmönnum flokksins, 1. þm. Eyf., meðflutningsmaður að launalagafrumvarpinu, þegar það var lagt fyrir Alþingi í septembermánuði s. 1. Að vísu var þingmönnum flokksins þá strax ljóst, að málið var eigi svo vel undirbúið sem skyldi og frumvarpið gallað, enda hafði fulltrúi flokksins í milliþinga- nefndinni gert um það ágrein- ing, en þess var vænzt, að tak- ast mætti að koma fram nauð- synlegum lagfæringum á frv., við meðferð þess í þinginu, enda áskildu flutningsme'nn sér ó- bundin atkvæði um málið, eftir því hvernig tækist um afgreiðslu þess á Alþingi. Þingmenn Framsóknarflokks- ins telja þær launaupphæðir, sem ákveðnar eru í frv., of háar, miðað við tekjur landsmanna yfirleitt, einkum þeirra, er vinna að framleiðslustörfum. í efri deild þingsins gerði fulltrúi flokksins í fjárhagsnefnd til- raun til þess að lækka útgjöld ríkissjóðs vegna frumvarpsins, en tillögur hans um það voru felldar af stjórnarflokkunum. Þá flutti einn af þingmönnum Framsóknarflokksins í efri deild einnig tillögu um það, að launa- lögin skyldu ekki koma til fram- kvæmda fyrr en sett hefðu ver- ið lög um skyldur og réttindi embættis- og starfsmanna, en frumvarp um það yrði undir- búið fyrir næsta þing, og jafn- framt gerðar ráðstafanir til að (Framhald á 8. síðu) . Skorað á ísland að fara í slríðið Samkvæmt upplýsingum, sem tyrkneski utanríkismálaráð- herrann hefir birt, var sam- þykkt á Krímarfundinum að skora á 8 hlutlaus ríki að segja Þjóðverjum og Japönum stríð á hendur og setja það, sem skil- yrði fyrir því, að þau fengju að taka þátt í hinni fyrirhuguðu ráðstefnu í San-Fransisco, að þau yrðu við áskoruninni. Þessi ríki voru: Tyrkland, E- gyptaland, Paraguay, Equador, Venezula, Peru, Chile og ísland. Orðsending um þetta efni mun þegar hafa borizt íslenzku ríkisstjórninni og hafa menn sett þá lokuðu þingfundi, er haldnir hafa .verið undanfarið, í samband við þetta mál. Nýr bæjarstjóri í Hafnariirði Á bæjarstjórnarfundi í Hafn- arirði síðastliðinn laugardag var samþykkt með samhljóða atkvæðum að ráða Eirík Pálsson lögfræðing fyrir bæjarstjóra kaupstaðarins. Eiríkur Pálsson lögfræðingur er 33 ára að aldri, fæddur að Ölduhrygg í Svarfaðardal I Eyjafjarðarsýslu 22. apríl 1911. Stúdentsprófi lauk hann frá menntaskóla Akureyrar árið 1935, en lögfræðiprófi lauk hann frá háskólanum árið 1941. Á námsárum sínum vann (Framhald á 8. siðu)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.