Tíminn - 27.02.1945, Blaðsíða 7

Tíminn - 27.02.1945, Blaðsíða 7
16. blaS TÍMEVIV, þriðjadagiim 27. fehr. 1945 7 Á víðavangi (Framhald af 2. síOu) arnir, er krefjast þess, að okkur sem höfum nóg að bíta og brenna, skuli hér veitt forrétt- indi á kostnað fólks, sem er að verða hungurmorða. Eru þessar kröfur vissulega góður vitnis- burður um bræðralag og mann- úð ísl. kommúnista forsprakk- anna. En meðal annarra orða: Sé það slík yfirsjón hjá Jónrívars- syni að geta ekki fengið kar- töflur, þar sem þær hafa verið ófáanlegar, að víkja beri honum frá starfi, hvað á þá að gera við sjávarútvegsmálaráðherr- ann? Hann hefir hvorki getað útvegað nýja togara frá Bret- landi eða vélar í nýjar síldar- verksmiðjur frá Bandaríkjun- um! Er þá nokkuð annað að gera en láta hann fara? Það verður a. m. k. ekki annað séð en að kommúnistar verði að láta hann fara, ef þeir ætla að breyta í samræmi við kröfur sínar um brottrekstur Jóns ívarssonar. • U ppmokstur sskipið, Þjóðviljinn gefur næsta kynd- uga skýringu á því, hvers vegna Áki Jakobsson keypti ekki upp- mokstursskip fyrir Siglufjarðar- bæ, þegar honum var falið það, heldur keypti það handa sjálf- um sér. Blaðið »segir, að Áka hafi verið neitað um gjaldeyris- leyfi fyrir uppmoksturskipi í Svíþjóð. Fæstum öðrum en Þjóð- viljanum mun finnast, að það hefði átt að vera Áka aukin hvöt til að kaupa uppmokstur- skipið, sem hann keypti, handa Siglufjarðarbæ, en ekki handa sjálfum sér. Það hefir sannazt í þessu máli, að þrátt fyrir alla umhyggjuna, sem kommúnistar þykjast bera fyrir almannahag, hefir eigin- girni Áka orðið henni ýfirsterk- ari í þessu máli. Þess vegna varð Siglufjarðarbær _ af uppmokst- ursskipinu, en Áki fékk okur- gróðann af fiskflutningunum og virðist una því ágætlega að hafa þannig arðrænt útvegsmenn og fiskimenn. Og það, sem hefir gerzt einu sinni, getur vitan- lega gerzt aftur. Erlent yfirlit. (Framhald af J. síðu) ingar loftárásanna veikja við- námskraftinn, þegar til lengdar lætur. Þótt Bretar þyldu loftá- rásirnar furðanlega, verður vart hægt að taka það til saman- burðar, þar sem þeir bjuggu við þær í tiltölulega skamman tíma og þær voru líka miklu minni en árásirnar, sem gerðar hafa verið á Þýzkaland. Árangurinn af loftárásum Bandamanna verður vitanlega ekki síður til * að greiða fyrir sókn Rússa en Bandamanna. Sú aðstoð, sem loftsókn Banda- manna hefir veitt Rússum, kem- ur ekki aðeins fram í því, að Aðaliundur Búnaðar samb. Eyjaijarðar Tillögur um áburðar- verksmiðjumálið og jarðræktarlagaírumv. Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar var haldinn í lok fyrra mánaðar. Þar voru rædd mörg aðalmál landbúnaðarins og m. a. eftirfarandi ályktanir geröar um áburðarverksmiðju- málið og jarðræktarmálið. Tillagan um áburðarverk- smiðjumálið var svohljóðandi: „Aðalfundur Búnaðarsam- bands Eyjafjarðar, 26. og 27. jan. 1945, telur fulla nauðsyn á að áburðarverksmiðja sé reist hér á landi til öryggis fyrir land- búnaðinn. Hann telur því illa farið, ef framkvæmdir verks þessa dragast um óákvéðinn tíma. Fundurinn lítur ennfremur svo á, að samkvæmt framkomn- um rannsóknum og athugunum um framleiðslukostnað, sem ekki hafa verið véfengdar, að áburð- arverksmiðja muni bezt sett norðanlands, á Akureyri eða 1 grend við Akureyri. Fundurinn beinir því þessu máli til Búnaðarþings, með áskorun um að það og Búnaðar- félag íslands taki mál þetta í sinar hendur og hafi forgöngú um, að það komizt sem fyrst til framkvæmda.“ Um jarðræktarmálið var gerð eftirfarandi samþykkt: „Fundurinn skorar á næsta Búnaðarþing að beita áhrifum sínum til þess að styrkir til frámkvæmda verði stórauknir, frá því sem nú er, og nægilegt fé verði lagt fram til kaupa á stórvirkum jarðyrkjuvélum, svo að því marki verði náð á næstu árum, að allra heyja verði aflað á ræktuðu og véltæku landi.“ Má vel á þessum tillögum sjá hinn mikla áhuga bænda fyrir þessum málum, er stjórnarflokk- arnir vinna nú að öllum árum að koma fyrir kattarnef. Veitir vissulega ekki af því, að bænd- ur láti uppi álit sitt á þeim að- gerðum, ef koma á í veg fyrir að fyrirætlanir stjórnarflokk- anna takist. hernaðarstyrkur Þjóðverja hef- ir verið lamaður, heldur er þar iðulega um beina samvinnu að ræða. Hinar miklu loftárásijr, sem gerðar hafa verið á Berlín og Dresden undanfarið, hafa stórkostlega torveldað Þjóðverj- um vörnina og gert Rússum sóknina miklu auðveldari en ella. Er hér bersýnilega um loft sókn að ræða, sem er samræmd hernaðaraðgerðum Rússa, enda hefir nýlega verið tilkynnt að Tedder flugmarskálkur hafi ver ið í Rússlandi til að ræða við foringja rauða hersins um þessi mál. Félag Snæfellínga oS Hnappdæla Árshátíð félagsins verður haldin að Hótel Borg föstu- daginn 2. marz og hefst með borðhaldi kl. 19,30. • Aðgöngumiðar verða afgreiddir í Skóbúð Reykjavík- ur, Skóverzlun Þórðar Péturssonar og Veiðarfærav. Verðandi, og sé vitjað fyrir 28. þessa mánaðar. STJÓRNDI. Tilkyiming frá fisHmálanefnd til frystihúsaeigenda é Samkvæmt auglýsingu Samninganefndar utanrík isviðskipta frá 10. jan. síðastl. skulu öll hraðfrysti- hús senda Fiskimálanefnd vikulega skýrslu um fisk- kaup frystihússins. Þau hraðfrystihús, sem hafa ekki sent Fiskimálanefnd upplýsingar um fiskkaup sín í j^núar, verða tafarlaust að gera það, annars mega þau búast við að afli sá, er þau hafa keypt, komi ekki til greina við útborgun verðjöfnunargjalds fyrir jan- úarmánuð. Fiskimálanefnd Tilkynning: um píanó- ínnflutning Eftir að hafa aflað oss upplýsinga hjá öllum viðkom- andi aðilum á* Bretlandi, hefir oss með bréfum dagsettum 19. janúar og 1. febrúar 1945 verið endanlega tjáð, að undantekningarlaust engin brezk hljóðfæraverksmiðja hafi getað gefið tilboð um afgreiðslu og útflutning hljóðfæra hingað til, þar eð hvorki efni til framleiðslunnar né nauð- synlegir statrfskraftar séu fyrir hendi. Helgi Hállgrímsson. Hljóðfœrahús Reykjavíkur. Hljóðfœrav. Sigríðar Helgadóttur. Tage Möller. Hljóðfœrav. Prestó. Sturlaugur Jónsson & Co. Samband ísl. samvinnufélaga. SAMVINNUMENN: yður fara. Munið að vöruvöndun borgar sig. Látið aðeins vandaðar framleiðsluvörur frá SPORT Föt. Jakkar, Buxur, Sokkar. Gefjun - Iðunn Hafnarstræti 4, sími 2838. Bókin um manninn Rit þetta kom fyrst út í Berlin 1939 og hefir síðan í ársbyrjun 1943 komið út í tveim geysistórum upplögum í Ameríku, en þar dvelst Dr. Kahn nú. Fyrir milligöngu íslenzku sendisveitarinnar í New York hefir hann gefið leyfi til Þess að bókin kæmi út .hér á landi og léð útg. allar frummydir sínar yfir 500 talsins, til þess að gera eftir þeim mydamót. Ritið er í 10 aðalköflum, sem skiptast í fjölda smærri kafla og er efni þeirra eins og hér segir: 1. kafli: Frumurnar. — Konueggið frjógvast. — Fósturfræði. 2. kafli: Beinagrindin, brjósk, fita og tengivefur. Tennur. 3. kafli: Vöðvarnir (sjálfráðir og ósjálfráðir. Þreyta. Dauðastyrðnun. Hvíld. Þjálfun o. fl.). 4. kafli: Blóðrásin (Bygging hjartans, starfsemi þess og rafmagn. — Æðarnar. Blóðþrýstingur. Æðakölkun. — Blóð- ið, litarefni þess og storknun. Blóðsjúkdómar). 5. kafli: Öndunin. (Súrefni, köfnunarefni og kolsýra. — Neföndun. Lungun. Raddfærin). 6. kafli: Meltingin. (Matarefnin: — Munnvatn og kinging. — Sköpulag magans og meltingarsafi. — Starfsemi lifrar. Gall og gallsteinar. — Briskirtillinn. Gerð og verklag þarmanna. — Hægðir og hægðaleysi). 7. kafli: Næringin. (Efnaskipti. Næringargildi matarins. Næringarþörf. Máltíðir. Sérstakt mataræði. Lýst algeng- ustu matréttum, hollustu þeirra og næringargildi, t. d. brauði, osti, mjólk o. s. frv. — Kúamjólk og konumjólk. — Steinefni matarins. — Hráefni. Kjöt og jurtafæðá. — Vitam. — Kaffi, te, tóbak og áfengi. -7- Hungur og þorsti. — Líkamshiti. — Klæðnaður. — Hormónar. Þvagið og starfsemi nýrnanna). 8. kafli: Taugakerfið. (Taugar og taugafrumur. Ósjálfráða taugakerfið. Heili og mæna. — Taugakerfissjúkdóm- ar, t. d. ristill, mænusótt, stjarfi, heilablóðfall 0. fl. — Svefn og svefnleysi. — Svæfingar og deyfingar). 9. kafli: Hörund og skynfæri. (Gerð hörunds og hára. Fingraför. Hærur. Sviti. Vitamínframleiðsla hörundsins. Sólböð. Ýmsar húðskynjanir. Smekkur. Þefskynjan). — Eyrað. Jafnvægisstjórn líkamans. Svimi. Sjósótt. Dauf- dumbir. Heyrnarskynjanin og sköpulag heyrnarfæranna. Augaö. Sköpulag þess og sjónskynjunin. Nær- og fjar- sýnir. Náttblinda. Það, sem augnlæknirinn sér með augnspeglinum. Litaskynjan og litblinda. 10. kafli: Kynferðislíf. (Eistun. Sæðið. Innvortis kynfæri konunnar. — Tíðir kvenna. Frjóvgun. Þungun og barns- fæðing. Allsherjar áhrif hormóna úr kynfærunum. Áhrif heiladinguls á eggjakerfin. — Kynférðiseinkenni karls og konu. Geldingar. Yngingar). ^ Bókin verður 1000—1200 blaðsíður í stóru broti og öll prentuð á myndapappír. Ritstjóri verksins er dr. Gunn- laugur Claessen, en samstarfsmenn þans við þýðinguna er.u læknarnir Guðmundur Hannesson pr.f., frú Kristín Ólafs- dóttir, Theódór Skúlason, Ól. Géirsson, Jóhann Sæmundsson og dr. Júl. Sigurjónsson. lækningabók í venjulegri merkingu, heldur fyrst og fremst Hér er ekki um að ræða bóh um manninn, sjúkan og heilbrigðan, bgggingu hans og verklag á öllum aldri frá vöggu til grafar. Þetta mikla vísindarit er einstakt 1 sinni röð. Fyrst og fremst fyrir það, hve auðskilið það er hverju mannsbarni: Bókin um manninn kostar í ensku útgáfunni, sem er um 200 síðum styttri en sú íslenzka, kr. 100,00, en íslenzka út- gáfan aðeins kr. 150,00 í eins bandi. Hér er-því um að ræða alveg einstakt verð á íslenzkri bók. Vísindi nútimans hafa sannftert menn um gildi þckkingar fgrir vellí&an og hregsti. Hamingja yðar og fjölskyldu yðar getur oltið á því að þér kunnið jafnvel skil á sjúkdómum yðar og heilbrigði. Bókasaín HELGAFELLS Garðastræti 17 Bókin um manninn er nauðsynleg á hverju heimili. — Áskriftarkort í öllum bókabúðum. Bókasafn Helgafells, Garðastræti 17. Box: 263. Undirritaður óskar hérmeð að sér sé send BÓKIN UM MAMDÍN er hún er fullprentuð. Verð: heft 125,00. Rexin 150,00. Skrautbundin í skinn 200,00. — Undirstrikið þá feerð, er þér óskið. Nafn Heimili

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.