Tíminn - 27.02.1945, Blaðsíða 8

Tíminn - 27.02.1945, Blaðsíða 8
ÐAGSKRÁ er bezta íslenzka tímaritið um þjjóðfélagsmál. Þeir, sem viljja kynna sér þjjóðfélagsmál, inn lend og útlend, þurfa að lesa Dagskrá. ? ANNÁLL 21. febrúar, miðvikudagur: Sókn Þjóðver ja við Königsberg. Austurvigstöðvarnar: Gagn- sókn Þjóðverja fyrir vestan Königsberg bar nokkurn árang- ur. Hörfuðu Rfussar úr nokkrum þorpum. Annars staðar urðu ekki verulegar breytingar. Vesturvígstöðvarnar: Þriðj i herinn hélt áfram sókninni í Saar með talsverðum árangri. Miklar loftársir voru gerðar á Þýzkaland, xar á meðal Berch- tesgaden. Kyrrahafsstyrjöldin: Þriðji hluti Iwojima er nú á valdi Bandaríkj amanna. 22. febrúar, fimmtudagur: Mesti loftárásar- dagurinn. Vesturvígstöðvarnar: Meira en 6000 flugvélar Bandamanna gerðu loftárásir á Þýzkaland og hafa loftárásirnar aldrei verið eins miklar á einum degi. Þriðji ameríski herinn hélt áfram sókninni inn í Saar og fór víða yfir Saarfljót. Hann hefir rekið seinustu þýzku hersveitirnar úr Luxemburg. — Kanadamenn tóku Goch, þrátt fyrir harðn- andi vörn Þjóðverja á þeim víg- stöðvum. Austurvígstöðvarnar: Þjóð- verjar unnu á norðan við Kön- igsbergj þar sem þeir reyna að brjótast til sjávar, en Rússar unnu á við Breslau. Rússar þrengdu og hringinn um Danzig. Þeir töldu her Konievs hafa náð öruggum stöðvum við Neissefljót í Brandenburgfylki. 23. febrúar, föstudagur: Sókn 9. hersins. Vesturvígstöðvarnar: Níundi ameríski herinn hóf sókn á Afstaða Framsóknarfl. til launalagafrv. (Framhald af 1. síðu) fækka opinberum störfum og gera allt starfsmannakerfi rík- isins einfaldara og ódýrara en nú er. Við undirbúning launa- lagafrumvarpsins hafði alger- lega verið gengið fram hjá því að athuga þessi þýðingarmiklu atriði. Þessi tillaga Framsóknar- manna var einnig felld. Við 2. umræðu frumvarpsins hér í ’háttv. neðri deild bar ég fram fyrir flokksins hönd breyt- ingartillögu um það, að launin yrðu látirt breytast eftir fram- leiðslutekjum þjóðarinnar ár hvert, en sú tillaga var felld 1 þingdeildinni. Framsóknarmenn hafa” flutt nokkrar breytingartillögur við frumvarpið, eins og þingmenn annarra flokka, um tilfærslu annarra starfsmanna milli launaflokka, eftir því sem þeir telja rétt vera,'til þess að þetra samræmi verði í launagreiðsl- unum innbyrðis, og við þessa umræðu munu þeir hafa sams konar afskipti af málinu. En þar sem flokkurinn telur, að saman verði að fara afgreiðsla launa- laga og ráðstafanir til þess að ríkissjóði verði fært að standa undir þeim kostnaði^sem af þeim leiðir til þess að þau fái stað ist í framkvæmd, og þar sem flokkurinn lítur einnig svo á, eins og þegar er fram tekið, að ákvæði frumvarpsins séu í ó- samræmi við þjóðarhag og tekj- ur þeirra, er vinna að fram- leiðslustörfum, munu þingmenn hans greiða atkvæði gegn frumvarpinu við þessa 3. um- ræðu. •— Meðal þeirra tillagna, er fyrir liggja, er ein frá Skúla Guð- mundssyni og Páli Þorsteins- syni um að farkennarar hafi sömu laun fyrir sömu vinnu, án tillits til kennaraprófs. Hefir það rangláta ákvæði komizt inn í frv., að farkennarar, sem ekki hafa kennarapróf, skuli vera mun verr launaðir en hinir, sem kennarapróf hafa, enda þótt þeir leysi sömu störf af hendi. TIMAAS S* Aachenvígstöðvunum og brauzt yfir Ruhrána rétt við Dúren. Virðist sókn þessari stefnt til Kölnar. Annars staðar urðu ekki verulegar breytingar. Miklar loftárásir voru gerðar á Þýzka- land. - .■ Austurvígstöðvarnar: Rússar tóku borgina Posnan í Póllandi, þar sem þýzkt setulið hafði varizt harðfengilega. Þeir tóku og nokkur úthverfi Breslau. Tyrkland: Tyrkneska þingið samþykkti að segja Þjóðverjum og Japönum stríð á hendur. 24. febrúar, laugardagur: Sókiiin til Kölnar. Vestúrvígstöðvarnar: Her Bandamanna á Aachenvígstöðv- unum sótti fram á 35 km. víg- línu vestan Ruhrfljóts og hefir viða sótt fram um 8 km. Hann hefir tekið bæina Dúren og Júlich. Montgomery stjórnar þessari sókn. Eisenhower sagði blaðamönnum, að Bandamenn hefðu nú hafið sókn til að ger- eyða þýzka hernum austan Rínar. _ ‘ Austurvígstöðvar nar: Rússar unnu á við Breslau og tóku nokkur úthverfi borgarinnar. Egyptaland: Egypzka þingið samþykkti að segja Japönum og Þjóðverjum stríð á hendur. Þegar forsætisráðherrann' var að fara af fundi, var skotið á hann nokkrum skotum og beið hann strax bana. Tilræðismaðurinn náðist. Rúmenía: Fregnir bárust af miklum óeirðum í Rúmeníu, en Rússar hafa þar herstjórn og er erfitú að fá fréttir þaðan. 25. febrúar, sunnudagur: Bandameiu 23 km. frá Köln. Vesturvígstöðvarnar: Banda- menn bættu vígstöðu sína vest- an Ruhrár og sóttu fram 7—8 km. frá Dúren áleiðis til Kölnar. Áttu þeir eftir 23 km. til Kölnar. Annars staðar urðu ekki veru- legar breytingar. Miklar loftá- rásir voru gerðar á samgöngu- leiðir Þjóðverja. Austurvígstöðvarnar: Rússar unnu á í Breslau. Bardagar þar voru mjög harðir. Kyrrahafsvígstöðvarnar: — Á Tokio og Yokohama voru gerðar miklar loftárásir af Bandaríkja- mönnum. Tvo dóseotsembæftí Umsóknarfrestur um tvö dósentsembætti við heimspeki- deild Háskóla íslands var út- runninn s. 1. fimmtudag. Um dósentsembætti í sögu sótti dr. Jón Jóhannesson, en hann hefir kennt í deildinni undanfarið, sem settur kennari. Um dósents- embætti í bókmenntum sótti Steingrímur J. Þorsteinsson, sem einnig hefir kennt í deild- inni að undanförnu, sem settur kennari. Má telja sjálfsagt, að þessum mönnum verði veitt embættin. IVýr bæjarstjóri í Hafnarfirði. (Framhald af 1. síðu) hann margs konar störf í sveit og við sjó og hafði m. a. á hendi síldarmat um skeið. Eiríkur hefir haft töluverð afskipti af félagsmálum og sýnt þar mikinn dugnað. Hann var forseti Bindindisfélaga í skól- um í tvö ár og formaður stúd- entafélags Reykjavíkur var hann s. 1. ár. Undanfarið hefir hann starfað sem fulltrúi í skrifstofu Alþingis og auk þess verið kennari við Samvinnu- skólann 2 síðastl. ár. Nýkomin einlit GLUGGATJ0LD H. TOFT Skólavörðustíg 5. Sími 1035. DeftiSossslysid dregið inn i póiitiskar deilur Drengskaparlanst atkæfi Morgunblaðsins Það hefir löngum þótt sannast, að ódrengjum væri ekkert heilagt. Fyrir þessu hefir fengizt ný sönnun í sambandi við Dettifossslysið. Öðrum ritstjóra Morgunblaðsins, Valtý Stefáns- syni, hefir þótt sævia að vanhelga þá miklu þjóðarsorg, sem þetta hryggilega slys hefir skapað, á þann hátt að draga hana inn í pólitískar illdeilur. Svo langt hefir hann gengið í þeim efnum að bera það á andstæðinga sína, að þeir hafi fagnað og „róast“ yfir þessum sorgaratburði. ÖIlu lengra verður vissu- lega ekki komist í sorpblaðamennsku en að bera fram jafn glæpsamlegar aðdróttanir og það á mikilli sorgarstundu. Umrædd skrif Valtýs um Dettifossslysið birtist í Reykja- víkurbréfi Mbl. 25. þ. m. og hljóðaði á þessa leið: ;,Verður þeim rórra? Menn giska á, að Dettifoss hafi fyrir nokkru verið kominn á hafsbotn, þegar Framsóknar- menn hófu síðustu atlögu sína að Eimskipafélaginu. Héldu þeir uppi umræðum á Alþingi lengi nætur til þess að útskýra fyrir þingheimi hvílíkur þjóðarvoði stafaði af því að Eimskipafé- laginu græddist fé, til þess að það gæti endurnýjað flota sinn eftir styrjöldinar. Er skattfreisi Eimskipafélagsins orðið Fram- sóknarmönnum svo mikill þyrn- ir í augum, að jafnskjótt og þeir heyra það nefnt, opnast flóð- gáttir illkvitnismælginnar í ásjónu þeirra. Þeir þykjast vera að tryggja flokksfylgið í dreif- býlinu með þessu háttalagi. Skyldi þeim ekki finnast ástæð- ur þessa siglingafélags okkar vera nú orðnar þannig, að frek- ari atlögur verði vafasamur ávinningur til fylgisöflunar? Eða halda þeir herferð sinni áfram, meðan nokkur íslenzkur fáhi er við hún á flutninga- og farþegaskipi? Mönnum getur leikið forvitni á að sjá hvernig Framsóknar- flokkurinn stenst þetta próf í hinum sviplegu og sorglegu at- burðum er nú gerast með þjóð vorri.“ Þeir, sem lesa grein þessa, munu fljótt sjá, að tvennt vakir fyrir greinarhöfundi: Annað er að koma þeim aðdróttunum á framfæri, að svo mikill sé fjand- skapur Framsóknarmanna til Eimskipafélagsins, að þeir „ró- ist“ og fagni yfir því, er skip félagsins farast og margt manna ferst.með þeim. Hitt er það, að vegna þessa sorgaratburðar eigi öll gagnrýni á störfum Eim- skipafélagsins niður að falla og þjóðin eigi að fela því einokun í þessum málum, svo vel sem Dettifossslyssins miimst á Alþingi. (Framhald af 1. síðu) þjóða, er heimsstyrjöldina heyja, í hlutfalli við þjóðarstærð. Áfall það, sem hér hefir að höndum borið, er þjóðaráfall, og harmur sá, er hér er kveðinn vanda- mönnum og vinum hinna látnu landa okkar, er harmur al- þjóðar. Ég vil því biðja þingheim að votta virðingu sína og þakklæti þeim vösku drengjum, sem á styrjaldarárunum hafa hætt lífi sínu til þess að flytja björg í bú okkar, sem heima sátum, og nú hafa fórnað því fyrir þjóð sína — og þeim dætrum þjóðar- innar, sem hér hafa horfið henni — og að votta vanda- mönnum þeirra innilega samúð, — með því að rísa úr sætum.“ Þegar þingmenn höfðu orðið við áskorun forseta og risið úr sætum sinum, lýsti hann yfir því, að fundir þingsins myndu að öðru leyti falla niður þenn- an dag vegna þessa atburðar. Þá hefir forseti íslands tjáð Eimskipafélaginu samúð sína með þeim, sem um sárt eiga að binda, vegna þessa atburðar. Fulltrúar erlendra ríkja hér hafa og vottað íslenzku ríkis- stjórninni samúð sína vegna þessa hörmulega slyss. það þó gafst henni 1943. Þannig á að nota þetta sorglega slys til þess hvort tveggja, að stimpla Framsóknarmenn sem verstu illmenni og misnota sorg þjóð- arinnar til framfæris fyrir ein- okunaraðstöðu Eimskipafélags- ins. \ Þess gerist vissulega ekki þörf að svara jafn fúlmannlegum málflutningi og hér er um hönd hafður. Milli deilunnar um skattfrelsi Eimskipafélagsins og Dettifossslyssins er ekki minnsta samhengi og það síðarnefnda breytir vitanlega engu um skoð- anir manna á því, hvort betra sé að hafa siglingarnar í hönd- um stofnunar, er þjóðin getur alltaf ráðið yfir, eða í höndum einkahrings, sem ekki er tryggt, að verði rekinn með þjóðarhag fyrir augum. Það, sem Framsóknarmenn hafa beitt sér fyrir, er, að skatt- frelsi félagsins verði bundið því skilyrði, að tryggt sé, að félagið verði alltaf alþjóðareign, eins og upphaflega var ætlað, en verði ekki braskfyrirtæki. Er vissu- lega furðulegt að vera borinn verstu brigzlum fyrir að vilja lá'ta Eimskipafélagið vera al- þjóðarfyrirtæki og sýna þannig hve mikils þjóðin metur sigling- arnar. Það framferði, sem Valtýr Stefánsson hefir hér gert sig sekan um, sýnir tvennt: í fyrsta lagi dæmalausasta tillitsleysi til harms þjóðarinnar yfir hinu hryggilega slysi, þar sem reynt er að draga hann á hinn sví- virðilegasta hátt inn í pólitísk- ar deilur. Þótt oft hafi Valtýr komist langt í sorpblaða- mennsku, hefir hann aldrei komizt lengra. í öðru lagi sýnir þetta vel, hve hæpinn málstað Valtýr hefir að verja, þvl að eigi myndi gripið til jafn ó- drengilegra vinnubragða, ef von væri um, að málstaðurinn yrði varinn með heiðarlegri hætti. Yflrlýsing- irá sendiherra Dana Kgl. dansk Gesandtskab Reykjavík den 19. Februar 1945. I Anledning af den i Bladet for 16. ds. optagne Artikel, „Eig- um við að gefa þeim Græn- land?“, forfattet af fhv. Syssel- mann Magnús Torfason, tillader Gesandtskabet sig herved, i Overensstemmelse med tidligere Erklæringer fra den danske Regerings Side i lignende An- lendninger, atpræcisere, at der i Danmark ikke hersker nogen- somhelst Tvivl om Grönlands Tilhörforhold, og at der heller ikke i Danmark er den ringeste Tilböjelighed til under nogen- somhelst Form at ville afhænde Grönland. Denne Udtalelse bedes venligst optaget i Bladet. Fr. de Fontenay. (eiginh.undirskrift) Er ,nýsköpunin( svona? Nú er kominn allmikill snjór á götur Reykjavíkur. í gær sá- ust menn í stórum hópum við að moka snjónum með smá- skóflum upp á bifreiðar. Hvers vegna I ósköpunum hefir bærinn svona verklag á snjómokstrinum? Er þetta ný- sköpunin? KOW 1 ÆVISAGA HERMAMSDÍS WILLIAMS PITT (Tender Comrade) GINGER ROGERS, (The Young Mr. Pitt) ROBERT BRYAN, RUTH HUSSEY. Söguleg stórmynd um einn Sýnd kl. 7 og 9. frægasta stjórnmálaskör- ung Bretlands. FÁLKINN LEYSIR GÁTUNA. Aðalhlutverk: (Falcon Out West) ROBERT DONAT, TOM CONWAY, PHYLLIS CALVERT. BARBARA HALE. Sýnd kl. 5. y Sýnt kl. 5, 7 og 9. Bönnuð yngri en 12 ára. DÁÐIR VORU DRYGÐAR Saga Nólseyjar-Páls og fleiri afreksmanna. er m e r k bók og skemmtileg. TJARNARBÍÓ SAGAA AF WASSEL LÆKNI (The Story of Dr. Wassell) Cary Cooper, Laraine Day. Leikstjóri: Cecil B. De Mille. Sýnd kl. 6,20 og 9. Bönnuð fyrir börn. STÚKUBRÆÐUR. (The Good Fellows) CECIL KELLAWY, HELEN WALKáR, JAMES BROWN. Sýnd kl. 5. Ú R B Æ N U M Skemmtun. Skemmtisamkoma Framsóknarmanna í Reykjavík verður n. k. fimmtudags- kvöld, 1. marz, i Sýningaskálanum. Byrjar hún með Framsóknarvist kl. 8,30. Ekki er að efa, að fjölmennt verður og skemmtilegt á þessari sam- komu eins og venjulega á skemmtun- um Framsóknarmanna. Aðgöngumiða þurfa menn ^ð panta sem allra fyrst á afgreiðslu Tímans, sími 2323. Ófærð vegna snjóa. Illviðri með aftaka snjókomu var víðast hvar á landinu síðastl. laugar- dag og sunnudag. í Reykjavík varð fannfergið svo mikið, að öll bílaumferð mátti heita stöðvuð um tima á laugar- dagskvöldið, nema um aðalgöturnar, þar sem umferðin er mest. Allar ferðir almenningsvagna i úthverff bæjarins stöðvuðust einnig. Mjólkurleysi N hefir verið tilfinnanlegt í Reykjavík þessa dagana vegna fannfergis á veg- um til bæjarins. Á sunnudag voru að- eins til sölu fimm þúsund lítrar og í gær fjórtán þúsund lítrar, en venju- lega eru seldir um þrjátíu þúsund lítr- ar mjólkur í Reykjavík daglega. Sleðar í stað bíla. Ófærð mikil er á vegum út frá Reykjavík, svo að ófært er með öllu austur yfir fja.ll, bæði um Hellisheiði og Mosfellsheiði, og ekki líkindi til, að hægt verði að ryðja vegina fyrr en dregur úr fannferginu. Reynt mun þó verða að ryðja veginn svo að bílfært verði að Skíðaskálanum í Hveradölum, en þangað verður mjólkin flutt á sleð- um, austan yfir fjall. Fjórtán þúsund manns sóttu sýningu Kjarvals, en hún var opin til miðnættis á föstudag. Siðasta daginn var aðsóknin að sýn- ingunni langmest. Á einum klukku- tíma þá um kvöldið seldust 500 að- göngumiðar. Samkoma Færeyinga og Norðmanna var haldin í samkomusal hersins við Hverfisgötu 116 í Reykjavík síðastl. föstudagskvöld. Hvert sæti var skipað í húsinu. Samkoman hófst með sam- eiginlegri kaffidrykkju og ræðuhöld- um. Sungnir voru.færeyskir og norskir söngvar og dansaðir færeyskir og norskir þjóðdansar. Meðal gestanna var David Vaage fulltrúi fyrir alþjóða- verkamálaskrifstofuna. Ný þjóleikhúsnefnd. Hinn 19. þ. m. skipaði menntamála- ráðherra eftirgreinda menn í nefnd til þess að gera tillögur um og hafa með höndum undirbúning að rekstri Þjóð- leikhússins: Þorstein Ö. Stephensen leikara, Brynjólf Jóhannesson leikara, Halldór Kiljan Laxness rithöfund, Jakob Möller alþingismann og Ólaf Björnsson skrifstofumann. Þorsteinn Ö. Stephensen er formaður nefndar- innar. Merkjasala Rauðakrossins. á öskudag gekk vel. í Reykjavík seldust merki fyrir 47516,00 krónur og auk þess bárust gjafír fyrir um 17 þús. kr. og halda slíkar gjafir áfram að berast. Skýrslur af söfn- un utan af landi eru væntanlegar inn- an skamms. Útgáfuréttur að' verkum Thorfhildar Hólm var nýlega seldur á uppboði hjá borgar- dómara í Reykjavík. En skáldkonan hafði lagt svo fyrir, að útgáfuréttinn að verkum sínum skyldi seldur á upp- boði og andvirðið látið ganga í sjóð, sem verja á til hjálpar fátæku blindu fólki. Bókaútg. „Norðri" keypti útgáfu- réttinn fyrir 21,500,00 kr. og hefir fyr- irtækið ákveðið að gefa út heildarút- gáfu af verkum skáldkonunnar og munu aðalverk hennar, Brynjólfur Sveinsson og Elding, verða gefin út á þessu ári. Sjötug verður í dag Katrín Þorvarðardóttir Stóru-Sandvik í Flóa. Þrjú skíðanámskeið mun Glímufélagið Ármann halda á næstunni og verður Guðm. Guð- mundsson kennari á námskeiðunum. Hvert námskeið stendur yfir í eina viku og hófst það fyrsta í gær. Þeir Ólafur Þorsteinsson hjá Kron og Árni Kjartansson taka á móti þátttökubeiðnum. M.b. Suðri í förum til Borgarness. Línuveiðarinn Sigríður, sem annazt hefir ferðir í Borgarnes nú um all- langt skeið, er nýlega hætt þeim ferð- um og hefir mb. Suðri tekið við. Lax- foss mun sennilega taka við ferðunum í Borgarnes eftir að viðgerð hans er lokið, en það mun verða um mánaða- mótin apríl og maí. Skákkeppni. Landsliðskeppninni í skák lauk fyrir skömmu. Úrslit urðu þau, að Baldur Möller og Guðm. S. Guðmundsson urðu jafnir með 6V2 vinning hvor. Jón Þor- steinsson fékk 6 vinninga, Árni Snæv- arr með 4 vinninga og Einar Þorvalds- son og Magnús G. Jónsson jafnir með 3%. — Guðmundur og Baldur verða að tefla einvígi um réttinn til þess að tefla við íslandsmeistarann, Ásmund Ásgeirsson. Einar og Magnús þurfa .að tefla einvígi til þess að fá úr því skor- ið hvor þeirra kemst í landsliðið, en það er nú þannig skipað: 1. Ásmund- ur Ásgeirsson, 2. og 3. Baldur Möller og Guðm. S. Guðmundsson. 4. Jón Þorsteinsson, 5. Árni Snævarr, 6. Óli Valdimarsson (tók ekki þátt þessari keppni), 7. Einar Þorvalds eða Magn- ús G. Jónsson og 8. Eggert Gilfer (hann tók ekki þátt i þessari keppni). Berklarannsóknin. Berklarannsóknin á fullorðnu fólki hefir nú staðið í fimm vikur og hafa alls á þessum tíma mætt 8.985 manns. í vikunni, sem nú var að líða, mættu til skoðunar 1.799 manns. í gær voru rannsóknirnar felldar piður vegna ó- færðar. Ættfræðingafélag. Nýlega komu saman um fjörutíu ættfræðingafi og áhugamenn um slík mál hér í bænum, til þess að stofna með sér félág. Annar fundur verður haldinn innan skamflts og verður þar að fullu gengið frá stofnun félagsins, lög samþykkt, kosin stjórn o. fl. Kosn- ir voru í nefnd til að semja lagafrum- varp fyrir félagið: Einar Bjarnason fulltrúi, Þorvaldur Kolbeins prentari, Pétur Zóphóníasson ættfræðingur, Steinn Dofri ættfræðingur og dr. Páll Eggert Ólason.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.