Tíminn - 01.03.1956, Blaðsíða 5

Tíminn - 01.03.1956, Blaðsíða 5
RITSTJÓRI: ÁSKELL EINARSSON. Stefán Gannarsson: h ingum íhalris og kommunista Þjóðmálastefna Framsóknarflokksins er sámvinnustefnan sem byggir á lýðræði og virðingu íyrir rétti einstaklingsins. Flokkurinn vill efla persónulegt sjálfstæði og ábyrga hlut- deild almennings í atvinnurekstri og framkvæmdalífi með' skipulagi samvinnunnar, sem reisir skorður v:ð ofríki ein- stakra manna og ójöfnuði og afstýrir þannig tortryggni og hagsmunaárekstrum, sem jafnan va.lda deiium og vandræðum. íhlutun fíkisvaldsins um stórfrarnkvæmdir og heildarfjár- festingu þjóðarinnar telur flokkurinn óhjákvæmilega, en er andvígur þjóðnýtingu, nema alveg sérstakar ástæður séu fyrir hendi. Floldturinn vekur athygli á því að þjóðfélagsstefna hans byggist á þroska einstakling- anna og félagshyggju. Samhjilp einstaklinganna og samvinna Ieið ir til hagsældar fyrir heildina, lyftir öllum frjálsum samtökum til nieira starfs, betra lífs og auk ins þroska. Eg skil það ekki, og skil það þó, að ýmsir hafi eitthvað að athuga við þessá þjóðmálastefnu Fram- sóknarmanna. Eg skil það að kommúnistar aðhyllist ekki þessa þjóðmálastpínu, því að þeir vilja ekki að borin sé virðing fyrir rétti einstakljng.BÍns og ég skil það enn betur að Sjálfstæðismenn séu verstir óvinir þessarar stefnu, því að þeir trúa á ofriki einstakra manna. Þeirra versti óvinur er samvinnustefnan. Þeir vilja ekki hlutdeild almennings í atvinnu- rekstri og framkvæmdalífi. Þeirra þjóðmálastefna byggist ekki á þroska og féíagshyggju einstakling anna, heldur ofríki og einstak- lingskúgun. Kommúnistmn og SjálfstæSis- mönnum er það sameiginlegt, að vilja alræði. ,Alræði öreiganna", segja koramúnistar, alræði auð- valdsins, "egja Sjálfstæðismenn. Þessir tveir flokkar eiga ánnað sameiginlegt. Kommúnistaflokk- urinn kaJIar sig Sameiningar- flokk aiþýðu, Sósíalistaflokkinn, íhaldsmenn kalla sig Sjalfstæðis menn. Nú skyldi enginn ætla að ég1 á- líti, að a’lir sem kjósi kpmmúnista eða Sjálfstæðismenn, séu óalandi og illir menn, en hitt veit ég, að fjöldinn allur, sem fylgir þessum flokkum að málum, gerir það af misskiluingi, hörmulegum misskiln ingi. Eg vil reyna liér á eftir, að benda á í hverju þessi misskiln- ingur er oft fólgin. „Alræði öreiganna". Þetta eru falleg orð, og ég hefi satt að segja alllaf trúað því að hin upphaflega stefna Tvommúnista hafi verið fög- ur og tímabær hugsjón, hugsjón, sem hvergi í heiminum, allra sí/t fyrir austau járntjald, sé ríkjandi nú í dag. — Er það alræði öreig- anna, sem ríkir þav sem hervörður stendur alltaf við millilandaskip, sem Ieggjast að bryggju svo sem í Rússlandi, Austur-Þýzkalandi, Pól- Iandi og Eystrasaltslöndunum, til þess að liindra samgang skipverja og landsmanna? Er það vegna alræðis öreiganna að myndavélar skipverja á þessum | skipum eru innsiglaður meðan skipin eru við landfestar? Er alra'ði öreiganna í þessum kommúnistalöndum, meðan einn eða tveir menn í Moskvu ráða, eru einvaldir? Þetta eru aðeins smá- tákn um stjórnarfarið. Sérhver, sem vill svara þessum spurningum hlýtur að segja nei. Varla eru þeir íslendingar marg ir, en efalaust nokkrir, sem trúa því að þetta sé það sem eigi að verða og koma skuli. Við þessa nokkra, er raunverulega ekkert að segja, nema það væri mjög æski- legt að þeir skipti um skoðun, hins vegar er það virðingarvert við þessa menn, að þeir skuli vilja berjast fyrir því, að almenningur I eignist þessi lífskjör fyrst að þeim i finnst þau svo dásamleg. Þá er og flokkur manna, sem ' verða kommúnistar af ásettu ráði i ef svo mætti segja, það eru menn ; sem telja sig hafa orðið undir i lífsbaráltunni vegna rangsleitni ör laganna. Þessir rnenn hugsa ekk- ; ert um stefnuna, en þeim finnst að þeir séu að hcfna sín, um leið og þeir segja, „ég er kommúnisti". Það eru þessir menn sem segja „Hvað varðar mig um þjóðarhag“. í þessum flokki mætti einnig telja þá ungu menn, sem standa í þeirri meiningu. að þeir fái á sig einhvern sérstakan, eftirtektarverð an og minnisstaðan svip, verði jafrivel skáld, ef þeir ganga um ógreiddir, bindislausir og þykjast vera kommúnistar. Þeim mönnum má líkja við 12 ára gamla stráka sem pína sig til að reykja, svo að þeir virðist mannalegri. En fjölmennastur mun sá hóp- ur, af þeim sem kjósa Kommúnista flokkinn, er lætur nrífast af slag- orðum foringjanna, af þeim mikla baráttuvilja, sem þeir virðast í fljótu bragði eiga og þeirra feikna föðurlandsást. Aðeins það versta við þetta allt saman er, og það vita þessir foringjar, þótt þeir ncfni það aldrei, að yrðu þeir hér | alls ráðandi þá yrði vort föðurland ! aðeins leppríki Rússaveldis, undir- okað og þjóð, eins og öll önnur leppríki stórvelda, því ekki er ís- land föðurland Búlganins. Á meðan foringjar Sameining- arflokks alþýðu, Sósíalistaflokks ins eru tilbiðjendur og þjónar valdhafa erlends ríkis eiga þeir ekki tilverurétt í íslenzku þjóð- félagi. Fyrst þegar þeir hætta því, geta þeir farið að vinna raunhæft, fyrir hag alþýðunnar með Alþýðuflokknuin og Fram- sóknarflokknum með samvinnu og samhjálp að leiðarljósi. Hver einasti þegn íslands verð ur að eiga það stolt að þjóð hans megi aldrei heita „hamar og sigð í austri né vera ein stjarnan í fána Randaríkjamanna. En til þess að vinna gegn þessu má ekki stofna ótal smá- flokka sem eiga í sífelldum erj- um sín í milli, heldur stöndum saman, vinnum saman. Enginn íslenzkur stjórnmála- flokkur fær eins mörg atkvæði af misskiiningi, eins og broddborgara og' heildsalaflokkurinn. Það er óneitanlega glæsilegt að segja, „ég er sjálfstæðismaður“, en ljóminn fer af þegar hugsað er til þess, að Sjálfstæðismaðurinn er íhaldsmaður. Verkamaður, sem stritar fyrir sínu daglega brauði, í ef til vill stopulli, erfiðri líkamlegri vinnu, hann getur ekki verið sjálfstæðis- maður, hailn getur ekki sótzt eftir því, að þeir komizt til valda, sem trúa á einstaklingshyggju og pen- ingagróða einstakra manna, hann getur ekki þráð alræði auðvalds- ins. Ungir menn, sem eru sjálfstæð- ismenn. þeir hljóta að vera hug- sjónalausir, og láta stjórnast af eiginhagsmunum og valdafíkn. Mér finnst óeðlilegt að nokkur ungur maður, sem vill vinna þjóð sinni gagn skuli skipa sér í raðir Sjálfstæðisflokksins, því að þá hef- ir hann ekkert til að berjast fyrir, því að Sjálfstæðisflokkurinn vill sitt í dag og annað á morgun, allt eftir því hvað álitið er að gangi bezt í fólkið, aðeins eitt vill hann alltaf, hann vill völd. Euginn samvinnumaður, eng- inn gétur veri'ð sjálfstæðismað- ur. Sjálfstæðisflokkurinn er versti óvinur samvinnustefnunn- ar, því verður liver og einn, sem hyggst vera í samvinnufélagi að gera sér það ljóst, að hann getur ekki verið sjálfstæðismaður, allt annað frekar. Hver meðlinuir í samvinnufélagi er hlekkur í keðju. Ef nú einhver t.d. meðlimur kaupfélags, bóndi, flytur eitthvað af viðskiptum sín- um, leggur inn afurðir bús síns, hjá kaupmanni, þá er hann brot- inn hlekkur, sem ekki er hægt að treysta á, það verður að hafa gát á honum, jafnvel taka hann úr keðj- unni, kasta honum burt. Engúm þarf að detta í hug, að FPlItrúáV' úngra Framsóknarmanna á síðasta fl okksþingi. Nokkra fulltrúa vantar á myndina r rí n' í ' ■ *' í>* IV : ", -' liann græði á að verzla við kaup- mann fremur en kaupfélag. Það er minnsta kosti í hæsta máta ótrú- legt að nokkur einstaklingur verði kaupmaður, aðallega neytendunum til hagnaðar, en kaupfélagið, ekki græðir kaupfélagsstjórinn, þótt kaupfélagið hljóti hagnað. Ekki er það forstjórinn sem græðir þótt Sambandið hljóti hagnað. Nei, það ert þú sem græðir, þú sem ert í kaupfélagi, því kaupfélagið er fólkið sem í þeim er og Samband- ið er kaupfélögin. Þú ert ekki að- eins, ásamt öðrum meðlimum, þú ert einnig einn af eigendum Sam- bands ísl. samvinnufélaga. Margir, sem standa framan við kjörborðið hugsa eitthvað á þessa leið; mér lýst nú bara vel á þenn- an, betur en hinn, þótt þessi sé sjálfstæðismaður þá er ég viss um að hann er bezti maður. Þetta getur verið rétt, að beztu menn hafi látið glepjast til að bjóða sig fram fyrir Sjálfstæðis- flokkinn, En við eigum að kjósa um stefnur og málefni en ekki menn.' Ef við viljum að einhver viss stefna eflist og vaxi þá eigum við að stuðla að því, við hvert mögulegt tækifæri. Ég hefi með þessum línum vilj- að reyna að vekja menn til um- hugsunar, hvort þeir hugsi rök- rétt í skoðunum sínum, hvort þeir séu trúir sinni stefnu, hvort þeir gera sér ljóst að þeir verða að „vera aða vera ekki“. Alexander mikli tárfelldi yfir því að hann hélt að faðir hans hefði unnið alla mögulega sigra. að var misskilningur og enn eru óteljandi þeir sigrar ,sem hægt er að vinna. Styðjum hver annan. Kjörorðið er, samvinna. S. G. ...r~~iTini 'i'nnr n nni iiiiiiiini i iniimmi iiiui—n Z 6. | Getsakir | | Bjarna Ben.; | m Churchill | E „Ef reyndur stiórnvitringur i = gat þá verið í vafa, ætti a3 ; i vera skiljanlegt, að óreynd- § um æskumönnum gæti mis- | | sýnst." ummæli Bjarria Ben. '§ | Krónprins Sjálfstæöisflokksins, § 1 staögengill Ólafs Thors (einskon- I i ar Borman),. hópaöi um sig 1 = svonefndum sjálfstæðisverka- | : mönnum og las þeim fyrir reiði-= i lestur mikinn um andstæðingana. = = Mitt í orðaflaumnum komst stað- i = gengillinn að þeirri niðurstöðu = i að Churchill hafi missýnst um i = starf og tilgang Hitlers á árinu i i 1935 og á það að vei'a afsökun = i fyrir nazistadýrkun „óreyndra i = æskumanna" á þeim árum. Þessi | i ummæli eru frámunalega lúaleg | | um einn drengilegasta andstæð- i = ing nazismans allt fi-á byrjun. | i Bak Churchills hefir aldrei verið : | skjól nazistadeildar Sjálfstæðis- § 1 ílokksins. 3 i Skyldi sú hugsun hvarfla að i : Bjarna Benediktssyni að hann sé | Í „stjórnvitringur“ á borð við § | Churchill? Af Óðinsræðunni § 1 mætti halda það. 5 ' ' .• - ..,.3 1111111111111111 llllllllllllllllllltlllllllllllllltlUllllllSIIXtflM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.