Tíminn - 21.02.1962, Blaðsíða 2

Tíminn - 21.02.1962, Blaðsíða 2
■ ■ i h mm John Glenn inni f geimfarinu. — Myndin er tekin á aefingu. ÞAÐ SEM GLENN SAGÐI í GEIMNUM Cape Canaveral, 20. febrúar. (USIS) 7.5 milljón hestafla Atlas-ald- flaugin spýtti frá sér eldi, reyk og gufu, um leið og hún hófst á loft frá Canaveralhöfða og stefndi í skafheiSan himininn. Farartæk- ið fór hægt í fyrstu, en jók hrað'- ann síðan ört. Eftir loftþrýstinginn í upphafi ferðarinnar tilkynnti Glenn, að flugið væri „mjög létt“. Síðan fór geimfarið inn á sporbrautina, og Glenn stýrði fari sínu snúandi baki í flugstefnuna. Geimfarið flaug austur yfir At- lantshaf, yfir Afríkuströnd, skammt frá Kand í Nigeríu, yfir Indlandshaf skamnú frá Zansibar, yfir suðurhluta Ástralíu, yfir Kyrrahaf og miðbaug í nánd við Canton eyjar og loks yfir megin- land Norður-Ameríku. Við Indlandshaf skall myrkur á geimfarið, en þegar kom yfir mið- baug suður af Hawaii rann dagur á ný. Náttmyrkur og dagsljós skiptust á með 45 mínútna milli- bili. Kl. 14.28 heyrði stöðvarskip á Indlandshafi til Glenns, sem sagði allt í lagi hjá sér, og á sama tíma tilkynntu læknar þeir, sem fylgd- ust með Glenn á fluginu frá Cana veral höfða, að hann vær'i í góðul heilbrigðisástandi. Þeir fylgdust svo nákvæmlega með honum, að á tímabili var hjartslætti hans út-! varpað, og var hann jafn og stöð-i ugur. j ; j 45 mínútum eftir brottförina var j i Glenn staddur yfir Ástralíu, og; j nafði samband við stöðina ó Woo-; i mera. Hann hafði samband við i ! stöðina og kvaðst sjá mörg björti jljós, líklega yfir Perth, og sagðij j ,,ég þakka þeim, sem á þeim hafa j ; kveikt". Þegar hann hvarf inn í „nótt“ öðru sinni, varð honum að orði: j „Þetta er stytzti dagur, sem ég hef lifað". Skömmu áður en geimfarið kom í nánd við San Diego, losnaði Atl- as-eldflaugin frá geimhylkinu og hélt áfram á sporbrautinni nokkru lægra en geimhylkið og á meiri hraða. Þetta var þó ekki það eina sem þarna var á ferð, því í sólar- upprás tilkynnti Glenn, að fyrir utan kýraugað sæi hann einhverj- a^ agnir, sem færu með svipuðum hraða og geimhylkið og glitruðu í sólinni. „Þetta eru glitrandi agn ir, þúsundum saman, núna rétt um sólarupprásina“. Á fyrstu hringferðinni "fði Glenn nóg að gera. Hann 1"' ''ið ugt af mælum og lýsti st< ; omi farartækisins, útsýninu á sjónskíf unni, mældi blóðþrýsting sinn o. s. frv. „Eg finn ekki til neinnar slæmsku, ekki minnstu óþæginda" sagði hann, meðan hann þeyttist umhverfis jörðina. Þegar hann fór yfir Ástralíu í annað sinn kviknaði varnaðarljós í .mælaborðimi á eldflauginni, en Glenn taldi sig hafa lagfært það, sem aflaga fór. Þegar hann nálg- aðist strendur Norður-Ameríku, sagði hann, að bilunin væri ekki nógu mikil til þess að rétt væri að hætta við þriðju ferðina. Þeg- ar hann fór yfir Kaliforníu í þeirri íerð, hafði hann samband við jörð og sagði: „Líður pr'ýðilega, hef cngin vandamál“. Ilann kvaðst sjá vel til jarðar, þegar hann fór yfir Flórída. „Flór ída er fyrir neðan mig eins og landabréf1', sagði hann. Ennfrem- ur kvaðst hann sjá til Canaveral, og í fjarska sá hann greinilega allt til Mississippi, þar sem hún renn- ur inni í miðju meginlandinu. Að áliðinni þriðju umferð var kveikt á eldflaugunum, sem beina áttu geimhylkinu til jarðar aftur. Allt fór samkvæmt áætlun, nema hvað hylkið kom niður í Atlants- haf skammt frá Flórída, eþ ekki í Carabiska hafið., eins 05 áætlað var. Þegar hylkíð kom on ‘á á- hrifasvæði jarðar sagoi Glenn (Framnau .1 10 „óu Tímatafla geimferðar Cape Canaveral, 20. febrúar. \(USIS) f stórum dráttum er ferðasagan á þessa IeiB (alls staðar íslenzkur vtími): Klukkan 6.20 vakti dr. William Douglas geimfarann. Glenn var í bezta skapi og át góðan morgun- verð 25 mínútum síðar. Kl. 7.08 gekk hann undir síðustu læknis- raniisóknina fyrir flugið, og að því loknu voru þræðir festir við hann, sem áttu að gefa til kynna hjart- slátt hans, æðaslög, svita og lík- amshita, meðan hann væri á lofti. K3. 8.30 tók hann að klæðast silf ur-alúmíníum stakknum, og tækni fræðingar sannfærðu sig um, að hvergi læki. Hann steig upp í vagn inn, sem flutti hann til flugvall- arins kl. 9.02. Þar beið hann í klst. meðan skipt var um stykki í eld- fiauginni. Einnig vaið nokkur töf að því, að lagfæra þurfti svita- mælingaútbúnaðinn á hjálmi Glenns. Klukkan 9.59 fór hann út úr vagninum og veifaði blaðamönn- um, Ijósmyndurum og tæknifræð- ingum, sem krökt var af á vell- inum. Hann fór í lyftu upp eftir eldflauginni og hvarf inn í eld- flaug sína, „Vináttu 7“ klukkan 10.03. Klukkan 11.20 varð að losa kýraugað úr geimfarinu til þess að skipta um einn hinna 82 bolta í festingunni. Kýraugað var full- frágengið aftur klukkan 5 mínút- ur yfir 12 á hádegi. Síðan fylgdist Glenn þolinmóður með talningunni, áður en honum yrði skotið á loft og hafði þráð- laust samband við stjórnarstöðina. Hann var í stöðugu sambandi við geimfarann Alan Shepard, sem var hinn opinberi aðili til þess að hafa samband við Glenn frá jörðu. 25 mínútur yfir tólf var stóra kran anum ekið frá eldflauginni, sem síðan stóð ein og stefndi til him- ins, en ennþá í sambandi við jörð gegnum fjölda af leiðslum. 12.35 var fljótandi súrefni sett á eld- flaugina. Hitinn, 297 gráður I Fahrenheit, og rakinn í loftini þéttist utan um eldflaugina, sem varð frostrósum prýdd. Því næst .var sér'stakur krani hafður til taks, ef vera kynni að Glenn vildi 'komast út á síðustu stundu. Kl. 13.10 var hætt að telja um hríð, meðan fljótandi súrefni rann á tanka eldflaugarinnar, en 14 mín- útum síðar var talningu haldið á- fram, unz eldflaugin tókst á loft kl. 13.47. Glenn varð í fyrstu fyrir miklum þrýstingi, en sagði síðan, að nú væri hann kominn í þyngd- arleysi, en það þýddi að hann væri að komast á sporbr'aut. Síðan sagði hann: „Mér líður prýðilega“. 13.49: Aflvélar Atlas-eldflaugar- innar stöðvaðar. 13.50: Geimhylkinu skotið frá eld- flauginni með þrýstilofti. 13.51: Hlustunarstöðin á Bermuda eyjum nær sambandi við geimfar- ið. 14.00: Glenn ofursti verður fyrsti Bandaríkjamaðurinn á br'aut um jörðu. Hraðinn er 28.060 km á klst., hæðin um 256 km yfir jörðu. 15.21: Glenn lýkur fyrsta hring umhverfis jörðu, 97 mínútum eft- ir brottförina frá Canaveral. 16.56: Glenn fer yfir Canaveral cg hefur* þriðju hringferðina. 18.20: Eldflauginni, sem á að beina geimhylkinu aftur inn í and rúmsloftið, er skotið. 18.41: Tilkynnt, að fallhlífarnar séu opnar. Glenn tilkynnir: „Eg er í sjöunda himni!“ 18.42: Tundurspillirinn USS Noah kemur auga á geimfarið. 18.43: Geimhylki Glenns, „Vin- átta“, fellur í Atlantshafið eftir fjögurra klukkustunda og 56 mín útna geimferð, fjórum sekúrtdum á undan áætlun, eftir að hafa far- ið 129 þús. km veg. 19.01: Hylkið veitt upp úr' sjón- um. 19.04: Hylkið komið um borð í USS Noah. 19.23: Glenn kemur út úr hylk- inu, héill á húfi og ánægður. Rak mannlausan upp í klettana í gærmorgun gerði vonzku- veður í Þorlákshöfn með suð- austanátt og 8 til 10 vindstig- um. í þessu veðri varð það, að báturinn Faxi frá Eyrar- bakka slitnaði upp á bátalæg- inu og rak mannlaus upp í klappir. Forsaga málsins er sú, að Þor- lákshafnarbátar lögðu allir af stað í róður í fyrrinótt. Þeir lögðu þó ekki línur sínar, heldur biðu á- tekta til þess að sjá, hvernig veðr- ið snérist. Þegar fór að hvessa, fóru þeir allir í land aftur. Skipshöfnin komst um borð Menn gengu frá bátunum á legu færum eins og venja er til, en um kl. hálfníu slitnaði Faxi upp og rak mannlaus upp í klappir í Þor lákshöfn. Skipshöfnin komst um borð í bátinn, og vélin vár þegar sett í gang. Báturinn Dux frá Keflavík kom til hjálpar, og komu menn taug um borð i Faxa. Virtist mi allt ætla að ganga vel og að lakast mætti að ná Faxa út. Héngu á borðstokknum En skyndilega bilaði spilið á Dux, og eftir það var Faxi ofur- seldur eyðileggmgunni. Sló honum flötum fyrir vindinum, en mun þá þegar hafa verið orðinn mikið brotinn, því að hann lagðist strax á hliðina. Mennirnir, sem um borð voru, komust á borðstokkinn og héngu þar, en báti var þegar skotið út og honum róið út að Faxa. Áhöfn inni á Faxa, sem var 5 manns, heppnaðist að stökkva um borð í bátinn, og sluppu allir ómeiddir. Báturinn talinn ónýtur Faxi liggur enn upp undir klöppum, og er lítil von um að hægt verði að gera við hann. Skipstjóri og eigandi hans er Sig- urður Guðmundsson frá Eyrar- bakka. Byrjaði Faxi róðra frá Þor lákshöfn um miðjan janúar, en þaðan hefur hann verið gerður út í nokkur undanfarin ár. Það má í frásögur færa, að 1 fyrra slitnaði Faxi lika upp á báta læginu í Þorlákshöfn, en skemmd- ist þá ekki. ÁB TÍMINN, miðvikudaginn 21. febrúar Í962 / 2

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.