Tíminn - 16.10.1962, Blaðsíða 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrír
augu vandlátra blaða-
lesenda um allt land.
Tekið er á móti
auglýsingum frá
kl, 9—5 í Banka-
stræti 7, sími 19523
Prófessor Olafur Jóhannesson sagði í háskólafyrirlestri á sunnudag
Prófessor Ólafur Jóhannes-
son flutti erindi í HátíSasal
Háskólans á sunnudaginn, er
hann nefndi: Stjórnarskráin
og þátttaka íslands í alþjóða-
stofnunum. Rakti hann þar
þróun mála í þessum efnum
undanfarið og ræddi um horf
ur á aukinni alþjóðasamvinnu
og þátttöku okkar í henni, og
að hve miklu leyti hún gæti
samrýmzt stjórnarskrá Is-
lands.
Prófessoi Ólafur rakti fyrst þá
niilliríkjasamninga, sem þegar
liefðu verið gerðir um þátttöku
íslendinga í alþjóðasamstarfi.
Hann gat þess, að við þá samninga,
sem þegar hefðu verið gerðir,
hefði ekki verið talin ástæða til
stjórnars'krárbreytingar, þótt oft
hefðu miklar deilur staðið við
gerð þeirra. Hann minnti á hið
eina ákvæði, sem er að finna
í stjórnarskrá okkar um samn-
ingsgerðir við önnur ríki. Það er
rð finna í 21. grein stjórnarskrár-
innar og hijóðar svo: „Forseti ís-
lands gerir samninga við önnur
ííki. Þó getur hann enga slíka
samninga gert, ef þeir hafa í sér
fölgið afsal eða kvaðir á landi
eða landhelgi, eða ef þeir horfa
til breytingar á stjómarhögum
líkisins, nema samþykki Alþing-
is komi til“. Væri því ekki heim-
ilt að gera mikilvæga milliríkja-
samninga án samþykkis Alþingis
og forseta óheimilt að fullgilda
slíka samninga án samþykkis þess.
Þetta ákvæði ætti við, hvort sem
um væri að ræða samninga milli
t\eggja ríkja eða fleiri, svo sem
um alþjóðastofnanir.
Þá varpaði prófessorinn fram
þeirri s-purningu, hvort Alþingi
væri ávallt heimilt að gera milh
ríkjasamninga, sem fælu í sé:
raunverulega breytingu á stjórnar-
skránni, leyfði t. d. eitthvað, sen
þar væri algerlega bannað eð:
breytti staifskiptingu á milli hand
hafa ríkisvaldsins. Kvaðst hann
alls ekki álíta, að forseta væri
heimilt, með samþykki Alþingis.
að gera slíka samninga.
Framh. á 15. siðu
feUu. .
SVÁFU ÚTB í
MIÐRI ÞJÓRSÁ
JK-Reykjavík, 15. október. — I gærkveldi kom vitaskipíð Árvakur i Reykjavíkur-
höfn meS síldarprammann frá SeySisfirði, í eftirdragi. Prammanum var lagt utan
á ísborgina við nýju togarabryggjuna, en | vetur á að nota hann við löndun i Faxaverksmiðjuna, ef hægt verð-
ur að koma henni af stað. Eins og Tíminn hefur áður skýrt frá, ætlar Klettsverksmiðjan að kaupa Faxa, en
ekki hefur enn verið gengið frá kaupunum. Pramminn hefur bæð! löndunartæki og síldarþrær. Á leiðinni hing.
að hreppti prammlnn versta veður og slitnaði einu sinni aftan úr Árvakí.
Pramminn komínn
HE<Rauðalæk, Landssveit,
15. okt.
Borunum á virkjunarsvæðinu
við Búrfell fer nú senn að ljúka
en fyrir skömmu var borað úti
í Þjórsá á stíflusvæðinu til
þess að kanna botnlögin.
Borunarmennirnir notuðu
stóran vatnatrukk við boranirn
ar í Þjórsá. Þeir voru um 2—3
vikur að bora úti í ánni, fóru
ekki nema endrum og eins í
land og sváfu um nætur í bíln-
um úti í ánni. Einu sinni fóru
þeir alveg yfir ána á trukknuin.
28. september bilaði trukkur-
inn úti í ánni. Var þá fyrst grjp
ið til þess ráðs að setja út
gúmbát til þess að ná mönn-
unum í land, en áin var svo
straumhörð, að það reyndist ó-
gerlegt. Fimm menn voru í
trukknum.
Þrír borunarmannanna, Guð-
mundur Halldórsson, Haraldur
Sigurðsson og Páll Ólafsson,
óðu þá í land með línu úr bfln-
um, sem var talsverð fífldirfska
þótt þejr væru allir syndir. Síð-
an voru hinir tveir sóttir og
bíllinn dreginn úr ánni.
ODUG SLYS
MIKLUBRAUT
BO-Reykjavík, 15. okt. j Miklubrautar og Lönguhlíð-
— Harður árekstur á mót-j ar . . . Þannig hljóða blaða-
um Lönguhlíðar og Miklu-j fregnir dag eftir dag. Þessi
brautar . . . slys á mótum! gatnamót, sem voru grafin
Þessi mynd er af gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar, þar sem
gatnamót, sem líka valda slysum. Þarna þurfa götuvitar að koma strax
heita má að árekstrar séu daglegir viðburðir. Litlu ofar er bráðablrgða-
(Ljósmynd: TÍMINN—GE)
I
upp tvisvar, án þess að brú
væri sett, eru nú versti öng-
þveitisstaðurinn í bænum.
Það er raunar tómt mál að tala
um brú héðan af. Hún verður ekki
sett fyrst búið er að moka ofan í
tvisvar og steypa yfjr. En götu-
vita mætti bið'ja um. Uppsetning
slíkra tækja, þar sem 20—30 á-
rekstrar hafa gerzt frá síðustu ára
mótum, ætti ekki að vera nein of-
rausn.
Það er ekki nóg að hafa stand-
andi lögregluþjón á þessum gatna-
mótum, þegar mest er umferðin.
Á föstudaginn varð eitt slysjð á
þessum stað og á laugardaginn
annað. Langar biðrað'ir vagna
myndast, þegar umferðin er mest,
og skammt austar, á mótum Miklu
brautar og Stakkahlíðar, er önn-
ui flísin sem við rís og eykur öng-
þveitið. Þar var rofið skarð í eyj-
una á Miklubraut meðan verjð var
að ganga frá Lönguhlíð og ekki
Framh. á 15. síðu