Tíminn - 25.06.1963, Blaðsíða 3

Tíminn - 25.06.1963, Blaðsíða 3
Þ jóða r a t k væðag r eiðsla n í Danmörku hefst í dag NTB-Kaupmannahöfn, 24. júní Á morgun fer fram í Danmörku þjóðaratkvæðagreiðsla um fjögur lagafrumvörp ríkisstjómarinnar af hinum 11 svonefndu jarðnæðislaga. frumvörpum, sem þjóðþingiS hef- ■MBMnaMMM ur þegar samþykkt, en verða nú lögg undir þjóðaratkvæðagredðslu, skv. kröfu stjórnarandstæðinga, íhaldsmanna og vinstri. Er þetta fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan í Danmörku samkvæmt núverandi 4 Bretar vegnir í Jemen NTB—Lundúnum, 24. júní. Brezkl vamarmálaráðherrann, Peter Torneycroft skýrðl frá því á fundl neðri delldar brezka þlngsins í dag, a3 18 brezkir hermenn hefðu verið handteknlr I Jemen, eftlr að 44 manna flokkur Breta hafðl orðið fyrir árás innfæddra hermanna vi® landamærin milli Jemen og Aden. í hópnum voru konur og böm og munu fjórir hermenn hafa verið vegnir í árásftmi. Hinlr fnnfæddu hermenn hafa látið konumar og bömin laus, en ekki 18 hcrmenn, sem brezka stjómin hefur beð'lð bandaríska sendiráðið í Jemen að fá látna lausa, en eins og kunnugt er hafa Bretar slitið stjrónmálasam- bandi við Jemen. NTB-Jerúsalem, 24. júní. Levi Eskhol skýrði forseta fsna- els, Shazar, frá því í dag, að sér hefði tekizt að mynda nýja stjórn í landinu, og ættu sæti £ henni flestir ráðlierrar fyrri stjórnar, isem uar undir forsæti Davíðs Ben Gurion. f stjórninni eiga sæti 15 ráð- herrar þriggja fiokka, 10 fra-<sisl- ialistíska Mapai-flokknum, þrír fiý ])jóðlega truarflokknum og tvelr PÁLL PAFI VI. Myndin hér að ofan er tekin af Páli páfa 6. skömmu eftir að tilkyimt var um kjör hans. Páll páfi 6. hefur þegar sent frá sér fyrsta boð- skap sinn og lýststuðningivið stefnu fyrirrennara síns Jóhamnesar 23. í málefnum kaþólsku kirkjuinnar. Páfi verður formlega krýndur 30. júní. stjómarskrá landsins. Frumvörp stjórnarinar hafa vak- ið miklar deilur og hafa stjórnar- andstæðingar barizt hart gegn sam þykkt þeirra, en þrátt fyrir það er talið, að þessi fjögur frumvörp nái fram að ganga. Lagafiumvörp- in fjögur eru um kaup á bújörðum, um breytingu á lögum um stofn- setning minniháttar búskapar, um forkaupsrétt sveitaifélaga að fast eignum og um stuðning til jarðar- kaupa sveitarfélaga um breytingu á lögum um náttúrufriðun. í heild er lögunum 11 ætlað að koma í veg fyrir sölu jarðnæðis í hendur útlendinga, Til að felia lagafrumvörpin fjög- ur þurfa 30% atkvæðisbærra manna að gjalda þeim neiyrð'i. Um 3.043.000 manns hafa at- kvæðisrétt og þurfa því 912,782 að greiða atkvæði gegn frumvörpun- um til að feíla þau, því miðað er við atkvæðisbæra menn en ekki fjölda greiddra atkvæða. Gefnir verða út fjórir mismunandi litir atkvæðaseðlar, þar sem greidd eru atkvæði um hvert frumvarp fyrir sig. Atkvæðagreiðsla þessi er mjög umfangsmikil og er því ekki úr- slita að vænta fyrr en seint að- faranótt miðvikudags eða á mið- vikudagsmorgun. Mikið er um áróður af beggja hálfu í Danmörku og hefur áróðurs spjöldum verið komið fyrir á síma staurum og girðingum, víðs vegar um landið auk þess sem bæði blöð stjórnarinnar og stjórnarand- stöðunnar hafa hvatt sína menn til að greiða atkvæði rétt. Ný stiórn í Israel frá hinum vinstrisinnaða Achduth Avodah-flokknum. Hn nýja samstjórn hefur stuðn- ing 68 af 120 þingmönnum, og er það sama hlutfall og í stjórnartíð Ben Gurions. Eskhol hefur lýst því yfir, að hin nýja stjórn muni í meginatrið- um halda áfram sömu stefnu og stjó.rn þetn.pw.wns. Eskhol er sjálfur forsætis- og varnarmálaráðherra, en frú Golda Meir er utanríkisráðherra; H ‘ n Mikilvægir £8E-fundir NTB-Strassbourg, 24. júní. Þingmannanefnd Efnahags- bandal'ags Evrópu, kom í dag sam- an til fundar í Strassbourg, og verða næstu fundir mjög mikil- vægir, því að eftir nokkrar vikur mun ráðherranefnd EB.E. kveða á um það, hvort Stóra-Bretland, Noregur og Danmörk eigi að fá fasta samninga við Efnahags- bandalag Evrópu, þrátt fyrir harða mótspyrnu Frakka gegn aðildinni. í næstu viku mun de Gaulle, forseti, fara til Bonn og ræða við Adenauer, kanzlara um framtíðar- skipulag Efnahags'bandalagsins. Hér er því um síðustu forvöð fyrir þingmannanefndina að láta í ljós skoðun sína á málinu, áður en mikilvægar ákvarðanir verða teknar. DR. STEPHEN WARD NTB-Lundúnum, 24. júní Dr. Stephen Ward, brezki lækn- ininn, sem mjög hefur komið við sögu í sambandi við Profumo-mál- ið, kom í dag fyrir rétt í sambandi við ákæruna á hendur honum, um að hann hafði hagnast á því að reka vændi. Dómstóllinn ákvað, að dr. Ward skyldi siltja áfram í gæzlu varðhaldi. Við réttarhöldin kom fram, að ákæruvaldig muni bera fram sex ný ákæruatriði á hendur dr. Ward, STUTTAR FRÉTTIR NTB-Sarpsborg, 24. júní 34 ára gömul kona varð fyrir hrottalegri nauðgunartilraun að- íaranótt sunnudags á Alvin-vegin um í Sarpsborg. 18 ára gamall pUt- ur réðist á hana og hratt henni niður í skurð við vegkantinn. — Konan fékk alvarlegt taugaáfall og varð fyrir nokkrum meiðslum. Konan hafði verið í heimsókn hjá nokkrum ættingja sinna og var á heimleið ein síns liðs. ER SÍMA VÆND/ REKIÐ IADALSTÖDVUM S.Þ.? NTB—New York, 24. júní. Allt túlit er nú fyrir, a® upp sé komið mál við aðalstöðvar S.Þ. í New York, sem eigi eftir aS vekja heimsathygli. Einn þingmaður republikana, H. R. Gross hefur í ræðu haldið því fram, að í aðalstöðvum Sameln uðu þjóðanna sé miSstöð' fyrir símavændi og starfi margar stúlkur af ýmsum þjóðemum innan þessa hrings, sem hefur það að markmiði að' útvega full- trúum við aðalstöðvamar stúlk ur sér til yndis og ánægjuauka. Gross hefur krafizt þess, að nákvæm rannsókn fari fram á þvl, hvort orðrómur þess efnls, eigi við rök að styðjast, en hann heldur því einnig fram, að við aðalstöðvamar starfi njósnahringir og fleiri vafasöm sambönd, og sé ekki seinna vænna að’ raixnsaka þessi mál. Fullyrðingar Gross vom i dag bomar undlr háttsettan full- trúa í örygglsþjónustu S.Þ. og Iá honum helzt við að skella upp úr, er hann heyrðl um staðliæfingarnar. Hins vegar sagði hann.að vel gæti verið', að nauðsynlegt yrði að Iáta fara fram rannsókn í málinu til þess að losna við sögusagnir. Sagði fulltrúinn, að enginn grundvöllur væri fyrir síma- vændi við aðalstöðvamar, þó ekki væri nema af fjárhagsleg- um sökum. Áhugamennskan i þessum málum gerði það nefnt lega ómögulegt fyrlr konur, sem hefðu atvinmi af þessu, að þrífast almennilega. Benti fulltrúinn á, að ekki sé neitt óeðlilegt þótt menn úr öryggisþjónustunni leiðbeini ungum stúlkum, sem koma til aðalstöðvanna og spyrja eftir ákveð’num fulltrúa hjá Samel" uðu þjóðunum. Það kemur að vísu fyrir, að vlð ráðleggjum viðkomandi manni að taka eigi á móti stúlkum, sem koma í slíkar heimsóknir, en að sjálf- sögðu er okkar ráðum ekki allt af fylgt í þessum efnum, bætti hann vlð. T f M I N N, þriðjudagimn 25. júní 1963. — 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.