Alþýðublaðið - 12.10.1946, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 12.10.1946, Qupperneq 6
SLIM NAILEP THAT FDLAK BEAf? JUST IN TIME, OR VVE'P g£ HÚHÍ WHAT TH'? , T<HE CUg?-X FORGOT ABOUT JUNI0I?-5LIM/S TRVING TO l?OUMP r IT UP/ ---------—- Rcsj'. U.'S. ?ái:OtÍ. ■ AP Ncwsfenturcs ALÞÝÐUBLAÐIÐ Laugardagur 12,. okt. 1946. TIARNARBÍÓ 9 Seldur á leigu (Out of This World). Bráðskemmtileg söngva- og gamanmynd. Eddie Bracken. Veronica Lake. Diana Lynn. Cass Daley. og rödd Bing Crosbys. Sýning kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. B BÆJARBIO 3 Hafnarfirðt Maður og kona Smellin og vel leikin gam- anmynd. Monty Wolley. Roddy McDowell ng enska leikkonan fræga Gracie Fields. Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. 'og ÍVLÓ6 Meðan á hernámi Noregs ' stóð, heimsótti Quisling geð- veikrahæli og gaf sig á tal við einn sjúklinginn. I — Ég er Vidkun Quisling, mesti maður Noregs síðan Iiarald hárfagra. leið. ! — Farðu nú varlega, sagði sá geðveiki í meðaumkunar- !tón. — Svona byrjaði þetta ilíka í mér. anum í Clonmere. Frú Sullivan stóð við hliðið að akbrautinni., og þegar vagninn ók í gegn, hneigði hún sig fyrir Jinný, og Jinný kinkaði kolli til hennar. John-Henry sat teinréttur vi.ð hlið hennar. Fólk var ekki vant að hneigja sig fyrir henni.. Þetta var líka af því að hann var í svo fallegum fötum. Hann leit á hendur hennar. Hún var með hanzka, en því var hún ekki vön nema á veturna, eða þegar hún fór í kirkju með afa á sunnudagsmorgnana. Vagninn skrölti ni.ður akbrautina, gegnum skemmtigarðinn og skógana, og þarna var víkin til vinstri. handar og húsið stóð á grasflötinni fyr- ir ofan þau. Dökkur reykur liðaðist upp úr einum reykháfn- um og gluggarnir í gömlu álmunni höfðu verið opnaðir upp á gátt. Vagn stóð fyrir utan húsið. í sætinu við hliðina á ökumanninum var farangri. hlaðið upp. Dyrnar að stóra anddyrinu, sem Jinný hafði aldrei séð opnar, stóðu nú opn- ar upp á gátt. Jinný hikaði andartak, en hún var of vanaföst og hún bað Patsy að aka að hliðardyrunum. Hún var orðin dálítið taugaóstyrk. Hún togaði í blúndukraga drengsins og lag- aði hattinn á höfði hans. Tilfinningar hennar virtust hafa áhrif á drenginn og hann varð feiminn og honum leið illa; hann vildi vera kyrr í vagninum hjá Patsy. „Nei,“ sagði hún ákveðin. „Þú verður að koma með. Og ég vil að þú takir mjög kurteislega í höndina á afa þín- um, þegar þú sérð hann.“ Hliðardyrnar stóðu opnar, en Jinný hringdi bjöllunni. Hávær hringing ómaði frá einhverjum gangi. langt í burtu. Einhver þjónn kom til dyra, — sennilega var það einka- þjónn Henrys sem hafði komi.ð með honum frá Lundúnúm. „Frú Brodrick?“ spurði hann, og John-Henry sá að móðir hans kinkaði kolli aftur. Þetta fannst honum skemmtilegt. Þetta var svo virðu- legt. Hann fór að herma eftir henni, beygja höfuðið og lyfta því upp, e nhún hnyklaði brýrnar, og hann hélt að þetta væri aðeins fyrir fullorðið fólk. Þjónninn opnaði dyr hinum megin við anddyrið og vísaði þeim inn í stórt herbergi, bórðstofuna. Hérna borðuðum við jóladaginn góða, hugsaði Jinný, þegar ég var sextán ára og Hal tuttugu ára. . . . Þjónninn hafði kveikt upp eld í arninum, því að það var kalt í veðri, enda þótt ágúst væri ekki liðinn. Fyrir framan eldinn voru tveir stólar. Jinný vissi ekki vel, hvort hún ætti að si.tja eða standa. Hún hafði búizt vi.ð að faðir Hals væri í stof- unni og biði eftir þeim Innst í herberginu voru opnar dyr. Hún mundr að þær lágu fram í ganginn að nýju álmunni, og hún fór að velta fyrir sér hvort hapn hefði farið inn í nýju álmuna. Hún stóð kyrr framan við arininn, hélt í höndina á John-Henry og li.tli drengurinn horfði með á- huga í kringum sig og benti á mynd á veggnum. Það var mynd af ungri stúlku með hlýleg brún augu og dökkt liðað hár. Hún var með perlufesti um hálsinn. „Já,“ hvíslaði. Jinný, „hún er mjög falleg.“ Jinný sneri sér við og leit á málverkið af móður Hals. En hvað hann hlaut að hafa verið líkur henni. Sama hægð- NÝJA BfÖ GAMLA BÍÓ Hefja í heljarklóm („Captain Eddie“) Watérlóobrúin Atburðarík stórmynd (Waterloo Bridge) um ævi flughetjunnar og kappaksturskappans Ed- Hin tillkomumikla mynd ward Rickenbacker. með Aðalhlutverk: Vivien Leigh Fred MacMurry, Robert Taylor Lynn Bari, Thomas Mitchell, Sýning kl. 3, 5, 7, 9. Lloyd Nolan. Aðgöngumiðar seldir Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. frá kl. 11 f. h. in og sama þögni.n. Drengurinn togaði í hönd hennar, hún leit um öxl og sá að faðir Hals var kominn inn í stofuna. Þetta var ekki sá Henry Brodrick, sem hún mundi eftir sem barn, og ekki heldur Henry, sem var á teikningunni á prestssetrinu. Þessi, Henry var grennri, langtum grennri, andlit hans var nú hrukkótt og skorpið, en hafði áður verið bústið og festulegt. Hár hans var þunnt uppi á hvirflinum og nærri hvítt. Munnurinn var innfallinn og augun stærri en hún bjóst við. Svo gekk hann til hennar og rétti fram hönd sína. m. amama Bræðurnir fsrír. Ævintýri frá Balkanskaga. Það vóru miklir fagnaðarfundir á heimilinu, og þegar bóndinn festi augu á vínviðinum, hætti hann að gráta með hægra auganu, en bæði hlógu eins og fyrrum. Nú var allt í lukkunnar velstandi á bónda- bænum. Gullhesturinn var 1 hesthúsinu, gulltréð var í aldingarðinum, þar sem það blómgaðist og bar ávöxt á einum og sama degi, en undravínviðurinn fram- leiddi'tólf fötur af víni og prinsessan með fílabeins- hörundið sat og greiddi sér í sólskininu. En tveir elztu synirnir, sem höfðu komið aftur úr ferðum sínum tómhentir, voru vondir og öfund- sjúkir, er þeir sáu, að dekrað var við litla bróður þeirra hjá pabba, en litla, fallega prinsessan elti hann eins og skuggi. Dag nokkurn stungu þeir upp á því, að þeir skyldu. allir fara til silungsveiða uppi í fjöllum; en Myndasaga AlþýðubiaSsins: Örn elding CELIA: Jæja; Slim náði þessu bjarndýri, áður en það gerði neitt af sér. ÖRN: Húrminn? Ég gíeymdi hon- um alveg. Nú fer Slim að reyna að ná í hann. SLIM: Hæ, bíddu við; ég ætla ekki að meiða þig, litli vinur. Vertu rólegur. Og svo steypist Slim á eftir hún- inum niður fyrir fjallshlið.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.