Tíminn - 19.09.1964, Blaðsíða 8

Tíminn - 19.09.1964, Blaðsíða 8
Fimmtugur í dag Þórarinn Þórarinsson ritstjóri og alþingismaður Þórarinn Þórarinsson ritstióri er fimmtugur í dag, en hann hef- ur eigi a3 síður verið stjórnmála- ritstjóri í 28 ár. Ritstjóri Tímans hefur hann verið 26 ár samfleytt og því miklu lengur en nokkur annar maður. Það sýnir álit þeirra, sem bezt þekkja Þórarin Þórarinsson, að hann var ráðinn ritstjóri við Nýja Dagblaðið 22ja ára að aldri og við Tímann 24ra ára gamall. Og það starf hefur hann haft með hönd- um síðan við vaxandi orðstír. Það er veglegt og vandasamt trúnaðarstarf að stýra stóru og áhrifamiklu blaði. Því hlutverki hefur Þórarinn nú gegnt með mik- illi prýði áratugum saman á við- burðaríkum timum í sögu þjóðar- innar. Hefur Þórarinn Þórarins- son haft tækifæri til að leggja þýð- ingarmestu framfaramálum þjóð- arinnar öflugt lið á þeirri .fram- faraöld, og það hefur hann líka gert ósleitllega. Starfs síns vegna verða stjórn- málaritstjórar í fremstu víglínu þjóðmálabaráttunnar, þar sem orr ustan er hörðust, og þar hefur Þór- arinn Þórarinsson staðið í 28 ár. En þess er gott að minnast nú, að Þórarinn á því láni að fagna að vera einn þeirra ritstjóra, sem gert hafa pólitískar umræður mál- efnalegri og hógværari en áður vildi við brenna. Það leiðir af líkum ,að Þórar- inn Þórarinsson er manna bezt að sér um íslenzk þjóðmál og manna færastur að gera þeim skil, en þar að auki hefur hann verið braut ryðjandi í því að rita um útlend viðhorf þannig, að mikill fengur er að, og er það þjóðkunnugt fyrir löngu og vel metið af mörgum. Aðrir munu rita um Þórarin Þórarinsson og störf hans á þess um tímamótum ævi hans, en ég færi honum fyrir hönd þeirra, sem að Tímanum standa, innileg- ar þakkir fyrir stórfellt s'tarf hans í þágu blaðsins og þá um leið Framsóknarflokksins, og læt jafn- framt þá ósk í ljós, að hans njóti við lengi enn. Eysteinn Jónsson. Fyrir 35—40 árum barst sú saga til Reykjavíkur, að vestur i Fróð- ársveit á Snæfellsnesi væri að alast upp drenghnokki, sem læsi alþingistíðindin samtímis baraa- lærdómnum og væri vel að sér í hvorum tveggja þessara fræða, og þó engu síður í hinum fyrr- nefndu. Nokkru síðar kom svo þessi ungi Snæfellingur til höfuð- borgarinnar og stundaði þar skóla- nám með jafnöldrum sínum víðs vegar að af landsbyggðinni. Hann reyndist þar gæddur góðum náms- gáfum en lét sér nægja próf á tveggja vetra skóLa. Mun hafa verið félítill eins og fleiri ung- menni á þeirri tíð, sem urðu að komast áfram af eigin rammleik, en áhugi hans á þjóðmálum var þá þegar svo mikill, þótt ungur væri, að hann lét það sitja fyrir öðru að afla sér þekkingar og reynslu á því sviði og að verða hæfur til að leggja lið þeim málstað, er hann þegar hafði bundið tryggð ið Þessi ungi maður var Þórar- nn Þórarinsson Stjórnmálaáhugi ans á barns og unglingsaldri efir ekkí látið að sér hæða, því að áhuganum fylgdi sú vjljafesta, samfara starfsþreki og góðum gáf- um og skyldurækni, sem til þess þarf að áhugi verði meira en hjóm eitt. Á fimmtugsafmæli sínu í dag hefur Þórarinn Þórarinsson verið ritstjóri Tímans, einn eða ásamt öðrum, og jafnan aðalstjórnmála- ritstjóri blaðsins í meira en aldar- fjórðung og miklu lengur en nokk- ur maður annar. Og nú í seinni tíð er hann jafnframt einn af mik- ilvirkustu höfundum hinnar tor- lesnu bókar, sem fyrrum varð til þess að marka lífsbraut hans, þ.e. a.s. alþingistíðindanna. í mennt- andi starfi hefir hann gerzt maður vel að sér á mörgum sviðum, m.a. í tungum og málefnum annarra þjóða. Eins og nærri má geta, hefur Þórarinn Þórarinsson lengi verið mikils metinn áhrifamaður í Fram sóknarflokknum. Starf stjórnmála- ritstjóra er mikilvægt fyrir flokk- ana, sem standa. að útgáfu blað- anna, en eigi síður vandasamt og ónæðissamt. Til stjórnmálaritstjór- anna eru miklar kröfur gerðar og ekki ávallt samrýmanlegar, og margir vilja gefa þessi ráð, sem þeim er svo ætlað að bera ábyrgð á. En mörgum blaðalesendum hættir til að gera sér í hugarlund, að ritstjóri sé höfundur eða upp- hafsmaður að öllu, sem i blaði hans stendur, sem er þó raunar óhugsandi þegar um dagblað er að ræða. Geðró og þolinmæði eru mikilvægir eiginleikar í fari rit- stjóra, og þeir,sem bezt þekkja til, hafa kunnað vel að meta þennan eiginleika í fari Þ.Þ. samfara víð- sýni hans og glöggu auga fyrir pólitísku veðurfari á hverjum tíma. Eitt er það í ritstjórnar- og blaðamennskustarfi Þ.Þ., sem al- veg sér í lagi hefir hlotið almenn- ar vinsældir, án tillits til flokka, en það eru greinar þær er hann hefir ritað árum saman um gang heimsmála og kunna stjórnmála- menn í öðrum löndum. I þessum greinum hans hefir þótt gæta meiri og læsilegri sannfræði og meiri óhlutdrægni en títt er um slík skrif hér á landi. Merkur mað- ur, sem fylgt hefur andstæðingum Tímans að málum, sagði eitt sinn við mig, að þessar greinar .Þ. um útlend mál væru orðnar sér lífs- nauðsyn, og án þeirra gæti hann ekki verið. Áður en Þórarinn Þórarinsson kom á þing, var hann oftar en einu sinni í kjöri fyrir Framsókn- arflokkinn í kjördæmi, sem af öll- um var talið „vonlaust“ í þann tíð. Ber það m.a. vott um ósérhlífni hans, og að hann taldi sér ekki vandara um að bíða lægra hlut en þeim málstað, er hann studdi. Það hefði í þann tíð, þegar öfl andstæð Framsóknarflokkn- um mótuðu almenningsálitið í Reykjavík, þótt ósennileg spá, að ritstjóri Tímans yrði kosinn á þing í höfuðborginni. En þetta gerðist vorið 1959 og hafði það þá aðeins einu sinni áður gerzt, að Framsóknarmaður næði þar þingmannskosningu (1949). í ann- að sinn var Þórarinn kjörinn á þing í Reykjavík í haustkosning- unum eftir stjórnarskrárbreyting- una og í þriðja sinn vorið 1963, og hafði þá fylgi Framsóknarflokks- ins aukizt svo í borginni, að tveir Framsóknarmenn hlutu kosningu. Á alþingi hefur Þórarirn þau fimm ár, sem hann hefir átt þar sæti, verið meðal athafnasömustu þingmanna. Er þó einnig utan þings mjög störfum hlaðinn við ritstjórnina og fleira. Hann hefxr tekið mikinn þátt í umræðum um ýmis stórmál, er rökræðamaður snarpur og heldur fast á sínu máli. Hygg ég hann vera einn af mælsk- ustu mönnum þingsins um þessar mundir. Hefir hann stundum orð- ið nokkuð skeinuhættur sér eldri íþróttamönnum þingsins á þessu sviði. Hann hefir m.a. átt sæti í utanríkismálanefnd, og yfirleitt fengizt allmikið við þau mál í þinginu. Kemur honum þar að góðu haldi sú þekking, er hann hafði aflað sér sem blaðamaður á þessum málum, svo og seta hans á þingi hinna sameinuðu þjóða, en hann var í nokkur ár einn af fulltrúum íslands á því þingi. Geta má um það í þessu sam- bandi, að Þ.Þ. átti góðan þátt í meðferð mála í tíð vinstri sljóm- arinnar, þótt eigi sæti hann þá á þingi, þar á meðal í meðferð land- helgismálsins 1958. Nú um fimmtugt er Þ.Þ. án efg meðal leiðandi manna í íslenzk- um stjórnmálum: Hann er að minni hyggju traustur stjóramála- maður og víðsýnn, maður tillögu- góður, er mikils þarf við, vaxandi í verkahring sínum. Hann er nú búinn að eiga heima í höfuðborg- inni meiri hluta ævi sinnax og er manna áhugasamastur um reykvísk mál. En sem góður Reykvíkingur og góður íslendingur, gerir hann sér ljóst, að hag höfuðborgarinn- ar verður ekki vel borgið, nema hags landsbyggðarinnar sé það einnig. Verður þessara sjónarmiða glöggt vart og oftsinnis í tillögum hans og ummælum við ýmiss tæki- færi. Við samstarfsmenn Þ.Þ. í þing- flokki Framsóknarmanna hefðum án efa allir í huga að sækja hann heim til að flytja honum árnað- aróskir á þessum degi, en margir okkar eiga þess nú ekki kost. Við ættum líka öðrum fremur að kunna að meta framlag þessa sí- starfandi áhugamanns til íslenzkra þjóðmála og í þágu þeirrar stofn- unar, er við teljum landinu far- sælasta. Sjálfum er mér Ijúft að þakka kynningu okkar vinsamlega um 30 ára skeið og samstarf meira og minna mestan hluta þess tíma, um leið og ég árna honum og fjöl- skyldu hans heilla á þessum merk- isdegi á ævi hans. Gísli Guðmundsson. Einn af kunnustu mönnum þjóð- arinnar, Þórarinn Þórarinsson, rit- stjóri og alþingismaður er fimm- tugur í dag. Þótt aldurinn sé ekki meiri, hefur Þórarinn í þrjá ára- tugi staðið mitt í sviðsljósi þjóð- málabaráttunnar. Með sanni má segja, að hann hafi komizt til vegs og virðingar vegna eigin verðleika. Kornungur sprettur hann fram á orrustuvöll stjórnmálanna og-verð- ur strax jafnoki hinna eldri og reyndari stjórnmáiagarpa. Um tvítugsaldur er honum falinn sá mikli trúnaður að vera gerður að ritstjóra, fyrst Nýja Dagblaðs- ins. síðan Tímans. Þetta var mikill og skjótur frami á stjórnmála- brautinni, en honum fylgdi líka mikil ábyrgð. Mér þykir ekki ó- sennilegt, að ýmsum hafi fundizt forystumenn Frarhsóknarflokksins tofla nokkuð djarft að gera svo ungan og reynslulítinn mann að ritstjóra aðal-blaðs flokksins. En án efa hefur þeim góðu mönnum ekki dulizt fremur en öðrum, sem i Þórarni kynnast, að bak rið hæg- láta, næstum hlédræga framkomu, býr fastmótuð skapgerð, skörp greind og hugsjónaeldur. Þói-ar- inn brást heldur ekki því trausti, sem til hans var borið. Hann sýndi strax, að innviðir hans voru engin fúasprek, sem molnuðu niður, þeg- ar á þá reyndi. Strax á ungl- ingsárunum hafði hann markað sér braut í baráttu þjóðmálanna og rennt svo traustum stoðum undir skoðanir sínar, að hvorki brotsjóir andstæðinga né skjótur frami, sem reynzt hefur fótakefli i mörgum ungum manni, þokuðu i þar neinu um. Að mínum dómi er það engin tilviljun, að maður með skapgerð Þórarins gerðist ákafur fylgismaður framfara- og umbóta- stefnu Framsóknarflokksins og mæti að verðleikum gildi sam- vinnustefnunnar. Slíkt var og er enn viðhorf ungra, gáfaðra og framsækinna manna, sem af eigxn rammleik verða að brjóta sér leið- ina fram á við. Við Þórarinn höfum starfað saman hin síðari ár að málefnum Framsóknarflokksins í Reykjavík. Það samstarf hefur á allan hátt verið hið ánægjulegasta og munu aðrir, sem með honum hafa starf- að í framsóknarfélögunum, hafa sömu sögu að segja. Hann hefur í samskiptum við aðra tileinkað sér hin gullvægu spakmæli Hávamála: „Ríki sitt skyli ráðsnotra hverr í hófi hafa“. Að félagsmálum framsóknar- manna í Reykjavík hefur Þórarinn unnið geysimikið. Hann var frum- kvöðull að stofnun Félags ungra framsóknarmanna og formaður þess um skeið. Einnig hefur hann verið formaður í Fulltrúaráði framsóknarfélaganna og Sambandi ungra framsóknarmanna, átt sæti í borgarstjórn sem varamaður og verið alþingismaður fyrir Reykja- vík síðan vorið 1959. Fyrir öll þessi margháttuðu störf flytjum við samherjarnir honum þakkir á þessum tímamótum ævinnar. í störfum sínum að opinberum málum hefur Þórarinn Þórarins- son fyrir löngu sýnt og sannað, að hann er málafylgjumaður mik- ill, ræðumaður óvenjugóður. rök- fastur og málefnalegur. En hann er einnig búinn þeim góðu kostum að vera sanngjarn og hófsamur í málflutningi og vilja ávallt leita hinnar beztu og farsælustu lausnar í hverju máli. Fyrir þessa hans góðu kosti, ásamt öðrum, nýtur Þórarinn álits og virðingar, ekki aðeins meðal sam- herja sinna og skoðanabræðra, heldur einnig meðal andstæðinga. Ég flyt svo Þórarni, konu hans og börnum, árnaðaróskir á þess- um merku tímamótum ævi hans. Kristján Benediktsson. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, er fæddur 19. sept. 1914 í Ólafsvík, og voru foreldrar hans Þórarinn Þórarinsson, sjómaður þar og kona hans Kristjana Magnúsdótt- ir. Hann stundaði nám í Samvinnu- skólanum 1931—33. Var ritstjóri Nýja Dagblaðsins 1936—38 og rít- stjóri Tímans 1938 og hefur verið það síðan. Þórarinn var fyrsti for maður Sambands ungra Framsókn armanna og einnig fyrsti formaður Sambands bindindisfélaga í skól- um. Hann hefur og átt sæti í útvarpsráði alllengi og gegnt marg víslegum trúnaðarstörfum öðrum. Þórarinn var kjörinn á Alþing fyrir Reykvíkinga 1959 og hefur átt þar sæti síðan. — Þórarinn kvæntist árið 1943 Ragnheiði Vig fúsdóttur Þormar frá Geitagerði 8 T í M I N N , laugardaginn 19. september 1964

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.