Morgunblaðið - 19.04.1916, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.04.1916, Blaðsíða 1
Miðv.dag] 19. apríl 1916 HOBfi 3. árgangr 167. tðlublað Ritstiórnarslmi nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. ísafoldarprentsmiðja Afgre$slusimi nr, 500 Mannborg orgel-harmónium eru búin til af elstu verksmiðju Þýzkalands i sinni grein. Stofnuð 1889. Dassel forte-piano og flygel hafa hlot- ið einróma lof heimsfrægra snillinga. Meðmæli fjölda hér- lendra kaupenda að hljóðfær- unum til sýnis. Odeon grammofóna og plötur á þ. útvegar Umboðsm. fyrir ísland, G. Eiríkss, Reykjavík. Erl. simfregnir (frá fréttaritara ísaf. og Morgunbl.). Kaupmannahöfn 18. apríl. Bretar hafakallað í her- inn 18 ára gamla menn. Kaupmannahöfn, 18. april. Bretar sækja fram hjá Tigris og Rússar hjá Trebizond. Bretar hata skotið á Mikia- gaið. Úlfaþytur með Grikkjum og bandamönnum. Deila Þjóðverja og Ameríku- manna harðnar stöðugt. t Jónas Gnðlaugsson látinn. Morgunblaðinu barst í gær sím- skeyti um það frá Kaupmannahöfn, að Jónas Guðlaugsson rithöfundur sé látinn, en ekkert nánar skýrt frá dauða hans. Fyrir nokkru kom fregn um það, að Jónas hefði í vetur dvalið í Noregi sér til heilsubótar, en eigi kngið neina meinabót þar. Hvarf nann þá suður til Þýzkalands og settist þar að á heilsuhæli fyrir taugaveiklað fólk. Þar mun hann senniléga hafa Htist. Jónas heitinnvar fæddur a7. september 1887, og því tæpra 29 ára að aldri. Málverkasýning Asgrims Jónssonar i Vinaminni daglega frá 11—5. Inngangur 50 aura fyrir fullorðna, 25 au. fyrir hörn. Aðgöngumiðar, sem gilda tyrir allan tímann, 1 kr. ¥ Páskavörur: Hveiti og allsk. bökunarefni, ísl. smjör, Egg. Perur, Apricosur, þurkaðar og i dósum. Epli þur, Ananas, Ferskjur. Plómur, Jarðarbcr, Fruid Salad. Syltetöj í stórum og smái^i krukkur. Vindlar, margar teg. Öl. w Chocolade. Kaffi, brent og malað, af beztu tegund. Jón Jijarfarsort & Co. Tfafnarsfr. 4. Taísimi 4. Trúmála-erindi flytur Árni Jóhannsson bankaritari í Bárubúð á Skírdagskvöld kl. SVa- Aðgöngumiðar á 50 aura seldir á miðvikudag i bókaverzl. S. Ey- mundssonar og ísafoldar, og á skírdag í Bárubúð. ísafoícf kemur úf á faugarcf 22■ þ. m , en ekki i dag Heimilisfang mitt hefi eg flutt frá Gerðum i Garði að Búðum á Snæfellsnesi, og eru því allir, sem einhver skifti kunna að eiga við mig, beðnir að snúa sér til mín þar. Blöð og tímarit eru útgefendur héðan i frá beðnir að senda mér á hinn síðarnefnda stað. p. t. Reykjavík 14. april 1916. Finnbogi G. Lárusson. Verzlunarmannafélag R.víkur heldur Sumargleði i Bárunni miðvikudagskvöld kl. 9. Salurinn verður allur skreyttur og hljóðfærasveit Bernburgs skemtir og leikur fyrir dansi. Listi liggur frammi í Bókverzlun ísafoldar og aðgöngumiðum útbýtt þar. N Y J A BI O Engin sýning fyr en á annan í páskum. Pósturinn í Botniu. Það sló óhug á marga þegar Morgunblaðið kom með þá sim- fregn, að Bretar hefðu tekið allan póstinn úr Botniu. Vildu sumir tæplega trúa því, einkum vegna þess að hvorki Sameinaðafélagið né póst- stjórnin höfðu fengið neinar fregnir af þessu. Nú kom Botnia til Vestmanneyja í gærmorgun, og var þá auðvelt að ganga úr skugga um það hvað hæft væri í þessum fréttum. Og þá kom upp úr kafinu að skipið hefir með- ferðis aðeins einn einasta póstpoka — frá Færeyjum. Allan danska póstinn tóku Bretar, bréfapóst sem annað, og héldu eftir. Ef að likum fer, verður þessi póstur að liggja i Bretlandi þangað til ísland kemur þangað. En ísland á ekki að fara frá Kaupmannahöfn fyr en 6 maí. Engum getum skal að því leitt hvaða hag Bretar sjá sér í því að taka póst — bréfapóst — sem hing- að á að fara. En óhagurinn sem okkur Islendingum er ger með þessu er hverjum manni auðsær. Botnia fór frá Vestmanneyjum kl. 9 i gærkvöldi og er þvi væntan- leg hingað á hverri stundu. i_ | Systurnar | fra Kinnarhvoli. I II Æfintýraleikur eftir C. Hauch. annan páskadag kl. 8. i Iðnaðarmannahúsinu. r«W» d móti pðntunum i Bókverel. Jia- foldar nema þd daga tem leiMS er, Þd eru aSg.miSar leldir i Iðnó. — Pantana ti vitjað fyrir kl. S þann dag tem leitcið er. Bókv. Isafoldar. Spiritistiskar bækur. Bæk- ur um sálarrannsóknir, skemtandi og fræðandi að lesa um Páskana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.