Morgunblaðið - 19.04.1916, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.04.1916, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ pat===iiE==]B^g] % Nýtt Nautakjöt Saxað kjöt, Kjötfars, Wienerpylsur. Medisterpylsur, Rjúpur, Islenzkt Kindakjöt í í og kgr. dósum. Ávextir allskonar, í smáum og stórum dósum. Pikles, Asier, Bödbeður Grænar baunir Capers, Tomat í glösum og dósum o. fl. o. fl. Matarverzlun Tómasar iónssonar, Bankastr. 10 Sími 212. |DCtnr=n Hn=irq0ni Víðavangshfaupið. íþróttafélag Reykjavíkur ætlaði að efna til viðavangshlaups á sumardag- inn fyrsta í fyrra. En af því gat eigi orðið vegna þess, að menn feng- ust eigi tii hlaupsins. Nd á sumardaginn fyrsta verður háð hið fyrsta viðavangshlaup að til- hlutan í. R. Hafði það fengið til þess leyfi í. S. í. að fleiri félög mættu keppa í því heldur en þau ein, sem eru í í. S. í. Var tilætl- unin með þvi sérstaklega sd, að fá iþróttaflokka skólanna til þess að keppa i hlaupinu. En skólarnir sitja heima, hverju sem um er að kenna. Það getur verið, að nemendur þyk- ist eigi hafa haft tíma til þess að æfa sig i hlaupi ndna, þegar skóla- annirnar láta þá engan stundlegan frið hafa. En leitt er þó til þess að Vita hvað áhugi iþróttamanna er yfirleitt litill. Væri eigi áhugi ein- stakra manna til þess að halda uppi íþróttaæfingum hér, mundi íþrótta- hreyfingin velta dt af steinsofandi. I víðavangshlaupi þvi, sem nd skal háð, keppa io menn, eða tveir flokkar. Eru mennirnir allir dr íþróttafélagi Reykjavikur. Hefst hlaupið á Aust- urvelli kl. 3 siðdegis á skírdag og endar aftur á sama stað. Verður hlaupið suður Tjarnargötu og yfir mýrina sunnan við Tjörnina, og síðan eftir Laufásvegi og niður i bæinn. Það verður góð skemtun fyrir bæjarbda, og spáum vér því að mannmargt verði umhverfis Austur- völl um þær mundir. =53 DA0BÓÍ[IN. Afmæli í dag. H. Finsen, kaupkona. Sveinn Jónsson, trósm. Sólarupprás kl. 4.46 f. h. Sólarlag — 8.10 e. h. HáflóB í dag ki. 5.54 f. hád. og kl. 6.17 8. h. Veðrið í gær: ÞriSjudagínn 18. apríl. Vm. n.v. sn. vindur, hiti 2,0 Rv. n. st. gola, hiti 0,7 íf. a. st. kaldi, frost 1,0 Ak. n. andvari, hiti 0,5 Gr. logn, frost 0,5 Sf. n.a. gola, hiti 2,1 Þh., F. a. st. gola, hiti 5,5 AugnJækning ókeypis kl. 2—3 í Lækjargötu 2 (uppi). Trúmálaerindi flytur Árni Jóhanns- son bankaritari í Bárubúð annað kvöld. Harðindi eru ákaflega mikil á Norðurlandi. Úr Mývatnssveit fróttum vór það í gær, að föstudagurinn var, hefði verið fyrsti dagurinn í Einmán- uði svo að eigi var hríð. Rettarhald hefir ekkert verið í brófastulds-málinu enn þá; rannsókn var að eins hafin í því í fyrrakvöld. Páskamessur í Fríkirkjunni. I. í Fríkirkirkjunni í Hafnarfirði. Á Skírdag kl. 12 á hád. (síra Ól. Ól.) - Páskadaginn kl. 6 e. m. (síra Ól. Ól.). II. ÍFríkirkjunniíReyk j a- v í k. Á Skírdag kl. 12 á hád. (síra H, N.) - — — 5 e. m. (síra Ól. Ól.). - Föstud. langa kl. 12 á hád. (sr. Ól.Ól.) - Páskadaginn kl. 12 á hád. (sr. Ól.Ól.) - ----- — 5 e. m. (síraH.N.) - 2. í Páskum kl. 12 á hád. (síraÓl.Ól.). Seglskip hið fyrsta á árinu, kom hingað í gær hlaðið salti til Mr. Hobbs. Maí kom inn í fyrrakvöld með mann, sem hafði slasast um borð. Heitir sá Sigurður Grímsson og hafði fótleggur hans brotnað. Hann var fluttur á spítalann. Þilskipið Hákon kom inn í fyrra- dag og hafði aflað 9000 af þorski. Nordsöen, eitt af Lauritzsens skip- unum kom hingað í gær með salt- farm til Kveldúlfs. 2 menn gengu f gærdag milli kl. 12—1 fram hjá húsinu nr. 10 f Lækjar- götu. í sama bili er skvett vatns- skólpi út um glugga á annari hæð, og yfir annan þeirra. Það er eigi í fyrsta skifti að það á sér stað hór í bænum að kvenmenn sýna af sór slíka ósvffni og dónalega framkomu við menn, sem um alfaraveg ganga. Það eitt að kasta úr flátum út um glugga út á götur, sýnir framúrskar- andi sóðaskap hjá viðkomanda, er eigi má líðast, en þá fyrst kastar tólfun- um, er mönnum er eigi lengur vært að ganga um götur bæjarins, fram hjá húsum borgarmanna, vegna subbu- skapar og ósvífinnar framkomu vinnu- kvenna eða þeirra er í húsunum leigja. — Yæri eigi vanþörf á að hús- bændurnir víttu slíka framkomu þjóna sinna eða leigjenda, svo menn gætu framvegis gengið óhultir um götur borgarinnar. J. Prentvilla var í auglýsingunni frá skátafélaginu »Væringjar« f gær. Þar stóð að drengir skyldu gefa sig fram við Hall Þorsteinsson, en átti að vera Þorleifsson, Miðstræti 6. Verzlunarmannafélagið hefir sumar- fagnað í Bárunni í kvöld, síðasta vetrar- dag og verður þar margt til gleð- skapar. Kennaraskólanum verður sagt upp í dag. Pósthósvörður hefir verið ráðinn Jón J. Straumfjörð í stað Póturs Þor- steinssonar, sem sagt hefir starfinu lausu. Jón tekur við 14. maí. --------«>«<«-------- Hirðuleysi. Kaupmaður nokkur hér í bænum sendi nokkuð af ullarvörum í póst- bögglum með Botníu, sem fór héð- an 13. febr. s. 1. Áttu þær vörur að fara til Danmerkur. Þessar vörur voru aðeins sendar til reynslu. Ef Bretar hefðu tekið þær og haldið þeim eftir, var þýð- ingarlaust að senda meira. En hefðu þeir tekið vörurnar og slept þeim aftur, var fordæmið fengið um það, að þeir skoðuðu ekki vörur þær sem bannvörur, og þá ætlaði maðurinn að senda út miklu meira af sams- konar vörum. Nú leið og beið. Um miðjan marzmánuð fær kaupmaðurinn bréf frá viðskiftavinum sínum í Dan- mörku, þar sem þeir viðurkenna, að þeir hafi móttekið vörurnar og senda honum peninga fyrir þær. Er þar ekkert var um það getið, að Bretar hafi nokkuð skift sér afvöiu- sendingunui og áhættan því jöfn og áður, að senda mikið af ullarvörum upp á von og óvon um það, ,að Bretar vildu sleppa þeim í gegn um greipar sér. En i fyrradag, 17. april 1916, fær kaupmaðurinn svolátandi tilkynningar frá böglapóststofunni hér í Reykja- vik. »Yður tilkynnist hérmeð, að böglar þeir, er þér settuð hér í póst i3. febr. til N. N., og sendir voru út með Botniu sama dag, voru teknir af Englendingum*. Og svo stóð ekkert meira. Ekki eitt orð um það, að Breter hefðu aftur gefið vörurnar lausar. Og þessi tilkynning frá póststofunni hér kemur heilum mánuði síðar, heldur en kaupmaðurinn fékk viðurkenningtí hinna dönsku kaupmanna um það, að þeir hefðu fengið vörurnar! Þetta er alt ærið einkennilegt og enginn efi á þvi, að einhver hefir gerzt sekur í hirðuleysi. En hvort það er póststjórnin í Kaupmanna- höfn, stjórnarráðið hér eða póst- stjórnin hér, skulum vér láta ósagt. Fyrir hinn óhæfiiega langa drátt, sem orðið hefir af því að tilkynna kaup- manninum það, að Bretar hefðu tekið vörur hans, hefir hann ef til ■ vill beðið mikið tjón. Og það ættu allir að vita að minsta kosti, að á þessum erfiðu tímum, þegar verzlun og viðskiftum er þröngvað á öllum sviðum, þá veitir sennilega ekki af því að reynt sé að greiða svo mjög fyrir kaupmönnum sem unt er með allar upplýsingar. En hvenær senr yfirvöldin sýna slíkt hirðuleysi og það sem getið er hér að framan, þá1 er það vítavert. Fiskverð erlendis. Ófriðarþjóðirnar geta vitanlega ekki stundað fiskveiðar um þessar mundir svo neinu nemi, og geta því langt frá því fullnægt kröfum markaðsins. Aðrar þjóðir, þær hlutJ’ lausu, verða að afla fyrir þær, eink- um hafa Hollendingar og Danir grætt offjár á þvi að selja nýjan fisk til Bretlands og Þýzkalands. Frá norð- urhluta Noregs hafa skip farið dag- lega hlaðinj nýjum fiski i ís suður til Þýzkaiands, og segja Norðmenn svo sjálfir frá, aðf þeir hirði nú allan aflann — það sem óætt þyki í Nor- egi sé borgað háu verði í Þýzka- - landi. Verð á nýjum fiski er afskaplega hátt í ófriðarlöndunum. Bezt er borgað fyrir fiskinn í Þýzkalandij- Þar kostaði ýsupundið i lok fyrra- mánaðar 90 pfenninga, en fyrir ófrið- inn kostaði það 20 pf. Smáþorskur, kostar nú 50 pf., áður 18 pf. Langa kostar 50 pf. skata 50 pf. steinbít- ur 46 pf. karfi 50. — Heilagfiski verða menn að gefa 232 pf. fyrir. Þó vitanlega sé gangverð þýzkrar myntar mjög lágt sem stendur, þá verður varla annað sagt, en að fisk- ur sé í háu verði i Þýzkalandi. Hann er munaðarvara, sem engir geta aflað sér nema þeir efnuðu. Blöð ger upptæk i Dublin. írar hafa gerst talsveit baldnir á þessum síðustu og verstu dögutn. Hafa menn bæði í ræðu og* riti kvatt þjóðina til þess að senda ekki syni sina i herinn og sumir ef til vill gerst máldjarfari, en fregnir um það eru allar óljósar og minn' ast brezku blöðin sem minst á þa^ mál. , Nýlega var lögregla og herlið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.