Morgunblaðið - 19.01.1917, Síða 1
Amtrískur SsgldAkur
mjög- mikiö úrval,
ódýrastur
f Vsiðarfæraverzl. Liverpool.
Karlm. alullarpeysur
og einnig færeyskar peysur,
eru nú komnar í
Austurstræti 1.
Ásg. G. Guunlaugsson & Co.
í. S. í í. S. í.
Aðalfundur Iþróttafélags Raykjavíkur
verður haldinn miðvikudaginn 24. þ. m. kl. 9 siðdegis í Iðnó (uppi).
D a g s k r á samkvæmt lögum félagsins.
Stjórmn.
t 0. 0. P. 725839.
Fallna stúlkan
Þessi afbragðsmynd verður
vegna fjölda áskorana
Sýnd attur i kvðld.
Látið ekki þetta síðasta tæki-
færi til að sjá reglulega góða
mynd ónotað.
Árshátið
Verkmannafélagsins Dagsbrun
verður haldin
d Bárubúð laugardag 20. þ. m.
kl. 8 síðd.
og s u n n u d a g 21. s. m. kl. 7 sd.
Nánar á götuauglýsingum.
Nefndin.
Mótorskip
til sölu
Afhendist í Noregi 1. maí.
Upplýsingar gefur
Arni S. Beðvarsson,
Pósthússtræti 14.
Hásetafélagsfundur
i kvöld, 19. jan. kl. 6 í Bárunni.
Ariðandi félagsmál á dagskrá.
Krafist verður framvegis að menn
sýni félagsskírteini sln við inngang-
inn.
Stjórnin.
Leggingar
allir litir og mikið úrval, komu með
íslandi til
J. Aall Hansen,
Þingholtsstræti 28.
K. í. D. I
Fundur í kvöld kl. 81/*.
Allar stúlkur, þótt utanfélags
séu, eru velkomnar.
Verðlaun Carnegies.
Carnegie, auðmaðuriun mikli stofn-
aði sjóð, er veita skyldi verðlaun
fyiir hreystiverk og ósérhlífni þá er
háska ber að höndum. Að því er
vér bezt vitum hefir hr. cand. theol.
S. Á. Gislasou fyrstur manna beint
athygli forgöngunefndar þessa sjóðs
að íslandi, og hafa ekki fáir menn
fengið þaðan verðlaun fyrir milli-
göngu hans, eða fyrir hans aðstoð.
Nú síðast hafa verðlaun verið
veitt þrem mönnum í Vestmann-
eyjum, fyrir góða framgöngu þá er
hið sorglega vélbátsslys varð þar í
fyrra. Hefir ekkjunni Geirlaugu
Sigurðardóttur verið veittar 1800 kr.,
ekkjunum Ólöfu Guðmundsdóttur
og Guðlaugu Hieronymusdóttur
800 kr. hvorri. Arni Finnbogason
formaður fékk silfurmedalíu.
Ennfremur hefir Guðmundi Ey-
þórssyni, verkamanni hjá Hafnar-
gerð Reykjavikur, verið veittar 300
krónur í verðlaun fyrir vasklega
framgöngu þá er hið sorglega siys
varð hér á höfniuni í vor.
Skipatjón Þjóðverja.
Það er haft eftir þýzkum kapteini,
Schröder að nafni, að 152 þýzk kaup-
för hafi verið skotin i kaf eða farist
á tUndurduflum síðan ófriðurinn hófst.
Báru þau samtals 452,000 smálestir.
267 skip, sem bera að samtöldu
807,000 smálestir hafa bandamenn
geit upptæk og nota nú í sína þágu.
621 kaupfar, samtals 2,341,000 smá-
lestir, eru kyrsett í hlutlausum höfn-
um. I Þýzkalandi sjálfu eru 490
kaupför, sem bera samtals 2,400,000
smálestir.
Með öðrum orðum, Þjóðverjar hafa
mist 7,5% af verzlunarflota sínum,
13,4% er í höndum bandamanna,
39,i% er 1 hlutlausum höfnum, en
40% að eins eru heima í Þýzkalandi.
Gildra.
Skipstjóri á hollenzku gufuskipi
segir þessa skringilegu sögu:
Eg var á skipi mínu í Biskayjaflóa
þegar loftskeytamaðurinn fékk loft-
skeyti á ensku er hljóðaði svo: Bjarg-
ið okkurl — og svo lega skipsins,
sem loftskeytið var sent frá. — Eg
stýrði skipinu þegar á staðinn, en
þegar þangað kom var þar ekkert
brezkt skip, heldur þýzkur kafbátur.
Varð kafbátsforinginn leiður yfir því,
að hafa ómakað hollenzkt skip til
sin og símaði þegar aftur: Þér þurfið
ekki að bjarga okkur. Við vildum
fá Breta til þess.
nýjn bíó_________
Stóri
gimsteinninn
Stórkostlegur leynilögreglusjón-
leikur í þrem þáttum,
leikinn af amerískum leikendum.
Það getur tæpast áhrifameiri
ieik heldur en þar sem sýnd
er viðureign hinnar fögru jung-
frú Grace og Armands greifa
við þorparann fames Heriot —
forsprakka glæpamannafélagsins
»Hauskúpan< — —
Myndin er leikin í Suður-Afr.,
N.-York, Parfs, London.
Myndin stendur yfir 1 ‘/a kl.st.
Tðlusett sæti.
Mótorbátur
ca. 20—28 tonn,
éskast til kaups eða leigu.
Væntanlegir seljendur eða leig-
jendur snúi sér til
Jóns Þórðarsonar,
ísafoldarprentsmiðju.
Hringurinn
heldur
stóra hlutaveltu
í Good-Templarahúsinu í Hafnarfirði
laugardaginn 20. þ. m. kl. 8 síðd.
Dans á eftir.
Kaupið Morgunblaðið.
Vinna!
Ur óprentuöu bréfí frá Jónas Lie.
-------Jæja, nú eru jólin liðin og
nú verða menn aftur að spýta í lóf-
ana og hefja vinnu að nýju. Ann-
ars get eg ekki hugsað mér neitt
skelfilegra, heldur en. það, ef maður
væri dæmdur til þess að vera iðju-
laus, til dæmis að ganga með hend-
ur i vösum i heilt ár. Eg ímynda
mér, að helvíti sé það, að guð dæmi
mann til þess að vera iðjulaus-------------