Morgunblaðið - 19.01.1917, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Síðustn kröfnr bandamanna.
Kröfur þær, sem bindamenn gerðu
til Grikkja ndna um ár.imóti , eru
þessar:
Hinar grísku hersveitir i öiium
héruðum landsins að Peloponnes
undanskildu, skuli eigi vera skipnð-
ar fleiri mönnum en rétt svo að
þær geti haldið uppi lögreglu. Öil
vopn og skotfæri, sem þessar her-
sveitir þurfa eigi, skulu flytjast til
Peloponnes, og ennfremur allar hríð-
skotabyssur og falibyssur, þannig að
fyrir utan Peloponnes séu engin
þau hergögn, sem nauðsynleg eru
tii liðssamdráttar. þ.ið skai fara eftir
samningum hvenær þetta er gert.
Og þetta skipulag skal haldast eins
lengi og stjórnir bandamanna álita
nauðsynlegt og verður undir um-
sjón sérstakra manaa, sem banda-
menn velja í því skyni.
Peloponnes (Mo-ea)
Hér má sjá þann hluta af Gnkk
landi, er bandamenu hafa hrakið
Konsta* tin konung lil. Er hann
metktur tneð strykum. Getur
hver maður séð hve létt banda-
mönnum mun veita að hneppa
her Grikkja í heikvl, þegar þeir
hafa fengið hann þar á einn
tað.
Banna skal »reservistum« að koma
saman og halda fundi fyrir norðan
Korinthu-eyði og þess skal strang-
lega gætt að borgarar beri ekki
vopn.
Bandamönnum skal frjálst að hafa
ýmiskonar eftirlit með þessu á þann
hátt, er verður að samkomulagi með
þeim og grísku stjórninni, til þess
að það verði eigi tilfinnanlegra en
þörf er á.
Állir menn, sem hneptir hafa verið
i varðhald af pólitískum ástæðum,
kærðir fyrir landráð, samsæri eða
upphlaup eða einhverja yfirsjón 1
Reynslan er sannleikur.
Olíufötin
frá okkur hafa nii fengið 9 ára reynslu hér og allir þeir sem reynt
hafa þau lúka lofsorði á þau; óþektar tegundir höfum við ekki viljað
taka í stað þeirra r e y n d u, því reynslan er sannleikur.
Undir oliufötunum okkar verðið þið þurrir.
Austurstræti 1.
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.
sambandi við það, skulu þegar i stað
lausir látnir. Þeim mönnum, sem að
ósekju hafa orðið fyrir óþægindum
vegna atburða þeirra er gerðust i. og
2. desember (þegar upphlaupin voru
í Aþenuborg), skal gjalda fullar skaða-
bætur, eftir rannsókn er fram skal
fara að samráði grísku stjórnarinnar
og stjórna bandamanna:
Foringinn fyrir i. her Grikkja
er sviftnr stöðu sinni, nema þvi að
eins að stjórnin geti sannfært stjórn-
ir bandamanna um það, að þetta eigi
að koma niður á öðrum herforingja,
er beri ábyrgð á fyrirskipunum þeim,
er út voru gefnar i. desember.
Gríska stjórnin skal biðja sendi-
herra bandamanna afsökunar. Fánar
Breta, Frakka, Rússa og ítala skulu
hátíðlega hyltir á opinberum stað í
Aþenuborg í viðurvist hermálaráð-
herrans og alls setuliðsins. Jafnframt
hefir sendiherrum bandamanna verið
falið að minna grísku stjórnina á
það, að hernaðarnauðsyn geti það
orðið fyrir bandamenn bráðlega, að
setja herlið á land og flytja það með
Larissa-járnbrautinni til Saloniki.
Bandamenn áskilja sér fullkomlega
óbundnar hendur um það, hvað þeir
kunna að gera, ef gríska stjórnin
gefur þeim síðar ástæðu til nýrra
kvartana. En á hinn bóginn skuld-
binda þeir sig til þess að gæta þess,
að her Venizélosar noti ekki burt-
för konungshersins frá Þessaliu og
Epirus til þess að fara yfir landa-
merki þau, er sett hafa verið í sam-
ráði við grísku stjórnina. Hafnbann-
inu á Grikklandi mun haldið áfram
þangað til öllum þessum kröfum
hefir verið fullnægt.
Maður druknar.
Þegar Island var farið frá Vest-
mannaeyjum nú síðast, fóru tveir
menn, sem verið höfðu við afferm-
ingu skipsins, að Ieggja vélbáti á
höfninni og höfðu lítinn bát i eftir-
dragi, til þess að komast á land eft-
ir að hafa fest bátnum. A leiðinni
fauk húfan af öðrum manninum
og afréð hann að fara i litla bátn-
um og ná í húfuna. Myrkur var þá
komið.
Hinn maðurinn hélt ifram með
mótorbitinn og bjóst við því að
verða sóttur að vörmu spori. Eftir
langa bið fór hann til lands i mótor-
bátnum og fann þá bátinn á hvolfi
rekinn á land — og félagi hans
hafði orðið fasíur undir þóftunni og
var örendur.
Maðurinn sem druknaði var Sig-
urður Gunnarsson frá Hólmum i
Landeyjum. Var hann um eitt skeið
málari hér í bænum.
££K3 DAÖBÖRJIN.
Veðrið í gær.
Flmtudaginn 18. jan.
Vm. a. hvassviðri, hiti 4.0
Rv. 8.8.v. kaldi, hiti 3.4
íf. logn, hiti ð.O
Ak. s. gola, frost 1.5
Gr. s. gola, 0.0
Sf. s.v. kaldi, hiti 5.1
Þh. v.s.v. kul, hiti 3.6
Njörður kom frá Bretlandi í gær-
morgun. Skipið hafði meðferðis 47
poka af pósti.
Jón Trausti. Sagan, sem Jón Trausti
ritaði fyrir Jólablað Morgunblaðsins
1915, >Bryddir skór«, kemur bráðlega
út í enskri þýðingu í tímaritið Scandi-
navian Review sem gefið er út í New
York. Sá sem þ/ðir er Jacob Her-
mann, kennari f germönskum málum
við College of City of New York.
Þá er önnur saga eftir Jón Trausta
»Ljósið í turninum« væntanlegt f
danskri þ/ðingu bráðlega í tíroaritinu
»Hjemmets Almanak«. En sá sem
sér um útgáfu þess, er Vilh. Wester-
gaard.
Klubburinn hólt dansskemtun fyrir
börn félagsmanua í Iðnó í gær. Hófst
skemtuninn kl. 5 síðd. og var dansað
og gleðiskapur mikill fram yfir mið-
nætti.
Að þessu sinni seldi matreiðsluskól-
inn ekki matinn, heldur var matur
fluttur niður í Iðnó til fólksins, en
margir hurfu heim um hríð til þess að
matast.
Nýr bankastjóri. Magnús Sigurðsson
lögfræðingur hefir verið skipaður banka-
stjóri við Landsbanka íslands í stað
Björns Sigurðssonar, sem væntanlega
á þá að dvelja framvegis í London.
Síðan Björn fór hóðan af landi, hefir
Oddur Gíslason yfirróttarmálfærslumað-
ur gengt hans embætti í bankanum.
Bæjarfógetaembættið. Heyrst heflr
að f það embætti muni verða skipaður
frá næstu mánaðarmótum Sigurður
Eggerz fyrv. ráðherra.
Tófuskinn
kaupa háu verði.
Jóh. Olaísson & Co..
Sími 584. Lækjargötu 6 A.
Auglýsmg
Lóðarblettur uudir lítið hús ósk--
ast til kaups, helst í Vesturbænum.
Tilboð I lokuðu umslagi sendist af-
greiðslu Morgunblaðsins merkt 500
fyrir 10. febr. n. k.
Bozt uð auglýsa i Morgimbl.
Madressnr og koddar
selt mjög ódýrt hjá
Eggert Kristjánssyni,
Grettisgötu 44 A
Simi 646.
Brnni. Aðfaranótt miðvikudags
kvikuaði eidur í Schoushúsi við Vestur-
götu. — Unglingspiitur b/r þar uppi
á efsta lofti. Um kl. 12l/4 kviknaði
eldur í gluggatjöldunum, út frá lamp-
anum. Vaknaði fólk f húsinu við það
og kom þegar piltinum til hjálpar.
Tókst að slökkva eldinn að vörmu
spori, en þá hafði hann eytt bæði
gluggatjöldunum og rúmfötum piltsins.
Brunaiiðið var kallað, en að eins
sa brunamanna, sem fyrstur kom á
vettvang, komst upp á loftið og hjálp-
aði til þeas að slökkva. — Stúlka
nokkur, sem þar b/r í húsinu, brendi
sig dálítið, en ekki svo að hún hafi
mein af.
Bruni í Hafnarfirðl. í fyrradag
kviknaði eldur í sölubúð Gríms And-
róssonar & Co. í Hafnarfirði. Var
slökkviliðið þegar kallað saman og
tókst þvf brátt að slökkva eldinn.
Skemdir urðu töluverðar á vörum,
sem sumpart brunnu og sumparfc
skemdust af vatni, Ókunnugt um upp«
tök eldsins.
ísland fer hóðan ifklega á mánu-
daginn.
Hlntafélagið Hólar heitir n/tt fólag,
sem Arni Böðvarsson er framkvæmdar-
stjóri fyrir, og ætlar það að annast
sfldarsöltun á Siglufirði f sumar. Hlut-
hafar eru flestir danskir.
Likbrensla.
Borgin Stavanger í Noregi hefir
ákveðið að kaupa likbrensluofn, og
er áætlað að hann muni kosta um
180,000 krónur.
Reykjavik er álíka stór bær. Ec
hvenær fáum við líkbrenslu?